Fréttablaðið - 30.01.2010, Blaðsíða 60
32 30. janúar 2010 LAUGARDAGUR
E
ins og margir vita voru
Wipeout-þættirnir sem
hafa verið sýndir að
undanförnu teknir upp á
suðrænum slóðum hinum
megin á hnettinum, eða
í Argentínu. Sumir komust lengra
en aðrir í keppninni eins og gengur
og gerist en það að komast ekki alla
leið þýddi þó engan heimsendi. Þegar
einar dyr lokast opnast yfirleitt aðrar
og í þessu tilfelli opnuðust dyrn-
ar fyrir mig og fleiri Íslendinga að
heimavelli eins frægasta og dáðasta
fótboltaliðs Argentínu, Boca Juniors.
Þar atti liðið kappi við Vélez Salsfield
í 7. umferð efstu deildar þar í landi og
var eftirvæntingin í hópnum að sjálf-
sögðu mikil, jafnvel hjá þeim sem
höfðu fram að þessu haft lítinn sem
engan áhuga á fótbolta.
Hópurinn var sóttur í lítilli rútu
á hótelið sem var í miðborg Búenos
Aíres og keyrður í átt að leikvangin-
um, sem er í miðju íbúahverfi borg-
arinnar sem nefnist La Boca. Eftir
að hafa gengið stuttan spöl sáum við
leikvanginn, Estadio Alberto J. Arm-
ando eða La Bombonera eins og hann
er kallaður, gnæfa gulan og bláan upp
úr fátæklegu hverfinu. Fararstjór-
inn hvatti okkur til að passa upp á öll
verðmæti, enda alþekkt að túristar
verði fyrir barðinu á óprúttnum þjóf-
um á vellinum. Ekki var heldur verra
ef við keyptum okkur varning tengd-
an liðinu til að koma okkur í mjúkinn
hjá annars æstum áhangendum Boca
sem eru þekktir fyrir skrílslæti sín.
Hroki heimamanna
Þegar inn á leikvanginn var komið
blasti við óvenjuleg sjón því fótbolta-
leikur var í fullum gangi og þegar
nánar var að gáð var þarna á ferð-
inni viðureign á milli unglingaliða
Boca og Vélez. Í Evrópu er venjan sú
að hlífa grasvöllunum fyrir fótbolta-
leiki til að hafa þá í sem bestu ásig-
komulagi þegar flautað er til leiks en
þarna var raunin önnur. Óvenjulegt,
svo ekki sé nú meira sagt.
Eftir að leiknum lauk trítluðu leik-
menn Vélez inn á völlinn til að hita
upp, eins og venjan er. Ekkert bólaði
þó á heimamönnum í Boca og fannst
mér nokkuð undarlegt hversu lengi
þeir ætluðu að bíða með að hita upp.
Hvers konar hroki var þetta eigin-
lega?
Stemningin á vellinum jókst jafnt
og þétt þegar nær dró leiknum og
spennan lá í loftinu. Í stúkunni rétt
hjá okkur, sem var fyrir aftan annað
markið, sátu hörðustu stuðn-
ingsmenn Boca og voru byrj-
aðir hálftíma fyrir leik að
syngja hástöfum lög til heið-
urs sínum mönnum.
Á slóðum Maradona
Þar sem ég týndi núm-
eruðum miða mínum
þurfti ég í fyrri hálf-
leik að finna mér laust
sæti í stúkunni fyrir
neðan hópinn minn
og lenti ég innan
um Boca-stuðnings-
menn sem voru
duglegir við að
kasta hægri
hendinni sér-
kennilega
fra m t i l
stuðnings
sínum
mönnum.
Við hlið-
ina á mér
sat argent-
ínskur maður um fertugt sem
hafði verið stuðningsmaður
Boca frá því í barnæsku. Þá
hreifst hann að ungum knatt-
spyrnumanni sem var að stíga
sín fyrstu spor, sjálfum Diego
Armando Maradona, sem á
ferli sínum skoraði 35 mörk í
70 leikjum fyrir Boca. Mar-
adona á einmitt sitt áhorfendabox á
leikvanginum og auðvitað er það við
hliðina á boxi forseta félagsins, Jorge
Amor Ameal. Sessunautur minn benti
mér hins vegar á að Maradona væri
ekki á vellinum í þetta sinn og olli það
nokkrum vonbrigðum að fá ekki að
berja þetta knattspyrnugoð augum.
