Fréttablaðið - 09.02.2010, Side 18
9. febrúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR2
„Þetta er ein athyglisverðasta hug-
mynd sem komið hefur hér norð-
an heiða,“ segir Viðar Sigurjóns-
son, sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ,
en hann kemur einnig að skipu-
lagningu Vetraríþróttahátíðar
ÍSÍ á Akureyri sem stendur fram
í mars.
Hugmyndin sem Viðar vísar til
er sú að halda skíðagöngumót inn-
anhúss á Glerártorgi. „Búin verður
til sextíu metra löng og þriggja til
fjögurra metra breið sprettgöngu-
braut við suðuranddyri hússins
og byggt upp hvort sínum megin
við hana svo ekki renni snjór út
um öll gólf,“ útskýrir Viðar. En
hvaðan er snjórinn sóttur? „Um
síðustu helgi var byrjað að búa
til snjó niður við Glerártorg því
þótt hér sé hvítt yfir er lítill snjór
niðri í byggð,“ svarar Viðar en
það var talinn betri kostur að
flytja snjóbyssu ofan úr Hlíðar-
fjalli frekar en að flytja mörg
hlöss af snjó. „Snjóbyssan verður
að eitthvað áfram eða þangað
til snjórinn verður fluttur inn á
torgið með einhverjum ráðum á
laugardaginn.“
Skíðafélag Akureyrar sér um
skipulagningu mótsins í sam-
starfi við Hlíðarfjall en keppend-
ur koma úr Skíðafélagi Akureyr-
ar og nærliggjandi skíðafélögum.
Fjöldi keppenda er ekki orðinn
ljós en Viðar taldi víst að fleiri
hefðu áhuga en kæmust að. „Eðli
málsins samkvæmt er ekki hægt
að hafa mótið í gangi alla helgina,
því snjórinn bráðnar jú mjög hratt
í tuttugu stiga hita,“ áréttir Viðar.
„Þetta verður því snöggur en afar
skemmtilegur viðburður.“
solveig@frettabladid.is
Skíðagöngumót innanhúss
Einn af áhugaverðari dagskrárliðum á Vetraríþróttahátíð ÍSÍ á Akureyri er skíðagöngumót sem haldið
verður á Glerártorgi næstkomandi laugardag klukkan 14.
Verið er að safna snjó sem snjóvélin
býr til.
VETRARSPORT 2010 er stórsýn-
ing sem haldin verður í Bogan-
um á Akureyri um helgina.
Sextíu metra löng og þriggja metra breið skíðagöngubraut mun liggja um Glerártorg.
FimmtudagaJóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447
FJALLALEIDSOGUMENN.IS
fjallaleidsogumenn@fjallaleidsogumenn.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR Í SÍMA 587 9999
Skráning á heimasíðu Íslenskra Fjallaleiðsögumanna.
Afsláttarverð fyrir netklúbbsmeðlimi.
í allmennri fjallamennsku hefst í apríl 2010
6 DAGA NÁMSKEIÐ
Á svæðinu eru 3 lyftur sem sjá um að koma skíðamannin-
um að þeim brekkum sem hentar honum, heildar lengd á
þessum 3 lyftum er um 2 km og lengsta skíðaleiðin getur
verið um 2,5 km allt eftir því hvaða leið er valin, á svæðinu
eru mjög léttar brekkur upp í svartar krefjandi brekkur og
allt þar á milli.
Skíðasvæðið var opið veturinn 2008–2009 í 125 daga
sem er met opnun frá því að skíðasvæðið var fl utt í
Skarðsdalinn á Siglufi rði, gestir á þessum tíma voru um
11 þúsund sem er ekki svo lítið fyrir sveitafélag af þessari
stærðargráðu því margfeldis áhrifi n er varðar alla þjónustu
sem að sjálfsögðu þarf að inna af hendi er gríðaleg og
mjög jákvætt skref í uppbyggingu á ferðaþjónustu á
þessum tíma og hóparnir sem komu hér í heimsókn
voru mjög fjölbreyttir, æfi ngahópar, fjallskíðahópar,
bretta skíðahópar og að sjálfsögðu fjölskylduhópar og fl fl ,
og áfram er unnið við að markaðsetja skíðasvæðið sem
góður valkostur fyrir útivistarfólk og hér á Siglufi rði er alltaf
verið að bæta þá aðstöðu fyrir ferðamanninn hvað varðar
aðra afþreyingu s s söfnin okkar eins og Síldaminjasafnið,
Þjólagasetrið. Síðan er mjög spennandi uppbygging hjá
fyrirtækinu Rauðku tengt ferðamennsku og er það í raun-
inni stórkostleg uppbygging og er vert fyrir ferðamannin að
kynna sér hvað þar er í gangi, ég bendi á síðuna siglo.is.
SKÍÐA OG ÚTIVISTAPARADÍS
Á SIGLUFIRÐI
Skíðasvæðið á Siglufi rði hefur verið mikið í umræðuni sem mjög góður valkostur
fyrir þá sem ástunda skíðamennsku í ítrustu merkingu þess orðs, því á skíða-
svæðinu á Siglufi rði eru aðstæður og brekkur fyrir brettaskíðun, fjallaskíðun,
gönguskíðun og að sjálfsögðu mikil fjölbreytni fyrir alpagreinaskíðun.
Kynning
Langar þig í alpana?
Komdu þá á Siglufjörð
skard.fjallabyggd.is