Fréttablaðið - 30.01.2010, Blaðsíða 88
DREIFING: dreifing@posthusid.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000
Mest lesið
VISIR.IS
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR AF FÓLKI
Afmæli frestað vegna Icesave
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, varð fertug-
ur á þriðjudag og er rétt að árna
honum heilla af því tilefni. Hann
hugðist halda upp á afmælið í gær,
í sal nýju Laugardalshallarinnar. En
pólitíkin er viðsjárverð tík og Bjarni
þurfti að fresta veislunni til að
fara á fund í Haag með Sigmundi
Davíð Gunnlaugssyni og Steingrími
J. Sigfússyni. Hann ræddi því við
Breta og Hollendinga um Icesave í
stað veisluhaldanna, en þeim hefur
verið frestað um viku. Þeir sem
voru í vandræðum þar
sem veislan stangaðist
á við veislu Geira í
Goldfinger, eigi það við
um einhvern þingmann
Sjálfstæðisflokksins,
geta því andað léttar
og farið í báðar
veislurnar.
Fréttablaðið er með 143% meiri
lestur en Morgunblaðið.
Meðallestur á tölublað,
höfuðborgar svæðið, 18 – 49 ára.
Könnun Capacent í ágúst 2009 – október 2009.
Allt sem þú þarft...
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ
71,4%
29,3%
195,-
Jogastudio.org
Árlegt þorrablót 101
Hið árlega þorrablót íbúa 101,
Lopapeysan, fer fram í fjórða sinn
á Prikinu fyrstu helgina á febrúar.
Sindri Páll Kjartansson dagskrár-
gerðarmaður er einn skipuleggjenda
blótsins ásamt hárskeranum Stjúra.
Sindri Páll, sem þekktur er fyrir
röggsemi og dugnað, hefur ekki átt í
vandræðum með að skipuleggja blót-
ið samhliða tökum á sjónvarpsþætt-
inum Rétti. Meðal þeirra sem staðfest
hafa komu sína á Lopapeysuna eru
leikararnir Jörundur Ragnarsson og
Lilja Nótt Þórarinsdóttir, listamaður-
inn Hugleikur Dagsson og
tónlistarmaðurinn Erpur
Eyvindarson. Heyrst hefur
að hinn eini sanni Gylfi
Ægisson muni sjá
um að skemmta
gestum í ár.
Enginn handbolti
Katrín Jakobsdóttir mun ekki fara
til Austurríkis til að fylgjast með
„strákunum okkar“ berja á Frökkum
í undanúrslitum Evrópumótsins
í handknattleik. Það er af sem
áður var því forveri hennar í starfi,
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
var tíður gestur í handboltahöllum
heimsins þegar landsliðið var að
spila á stórmótum. - sm, fgg
1 Markús Máni Michaelsson á
meðal þeirra grunuðu
2 Handtökur og húsleitir vegna
gjaldeyrisbrasks
3 Gefur ekki upp hvað
hann mun kjósa í
þjóðaratkvæðagreiðslunni
4 Efnahagsbrotadeild boðar til
blaðamannafundar
5 Opinberum störfum fjölgaði
um 5.000 á tíu árum