Samtíðin - 01.02.1943, Side 10
6
SAMTÍÐIN
og lánstraust þjóðarinnar að sínum
hluta, svo að á beri. 1 stríðinu frá
1914 til 1918 hækkuðu fasteignir i
verði, jafnt jarðir í sveit og hús i
kaupstöðum, en ekkert var sú
hækkun hjá þeirri gífurlegu hækk-
un, sem í þessu striði hefir orðið á
þeim, og þó einkum, á húsum í kaup-
stöðum, og þá sérstaklega hér i
Reykjavík. Jarðir eru nú ekki mik-
ið eftirsóttar. Veldur því fólksleysi
til vinnu og hátt kaupgjald í sveit-
um. Enn fremur hin geysimikla at-
vinna, sem, verið hefur. Hins vegar
hafa lnis, einkum í Reykjavík, hækk-
að svo í verði á s. 1. tveimur árum,
að ævintýrum er það likast. Keppzt
hefur liver við annan að hjóða upp
verð þeirra. Á s. 1. ári voru sum hús
hér í hænum seld fimm sinnum, og
munu hafa tvöfaldazt í verði á þessu
timabili. Á sama tímahili hefur liúsa-
leiga aðeins hækkað um 25%. Af
þessu hefur skapazt hið geigvænleg-
asta ástand. Sum, húsin gefa ekki í
leigutekjur nema ca. 5% af því verði,
sem ]iau hafa verið keypt fyrir. Sjá
því allir, í livílíkt óefni hér er kom-
ið. Margir húséigendur anna ekki
að standa straum af þessum liúsa-
kaupum sinum. Þeir verða því að
selja þau eftir stuttan eignartíma, ef
það er hægt, meðan eftirspurnin er.
En er kreppan kemur, sem hlýtur
að koma, fyrr en varir, verður gífui’-
legt verðhrun fasteigna, og fjöldi
rnanna, sem ke}rpt hefur i verðbólg-
unni, missir eignir sinar, verður
gjaldþrota og kemst á vonarvöl, eft-
ir allt þetta falska fjárbrask og
gengi.
ÞuRUNN SVEINSDÓTTIR:
Vetrarkvöld
Drífa þekur dali,
dökk er himinlind,
nístir norðansvali
nakinn fjallatind.
Blóma, er sumar seldi,
svæfðar eru brár.
Á frostrósa felldi
freðin blika tár.
Hæst á himinboga
hrærast stjörnur smá.
Norðurljósin loga,
leiftra til og frá.
Hátt í himinveldi
heiður máninn skín,
yfir kyrru kveldi
hvílir helgilín.
Svell með geisla glömpum
gleðja huga manns.
Skin frá Ioftsins lömpum
lýsir nú í dans.
Þjóð með fætur fima,
er fer um hála tjörn.
Út úr skuggum skima
skrítin álfabörn.
Syngur dátt á svelli
söngva þjóðin hraust,
óð úr fjalli og felli
flytur bergmálsraust.
Finnst oss fögur sýnum
foldin ísaköld,
falin faðmi þínnm,
fagra vetrarkvöld.
LEITIÐ UPPLÝSINGA UM VÁTRYGG-
INGAR HJÁ:
Nordisk Brandforsikring A/S.
Aðalumboð á fslandi Vesturgötu 7. Reykja-
vík. Sími 3569. — Pósthólf 1013.