Fréttablaðið - 28.01.2010, Page 18
18 28. janúar 2010 FIMMTUDAGUR
hagur heimilanna
Útgjöldin
> Meðalverð á 0,5 lítrum af Coca Cola
í dós í nóvember ár hvert.
Heimild: Hagstofa Íslands
Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi Orku-
veitu Reykjavíkur og fyrrverandi frétta-
maður, segir tvennt einkum koma til
greina þegar hann er inntur eftir því
hver eru hans bestu kaup á lífsleiðinni,
sem hann man eftir. Bæði tengjast
ferðalögum, þótt þau séu af ólíkum
toga.
„Þar berjast um fyrsta sætið Írans-
ferð, sem við hjónin fórum í vorið
2007, og var upplifun fyrir lífstíð, og
svo kaup okkar systkinanna á sumar-
húsi í Brekkuskógi um aldamótin,“ segir
Eiríkur. „Þau voru einkar hagstæð og við
njótum þeirra ómælt enn,“ bætir
hann við.
Eiríkur er hins vegar ekki í
sérstaklega miklum vafa þegar
kemur að því að benda á þau
kaup sem hann á auðveldast með að sjá
eftir.
„Það var Mustang sem ég keypti
mér á námsárunum í Bandaríkjun-
um,“ segir Eiríkur. Hann segist hafa
skoðað bílinn og keypt hann að
kvöldlagi, sem hafi eftir á að hyggja
verið mistök.
„Þótt hann hafi verið ódýr voru
það ákveðin vonbrigði, þegar ég
sá hann í dagsbirtu, að lakkið skyldi
vera alveg matt, dekkin eins og
skallinn á Bubba Morthens og búið
að púkka undir bílstjórasætið
með trékubbi. Hann entist nú
samt í tvö ár,“ bætir Eirík-
ur við og telur það
þrátt fyrir allt vera
nokkra sárabót.
NEYTANDINN: EIRÍKUR HJÁLMARSSON, UPPLÝSINGAFULLTRÚI ORKUVEITUNNAR
Mattur Mustang mestu vonbrigðin
Uppskriftir og ýmsar gagnlegar
upplýsingar er að finna á nýjum
umbúðum um íslenska tómata sem
nú er að finna í matvöruverslun-
um. Einnig fylgja bændur vörum
sínum úr hlaði með myndum af sér
á umbúðunum, þau Guðjón Birgis-
son og Helga Karlsdóttir á Melum
á Flúðum og Helena Hermundar-
dóttir og Knútur Rafn Ármann á
Friðheimum.
Umbúðirnar eru hluti af átaki
íslenskra grænmetisbænda sem
miðar að því að sýna neytend-
um glögglega hvaða grænmeti
er íslenskt. Í fréttatilkynningu
kemur fram að undanfarin ár hafi
orðið mikil breyting orðið á
pökkun og merkingum
á íslensku grænmeti,
umbúðirnar hafi
einnig aukið
geymsluþol
græn-
metis.
Gróðrarstöð grænmetis gefin upp á umbúðum:
Íslenskt grænmeti í
nýjum umbúðum
Nær 100 prósenta verðmunur er á
súrmat í fötu, samkvæmt nýrri könn-
un Neytendasamtakanna. Kílóverðið
er lægst í Bónus eða 1.361 króna en
hæst í Fjarðarkaupum, eða 2.690
krónur. Hringt var í nokkrar verslanir
og því ekki lagt mat á gæði súrmat-
arins. Svipuð könnun var gerð í fyrra
og var almenn hækkun um nokkur
prósentustig hjá verslunum nema hjá
Bónus. Þar var kílóverðið tæpum 500
krónum lægra í ár en í fyrra. Nánari
upplýsingar er að finna á vefsíðu
samtakanna www.ns.is.
■ Verðkönnun
100% verðmunur á
súrmat í fötu
Algengasta kílóverð á
roðlausum og beinlausum
ýsuflökum er á bilinu 1.390
til 1.490 krónur. Meðalverð
hjá þeim fjórtán fiskbúðum
sem gáfu upp verð í verð-
könnun Fréttablaðsins er
1.330 krónur.
Fimmtán prósenta verðmunur er á
hæsta og lægsta verði í verðkönnun
Fréttablaðsins á roðlausri og bein-
lausri ýsu. Hæsta kílóverðið er 1.495
krónur en það lægsta er 1.290 krón-
ur hjá Litlu fiskbúðinni í Hafnar-
firði. Jón Garðar Sigurvinsson, eig-
andi búðarinnar, segir ýsuna alltaf
vinsæla, en sömuleiðis tilbúna rétti.
