Fréttablaðið - 19.02.2010, Blaðsíða 29
FYLGSTU MEÐ ÍSLENSKRI TÓNLIST
M úsíkin er göfugur kokk-teill efnislegra og óefn-islegra íblendiefna. Neytendur mismunandi
tegunda eiga það eitt sameiginlegt
að sækjast eftir sem mestum áhrif-
um. Eins og Hljómgrunnur hefur
bent á, eru mismunandi fram-
reiðsluaðferðir í músíklífinu mik-
ilvægar til að skapa þá fjölbreytni
sem einkennir tónlistarlífið okkar.
Hljómgrunnur leitar dyrum og
dyngjum að sem flestum skoðun-
um á því hvernig best er að hrista
saman þann fjölbreytta hóp sem
vinnur að tónlist á Íslandi. Aldrei
áður hefur verið eins nauðsynlegt
að sameina slagkraftinn og finna
taktinn.
Allir útgefendur tónlistar standa
frammi fyrir því að ólögleg dreif-
ing tónlistar á Netinu hefur umtals-
verð áhrif á afkomuna. Þó að neyt-
endur virðist enn sem komið er
frekar hika við að hlaða ólöglega
niður tónlist innlendra listamanna
en erlendra, breytir það ekki þeirri
staðreynd að sala á tónlist hefur
dregist saman um tugi prósenta á
síðustu tíu árum.
Menn tala um vaxtaverki í þessu
sambandi, að hér sé um að ræða
tímabundið ástand á meðan mark-
aðurinn og listamennirnir sjálfir
aðlagi sig breyttum tímum.
Jón Hrólfur Sigurjónsson, stofn-
andi musik.is, bendir á í sinni grein
um netnotkun að breyttir tímar eru
viðvarandi ástand. Þróunin hægir
ekki á sér og birtingarmyndir tón-
listarinnar halda áfram að breyt-
ast, eins og umfjöllunin um hana í
fjölmiðlum. Jón Hrólfur spyr hvort
útgáfa á Hljómgrunni í prentuðu
formi sé í takt við tímann. Þess-
ar vangaveltur eiga einmitt erindi
hér og nú enda hefur Hljómgrunn-
ur að markmiði að vekja athygli á
og sameina upplýsingaveitur um
tónlist á Íslandi svo að úr verði að-
gengilegur grunnur sem hljómi vel
og lengi til góðs fyrir alla tónlist í
landinu. Annars staðar í blaðinu er
gerð grein fyrir fyrstu skrefunum
í net- og farsímavæðingu viðburða-
dagatala tónlistarinnar.
Ríkisútvarpið og málefni þess
hafa verið í fréttum undanfarið og
í Hljómgrunni að þessu sinni eru
hugleiðingar um gjaldþrot stefnu
(eða stefnuleysi) sem hefur ráðið
ríkjum í stjórn þess undanfarin ár.
Menningarlegum yfirburðum ríkis-
útvarpsins hefur verið fórnað á alt-
ari markaðsvæðingar. Sú loftbóla
sem varð til með ohf-væðingu RÚV
er sprungin.
Af þessum lestri mætti ætla að
ekki stæði steinn yfir steini í tón-
listarlífinu. En það er öðru nær. Sá
sprengikraftur sem einkennir ís-
lenska tónlist
heldur áfram að
lýsa upp hljóð-
himininn með
músíkölskum
eldglæringum
eins og ekkert
hafi í skorist. Á
meðan aðstand-
endur tónlistar-
innar ná vopn-
um sínum aftur í
baráttunni fyrir
viðgangi listarinnar heima og er-
lendis hljómar músíkin áfram og
maður getur vonað að tímabundn-
ar aðstæður færi okkur nær kjarn-
anum.
