Fréttablaðið - 06.01.2010, Blaðsíða 2
2 6. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR
Ágústa, hefur Reyksíminn ver-
ið rauðglóandi öll árin?
„Já, það rýkur yfirleitt úr honum.“
Reyksíminn, símaþjónusta fyrir þá sem
vilja hætta að reykja, er orðinn tíu ára
gamall. Ágústa Tryggvadóttir hefur starfað
hjá Reyksímanum frá árinu 2002.
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Hrogn
og Lifur
Glæný Línuýsa
úr Jökuldýpi
HROGN
OG LIFUR
Glæný Línuýsa
úr Jökuldýpi
LÖGREGLUMÁL Brasilíski gæsluvarð-
haldsfanginn Hosmany Ramos hót-
aði fangaverði lífláti um hádegis-
bilið í gær þegar verið var að færa
hann fyrir dómara, til framleng-
ingar á gæsluvarðhaldi hans, sam-
kvæmt upplýsingum Fréttablaðs-
ins. Áður hafði honum tekist að
útbúa á laun oddhvasst stungu-
vopn, sem hann hótaði fangaflutn-
ingamanninum með.
„Ég get staðfest að gæsluvarð-
haldsfanginn Hosmany Ramos
gerði tilraun til stroks frá flutn-
ingsmönnum Fangelsismála-
stofnunar vopnaður heimatilbúnu
eggvopni,“ segir Páll E. Winkel,
forstjóri Fangelsismálastofnunar,
spurður um atvikið. Að sögn Páls
var Ramos handjárnaður í fanga-
flutningabílnum. Hann var með
grisju á öðrum úlnliðnum vegna
meintra meiðsla þar. Grisjan varð
til þess að honum tókst að losa
annað handjárnið fram af hend-
inni.
Leiðin lá frá Hegningarhúsinu
að Héraðsdómi Reykjavíkur. Þegar
bíllinn var stöðvaður og dyr hans
opnaðar rauk Ramos út úr honum
og burt. Flutningsmennirnir hlupu
á eftir honum og lögreglubíl sem
var á næstu grösum var beygt í
veg fyrir hann. Þegar annar flutn-
ingsmannanna hugðist taka Ramos
sneri hann sér að honum og hótaði
honum lífláti með eggvopninu.
Hann var engu síður handsamað-
ur af flutningsmönnunum tveimur
og lögreglumanninum, innan við
mínútu frá flóttatilrauninni.
„Svo virðist sem strokið hafi
verið þaulskipulagt og eggvopn
það sem hann beitti vandlega gert,“
segir Páll enn fremur. „Við búum
við sífellt harðari heim brotamanna
og þessi rækilega undirbúna strokt-
ilraun er enn ein birtingarmynd
slíks. Ég er þó afar ánægður með
fangaverði og lögreglumann sem
handsömuðu fangann nánast sam-
stundis.“ Ekki liggur fyrir hvort
Ramos hafi átt sér vitorðsmenn en
málið er til rannsóknar hjá lögregl-
unni á höfuðborgarsvæðinu.
Hosmany, sem er á sjötugsaldri,
hefur tvívegis hlotið þunga dóma í
Brasilíu. Árið 1998 var hann dæmd-
ur í 24 ára fangelsi fyrir rán, mann-
rán og mótþróa við handtöku. Á Þor-
láksmessu í fyrra fékk Hosmany
leyfi til að vera heima yfir jólin
en sneri ekki aftur til afplánunar.
Skömmu síðar var gefin út hand-
tökuskipun á hendur honum.
Það var síðan 9. ágúst sem hann
var handtekinn á Keflavíkur-
flugvelli þegar hann framvísaði
vegabréfi bróður síns. Síðan þá
hefur hann setið í gæsluvarðhaldi.
Dómsmálaráðuneytið hefur fallist
á framsalsbeiðni brasilískra yfir-
valda varðandi hann.
jss@frettabladid.is
Hótaði fangaverði
lífláti í stroktilraun
Brasilíski gæsluvarðhaldsfanginn Hosmany Ramos hótaði fangaverði lífláti
með eggvopni í gær. Ramos reyndi að strjúka frá tveimur fangaflutningamönn-
um sem voru á leið með hann fyrir dómara til framlengingar á gæsluvarðhaldi.