„Það er eiginlega þannig að fyrir
klukkan þrjú er mest keypt af ýsu
en eftir vinnutíma kemur fólk við
og kaupir tilbúna rétti.“ Almennt er
ýsan vinsælasta fisktegundin segja
fisksalar og ekkert hefur skákað
henni þrátt fyrir ýmsar nýjungar
í matarmenningu landans. Meðal-
verð á ýsuflökum var 1.330 krón-
ur kílóið.
Samkvæmt upplýsingum Hagstof-
unnar var meðalkílóverð á ferskum
ýsuflökum 1.135 krónur í febrúar í
fyrra sem þýðir að þau hafa hækk-
að um sautján prósent á árinu. Ef
farið er aftur til ársins 2008 nemur
hækkunin 23 prósentum. Rétt er að
taka fram að í grunni Hagstofunnar
eru líka matvörubúðir en í könnun
Fréttablaðsins var einungis hringt
í fiskbúðir.
Könnunin var þannig fram-
kvæmd að hringt var í fiskbúðirnar
og spurt um kílóverð á roðlausum og
beinlausum ýsuflökum. Hringt var
í fimmtán fiskbúðir en ein þeirra,
Fiskikóngurinn, vildi ekki taka þátt
í könnuninni. sigridur@frettabladid.is
Meðalkílóverð á
ferskum ýsuflök-
um 1.330 krónur
Soðin ýsa með kartöflum er herramannsmatur sem er á
allra færi að elda. Það er þó ekki til ein algild aðferð við
eldamennskuna á ýsunni. Annars vegar tíðkast að setja
hana út í kalt vatn og hita það að suðu, taka svo pottinn
af hellunni þegar fiskurinn sýður. Hins vegar að setja
fiskinn út í sjóðandi vatnið. Áður fyrr var ýsan soðin vel
og lengi en í dag er mælt með nokkrum mínútum.
Margrét Sigfúsdóttir, skólastjóri Hússtjórnarskólans,
mælir með því að setja ýsuna út í sjóðandi salt vatn og
láta sjóða í örfáar mínútur. „Mikilvægt er að sjóða hana
ekki of lengi, ofsoðin ýsa verður þurr og stykkin detta í
sundur,“ segir Margrét og bætir við að gott sé að geyma fiskafganga og nýta
í plokkfisk.
OFSOÐIN ÝSA VERÐUR ÞURR
MARGRÉT
SIGFÚSDÓTTIR
ÝSA: ROÐLAUS OG BEINLAUS
Hringt var í fiskbúðirnar og spurt
um kílóverð á roðlausri og bein-
lausri ýsu.
Fiskbúð Kílóverð
Fiskbúð Einars 1.390 kr.
Fiskbúðin Freyjugötu 1.490 kr.
Fiskbúðin Hófgerði, Kópav. 1.490 kr.
Fiskbúðin Hvaleyrarbraut,Hfj. 1.490 kr.
Fiskbúðin Mos, Mosf. 1.390 kr.
Fiskbúð Suðurlands, Self. 1.495 kr.
Fiskbúðin Sundlaugarvegi 1.490 kr.
Fiskbúðin Trönuhrauni,Hfj. 1.355 kr.
Fiskbúðin Vegamót 1.490 kr.
Fylgifiskar 1.430 kr.
Gallerý fiskur 1.390 kr.
Heimur hafsins, Ak. 1.425 kr.
Litla fiskbúðin,Hfj. 1.290 kr
2005 2006 2007 2008 2009
90 kr
117 kr
99 kr
150 kr
135 kr
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
Ú
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
Ú
A
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
A
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
ÚTSA
LA
lÍs en kus
Úlpur, allt að 50% afsláttur
Casall og Anatomie leikfimisfatnaður 50% afsláttur
Krakkaúlpur 50% afsláttur
og fleira og fleira...
Ekki missa af þessu
Takmarkað magn!
■ Sólveig Guðmunds-
dóttir, framkvæmda-
stjóri Culiacan
„Ég hreinsa silfur,
hnífapör, hringa og
skartgripi með því
að sjóða vatn í potti.
Út í það blanda ég
matarsóda og broti af álpappír. Silfrið
er síðan sett út í og látið sjóða í smá-
stund, í svona fimm til tíu mínútur í
mesta lagi. Þetta svínvirkar. Matar-
sóda má sömuleiðis nota til að þrífa
kaffikönnur en þá blandar maður
saman heitu vatni og matarsóda og
lætur kaffikönnuna liggja í þessu í
nokkra stund. Þessu tengt má hella
upp á sterkt kaffi og nudda á leður-
skó, sem orðnir eru skítugir af salti á
götunum. Ég hef þó ekki prufað þetta
síðasttalda.“
GÓÐ HÚSRÁÐ
MARGNOTA MATARSÓDI
LITLA FISKBÚÐIN Samkvæmt könnun Fréttablaðsins var Litla fiskbúðin með lægsta
verðið á roðlausri og beinlausri ýsu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA