Heilbrigðismál - 01.06.1995, Side 25

Heilbrigðismál - 01.06.1995, Side 25
Tómas Jór Kominn tími til að rækta heilbrigði í stað sjúkdóma Grein eftir Arna Gunnarsson Einn helsti forystumaður nátt- úrulækningahreyfingarinnar á ís- landi, Jónas Kristjánsson læknir, lauk mörgum blaða- og tímarita- greinum með eftirfarandi setningu: „Heilsuvernd er betri en nokkur lækning." Enginn getur andmælt þessari staðhæfingu né neitað þeim gömlu sannindum að betra sé heilt en vel gróið. Og er ekki mikill sannleikur fólginn í því að stór hluti mannkyns eigi ekki í höggi við sjúkdóma heldur rangar lífs- venjur, hvort sem þær má rekja til örbirgðar eða ofgnóttar? Talið er að hinn þekkti gríski læknir Hippókrates, sem fæddist árið 460 fyrir Krist, hafi orðið 109 ára gamall, væntanlega vegna hollra lífsvenja. Hann lagði áherslu á að sérhver læknir lærði sem mest af náttúrunni og leitaðist við að komast að því hvaða samband væri á milli fæðu mannsins og heilbrigði hans. Hippókrates vildi að hver maður ræktaði sína eigin heil- brigði. Enginn vafi leikur á því að hver einstaklingur getur ráðið talsverðu og jafnvel miklu um líkamlegt og andlegt ástand sitt. Ekki þarf að leiða rök að því. En alltof fáir eru sinnar gæfu smiðir á þessu sviði. Ástæðan fyrir því er meðal annars sú að hugsun og umræða um sjúk- dóma yfirgnæfir alla umfjöllun um stöðu og þróun heilbrigðismála. Gagnrýnin umræða um skynsam- lega þróun lækninga, forvarnir, fræðslustarf og eiginlega ræktun heilbrigði kemst ekki að. Margir setja samasemmerki á milli heil- brigðismála og sjúkdóma. Og alltof margir lifa og hrærast í sjúkdóm- um; horfa ekki út fyrir þröngt lækningasviðið. Það er orðið mjög tímabært að endurskoða meðferð fjármuna sem fara til heilbrigðismála. Ábyrgðina á heilsu almennings verður að færa yfir til einstaklinganna og gera þá sjálfa meðvitaða um „gæðastuðla" heilbrigðs lífs. Hinar neikvæðu hliðar velferðarkerfisins hafa orðið þess valdandi, að ábyrgðinni hefur verið varpað á lítt skilgreindan heilbrigðisgeira og starfsmenn inn- an hans. Krafan um lækningu og bata beinist í eina átt. Allir telja sig eiga inni hjá samfélaginu, hvort sem þeir hafa ræktað með sér sjúk- dómana eða ekki. Hér þarf að móta nýja stefnu, allt frá því að skilning- ur barns vaknar; rækta trú á heil- brigði. Læknar og aðrar heilbrigðis- stéttir verða að hafa forgöngu um breyttar áherslur. Vilmundur Jónsson landlæknir þótti stundum harður í horn að taka þegar honum mislfkaði. Oft hlaut hann ákúrur fyrir hjá starfs- bræðrum og fleirum. Eg vitna ósjaldan í grein sem Vilmundur skrifaði árið 1933. Þar mótar hann og skilgreinir hugsun í fáurn og meitluðum setningum, hugsun sem þyrfti að verða almennara um- Allir telja sig eiga inni hjá samfélaginu, hvort sem þeir hafa ræktað með sér sjúk- dómana eða ekki. Hér þarf að móta nýja stefnu. Núverandi kerfi er löngu gjaldþrota og mun komast í ennþá meiri ógöngur á næstu misserum og árum ef trúin á heilbrigði fær ekki meiri hljóm- grunn en nú er. ræðuefni og umhugsunarefni en verið hefur. Vilmundur segir m.a.: „Læknar nútíðarinnar standa undir merki sjúkdómanna og helga sig þeim. Við lærum nær eingöngu um sjúk- dóma, og að því leyti, sem við fræðum almenning, fræðum við hann nær eingöngu um sjúkdóma, sem er von, því að heilbrigði þekkj- um við varla nema að nafninu til. Sjúkdómarnir eru viðurkenndir, sjálfsagðir, læknir á aðeins að vera við höndina til að lækna þá svo vel sem það gengur . . . Að slepptum öllum syndum þjóðfélagsins gegn almennri heilbrigði, sem það gleymir af umhyggju sinni fyrir öll- um sjúkdómum, er fjölda margt fólk veikt, af því að það vill vera veikt." Vilmundur fjallar síðan um lækna og sjúkdóma og segir: „Læknar framtíðarinnar munu aft- ur á móti skipa sér undir merki heilbrigðinnar. Þá verður heilbrigð- in talin jafnsjálfsögð og sjúkdóm- arnir nú og læknarnir verða fyrst og fremst verðir heilbrigðinnar. Önnur störf þeirra verða aukastörf. Þá læra læknarnir fyrst og fremst um heilbrigði, kenna um heilbrigði, rækta heilbrigði, trúa á heilbrigði og lifa á heilbrigði." Ekki tel ég að Vilmundur hafi með þessum skrifum ætlað sér að gera lítið úr störfum lækna heldur að hvetja þá til breyttra starfshátta og að fá nýjar áherslur í störf þeirra. Þessi herhvöt Vilmundar er í fullu gildi enn þann dag í dag. Hún beinist að öllu starfsfólki heil- brigðiskerfisins. Núverandi kerfi er löngu gjaldþrota og mun komast í ennþá meiri ógöngur á næstu miss- erum og árum ef trúin á heilbrigði fær ekki meiri hljómgrunn en nú er. Árni Gunnarsson erforstjóri Heilsu- stofnunar NLFÍ í Hveragerði. Hann var áður fréttamaður og alþingismaður og um skeið formaður stjórnarnefndar Ríkisspítala. HEILBRIGÐISMÁL 2/1995 25

x

Heilbrigðismál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.