Heilbrigðismál - 01.06.1995, Page 7

Heilbrigðismál - 01.06.1995, Page 7
Feitar konur Konur eru sífellt að berjast við aukakílóin, einkum vegna þess að það þykir ekki fínt að vera of feitur. En nýjar niðurstöður úr rannsókn sem gerð var á vegum Harvardháskóla sýna að jafnvel fá aukakíló geta verið hættuleg heilsunni. Þær konur sem bæta á sig 5-10 kílógrömmum á fullorðinsaldri auka með því hættuna á hjartasjúk- dómum um fjórðung. Þær sem bæta á sig meiru en 20 kílógrömm- um eru í þrefalt meiri hættu. Walter Willett prófessor, sem stjórnaði rannsókninni, segir að ekki sé ráð nema í tíma sé tekið. Bregðast verði við strax og þyngdin fer að aukast, borða minna og hreyfa sig meira. Harvard Health Letter, maí 1995. Einn tómatur á dag ... Fólk sem borðar ferska tómata sjö sinnum í viku er í helmingi minni hættu á að fá maga- krabbamein eða ristil- krabbamein heldur en þeir sem borða tómata tvisvar í viku eða sjaldn- ar. Þetta sýndu rannsókn- ir frá norðurhluta Ítalíu. Rannsóknir sem gerðar voru á vegum Harvard- háskóla fyrir nokkrum árum gáfu svipaða niður- stöðu. Talið er að þetta megi skýra með því að í tómötum er sindurvörn (antioxidant) sem nefnist lycopene. Einnig hefur verið bent á að í tómöt- um eru tvær sýrur sem teljast til fenóla og draga úr myndun á nítrósamín- um, en þau eru krabba- meinsvaldar. Prevention, apríl 1995. Fróðleiksmolar • Þeir sem hlusta á tón- list meðan æft er á þrek- hjóli halda út þriðjungi lengur en aðrir. • Hægt er að minnka hættu á sykursýki með því að borða lax reglu- lega. Lúða og makríll gera sennilega svipað gagn- • Líkur benda til að grannvaxnir karlmenn sem fá ístru borði of mik- ið rétt fyrir svefninn. • Þægilegir stólar og hlý- leg innrétting á biðstof- um dregur úr kvíða þeirra sem eru að fara til læknis. • Líkamsrækt er eitt áhrifaríkasta ráðið við þunglyndi. Living, descmbcr 1994. Men's Health, júní 1995. Léttari lund hjá piltum Þunglyndi er sex sinn- um algengara meðal ungra stúlkna en drengja, samkvæmt írskri rann- sókn. Börn sem eiga vanda til þunglyndis eiga á hættu að þjást af þessu vandamáli á fullorðins- aldri. Health & Fitness, maí 1995. Betri árangur eftir barneign Meðganga og fæðing þarf ekki að hafa slæm áhrif á afrekskonur í íþróttum. Að sjálfsögðu verða þær að leggja æf- ingaskóna á hilluna um tíma en margar þeirra telja að meðgangan hafi góð áhrif á þol og þrek þegar frá líður. Jafnvel eru dæmi þess að konur nái besta árangri sínum í kjölfar barneignar. Health & Fitness, maí 1995. Háleitt mið Alþjóða heilbrigðis- málastofnunin stefnir að því að útrýma lömunar- veiki (mænusótt) um all- an heim fyrir næstu alda- mót. Um átta af hverjum tíu börnum fá nú full- nægjandi bólusetningu en talið er raunhæft að bæta þann árangur á næstu árum. Ástandið er einna verst á Indlandi, í vestanverðri Afríku og í miðhluta álfunnar. World Health, mars 1995. Lífshættuleg loftmengun í þeim borgum Banda- ríkjanna þar sem loft- mengun er mest er dán- artíðni 15% hærri en í borgum þar sem mengun er minnst, samkvæmt rannsókn sem gerð var á vegum Harvardháskóla og náði til meira en hálfrar milljónar manna í 150 borgum. Fólk með lungnasjúkdóma er í mestri hættu að þessu leyti. American Health, maí 1995. Það sem einkennir holl- ustuumræðuna vestan- hafs er hin mikla áhersla sem lögð er á neyslu grænmetis. Með öllum kjöt- og fisk- réttum á að bera fram fjölbreytt grænmeti. Þá er mikilvægt að hafa girnilega ávexti á morg- unverðarborði og ekki má gleyma að hafa banana, vínber, jarðar- ber og aðra ávexti sem grípa má til milli mála í stað sætrar og feitrar fæðu. HEILBRIGÐISMÁL 2/1995 7

x

Heilbrigðismál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.