Fréttablaðið - 09.02.2010, Page 35

Fréttablaðið - 09.02.2010, Page 35
ÞRIÐJUDAGUR 9. febrúar 2010 Opnuð hefur verið sýning um feril tor- færukappans Gísla Gunnars Jónsson- ar í bókasafninu í Þorlákshöfn. Hún er bæði í myndum og máli og megn- inu af viðurkenningum og verðlaunum sem Gísli hefur fengið í gegnum tíðina hefur verið haganlega fyrirkomið en bara bikararnir eru um 120 talsins. Ferill Gísla í torfærunni hófst árið 1991 þegar hann fékk lánaðan bíl sem Steinar Hauksson hafði smíðað og mætti á honum í keppni á Egilsstöðum. Í kjölfarið keypti Gísli bílinn af Steinari, breytti honum og bjó til „Bleika pardus- inn“ sem hann átti eitt sumar og vann á honum tvær keppnir. Á árunum 1993-2002 var Gísli alltaf í verðlaunasæti á Íslandsmeistaramóti, ef ekki í því fyrsta, þá í öðru. Hann nældi líka yfirleitt í heimsbikarinn eða hafnaði þar í öðru sæti. Eftir nokkurt hlé kom hann aftur inn í sviðsljós tor- færunnar árið 2006. Þar hirti hann öll verðlaun sem hægt var að vinna, hvort sem það var hér heima eða á heims- bikar- eða Norðurlandameistaramóti erlendis. Gísli vakti athygli í þýskum sjónvarps- þætti á þessum vetri þegar hann keyrði yfir stórt stöðuvatn sem reyndist vera gömul náma, þótt hann næði ekki alla leið yfir. Fleiri erlendir fjölmiðlar hafa sýnt honum áhuga í kjölfarið. Það er ekki oft sem risastórt dekk og bílvél fá inni á bókasöfnum en hvoru- tveggja eru mikilvægir liðir í þessari sýningu og gestir safnsins virðast bara ánægðir með að vélarlyktin mæti þeim þegar þeir koma þar inn. Sýningin stendur yfir allan febrúar- mánuð og er opin á virkum dögum á afgreiðslutíma bókasafnsins. - gun Ferill torfærukappa til sýnis SÝNINGARGRIPUR Framan við Ráðhús Ölfuss, þar sem bókasafnið er til húsa, hefur torfærubíl Gísla verið komið fyrir. MYNDIR/ÚR EINKASAFNI Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, Anna María Magnúsdóttir Danielsen frá Laugahvoli, lést þann 31. janúar sl. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 16. febrúar kl. 15.00. Ragnar Danielsen Magnús Danielsen Jóna A. Imsland Arnbjörg María, Breki, Tara Þöll, Hans Gunnar Guðbjörg Magnúsdóttir Thorarensen Okkar elskulega móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Fjóla Guðrún Aradóttir Garðvangi, Garði, lést miðvikudaginn 3. febrúar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, föstudaginn 12. febrúar kl. 13.00. Pálína Ester Guðjónsdóttir Inga Dóra Guðjónsdóttir Sigfríður Ingibjörg Sigurðardóttir Kjartan Reynir Sigurðsson Elva Björk Valdimarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sigsteinn Pálsson fyrrum bóndi á Blikastöðum, Mosfellsbæ, lést fimmtudaginn 4. febrúar sl. á hjúkrunarheimilinu Eir. Útför fer fram frá Grafarvogskirkju, föstudaginn 12. febrúar kl. 13.00. Magnús Sigsteinsson Marta G. Sigurðardóttir Kristín Sigsteinsdóttir Grétar Hansson og fjölskyldur. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, Guðlaugur Ingi Sæmundsson fyrrv. leigubílstjóri, Langholtsvegi 200, Reykjavík, lést á Hrafnistu í Reykjavík 5. febrúar. Útförin fer fram frá Langholtskirkju þriðjudaginn 16. febrúar kl. 13.00. Ingibjörg Aðalsteinsdóttir Sæmundur Guðlaugsson Karólína Benediktsdóttir Arnar S. Guðlaugsson Bergþóra Ásmundsdóttir Halldór Guðlaugsson Hafdís Hafliðadóttir Rúnar Guðlaugsson Valgerður Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og umhyggju við fráfall eiginmanns míns, Ívars Þórhallssonar húsasmíðameistara Austurvegi 5, Grindavík. Guð blessi ykkur öll. Fyrir hönd aðstandenda, Lovísa Sveinsdóttir. Elskuleg sambýliskona, móðir, tengda- móðir, amma og langamma, Soffía Sveinbjörnsdóttir lést á Borgarspítalanum laugardaginn 6. febrúar. Útförin verður auglýst síðar. Hálfdán Jensen Björn Einarsson Margrét Árnadóttir Lúðvík Baldursson Þórey Aspelund Ásgeir Baldursson Hansína