Fréttablaðið - 09.02.2010, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 09.02.2010, Blaðsíða 40
24 9. febrúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR NÝTT Í BÍÓ! SÍMI 564 0000 16 16 12 L L 7 L 10 L EDGE OF DARKNESS kl. 8 - 10.30 EDGE OF DARKNESS LÚXUS kl. 5.30 - 8 - 10.30 IT´S COMPLICATED kl. 8 - 10.35 SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM 3D kl. 3.40 - 5.50 SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM 2D kl. 3.40 - 5.50 DYHAT MORGANS kl. 10 MAMMA GÓGÓ kl. 6 - 8 AVATAR 3D kl. 4.40 - 8 ALVIN OG ÍKORNARNIR 2 kl. 3.50 SÍMI 462 3500 L L 12 L 10 L NINE kl. 5.30 - 8 - 10.30 SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM 3D kl. 5.50 IT´S COMPLICATED kl. 8 - 10.35 MAMMA GÓGÓ kl. 6 - 8 AVATAR 3D kl. 8 NIKULÁS LITLI kl. 6 - 10 Íslenskur texti SÍMI 530 1919 L L L 16 16 L L NINE kl. 5.30 - 8 - 10.30 CLOUDY WITH MEATBALLS 2D kl. 5.50 - 8 - 10.10 enskt tal SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM 2D kl. 5.50 íslenskt tal HARRY BROWN kl. 10.35 THE ROAD kl. 8 - 10.20 ALVIN & ÍKORNARNIR 2 kl. 6 íslenskt tal JULIE & JULIA kl. 8 SÍMI 551 9000 .com/smarabio 600 600 600 600 600 600 107.000 GESTIR! Gildir ekki í 3D eða Lúxus 600 Gildir ekki í 3D eða Lúxus 600 AÐDÁENDUR GETA UNNIÐ BÍÓKORT ÚT ÁRIÐ, BOÐSMIÐA Á FORSÝNINGAR O.M.FL. 16 L 12 L EDGE OF DARKNESS kl. 8 - 10.10 SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM 2D kl. 6 IT´S COMPLICATED kl. 8 - 10.10 FRUMGRÁTURINN kl. 6 Enskur texti Stórkostlegt mynd frá DISNEY fyrir alla fjölskylduna16 16 16 16 12 12 12 12 V I P L L L L L THE BOOK OF ELI kl. 8 - 10:20 WHIP IT kl. 8 SHERLOCK HOLMES kl. 10:20 THE BOOK OF ELI kl. 8D - 10:30D THE BOOK OF ELI kl. 5:30 - 8 - 10:30 AN EDUCATION kl. 5:50 - 8 - 10:30 UP IN THE AIR kl. 5:40 - 8 - 10:20 PLANET 51 M/ ísl. Tali kl. 5:50D SHERLOCK HOLMES kl. 5:20 - 8 - 10:40 BJARNFREÐARSON kl. 5:50 - 8 - 10:30 MAYBE I SHOULD HAVE kl. 5:50 - 8 THE BOOK OF ELI kl. 5:50D - 8:10D - 10:10D IT’S COMPLICATED kl. 8 - 10:30 SHERLOCK HOLMES kl. 10:40D WHERE THE WILD THINGS ARE kl. 5:50 Roger Ebert n.y. observer wall street journal 3 Ó S K A R S T I L N E F N I N G A R Besta Mynd - Besta Leikkona í aðalhutverki - Besta Handrit Denzel Washington og Gary Oldman eru frábærir í þessari mögnuðu spennumynd í anda I Am Legend og Mad Max 7 7 TILBOÐ TILBOÐ TILBO Ð TILBO Ð TILBO Ð ÞRIÐJUDAGSBÍÓ Í SAMBÍÓUNUM Í DAG KR. 600 GILDIR EKKI Í VIP, Á ÍSLENSKAR MYNDIR OG Á MYNDIR Í 3D OG BEINAR ÚTSENDINGAR - bara lúxus Sími: 553 2075 EDGE OF DARKNESS kl. 5.40, 8 og 10.20 16 IT’S COMPLICATED kl. 5.40, 8 og 10.20 12 SKÝAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM... 3D kl. 3.50 - Ísl. tal L MAMMA GÓGÓ kl. 3.50 L ALVIN OG ÍKORNARNIR 2 kl. 4 - Ísl. tal L AVATAR 3D kl. 6 og 9 10 ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR 900 KR. Í 3D 900 KR. Í 3D - H.S.S, MBL 600 kr. 600 kr. 600 kr. 600 kr. Bíó ★★★★ Maybe I Should Have eftir Gunnar Sigurðsson og Herbert Sveinbjörnsson Þegar allt var að hrynja hérna í október 2008 fannst manni í svört- ustu gusunum að þetta væri bara búið. Að sjoppunni yrði lokað og við öll send í fraktflugi til Kan- arí. Auðvitað gerðist það ekki. Þar sem Íslendingar eru mjög áhuga- samir um sjálfa sig og þar að auki með tjáningarmaníu og mikla skrásetningarþörf hefur þess- um atburðum þegar verið gerð mikil skil. Það má svo búast við að hruninu verði gerð enn frekari skil í öllum formum lista næstu áratugina. Það er spurning hvað „almenningur“ nennir að velta sér upp úr þessu lengi, en þó von- andi eitthvað enn, enda langt frá því að síðasta púslið sé komið á sinn stað. Þessi fína mynd er mun betri en sú fyrsta, Guð blessi Ísland. Leik- stjórinn Gunnar er bara venjuleg- ur náungi sem kaus Sjálfstæðis- flokkinn (líklega) og hélt að allt væri á góðri leið. Hrunið fór illa með hann eins og marga, greiðslu- byrðin reis honum yfir höfuð og hann sá fram á endalaust hark. Hann neitaði að taka þátt í órétt- lætinu, enda í betri aðstöðu til þess en margir, einhleypur og með uppkomin börn. Hann segir sögu sína og fer svo að leita að orsök- um hrunsins með kvikmynda- gerðarmanninn Herbert sér við hlið. Þeir