Fréttablaðið - 09.02.2010, Page 6
6 9. febrúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Notkunarsvið: Omeprazol Actavis inniheldur ómeprazól sem hemur seytingu á magasýru. Omeprazol Actavis er notað
við tilfallandi brjóstsviða og súru bakflæði. Frábendingar: Ofnæmi fyrir innihaldsefnum, samtímis notkun lyfja sem
innihalda claritrómýcín hjá sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi, samtímis notkun lyfja sem innihalda atazanavír. Varúð:
Gæta skal sérstakrar varúðar: Ef verulegt og óvænt þyngdartap verður, við endurtekin uppköst, ef erfiðleikar eru við að
kyngja, við blóðuppköst eða blóð í hægðum, ef lifrar- eða nýrnastarfsemi er skert. Börn og unglingar undir 18 ára aldri
eiga ekki að nota lyfið nema að ráði læknis. Omeprazol Actavis inniheldur súkrósa. Meðganga/brjóstagjöf: Leitið ráða
hjá lækni áður en lyfið er notað. Akstur og notkun véla: Aukaverkanir, svo sem þreyta, svimi og sjón- og
heyrnartruflanir, geta komið fram og geta haft áhrif á hæfni til aksturs eða notkunar véla. Aukaverkanir: Algengar
aukaverkanir eru niðurgangur, hægðatregða, vindgangur, ógleði, uppköst, svefntruflanir, sundl, höfuðverkur eða þreyta.
Þessar aukaverkanir verða yfirleitt vægari við áframhaldandi meðferð. Skammtastærðir: Fullorðnir: 1 sýruþolið hylki eftir
þörfum. Ekki má nota meira en 20 mg á sólarhring. Ef einkennin hverfa ekki eftir að Omeprazol Actavis hefur verið notað í
14 daga skal hafa samband við lækninn vegna þess að einkennin gætu verið af öðrum
orsökum. Gleypa á sýruþolnu hylkin með glasi af vökva. Sýruþolnu hylkin ætti að taka fyrir
máltíð (t.d. morgunmat eða kvöldmat) eða á fastandi maga. Hvorki má tyggja né mylja
sýruþolnu hylkin. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Geymið lyfið þar sem
börn hvorki ná til né sjá. Janúar 2009.
Af litlum neista…
A
Omeprazol Actavis
- öflugt lyf við brjóstsviða og súru bakflæði
20 mg, 14 og 28 stk. – fáanlegt án lyfseðils í næsta apóteki
Auðlind-Náttúrusjóður auglýsir eftir umsóknum
um styrki úr sjóðnum fyrir árið 2010.
Auðlind – Náttúrusjóður er sjálfseignarstofnun sem starfað hefur
samkvæmt skipulagsskrá frá 1. desember 2008. Tilgangur Auðlindar
er að standa vörð um náttúru og vistkerfi Íslands, vatnafar landsins og
endurheimt fyrri landgæða.
Auglýst er eftir umsóknum um styrki fyrir verkefni sem tengjast verndun
og endurheimt votlendis. Heildar upphæð sem til úthlutunar er að
þessu sinni er kr. 1,500.000. Hámarksfjárhæð styrkja fer eftir fjölda
umsókna en þó ekki hærri en kr 500.000. Upphæð styrks getur numið
allt að 50% hluta kostnaðar við vinnu, tæki og kaup á aðföngum.
Einungis verður tekið við umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum,
sem fi nna má á vefsíðu Auðlindar, www.audlind.org. Á vefsíðunni má
einnig fi nna úthlutunarreglur sjóðsins. Umsóknafrestur er til og með
1. mars 2010 og er stefnt að því að úthlutað verði úr sjóðnum í apríl.
Umsóknir skal senda Auðlind-Náttúrusjóð, Pósthólf 101, 802 Selfossi
Fyrirspurnum má beina á netfangið audlind@audlind.org
Stjórn Auðlindar - Náttúrusjóðs
SVEITARSTJÓRNARMÁL Kristján L.