Harðar tæklingar
Jæja, nú var aðkomuliðið að klára að
hita upp og enn bólaði ekkert á leik-
mönnum Boca. Kom það upp úr kaf-
inu að þeir hita aldrei upp á aðalvell-
inum, sem er sannarlega undarlegt
en svo sem í takt við ýmislegt annað.
Skyndilega birtust þeir svo rétt fyrir
leik, sjóðheitir upp úr undirgöngun-
um, undir háværum söng stuðnings-
manna sinna. Veislan var að hefjast.
Fljótlega kom í ljós að þetta var
öðruvísi fótbolti en maður á að venj-
ast frá meginlandi Evrópu. Spila-
mennskan var ekki endilega sú fal-
legasta sem maður hefur séð
auk þess sem leikmenn voru
frekar grófir og hikuðu ekki
við að henda sér í tækling-
ar. Athyglisvert var að þeir
lágu aldrei eftir á vellinum
eftir tæklingarnar og stóðu
þess í stað jafnharðan upp
aftur eins og ekkert
hefði í skorist.
Skallamark frá miðju
Gestirnir skoruðu fyrsta markið
snemma leiks og það merkilega var
að söngur Boca-stuðningsmannanna
jókst í kjölfarið, sem er til marks um
ótrúlegan stuðninginn, enda fót-
bolti löngum talinn til trúarbragða
í Suður-Ameríku. Leikurinn hélt
áfram og í stöðunni 1-2 fyrir Vélez
fékk Riquelme, besti maður Boca,
aukaspyrnu fyrir utan vítateiginn og
setti boltann beint upp í samskeytin.
Sannarlega glæsilegt jöfnunarmark
en það komst þó ekki í hálfkvisti
við 3:2 sigurmark Martins Paler-
mo, sóknarmanns Boca. Markmað-
ur Vélez ætlaði að dúndra boltanum
fram eftir að hafa fengið hann til
baka frá varnarmanni en ekki vildi
betur til en að hann fór beint í haus-
inn á Palermo, sem stýrði honum í
autt markið frá miðju. Ótrúlegt en
satt! Fagnaðarlátunum ætlaði aldrei
að linna og ætlaði hreinlega allt að
verða vitlaust á vellinum.
Tuttugu mínútum síðar var leik-
urinn flautaður af og leikmenn-
irnir tíndust burt af vellinum en
hörðustu stuðningsmennirnir voru
hvergi nærri hættir. Næsta hálftím-
ann sungu þeir hástöfum lögin sín á
meðan aðeins lágvært píp heyrðist í
mun færri stuðningsmönnum Vélez
efst í stúkunni á móti. Boca-stuðn-
ingsmennirnir sungu þá satt best
að segja í kaf og hættu ekki fyrr en
gestirnir voru allir farnir á brott.
Já, sannarlega magnaðir stuðnings-
menn sem eiga enga sína líka.
Þessi argentínski fótboltaleikur
var frábær upplifun frá upphafi til
enda sem mun renna mér og hinum
Íslendingunum sem fóru á völlinn
seint úr minni.
Stuðningsmenn Boca stálu
senunni á La Bombonera
SIGURMARK Martin Palermo fagnar sigurmarki sínu gegn Vélez. FRÉTTABLAÐIÐ /FREYR BJARNASON
Stofnað: 1905
Meistaratitlar á Argentínu: 23
Heimavöllur: Estadio Alberto J.
Armando (La Bombonera)
Áhorfendafjöldi: 61 þúsund
Frægir frá Boca: Maradona, Riqu-
élme, Tévez, Palermo
Höfuðandstæðinur: River Plate
Fróðleikur: Boca-líkkistur eru fáan-
legar fyrir heitustu aðdáendurna.
Geta þeir látið grafa sig í opinberum
Boca-grafreit.
Boca Juniors
Fótboltaleikur
argentínsku
liðanna Boca
Juniors og
Vélez Salsfi-
eld í Búenos
Aíres í októb-
er var frábær
skemmtun og
dálítið öðruvísi
spilamennska
en maður á að
venjast á meg-
inlandi Evrópu.
Freyr Bjarna-
son skrifar
um upplifun
sína af hinum
fræga heima-
velli Boca, La
Bombonera.
FLOTTIR STUÐNINGS-
MENN Hörðustu stuðn-
ingsmenn Boca Juniors
sungu allan tímann
meðan á leiknum
stóð.