flækjast víða um heim og beina upplýsandi ljósi á staði, fólk og stofnanir. Gunnar beit- ir persónulegu aðferðinni, sem Michael Moore er líklega þekkt- astur fyrir, og óhætt er að segja að þá sé nokkur „Moore“ í þess- ari mynd. Húmor og hreinskilni einkenna stílinn. Ýmsir „talandi hausar“ taka svo til máls á álíka eðlilegu máli sem þarf ekki fimm ára hagfræðinám til að skilja. Jóhannes Björn og Egill Helgason eru beittir, Jón Gnarr fyndinn og alls konar útlendingar segja hluti sem ættu að fá áhorfendur til að kreppa hnefana. Þessi mynd brýnir þá tilfinningu að uppgjör verði að fara fram. Og að eitthvað nýtt og betra verði að rísa úr rústunum, ekki bara sama gamla jukkið með yfirstétt sem liggur í efsta lagi þjóðfélagsins, eins og gráðugar lýs á „almenn- ingi“, sem er nánast fastur í þræl- dómi og vistarbandi fyrir það eitt að vilja eiga þak yfir höfuðið og bíl til að komast á milli staða. Ég ætla rétt að vona að ríkisstjórnin sé búin að sjá þessa mynd – eða sé að minnsta kosti á leiðinni. Þú ættir að drífa þig líka. Dr. Gunni Niðurstaða: Ljómandi ræma sem gengur fumlaust fyrir sig: skemmtileg, upplýsandi og „brýnandi“. Púsl í heildarmyndina ÚR MAYBE I SHOULD HAVE Gunnar fór víða í leitinni að sannleikanum. Hér er hann á Tortola. Fyrsta sólóplata Jónsa úr Sigur Rós, Go, fær frábæra dóma á bresku tónlistarsíðunni Musicomh.com, eða fjórar og hálfa stjörnu af fimm mögulegum. Þetta er fyrsti dóm- urinn sem birtist um plötuna, sem kemur ekki út fyrr en 5. apríl. „Go er framúrskarandi plata sem er uppfull af fegurð. Hún er til- finningarík, skemmtileg, býr yfir barnslegri einlægni og er sorgleg á sinn ævintýralega hátt. Bara ef lífið sjálft gæti verið svona gott. Þessi plata fær þig til að trúa því að það getur orðið það,“ segir í dómn- um. Gagnrýnandinn bætir við að aðdáendur Sigur Rósar verði ekki sviknir af plötunni. Ævintýralegur Jónsi JÓNSI Fyrsta sólóplata Jónsa, Go, fær frábæra dóma á bresku tónlistarsíðunni Musicomh. MYND/LILJA BIRGISDÓTTIR Leikarinn Sam Worthington hefur tekið að sér aðalhlut- verkið í saka- málamyndinni Texas Killing Fields. Fram- leiðandi verður Michael Mann, sem síðast leik- stýrði Public Enemies með Johnny Depp í aðal- hlutverki. Leikstjóri myndar- innar verður aftur á móti dóttir hans, Ami Canaan Mann. Worthington í sakamálum SAM WORTHINGTON Robert Pattinson, aðal- leikarinn í Twilight- myndunum, kvíðir fyrir því að leika í kynlífssenum á móti Umu Thurman í næstu mynd sinni, Bel Ami. Í Bel Ami, sem verður frumsýnd á næsta ári, leikur Pattinson blaðamanninn Georges Duroy sem fikrar sig upp í hæstu hæðir samfélagsins með því að sofa hjá háttsettum konum. Í myndinni mun Pattinson fækka fötum fyrir framan Christinu Ricci, Kristin Scott-Thomas og Umu Thurman. Kvíðir Pattinson mest fyrir því að leika á móti Thurman. „Kyn- lífssenurnar með Umu trufla mig dálítið. Persóna hennar notar kyn- líf sem nokkurs konar vopn og mín persóna hugsar eins og dýr. Það er dálítið mikið af kynlífssen- um í þessari mynd, þannig að ég ætlast til mikils af sjálfum mér og það með mismunandi konum,“ sagði Pattinson. Auk þess að hafa áhyggjur af frammistöðu sinni í Bel Ami hefur Pattinson lýst yfir áhyggjum af gangi mála varðandi fjórðu og síðustu Twilight-myndina, Break- ing Dawn. Hann vill að framleið- endur hennar ákveði tökudag sem allra fyrst til að hann geti skipu- lagt næstu verkefni sín í kringum myndina. Tökum á þriðju mynd- inni, Eclipse, er þegar lokið og kemur hún á hvíta tjaldið í júlí næstkomandi. „Það væri gott ef maður vissi hvað er að fara að gerast. Það er dálítil byrði að vita ekki hvenær Breaking Dawn fer í tökur. Það er slæmt að eitthvað sé fram undan sem maður veit ekki hvenær verður. Það er erfitt að skipuleggja líf sitt í kringum eitthvað sem maður veit ekkert um,“ sagði hann. Síðustu tvær Twilight-myndir hafa notið gríðarlegra vin- sælda að undanförnu en þær eru byggðar á samnefndum bókum Stephanie Meyer. Kvíðir fyrir kynlífssenum ERÓTÍKIN ALLSRÁÐANDI Robert Pattinson aðalleikari Twilight- myndanna leikur í svæsnum kynlífsatrið- um á móti Umu Thurman í næstu mynd sinni.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.