Heilbrigðismál - 01.06.1995, Side 26

Heilbrigðismál - 01.06.1995, Side 26
Krabbamein í blöðruhálskirtli: Oft álitamál hvað á að gera mikið Sjúkdómar í blöðruhálskirtli eru oftast góðkynja en þó verður ekki horft fram hjá þeirri staðreynd að krabbamein í blöðruhálskirtli er al- gengasta krabbameinið meðal ís- lenskra karla. Árið 1993 greindust 113 íslend- ingar með sjúkdóminn og það ár létust 32 af völdum hans. Fjöldi nýgreindra hefur aukist mikið síð- ustu áratugi og spáð er áframhald- andi aukningu. Þessa aukningu er að hluta til hægt að skýra með fjölgun aldraðra og bættri greining- artækni. Leynir á sér Ef grannt er skoðað má finna krabbameinsfrumur í blöðruháls- kirtli hjá allt að helmingi karla sem komnir eru yfir miðjan aldur. Meiri líkur eru til þess að vart verði við sjúkdóminn eftir því sem menn verða eldri og því er hár aldur einn helsti „áhættuþátturinn". Tveir af hverjum þremur sjúklingum eru yf- ir sjötugt þegar þeir greinast. Þar sem krabbameinið vex oftast hægt Margir þekktir menn hafa greinst með krabbamein í blöðruháls- kirtli. Francois Mitterand barðist við blöðruhálskirtilskrabbamein á síðustu starfsárum sínum sem for- seti Frakklands. Sjaldgæft er að sjúkdómurinn greinist fyrir sex- Grein eftir Eirík Jónsson og greinist gjarnan hjá eldri karl- mönnum verða oft aðrir sjúkdómar til að leggja þá að velli. Gildir þetta sérstaklega ef sjúkdómurinn hefur ekki dreift sér út fyrir kirtilinn við greiningu. Krabbameinið getur þó vaxið hratt, greinst hjá yngri karl- mönnum og valdið verulegum óþægindum og ótímabærum dauða. Líta má svo á að sjúkdóm- urinn hafi a.m.k. þrjú andlit: 1) Veldur aldrei einkennum. 2) Veldur einkennum en ekki dauða. 3) Veldur dauða. Sú spurning er því áleitin hvern- ig hægt sé að finna í tæka tíð þá sem hafa sjúkdóm sem gæti valdið þeim óþægindum eða ótímabærum dauða. Mikilvægt er að geta skilið þá frá sem líklegt er að hafi ekki vandræði af sjúkdómnum og hlífa þeim þar með við meðferð og af- leiðingum hennar. Ef meðferðar er þörf eru líkur á lækningu bestar ef sjúkdómurinn er staðbundinn við greiningu, en þá er átt við að hann hafi ekki vaxið inn í aðliggjandi líf- tugt en tónlistarmaðurinn Frank Zappa lést þó úr honum fyrir tveim árum, 52 ára. Robert Dole leiðtogi Repúblíkana á Banda- ríkjaþingi og væntanlegur forseta- frambjóðandi er sagður hafa læknast af sínum sjúkdómi. færi eða borist til eitla eða beina. Lækning á staðbundnum sjúkdómi felst annað hvort í geislameðferð eða með brottnámi kirtilsins. Báðar aðferðirnar fela í sér hættu á fylgi- kvillum sem meðal annars geta haft áhrif á þvaglát, þvagstjórnun og kyngetu. Einkenni sjúkdómsins eru oft lítil en sjúklingar leita gjarnan til læknis vegna einkenna frá þvagfærum sem oftar eru vegna góðkynja stækkunnar eða bólgu í blöðru- hálskirtlinum. Algengustu einkenni eru þvagtregða, tíð þvaglát, ófull- komin blöðrutæming og nætur- þvaglát. Blöðruhálskirtillinn er þá þreifaður um endaþarm og getur fundist hnútur eða hersli í kirtlin- um sem síðan reynist vera krabba- mein þrátt fyrir að einkennin séu einkum af völdum góðkynja stækk- unar. Útbreiðslan skiptir máli Oft finnst ekkert annað en góð- kynja stækkun við þreifingu en ef viðkomandi fer í skurðaðgerð þar sem kirtillinn er „heflaður út" í gegnum blöðrusjá geta fundist krabbameinsfrumur innan um góð- kynja stækkun þegar spænirnir eru skoðaðir undir smásjá. Þetta gerist hjá einum af hverjum tíu sem fara í þessa aðgerð. Krabbameinið er þá sagt vera á stigi A. Ef krabbameinið er einungis í nokkrum bitanna og hefur góð- kynja útlit við smásjárskoðun eru litlar líkur á að það hafi nokkra þýðingu og ekki er þörf á meðferð. Öðru máli gegnir ef bitarnir eru fleiri og hafa illkynja útlit undir smásjánni. í fyrra tilvikinu er talað um að sjúkdómurinn sé á stigi A-1 en í því síðara á stigi A-2. Krabbameinið er sagt vera á stigi B finnist það við þreifingu og virð- ist vera innan marka kirtilsins. Á síðustu árum, með tilkomu PSA blóðprófsins, finnst stundum hækkað mæligildi sem síðan leiðir 26 HEILBRIGÐISMÁL 2/1995

x

Heilbrigðismál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.