Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.02.2010, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 25.02.2010, Qupperneq 8
8 25. febrúar 2010 FIMMTUDAGUR 5.000 umslög UMHVERFISVOTTUÐ PRENTSMIÐJA Oddi – umhverfisvottuð prentsmiðja. Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, sími 515 5000, www.oddi.is sex saman í p akka ÍS L E N S K A S IA .I S M S A 4 58 61 0 4 /0 9 1 Hver er forsætisráðherra Danmerkur? 2 Í hvaða NATO-landi er grun- ur um að hópur herforingja hafi áformað stjórnarbyltingu? 3 Hvaða kvikmyndaleikstjóri verður kynnir á Eddu-hátíðinni á laugardag? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 38 ALÞINGI Seðlabankinn hefur veitt bönkum lán gegn veðum í íbúða- lánum en neitar að upplýsa um hvaða bank- ar eiga í hlut. Telur bank- inn sig bundinn þagnarskyldu. Í lögum um bankann segir að stjórnendur hans séu bundn- ir þagnarskyldu um allt það sem varðar hagi við- skiptamanna bankans. Gunnar Bragi Sveinsson, Fram- sóknarflokki, spurði viðskiptaráð- herra um íbúðalán Seðlabankans. Í svarinu segir að bankinn hafi ekki eignast nein íbúðalán en hafi tekið veð í slíkum lánum. - bþs Seðlabankinn á ekki íbúðalán: Svarar ekki um eigin veðtökur GUNNAR BRAGI SVEINSSON UMHVERFISMÁL Íbúi einn í Kópa- vogi segist ætla að leggja fram kæru vegna mikils ónæðis frá Sporthúsinu. „Í tæplega sjö ár hef ég kvartað undan þessu við bæjar- yfirvöld, forráðamenn Sporthúss- ins og lögreglu án árangurs og ekkert breytist. Ég get ekki hugs- að mér að eyða enn einu sumrinu í garðinum undir látlausum drun- um frá Sporthúsinu,“ segir í bréfi íbúans sem sent var undir yfir- skriftinni „Endalaus hávaði“ og barst bæjaryfirvöldum í maí í fyrra. Málið var rætt á síðasta fundi skipulagsnefndar í kjölfar þess að heilbrigðiseftirlitið hafði mælt hávaðann og sagt hann yfir mörkum. Á fundinum kom fram að Sport- húsið lofar úrbótum. - gar Langþreyttur nágranni: Angraður með hávaða í átta ár LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Suður- nesjum handtók í fyrrakvöld karl- mann á þrítugsaldri sem talinn er vera vitorðsmaður aldraðs fíkni- efnasmyglara. Sá var handtek- inn í Leifsstöð í síðustu viku með með 877 grömm af kókaíni. Hinn meinti vitorðsmaður var yfir- heyrður í gær og síðan úrskurð- aður í vikulangt gæsluvarðhald. Hann er ekki ættingi þess gamla og á ekki afbrotaferil að baki. Ekki fást upplýsingar um það hjá lögreglu hvort maðurinn er talinn vera skipuleggjandi smyglsins. - sh Úrskurðaður í gæsluvarðhald: Meintur vitorðs- maður tekinn NOREGUR, AP Mordechai Van- unu, ísraelski kjarnorkuvísinda- maðurinn sem ljóstraði upp um kjarnorkuvopn Ísraels, hefur öðru sinni ritað norsku Nóbel- snefndinni bréf þar sem hann hafnar friðar- verðlaunum Nóbels fyrir- fram. Ástæðan er einkum sú að hann vill ekki þiggja sömu verðlaun og veitt hafa verið Shimon Peres, núverandi for- seta Ísraels, sem fékk verðlaunin ásamt Jasser Arafat árið 1994. Vanunu sat í ísraelsku fangelsi í átján ár en var látinn laus árið 2004. Hann má þó hvorki fara úr landi né hafa samskipti við útlend- inga. - gb Ísraelskur kjarnorkufræðingur: Hafnar öðru sinni Nóbel MORDECHAI VANUNU STJÓRNMÁL Framlög lögaðila til Sjálfstæðisflokksins árið 2008 námu 8,6 milljónum króna, sam- kvæmt ársreikningi flokksins. Þessi framlög námu tæpum 57 milljónum árið 2007. Á sama tíma fóru eignir flokksins úr því að vera tæpar 462 milljónir og í rúmar 705 milljónir króna. Eigið fé flokksins fer úr 386,3 milljón- um og í 662,7 milljónir, sem er aukning um 71 prósent. Þetta kemur fram í ársreikn- ingi flokksins, sem var skilað til Ríkisendurskoðunar í gær. Þess ber að geta að ofangreindar tölur eru samkvæmt óyfirfarinni útgáfu reikningsins. Hún hefur til að mynda ekki verið undirrit- uð af