AFGANISTAN, AP Sjálfsvígsárás-
armaður, sem varð í árslok átta
manns að bana í bækistöðvum
bandarísku leyniþjónustunnar
CIA í Afganistan, var í þjálfun hjá
leyniþjónustunni til gagnnjósna-
starfa.
Hann hafði sagst hafa upplýsing-
ar um Ayman al-Zawahri, næst-
ráðanda Osama bin Laden hjá Al
Kaída-samtökunum. Bandaríska
leyniþjónustan gerði sér vonir um
að hann gæti gengið í Al Kaída
á fölskum forsendum, en sent
Bandaríkjamönnum upplýsingar.
Fréttastofan AP hefur þetta eftir
ónafngreindum heimildarmönnum
innan CIA. - gb
Árásarmaður í Afganistan:
Starfaði fyrir
Bandaríkin
LÍK FRÁ AFGANISTAN Bandarískir her-
menn flytja félaga sinn heim.
SALÓMONSEYJAR, AP Um þúsund
manns á Salómonseyjum í vest-
anverðu Kyrrahafi misstu heimili
sitt þegar harður jarðskjálfti varð
skammt frá eyjunum á mánudag.
Aurskriður og öflug flóðbylgja,
sem varð allt að þriggja metra há,
eyðilögðu um 200 hús á eyjunni
Rendova, en þar búa um 3.600
manns. Engin meiðsl virðast hafa
orðið á mönnum.
Skjálftinn mældist 7,2 stig. Fyrir
tæpum tveimur árum varð þar
skjálfti, sem mældist 8,1 stig og
kostaði meira en 50 manns lífið. - gb
Hamfarir á Salómonseyjum:
Þúsund manns
heimilislausir
DÓMSMÁL Tveir karlmenn, 29 og
35 ára, hafa verið ákærðir fyrir
húsbrot, rán, eignaspjöll og til-
raun til fjárkúgunar.
Mönnunum er gefið að sök að
hafa ruðst inn á heimili manns
í Reykjanesbæ í febrúar, ráðist
á hann og meðal annars spark-
að í höfuð hans. Þeir hafi síðan
þvingað manninn upp í bíl og
annar þeirra setið við hlið hans
vopnaður hnífi og hótað honum
stórfelldum líkamsmeiðingum ef
hann greiddi þeim ekki skuld.
Þá segir í ákærunni að þeir hafi
hringt í fósturföður fórnarlambs
síns og hótað honum að gengið
yrði frá fóstursyni hans ef hann
sæi ekki til þess að skuldin yrði
greidd.
Annar maðurinn er Mikael Már
Pálsson. Mikael Már hlaut árið
2006 fjögurra ára fangelsisdóm
fyrir að hafa sent þrjá tvítuga
menn utan til að smygla til lands-
ins hálfu kílói af kókaíni, og að
hafa sjálfur smyglað til landsins
fjórum kílóum af amfetamíni.
Mikael er jafnframt ákærður
fyrir að hafa ekið bílnum undir
áhrifum áfengis og fíkniefna.
Félagi hans er ákærður fyrir að
hafa haft 29 grömm af amfetam-
íni í fórum sínum þegar hann var
handtekinn, sem hann reyndi að
losa sig við út um gluggann svo
lítið bæri á.
Ákæran verður þingfest í Hér-
aðsdómi Reykjaness á föstudag.
- sh
Tveir menn sakaðir um að hafa barið mann, numið hann á brott og hótað:
Ákærðir fyrir að ræna mann
REYKJANESBÆR Mennirnir ruddust inn
til þess þriðja og beittu hann ofbeldi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HOSMANY RAMOS Gæsluvarðhald var framlengt enn
einu sinni yfir brasilíska lýtalækninum Ramos í gær.
Hann hefur ætíð áfrýjað gæsluvarðhaldsúrskurðinum til
Hæstaréttar, án árangurs.
BANDARÍKIN Fólk sem smitað er af
HIV eða alnæmi getur ferðast til
Bandaríkjanna eftir að bann sem
staðið hafði í 22 ár var fellt úr
gildi á mánudag. Barack Obama
Bandaríkjaforseti segir að bann-
ið hafi rímað illa við áform lands-
ins um að vera í forystu í barátt-
unni við HIV og alnæmi.
Bannið var sett í lok níunda
áratugar síðustu aldar, þegar
mikill ótti var við heimsfarald-
ur sjúkdómsins, að því er fram
kemur í frétt BBC. Bandarík-
in fylltu þar flokk tólf ríkja með
sambærilegar reglur, þar á meðal
Líbíu og Sádi-Arabíu.
