Fréttablaðið - 30.01.2010, Síða 69
LAUGARDAGUR 30. janúar 2010 41
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Laugardagur 30. janúar 2010
➜ Tónleikar
16.00 Sinfóníuhljómsveit tónlistar-
skólanna verður með tónleika í Lang-
holtskirkju við Sólheima. Á efnisskránni
verða verk eftir J. Haydn, Russell Peck,
Snorra Sigfús Birgisson og F. Mendels-
sohn.
16.00 Barokkhópurinn Custos heldur
tónleika í Kópavogskirkju. Á efnisskránni
verða meðal annars verk eftir G. Fresco-
baldi, G. Ph. Telemann og C. Dieupart.
21.00 Gunnar Þórðarson heldur
tónleika á Græna hattinum við Hafn-
arstræti á Akueyri. Húsið verður opnað
kl. 20.
➜ Uppákomur
Listasafn Reykjavíkur við Tryggvagötu
verður með dagskrá kl. 14 í tengslum
við sýninguna „Ljóslitlífun“ sem nú
stendur þar yfir.
Frítt verður í Víkina, Sjóminjasafn
Reykjavíkur við Grandagarð, í
tilefni af 50 ára afmæli varð-
skipsins Óðins. Opið um
helgina kl.
13-17.
➜ Myrkir Músíkdagar
14.00 Tinna Þorsteinsdóttir píanó-
leikari flytur verk eftir íslensk skáld í
Norræna húsinu við Sturlugötu.
17.00 Strengjaleikhúsið sýnir rafóper-
una „Farfuglinn“ eftir Hilmar Þórðarson
í Salnum við Hamraborg í Kópavogi.
21.00 Hamrahlíðarkórinn undir stjórn
Þorgerðar Ingólfsdóttur kemur fram á
tónleikum í Kristskirkju við Landakot.
23.00 Verk fyrir uppmagnaða kamm-
ersveit eftir Daníel Bjarnason verður
flutt á Sódómu Reykjavík við Tryggva-
götu.
Myrkir músíkdagar standa yfir til 31.
jan. Nánari upplýsingar á www.listir.
is/myrkir/.
➜ Kvikmyndir
16.00 Kvikmyndasafn Íslands sýnir
kvikmynd Kenneth Branagh „Henry
V“ (1989) sem gerð var eftir skáldverki
Shakespeares. Sýningin fer fram í
Bæjarbíói við Strandgötu í Hafnarfirði.
Íslenskur texti. Nánari upplýsingar á
www.kvikmyndasafn.is.
➜ Tangó
Tangóævintýrafélagið stend-
ur fyrir milonga-kvöldi á
veitingahúsinu Eldhrími að
Borgartúni 14 kl 21-24.
Nánari upplýsingar á
www.tangoadventure.
com.
Sunnudagur 31. janúar 2010
➜ Félagsvist
Félagsvist verður spiluð í Breiðfirðinga-
búð við Faxafen 14 kl. 14.
➜ Myrkir Músíkdagar
12.00 Hljómsveit Sigurðar Flosasonar
flytur tónlist við ljóð Aðalsteins Ásbergs
Sigurðssonar á tónleikum í Norræna
húsinu við Sturlugötu.
14.00 Kammerkórinn Hymnodia held-
ur tónleika á þjónustustöðinni Kvikkfix
við Vesturvör 30c. í Kópavogi.
17.00 Tónlistarhópurinn Caput
kemur fram á tónleikum í Norræna
húsinu við Sturlugötu.
20.00 Lokatónleikar hátíðarinn-
ar fara fram í Listasafni Íslands
við Fríkirkjuveg og eru tileink-
aðir Atla Heimi Sveinssyni
og Þorkeli Sigurbjörnsyni.
➜ Kvikmyndir
15.00 Sovéska kvikmyndin „Brautar-
stöð fyrir tvo“ (Voksal dlja dvoikh), frá
árinu 1983 í leikstjórn Eldar Rjazanov,
verður sýnd í MÍR-salnum við Hverfis-
götu 105. Meðal leikenda eru Ljúdm-
íla Gurtsjenko og Oleg Bashalishvili.
Aðgangur er ókeypis.
➜ Uppákomur
Í Listasafni Reykjavíkur við Tryggva-
götu verður dagskrá kl. 15 í tengslum
við sýningu Errós sem nú stendur þar
yfir. Ingólfur Ásgeir Jóhannesson flytur
fyrirlestur og AlmaDís Kristinsdóttir
verður með leiðsögn um sýninguna.
➜ Leikrit
20.00 Leikverkið „Tilbrigði við stef“
eftir Þór Rögnvaldsson í leikstjórn Ingu
Bjarnason verður flutt í Iðnó við Von-
arstræti. Nánari upplýsingar á www.
leikhopar.is.
➜ Leiðsögn
14.00 Hildur Bjarnadóttir verður með
leiðsögn um sýninguna Carnegie Art
Award 2010 sem nú stendur yfir í Lista-
safni Íslands við Fríkirkjuveg.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
Í dag kl. 17 opnar Sigurður
Örlygsson listmálari sýn-
ingu á Gallerý-Bar, sem
er til húsa á Hverfisgötu
46. Sigurður segir salinn
risastóran og dýnamísk-
an, en þar sé einnig hægt
að spila billjard, taka í
skák og fleira. Myndlist
og billjard passar vel saman
að hans mati. Sigurður seg-
ist sýna samtíning, bæði
nýjar myndir og gaml-
ar, en öll verkin eiga
það þó sameiginlegt
að vera mjög stór.
Sig u rðu r er
fæddur árið 1946.
Hann hefur haldið fjölda einka-
sýninga og samsýningar jafnt
hér á landi sem utan. Hann
hélt sína fyrstu sýningu
árið 1971.
Sýningin sem hefst á
morgun er sölusýning.
Allir eru velkomnir á opn-
unina, en Sigurður sendi
ekki út nein boðs-
kort.
Myndlist og billjard
Á morgun kl. 14 verður Hildur
Bjarnadóttir myndlistarmaður
með leiðsögn um sýninguna Carn-
egie Art Award 2010 sem nú stend-
ur yfir í Listasafni Íslands við Frí-
kirkjuveg. Carnegie Art Award
2010 eru ein veglegustu myndlist-
arverðlaun sem veitt eru í heimin-
um í dag en sýningunni er ætlað að
kynna norræna samtíma málara-
list. Hildur ræðir um prjónuð mál-
verk og beinir sjónum að einstökum
listaverkum og höfundum þeirra út
frá tengslum þeirra við aðra list-
miðla svo sem textíl. Bók með ljós-
myndum af öllum listaverkunum
sem tekin voru til sýningar er sýn-
ingin var opnuð í Charlottenborg
er fáanleg í safnbúð Listasafnsins.
Aðgangur er ókeypis.
Prjónuð málverk
HILDUR BJARNADÓTTIR
SÝNIR
STÓRAR
MYNDIR
Sigurður
Örlygsson.