Möller, samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðherra, hefur ákveðið að
fara að tillögu eftirlitsnefndar með
fjármálum sveitarfélaga (EFS) og
skipa fjárhaldsstjórn til að endur-
skipuleggja fjármál sveitarfélags-
ins Álftaness. Skuldir og skuld-
bindingar þess námu rúmum 7,2
milljörðum króna í árslok 2009 en
sveitarfélagið er ekki talið standa
undir hærri skuldbindingum en
2,5 milljörðum króna.
Þegar fjárhaldsstjórnin tekur
við stjórn fjármála sveitar-
félagsins verða allar ákvarð-
anir um fjárútlát að lúta sam-
þykki hennar. Að öðru leyti fer
sveitarstjórnin áfram með mál-
efni sveitarfélagsins, og má þar
nefna áframhaldandi þreifing-
ar um sameiningu sveitarfélags-
ins. Óformlegar viðræður hafa
átt sér stað við Garðabæ um sam-
einingu. Niðurstaða ráðherra
kemur sveitarstjórnarmönnum á
Álftanesi ekki á óvart. Enda segir
Pálmi Þór Másson bæjarstjóri að
bæjarstjórn hafi komist að þeirri
niðurstöðu í janúar að sveitar-
félagið myndi ekki vinna sig úr
þeim fjárhagsvanda sem það stæði
frammi fyrir án utanaðkomandi
aðstoðar. Við þessari ákvörðun
ráðherra hafi því verið búist.
Í ákvörðun ráðherra er lagt til
að samkomulag verði gert milli
fjárhaldsstjórnar og bæjarstjórn-
ar Álftaness en ekki eru fordæmi
fyrir slíku samkomulagi. Skip-
unartími fjárhaldsstjórnarinn-
ar er til 1. ágúst næstkomandi
og viðurkenndi ráðherra á blaða-
mannafundi í gær að í því ljósi
yrði að ganga hratt í hlutina. Engin
aðgerðaáætlun liggur fyrir enda er
það hlutverk fjárhaldsstjórnarinn-
ar að vinna slíka áætlun. Ljóst er
þó að starf stjórnarinnar verður
að ganga til samninga við helstu
lánardrottna sveitarfélagsins:
Arion banka, Eignarhaldsfélagið
Fasteign og fleiri.
Í bréfi EFS til ráðherra 4. febrú-
ar kemur fram að skuldir sveitar-
félagsins í árslok 2009 nema 3,1
milljarði króna og skuldbinding-
ar vegna rekstrarleigusamninga
og annarra langtímasamninga 4,1
milljarði.
Margsinnis hefur komið fram að
skuld Álftaness vegna sundlaugar
er tæpir þrír milljarðar. Kristj-
án Möller svaraði því til að rík-
inu færi ýmislegt betur en að reka
sundlaugar þegar hann var spurð-
ur að því hvort til greina komi að
ríkið leysi þá skuldbindingu til sín.
svavar@frettabladid.is
Svipt fjárræði vegna
milljarða skulda
Sveitarfélaginu Álftanesi hefur verið skipuð fjárhaldsstjórn. Skuldir og skuld-
bindingar þess eru um fimm milljörðum króna yfir því sem sveitarfélagið er
talið standa undir. Sveitarstjórnin fer með öll önnur málefni en fjármál.
SUNDLAUG ÁLFTANESS Offjárfestingar hafa sligað sveitarfélagið. Skuldir vegna sundlaugarinnar eru tæpir þrír milljarðar.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
UMHVERFISMÁL Ísland er í farar-
broddi í mengunarstýringu og nýt-
ingu náttúruauðlinda og því efst
landa á lista yfir góða frammistöðu
í umhverfismálum, segir í skýrslu
sem bandarísku háskólarnir Yale og
Columbia hafa nýverið sent frá sér
og gefin er út á tveggja ára fresti.
