Heilbrigðismál - 01.06.1995, Blaðsíða 32
Tómas Jc
Aðalfundur Krabbameinsfélags íslands:
Mikil áhersla á málefni krabbameinssjúklinga
eignum sínum, samtals 4,2 millj-
ónum króna. Áður hafði hún af-
hent félaginu 3,5 milljónir króna.
Þórunn Guðlaugsdóttir, sem lést
nýlega, arfleiddi félagið að tveim
lóðum við Einimel í Reykjavík og
Kristín Björnsdóttir, sem starfaði
lengi hjá Sameinuðu þjóðunum
og lést nýlega, arfleiddi félagið
að helmingi eigna sinna. Stofnað-
ur verður sjóður í hennar nafni
til að styrkja rannsóknir á
krabbameini í börnum.
Á aðalfundi Krabbameinsfé-
lagsins voru samþykktar tvær
ályktanir um tóbaksmál. í ann-
arri þeirra var skorað á heilbrigð-
isráðherra að tryggja frumvarpi
til tóbaksvarnalaga framgang. í
hinni ályktuninni voru þeir sem
móta stefnu og starf fjölmiðla,
framleiða kvikmyndir og tónlist-
arbönd og setja upp leiksýningar,
hvattir til að huga að því, hvern-
ig megi forðast, að þessir áhrifa-
miklu miðlar stuðli að útbreiðslu
tóbaksneyslu. -jr.
Ibúðirnar fyrir krabbameins-
sjúklinga af landsbyggðinni eru
hinar vistlegustu.
Jón Þ. Hallgrímsson formaður
Krabbameinsfélagsins íslands
ávarpar aðalfund félagsins.
„Mikilvægt er að skapa
krabbameinssjúklingum af lands-
byggðinni og aðstandendum
þeirra aðstöðu til að dvelja í ró
og næði í Reykjavík meðan á
meðferð stendur," sagði Jón Þor-
geir Hallgrímsson formaður
Krabbameinsfélags íslands á að-
alfundi félagsins í sumar. Hann
sagði að í þessum tilgangi hefðu
Krabbameinsfélagið og Rauði
kross íslands nú keypt þrjár
íbúðir á Rauðarárstíg 33, enda
hafi komið í ljós að mikil þörf sé
fyrir slíkar íbúðir. Félagið hefur
lagt mikla áherslu á málefni sjúkl-
inga. Síðustu ár hefur Krabba-
meinsfélagið boðið sjúklingum á
höfuðborgarsvæðinu þjónustu
sem nefnd er Heimahlynning og
miðar að því að þeir geti dvalist
eins lengi heima og unnt er.
Hefur verið sýnt fram á ótvírætt
hagræði af þessari starfsemi.
Að undanförnu hefur verið
rætt um að koma á fót Krabba-
meinsrannsóknastofnun íslands
með það að markmiði að tengja
betur saman þá sem stunda
krabbameinsrannsóknir á ís-
landi, nýta fágætan íslenskan
efnivið og auka þannig mögu-
leika íslensks vísindafólks á al-
þjóðavettvangi. Þessar umræður
hafa leitt til þess að stofnuð hafa
verið Samtök um krabbameins-
rannsóknir á íslandi og hafa þau
haldið fræðslufundi og ráð-
stefnur. í þessu sambandi má
geta þess að Krabbameinsfélagið
hefur ásamt öðrum lagt fram fé
til að greiða kostnað við nýja
kennslustöðu í krabbameins-
lækningum við læknadeild Há-
skóla íslands næstu þrjú ár.
Það kom fram á aðalfundinum
að langt er síðan Krabbameinsfé-
laginu hafa borist jafn stórar gjaf-
ir og á síðasta starfsári. Anna
Sveinsdóttir, sem lést haustið
1994, arfleiddi félagið að öllum
32 HEILBRIGÐISMÁL 2/1995