Fréttablaðið - 28.01.2010, Page 20
20 28. janúar 2010 FIMMTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 15 Velta: 57,2 milljónir
OMX ÍSLAND 6
815 -0,11%
MESTA HÆKKUN MESTA LÆKKUN
BAKKAVÖR -3,70%
MAREL -0,64%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atlantic Petroleum 160,00
+0,00% ... Bakkavör 1,30 -3,70% ... Føroya Banki 132,00 +0,00% ...
Icelandair Group 3,65 +0,00% ... Marel 62,00 -0,64% ... Össur 158,50
+0,00%
DAGSKRÁ
Atorka Group hf Fimmtudaginn 4. febrúar 2010 kl. 15:00
Hótel Hilton Reykjavik Nordica
Stjórn Atorku Group hf.
Í framhaldi af hluthafafundi sem haldinn var þann 22. janúar
2 þar sem a l nadr ttnar rt u hlutaf t r u er
h r me a til hluthafafundar n rra hluthafa f la inu.
1. Breyting á samþykktum félagsins
illa a er er um a samþ tum f la sins ver i re tt þ
veru a varamenn ver i e i j rnir stj rn v i . r.
samþ ta f la sins re tt til samr mis vi þa .
2. Kosning nýrrar stjórnar
a s r fundarins till ur samr mi vi framan reint
munu li ja frammi til s nis f rir hluthafa s rifst fu f la sins
fr me 2 . janúar 2 . l sin ar um fram til
stj rnar f la sins munu li ja frammi s rifst fu f la sins
ei i s ar en 2. fe rúar 2 .
RÁN L IGHT
Léttur, vindheldur og vatnsfráhrindandi fatnaður
sem hentar fjölbreyttu veðurfari.
regnfatnaður
Verð jakki: 7.800 kr.
Verð buxur: 5.000 kr.
Stærðir: 92-152 Verð: 4.900 kr.
ANDVAR I
Handprjónuð derhúfa úr 100% Merino ull.
barna derhúfa
ANDVAR I
Vindheldur ullarjakki með mjúku fl ísfóðri og
sérmótuðu sniði á olnbogum.
vindheldur ullarjakki
Verð jakki: 18.500 kr.
Mikilvægt er að draga úr
þeirri áhættu sem einkennt
hefur banka- og fjármála-
fyrirtæki síðustu ár, að mati
helstu fjármálasérfræðinga
heimsins. Áhrif kreppunnar
eru mönnum ofarlega í huga
í Davos.
Umræður um hert eftirlit með
bönkum og fjármálafyrirtækj-
um voru ofarlega á baugi á fyrsta
degi ársþings Alþjóðaefnahags-
ráðsins (World Economic Forum)
sem hófst í Alpabænum Davos í
Sviss í gær.
Fjárfestirinn heimskunni
George Soros lagði ríka áherslu
á nauðsyn þess að brjóta upp stór
fjármálafyrirtæki auk þess að
mæla með ströngum reglum til að
hamla vexti þeirra.
Ummæli Soros, sem koma í beinu
framhaldi af keimlíkum hugmynd-
um Baracks Obama Bandaríkja-
forseta, féllu í matarboði þátttak-
enda á þinginu með blaðamönnum.
Hann gerði grín að gagnrýnend-
um, sagði þá heyrnardaufa.
Fleiri gripu boltann á lofti, svo
sem hagfræðingurinn Nouriel
Roubini. Hann vill ganga lengra
og mælti með því að dusta rykið
af „Glass-Steagall“-lögunum, sem
sett voru í Bandaríkjunum í kjöl-
far kreppunnar miklu árið 1932,
en þau meina viðskiptabönkum að
stunda fjárfestingarbankastarf-
semi. Rætt hefur verið um lögin
um nokkurra mánaða skeið vest-
anhafs. Ljóst er að þau leiða af sér
róttækar breytingar í bankastarf-
semi víða um heim.
Á Davos-þinginu fyrir þremur
árum lögðu fáir eyrun við þegar
Roubini sagði skuldakreppu í
vændum sem gæti leitt af sér
djúpa fjármálakreppu. Spáin
gekk eftir og var húsfyllir þegar
hann mætti til pallborðsumræða á
þinginu árið eftir. Þinginu lýkur á
sunnudag.
Vilja dusta rykið af átta-
tíu ára kreppulögum
MARKAÐSPUNKTAR
■ Fjárfestar sem eiga skuldabréf á
gamla Landsbankann vænta þess
að fá sjö prósent upp í kröfur.