Steingrímsdóttir Grétar Gunnarsson Halla Hansen barnabörn og barnabarnabörn. Minning Steingrímur Hermannsson Foringi er fallinn. Veikindi hafa kallað. Enn eitt skarðið hefur verið hoggið í raðir pott- orma Laugardalslauganna með brotthvarfi Steingríms Hermannssonar. Með Steingrími er genginn tryggur og góður félagi Laugardalspottormanna til margra áratuga. Með andláti sínu hefur góður drengur horfið úr okkar röðum yfir í sístækkandi hóp brottgenginna félaga. Steingrímur Hermannsson skilur eftir sig glæsta opinbera mynd af löngum pólitískum frama, en hann átti líka að baki langan feril í íþróttaiðkun og líkamsrækt, feril, sem færri þekkja – kannski aðeins vinir og vandamenn. Svo mikla rækt lagði Steingrímur við reglubundin hvers- dagsleg fundahöld með pottverjum í Laugardalnum, að hann skipulagði jafnvel ríkisstjórnarfundi þannig, á sínum tíma, að þeir trufluðu ekki mætingar hans í heitu pottana og útiskýlið í hádeginu, enda átti hann þar jafn- vel mikilvægari fundi með ákveðnum mannvitsbrekkum úr röðum pottorma, sem ræddu við hann dægurmálin, ráðlögðu honum heilt og nestuðu þannig foringja sinn, eins og skuggaráðuneyti gera best. Steingrímur Hermannsson var kappsamur maður. Keppnisandi hans var ekki aðeins áberandi í pólitík, heldur einnig í íþrótt- um. Til eru margar góðar sögur af félaga okkar, þar sem keppnisandinn skilaði honum í fyrsta sæti, jafnvel þótt hann væri í lokin aleinn eftir í keppninni um að ná besta árangrinum. Þannig var Steingrímur. Vildi vera í fremstu röð – helst alveg fremstur. Steingrímur var góður drengur, sem áður segir. Hann var manna- sættir að eðlisfari og hafði í hjarta sínu samkennd hins íslenska jafnaðarmanns, þótt hann kysi að vista hana í Framsóknarflokknum. Steingrímur kunni bæði að lesa viðmælendur sína, rökræða við þá og sýna þeim tilhlýðilega virðingu á alþýðlegan máta. Þess vegna þótti hann viðkunnanlegur maður og yfirleitt vinsæll sem stjórnandi. Pottormar minnast þátttöku Steingríms í veisluhöldum félaganna í húsnæði Laugardalslauganna á þorra og aðventu. Í þessar veislur bar Steingrímur stundum kínverskt brennivín, sem var svo vont á bragð- ið, að hvort tveggja virtist á hreinu, að enginn sóttist í veigarnar heimafyrir og að hann gat látið flöskuna ganga aftur og aftur milli manna í veislum, án þess að hún tæmdist. Steingrímur Hermannsson bar gen veiði- mannsins. Hann stundaði bæði stang- og skotveiði. Í veiðimanninum Steingrími komu fram helstu eðlisþætt- ir náttúrubarnsins. Að geta lesið umhverfi sitt, kunna á því góð skil og geta notið þess út í ystu æsar. Af öllu þessu má ljóst vera, að með Steingrími Hermannssyni er genginn fjölhæfur foringi sem lifað hefur óvenju glæst- an og viðburðarríkan feril. Pottormar í Laugardal kveðja í dag félaga sinn með söknuði og þakklæti fyrir áratuga félagsskap um leið og þeir áforma að gera sitt besta til að standa sem aftast í röðinni sem er alltaf að styttast. Að lokum vilja pottormar senda eftirlifandi eiginkonu Steingríms, og öðrum ástvinum hans, sínar innilegustu samúðarkveðjur. Gunnar Ingi Gunnarsson. Faðir okkar, Guðlaugur Grétar Kristinsson fyrrv. flugumferðarstjóri, Eskihlíð 22A, Reykjavík, lést föstudaginn 29. janúar á Landspítalanum í Fossvogi. Jarðarförin hefur farið fram. Hreinn Guðlaugsson Kristinn Guðlaugsson Árni Guðlaugsson Jóhanna Margrét Guðlaugsdóttir Grétar Már Guðlaugsson Helga Kristín Guðlaugsdóttir Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, Lydíu Pálmarsdóttur Eskihlíð 5. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Droplaugarstöðum fyrir frábæra umönnun. Pálmar Árni Sigurbergsson Jóhanna Snorradóttir Ólafur Viggó Sigurbergsson Sólrún Jónasdóttir Grétar Sigurbergsson Kristín Hallgrímsdóttir Friðrik Sigurbergsson Árný Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.