þáverandi framkvæmda- stjóra, Andra Óttarssyni. Hin mikla aukning eigna virðist að hluta liggja í fasteignum, því þær voru metnar á 548 milljónir 2008, meðan allir fastafjármunir 2007 námu 410 milljónum. Heildarframlög til flokksins nema rúmum 253 milljónum 2008, en voru 317,4 milljónir árið 2007. Framlög ríkis og sveitarfélaga nema tæpum 64 prósentum af heildarframlögum 2008. Rekstrargjöld fóru úr 351,5 milljónum 2007 og í 205 milljón- ir 2008. Reksturinn fór úr 37 milljóna tapi 2007 og í 62,5 milljóna hagn- að 2008. Árið 2008 studdu 39 fyrirtæki flokkinn og kemst listinn fyrir á rúmlega hálfu A4 blaði. Árið 2007 var listinn, með ögn stærra letri, tæpar sjö blaðsíður. Þess skal getið að árið 2007 var kosningaár og því líklegt að Sjálfstæðisflokkur á meiri eignir en áður Frjáls framlög til Sjálfstæðisflokks dragast mikið saman milli 2007 og 2008. Flokkurinn virðist þó ekki fara mjög illa út úr hrunárinu fjárhagslega, miðað við að eignir jukust um 52 prósent og eigið fé um 276 milljónir, eða 71 prósent. ALÞINGI Breski hagfræðiprófess- orinn Anne Sibert fær 2.000 bresk pund, um 400 þúsund krónur, á mán- uði fyrir setu sína í peningastefnu- nefnd Seðlabanka Íslands. Þetta kom fram í svari Gylfa Magnússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur, Framsóknarflokki, á Alþingi í gær. Sibert var skipuð í nefndina af for- sætisráðherra. Auk launanna greiðir Seðlabankinn fyrir ferðir hennar til og frá London og hótelgistingu hér- lendis. Kostnaður vegna þess hefur numið um 1.650 þúsund krónum. Einnig var spurt um kostnað við Norðmanninn Svein Harald Øygard, fyrrverandi seðlabankastjóra, og þýskan bankaráðsmann Framsóknar- flokksins, Daniel Gros. Øygard hafði 1.575 þúsund krónur í mánaðarlaun, auk þess sem greidd var fyrir hann leiga á tveggja her- bergja íbúð, flug til og frá Noregi á tveggja vikna fresti á ódýrasta far- rými og flug fyrir fjölskyldu hans, allt að þrjú sæti í einu, á sex vikna fresti. Sá kostnaður nam alls rúmum 1.680 þúsundum. Gros fær 117 þúsund krónur í mánaðarlaun, kostnaður vegna túlkunar fyrir hann hefur numið um 60 þúsundum og vegna flugs til og frá Brüssel og hótelgistingar 340 þúsundum. Enn er óvíst hver ber kostnaðinn umfram launin. - sh Enn er óvíst hver ber aukakostnað af þýskum bankaráðsmanni Framsóknar: Sibert með 2.000 pund á mánuði ANNE SIBERT SVEIN HARALD ØYGARD Ríkisendurskoðun birti ársreikninga hinna stóru flokkanna þriggja 4. febrúar. Í þeim má sjá að minni framlög lögaðila einskorðast ekki við Sjálfstæðisflokkinn, því framlög til Framsóknar fóru úr 28,6 milljón- um 2007 í 540 þúsund krónur árið eftir. Framlög lögaðila til VG fóru á sama tíma úr tæpum 17 milljónum í núll krónur. Samfylkingin missti minnst hlutfallslega. Framlög frá lögaðilum fóru úr 23,5 milljónum í tíu milljónir hjá henni. Framlög einstaklinga til VG og Samfylkingar jukust milli ára, en minnkuðu hjá Framsókn um tvær milljónir og Sjálfstæðisflokki um sextán milljónir. Í SAMHENGI FRAMLÖG SVEITARFÉLAGA TIL FLOKKSINS Sextán sveitarfélög studdu Sjálfstæðisflokkinn árið 2008, miðað við fram- kominn ársreikning. Helstu framlög komu frá eftirtöldum: ■ 14,4 milljónir - Reykjavíkur- borg ■ 2,5 milljónir - Reykjanesbær ■ 2,2 milljónir - Garðabær ■ 1,8 milljónir - Kópavogur ■ 1,2 milljónir - Hafnarfjörður ■ 985.633 krónur - Akureyri VALHÖLL Mikil eignamyndun flokksins milli ára, til dæmis í fasteignum, er óútskýrð. flokkurinn hafi sóst frekar eftir styrkjum en árið eftir, eins skýr- ir það væntanlega meiri eyðslu það árið. Hvorki náðist í Jónmund Guðmarsson, framkvæmdastjóra flokksins, né Andra Óttarsson í gær. Bjarni Benediktsson for- maður svaraði heldur ekki skila- boðum. klemens@frettabladid.is VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.