Nýlega yfirstaðnir Myrkir mús-
íkdagar eru gott dæmi um stórhug
tónlistarmanna, en þessi þrjátíu
ára tónlistarhátíð gefur, þrátt fyrir
nafnið, tilefni til bjartsýni fyrir
hönd nýsaminnar tónlistar en þess-
ir myrku dagar munu varpa auk-
inni músíkalskri birtu hér heima
og erlendis á komandi árum. Sam-
starf við Huddersfield-hátíðina á
Englandi, hátíðir og útvarpsstöðv-
ar í Danmörku, Belgíu og víðar
eru í hendi og stefnt er á að byggja
rólega til framtíðar, enda gerast
góðir hlutir hægt.
Jazzhátíð hefur líka svarað
kreppunni með því að fimmfalda
ágústhátíð sína og bauð að auki
uppá Vetrarjazzdaga 11.-15. febrú-
ar, í samvinnu við Norræna Húsið
og Jazzklúbbinn Múl-
ann. Hugmyndin er sú að
byggja upp árlega Vetrar-
jazzdaga með sterkum nor-
rænum blæ, en erlendir
gestir komu hingað í sam-
starfi við Nordjazz.
Í öllu starfi sem lýtur að
útbreiðslu íslenskrar tón-
listar erlendis er aðkoma
Útóns lykilatriði enda er
nú sem aldrei fyrr ástæða
til að sameina kraftana í skynsam-
legri útrás tónlistarinnar. Anna
Hildur Hildibrandsdóttir segir frá
því hér í blaðinu hvaða hlutverki
tónlistarráðstefnur gegna í þess-
ari baráttu.
Besta dæmið um birtuna í tón-
listinni eru þau um það bil 160
hljóðrit sem send voru inn til þátt-
töku í Íslensku tónlistarverðlaunun-
um. Samtónn hefur létt undir með
listamönnum með því að
fella niður þátttökugjöld
í þeirri von að sem flest-
ir taki þátt. Aldrei hafa
fleiri sent inn verk sín og
gert er ráð fyrir að um
95% útgefinna hljóðrita
séu í pottinum. Benda má
listamönnum á að skrán-
ingarsíða tónlistarverð-
launanna er á iston.is. Hún
er nú opin allt árið og því
skynsamlegast að skrá plötuna sína
um leið og hún kemur út. Við birt-
um tilnefningar til ÍTV í Hljóm-
grunni að þessu sinni, en í tilefni af
því ætla útgefendur og plötusalar
að vera með sértilboð á sigurverk-
um síðustu ára. Afhending íslensku
tónlistarverðlaunanna fer fram í Ís-
lensku óperunni 13. mars nk. í op-
inni dagskrá Stöðvar 2.
Pétur Grétarsson.
LJÓS Í MYRKRINU
TILNEFNINGAR TIL
ÍSLENSKU TÓNLISTAR-
VERÐLAUNANNA
VERÐLAUNIN VERÐA AFHENT Í ÍSLENSKU ÓPERUNNI Í BEINNI ÚTSENDINGU OG OPINNI DAGSKRÁ Á
STÖÐ 2 LAUGARDAGSKVÖLDIÐ 13. MARS. SJÁ SÍÐU 2
Jazzhátíð hefur svarað kreppunni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Páll Magnússon,
útvarpsstjóri og
framkvæmdastjóri
Ríkisútvarpsins
ohf.
Anna Hildur
Hildibrandsdóttir,
framkvæmdastjóri
Úton.
19
. F
EB
. 2
01
0
SKRÁNING
HAFIN Í
MÚSÍKTILRAUNIR
GÓÐUR
ÁRANGUR
Á MIDEM
JÓN SIGURJÓNSSON FÉKK
NET-DELLU FYRIR 20 ÁRUM
OG HEFUR FYLGST MEÐ
ÞRÓUNINNI
SÝRLAND STÆKKAR
FJÖLBREYTNI LYKILL
AÐ VELGENGNI
ÓLAFUR ÓSKAR
AXELSSON HUG-
LEIÐIR HLUTVERK
TÓNLISTARHÚSSINS
HÖRPU