Bandarísk stjórnvöld búa sig
nú undir að halda stóra ráðstefnu
um alnæmi árið 2012. - bj
Umdeilt bann fellt úr gildi:
HIV-smitaðir
velkomnir
Sækja jólatrén
Víkingar hafa blásið til allsherjarsöfn-
unar á áhrifasvæði sínu í Fossvogi
og Smáíbúðahverfi. Safna á farsím-
um, dósum og rafhlöðum og einnig
bylgjupappa og plasti. Jólatrén verða
hirt gegn eitt þúsund króna gjaldi.
FÉLAGSSTARF
SAMGÖNGUR Farþegum sem fóru
um Keflavíkurflugvöll fækkaði
um 16,7 prósent milli síðasta árs
og ársins 2008. Alls fóru tæplega
1,7 milljónir ferðamanna um völl-
inn á nýliðnu ári, um 4.500 á dag,
samanborið við um 5.500 árið
áður, samkvæmt upplýsingum
frá Ferðamálastofu.
Fækkun var alla mánuði árs-
ins að desember undanskildum,
þegar farþegafjöldinn hélst hér
um bil í stað milli ára. Ekki liggja
fyrir upplýsingar um skiptingu
farþega hjá Ferðamálastofu eftir
þjóðerni enn sem komið er. - bj
Færri fara um flugvöllinn:
Fækkar um
17% milli ára
SPURNING DAGSINS
VINNUMARKAÐUR Tilkynnt var um
fimm hópuppagnir til Vinnumála-
stofnunar í desember þar sem
sagt var upp 167 manns. Um er að
ræða fyrirtæki í fiskvinnslu, iðn-
aði, verslun, flut ningastarfsemi og
upplýsinga- og útgáfustarfsemi.
Ástæður uppsagnanna eru verk-
efnaskortur, hráefnisskortur,
greiðslustöðvun og endurskipu-
lagning og rekstrarerfiðleikar.
Nokkrir hafa fengið ráðningu hjá
fyrirtækjum sem tóku yfir verk-
efni og stefnt er að endurráðning-
um í stöku tilvikum. Alls bárust
Vinnumálastofnun tilkynningar
um uppsagnir 1.789 manns í hóp-
uppsögnum á árinu 2009. - shá
Ótryggur vinnumarkaður:
Yfir fimmtíu
hópuppsagnir
LÖGREGLUMÁL Maðurinn sem situr
í gæsluvarðhaldi vegna samskipta
sinna við þrjár ungar stúlkur sem
hann komst í kynni við á Face-
book er grunaður um að hafa
haldið einni þeirra nauðugri á
heimili sínu yfir nótt og nauðgað
henni ítrekað. Jafnframt er
hann grunaður um að hafa haft
samræði við hinar tvær.
Eins og Fréttablaðið greindi
frá í gær hafa þrjár kærur borist
á hendur manninum, sem er tut-
tugu og tveggja ára. Stúlkurnar
voru þrettán, fjórtán og sextán
ára.
Elsta stúlkan kærði manninn
fyrir að hafa haldið sér nauðugri
á heimili hans í byrjun desember
og nauðgað sér. Grunur leikur á að
hann hafi haft uppi síendurtekið
afar ofbeldisfullt athæfi gagnvart
stúlkunni um nóttina. Hún fór á
neyðarmóttöku fyrir þolendur
kynferðisofbeldis í kjölfarið,
þar sem hlúð var að henni. Hún
var með töluverða áverka eftir
ofbeldisverk á höfði, í andliti og
víðs vegar um líkamann.
Aðstandendur hinna stúlknanna
hafa kært manninn fyrir að hafa
haft mök við stúlkur undir lög-
aldri. Málin eru öll til rannsókn-
ar hjá lögreglu höfuðborgarsvæð-
isins.
Búist er við kröfu um fram-
lengingu varðhalds yfir honum í
dag. - jss
TÖLVUBÚNAÐUR Lögregla rannsakar
meðal annars tölvubúnað mannsins,
sem grunur leikur á að innihaldi meðal
annars barnaklám.
Situr í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa tælt þrjár ungar stúlkur á Facebook:
Kærður fyrir að svipta stúlku
frelsi og nauðga henni ítrekað