Virði bréfanna hefur hækkað um
tæp fimmtíu prósent frá því forseti
Íslands synjaði Icesave-lögum stað-
festingar.
■ Samkeppniseftirlitið gerir engar
athugasemdir við samruna Íslands-
banka og Geysis Green Energy
(GGE). Á meðal eigna félagsins er
hlutur í HS Orku og Jarðboranir, að
því er segir í tilkynningu.
■ Stjórn Íbúðalánasjóðs hefur sam-
þykkt að lækka breytilega vexti á
leiguíbúðalánum úr 5,4 prósentum
í 4,90. Fastir vextir haldast óbreyttir
í 4,55 prósentum með uppgreiðslu-
álagi, að því er fram kemur í
tilkynningu.
Mikill fjöldi áhrifamanna af ýmsum
sviðum víða að úr heiminum hefur
bókað sig á ársþingið í Davos. Þar
á meðal eru að minnsta kosti fimm
Íslendingar.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, þáði boð um að mæta
á þingið. Hann mun taka þátt í
umræðum í nokkrum af þeim 227
málstofum sem í boði eru.
Málstofurnar eru einkennandi
fyrir þingið að þessu sinni, en þær
fjalla um viðbrögð við kreppunni,
samstarf ríkja til að komast upp úr
henni auk þess sem horft verður til
framtíðar.
Aðrir Íslendingar sem skráðir eru
á þingið í ár eru Jón Sigurðsson, for-
stjóri stoðtækjafyrirtækisins Össurar,
Jón S. von Tetzchner, stofnandi og
fyrrverandi forstjóri norska vafrafyrir-
tækisins Opera Software, Guðni
Dagbjartsson, aðstoðarforstjóri fyrir-
tækjasamsteypunnar ABB í Sviss, og
Björgólfur Thor Björgólfsson.
FIMM ÍSLENDINGAR Á DAVOS
FJÁRMÁLASPEKÚLANT George Soros segir þá heyrnardaufa sem ekki hlusti á rök
sem mæli með aðskilnaði viðskipta- og fjárfestingarstarfsemi banka.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Evrópski seðlabankinn ætlar ekki
að láta efnahagsvanda einstakra
evruríkja hafa áhrif á vaxtastefnu
bankans. Þetta segir Axel Weber,
seðlabankastjóri Þýskalands, sem
jafnframt á sæti í bankaráði evr-
ópska seðlabankans.
„Stjórn peningamála lýtur að öllu
myntbandalaginu. Við getum ekki
látið einstaka hluta þess hafa áhrif
á vaxtaákvörðun okkar,“ sagði hann
í samtali við CNBC-sjónvarpsstöð-
ina í Davos í Sviss í gær. Hann vís-
aði til bágrar stöðu Grikklands og
sagði stjórnvöld þar verða að halda
sínu striki og draga úr gríðarlegum
fjárlagahalla til að koma rekstri
hins opinbera á réttan kjöl. - jab
Horfa á heildina
AXEL WEBER Vandi fárra á ekki að hafa
áhrif á heildina, segir seðlabankastjóri
Þýskalands.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Eignir ýmissa lánafyr-
irtækja lækkuðu um
8,1 milljarð króna á
milli mánaða og námu
1.294,8 milljörðum
króna í lok síðasta árs,
að því er fram kemur
í bráðabirgðatölum
Seðlabankans, sem
birtar voru í gær.
Þetta jafngildir 0,6
prósenta lækkun á
milli mánaða en 0,9
prósenta aukningu á
milli ára.
Innstæður lánafyr-
irtækjanna hjá Seðlabankanum hafa aukist
gríðarlega á milli ára en þær fóru úr tæpum
4,4 milljörðum króna í 35 milljarða í desem-
ber, sem jafngildir rétt tæplega sjö hundr-
uð prósenta aukningu
á milli ára. Á móti
hefur verulega dregið
úr handbæru fé, eða
sjóðum, lánafyrir-
tækjanna. Féð nam 62
milljónum króna fyrir
ári en aðeins fjórum
milljónum í lok síðasta
árs. Þá nam verðmæti
eignaleigusamninga
134 milljörðum króna í
lok árs, sem jafngildir
28 prósenta samdrætti
á milli ára.
Eigið fé lánafyrir-
tækjanna lækkaði um 10,5 milljarða króna,
eða tæp fjórtán prósent á milli mánaða í
desember og stóð í 65,4 milljörðum króna
í lok síðasta árs.
Eignaleigusamningum fækkar
BÍLAFLOTI Verðmæti eignaleigusamninga lækk-
aði um 28 prósent á milli ára. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM