Samtíðin - 01.10.1940, Síða 27
SAMTÍÐIN
23
vaxnar, samkvæmt framangreind-
um kröfum.
— HvaÖ her þá amerískur kven-
lögregluþjónn úr býtum fyrir hið
mikla og vandasama starf sitt? munu
menri spyrja.
Kaupið er frá 2—3000 dollurum, á
ári, og eftirlaunin eru mjög sæmi-
leg. Reynist konan prýðilega í starfi
sínu, ber hún vanalega sama kanp
úr býtum og karlmaður. En það er
ekki nóg, að hún sé góð i langstökki,
bafi stúdentsmentun o. s. frv. Til
þess að geta orðið lögregluþjónn,
verður hún að ganga á lögregluskóla.
Þar sitja nú þessar 20 hamingjusömu
stúlkur, sem valdar voru á dögun-
um úr 3000 kvenria hópi vestur i
New York, belgtroðnar við að læra
refsilöggjöf, livers kyns bókleg lög-
regluvísindi, alls konar líkanilegar
æfingar og glímuln-ögð. Eftir nokkra
mánuði sendir skólinn þær út í lífið
— annars vegar til mannúðarstarfa,
liins vegar til þrotlausrar baráttu við
glæpafólkið á refilsligum miljóna-
bæjarins.
Úr bréfi
Hr. ritstjóri.
Ég get ekki stilt mig um, að þakka yð-
ur fyrir niðurlagsorðin í greininni „Ó-
framfærinn einræðisherra“, enda þótt
heftið flytji margt skemtilegt og fróðlegt,
þú er ég nú svona gerður, að þetta hreif
mig mest, þegar ég las síðustu Samtiðina.
Það er eins og maður komi í hreint fjalla-
loft, úr kaupstaðamollu. Ég er búinn að
niarglesa niðurlag greinarinnar, og ég
hrosi ekki af ánægju yfir því, ég bara
hlæ bókstaflega.
Virðingarfylst.
Hreiðar E. Geirdal.
Ameríka -
ísland
Ef yður vantar sambönd við
ameríska framleiðendur, þá
munið, aS þar sem vér höf-
um skrifstofu opna í New
York, getum vér ætíS gefið
ySur best og íljótast tilboS í
alls konar vörur frá Ameríku
79 Wall Street, New York
og
Hafnarhúsinu, Reykjavík —
Sími 5820
Steiniðjan í
Rauðarárholti
framleiðir úr íslenskum steini:
Hellur á tröppur, stiga og
gólf, sólbekki, hellur yfir
miðstöðvarofna, borðplöt-
ur, eldstór (Kaminur) o.fl.
Upplýsingar um þessa
framleiðslu veitir:
Magnús G. Guðnason,
steinsmíðaverkstæði
Grettisgötu 29, sími 4254, Rvík.
sem framleiðir eins og áður leg-
steina í fjölbreyttu úrvali. —