Í fréttatilkynningu frá háskólun-
um er rakið að hér á landi sé lítil
mengun af gróðurhúsalofttegund-
um og orkan sjálfbær, bæði vatns-
aflsorka og jarðhiti. Þá er skógrækt
talin til kosta íslenskra umhverfis-
mála. Í samanburði á milli landa
nær Ísland 93,5 stigum af 100
mögulegum. Haft er eftir forstöðu-
manni hjá Yale að lönd sem taki
umhverfismál alvarlega í stefnu-
mörkun sinni hækki á listanum
milli ára. Sem dæmi um þetta má
nefna að Kosta Ríka er ofarlega
vegna aðgerða til að vernda regn-
skóga, en Kólumbía vegna árangurs
við að byggja upp sparneytið kerfi
almenningssamgangna.
New York Times greinir frá list-
anum og vekur athygli á að upplýs-
ingar honum til grundvallar koma
frá löndunum sjálfum og gætu því
verið óáreiðanlegar. Það að Kúba
sé í níunda sæti listans geti verið
til marks um það. Á listanum eru
Bandaríkin í 61. sæti listans og
Kína númer 121. Danmörk er í 32.
sæti. - shá
Virtir háskólar í Bandaríkjunum meta Ísland fremst í umhverfismálum:
Ísland með 93 af 100 stigum
HREIN ORKA Landsvirkjun vekur athygli
á rannsókninni á heimasíðu sinni enda
hrein orka grundvöllur góðrar útkomu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ATVINNUMÁL Lyfjafyrirtækið Acta-
vis hefur ákveðið að stækka verk-
smiðju sína í Hafnarfirði. Með
því verða til yfir 50 ný störf og
unnt verður að framleiða fimm-
tíu prósentum meira í verksmiðj-
unni en áður, að því er segir í
tilkynningu.
Framkvæmdir hefjast fljótlega
og er áætlað að framleiðsla í nýja
hlutanum fari af stað um næstu
áramót.
Nú er framleiddur um millj-
arður taflna í verksmiðjunni í
Hafnar firði, en eftir stækkun
verður mögulegt að framleiða þar
um einn og hálfan milljarð.
Gert er ráð fyrir 50 nýjum
störfum í verksmiðjunni eftir
stækkun í árslok. Um þrír fjórðu
hlutar þeirra starfa verða í fram-
leiðslu en einnig verða ýmis
önnur tengd störf í boði. Þar að
auki er þegar verið að fjölga
starfsfólki til að anna eftirspurn-
inni sem fram undan er á árinu,
að því er segir í tilkynningu. Aug-
lýst var eftir fólki til starfa hjá
fyrirtækinu nú um helgina.
Actavis starfrækir átján lyfja-
verksmiðjur í þrettán löndum. Sú
ákvörðun að stækka verksmiðj-
una hér á landi er til komin vegna
þess að það getur verið mikið og
flókið verk að flytja framleiðslu
lyfja annað og kallar á mikl-
ar skráningarbreytingar í þeim
löndum þar sem lyfin eru seld.
- sh
Fimmtíu ný störf skapast við stækkun lyfjaverksmiðju Actavis:
Actavis stækkar í Hafnarfirði
LYFJAFRAMLEIÐSLA Actavis starfrækir
átján lyfjaverksmiðjur í þrettán löndum.
KJÖRKASSINN
Á að leyfa rekstur spilavíta á
Íslandi?
Já 31,2%
Nei 68,8%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur þú tekið bankalán eftir
hrun?
Segðu skoðun þína á visir.is
ÞJÓNUSTA „Þetta er nú aðallega
vinna um helgar,“ segir Jóhann
Unnar Guðmundsson, sem fengið
hefur jákvæða umsögn hrepps-
nefndar Hrunamannahrepps um
starfsemi leigubílaþjónustu í
hreppnum.
Mikil sumarhúsabyggð er í
kringum Flúðir. Jóhann segir
marga viðskiptavini vera úr hópi
gesta þar. „Ef fólk fer út að borða
eða skemmta sér er gott að geta
boðið því upp á akstur heim í koju
í stað þess að það sé að freistast til
að keyra drukkið,“ bendir hann á.
Hreppsnefndin lýsti yfir ánægju
með framtakið. Enda sé full þörf á
slíkri þjónustu í hreppnum. - gar
Leigubílaþjónusta á Flúðum:
Skutlar fólkinu
heim í kojuna