Fréttablaðið - 25.02.2010, Blaðsíða 48
32 25. febrúar 2010 FIMMTUDAGUR
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 564 0000
14
14
10
16
L
L
10
L
LOFTKASTALINN SEM HRUNDI kl. 5 - 8 - 11
LOFTKASTALINN SEM HRUNDI kl. 5 - 8 - 11 LÚXUS
THE LIGHTNING THIEF kl. 5.30 - 8 - 10.30
EDGE OF DARKNESS kl. 8 - 10.30
SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM 3D kl. 3.40 - 5.50 ísl.tal
SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM 2D kl. 3.40 - 5.50 ísl.tal
AVATAR 3D kl. 8
ALVIN OG ÍKORNARNIR 2 kl. 3.30 íslenskt tal
SÍMI 462 3500
14
16
10
12
L
10
LOFTKASTALINN SEM HRUNDI kl. 5 - 8 - 11
THE WOLFMAN kl. 10.40
THE LIGHTNING THIEF kl. 5.30
IT´S COMPLICATED kl. 8 - 10.35
MAMMA GÓGÓ kl. 6
AVATAR 3D kl. 6 - 9.20
SÍMI 530 1919
14
10
12
L
L
LOFTKASTALINN SEM HRUNDI kl. 6 - 9
THE LIGHTNING THIEF kl. 8 - 10.30
IT´S COMPLICATED kl. 8 - 10.30
NINE kl. 8 - 10.30
NIKULÁS LITLI kl. 6
SÍMI 551 9000
.com/smarabio
113.000 GESTIR!
AÐDÁENDUR GETA UNNIÐ BÍÓKORT ÚT ÁRIÐ,
BOÐSMIÐA Á FORSÝNINGAR O.M.FL.
14
16
10
L
LOFTKASTALINN SEM HRUNDI kl. 6 - 9
THE WOLFMAN kl. 10.10
THE LIGHTNING THIEF kl. 8
ARTÚR 2 kl. 6
Þ.Þ. - Fbl T.V. - kvikmyndir.is
LOFTKASTALINN
SEM HRUNDI
BYGGÐ Á METSÖLUBÓK STIEG LARSSON
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG!
MICHAEL NYQVIST NOOMI RAPACÉ
Stórkostlegt mynd frá DISNEY fyrir alla fjölskylduna
16
16
12 12
12
12
12
V I P
L L
L
L
L
LL
L
L
L
L
FRÁ SAMA LEIKSTJÓRA OG FÆRÐI OKKUR
PRETTY WOMAN
BROTHERS kl. 5:50 - 8 - 10:20
VALENTINE ‘S DAY kl. 5:30D - 8D - 10:40D
VALENTINE ‘S DAY kl. 8 - 10:40
THE WOLFMAN kl. 8 - 10:20
TOY STORY 2 M/ ísl. tali kl. 5:50(3D)
THE BOOK OF ELI kl. 10:20
AN EDUCATION kl. 5:50
UP IN THE AIR kl. 5:50 VIP - 8
SHERLOCK HOLMES kl. 8 - 10:40
BJARNFREÐARSON kl. 5:50
BROTHERS kl. 5:40D - 8:10D - 10:30D
INVICTUS kl. 5:30 - 8 - 10:40
VALENTINE ‘S DAY kl. 5:40D - 10:40D
MAYBE I SHOULD HAVE kl. 8 örfá sæti laus
BROTHERS kl. 10:20
VALENTINE ‘S DAY kl. 8
THE BOOK OF ELI kl. 8
SHERLOCK HOLMES kl. 10:20
FRÁBÆR GAMANSÖMU OG RÓMANTÍSK MYND
SUMIR ERU HEPPNIR Í ÁSTUM AÐRIR EKKI!
“The best movie I’ve seen in 2009. Tobey Maguire gives the
performance of his career. Natalie Portman deserves an Oscar
nomination.“
Richard Roeper, richardroeper.com
“Brothers is arguably the most successful remake of a foreign film
since Martin Scorsese reworked Infernal Affairs into The Departed.“
88ReelViews - James B.
sýnd með íslensku tali
- bara lúxus
Sími: 553 2075
LOFTKASTALINN SEM HRUNDI kl. 7 og 10.10 14
THE WOLFMAN kl. 8 16
THE LIGHTNING THIEF kl. 5.40 10
EDGE OF DARKNESS kl. 10.20 16
IT’S COMPLICATED kl. 5.40 og 8 12
Þ.Þ. -FBLT.V. -KVIKMYNDIR.IS
T.V. -KVIKMYNDIR.IS
E.E. -DV
Ó.H.T. -RÁS 2
Þ.Þ. -FBL
H.S.S. -MBL
Martin Scorsese er einstak-
ur leikstjóri. Afrek hans á
hvíta tjaldinu verða eflaust
seint leikin eftir þótt
Óskars akademían hafi ekki
alltaf verið á sama máli.
Nýjasta kvikmynd Martins Scor-
sese, Shutter Island, verður tekin til
sýninga í kvikmyndahúsum borgar-
innar um þessa helgi. Hún skartar
að sjálfsögðu Leonardo DiCaprio
í aðalhlutverkinu en myndin
segir frá tveimur rannsóknarlög-
reglumönnum sem sendir eru á
afskekkta eyju. Þar er starfrækt
fangelsi fyrir geðsjúka glæpamenn
en rannsóknarlögreglumennirnir
eiga að rannsaka hvarf hættulegs
morðkvendis. Auk DiCaprio eru
þeir Mark Ruffalo og Ben Kingsley
í helstu hlutverkum.
Kvikmyndir Scorsese eru ein-
stakar; notkun hans á tökuvélum,
ljósum og tónlist er með því besta
sem gerist í kvikmyndagerð og frá-
sagnarlist hans er einstök. Óþarfi
er að renna yfir feril leikstjórans í
mögum orðum, hann má nálgast á
imdb.com. Þar getur að líta nánast
flekklaust líf á bak við tökuvélarn-
ar með aðeins örfáum undantekn-
ingum á borð við Kundun og New
York, New York. Líf Scorsese utan
tökustaðarins hefur reyndar verið
skrautlegt; hann hefur verið giftur
fimm sinnum, meðal annars leik-
konunni Isabellu Rosselini og fram-
leiðandanum Barböru De Finu en
þau tvö hafa unnið saman eftir að
þau skildu. Scorsese er nú kvæntur
Helen Morris og á með henni eitt
barn.
Scorsese hefur haft það fyrir
sið að vinna kvikmyndir sínar
með sama leikaranum í aðalhlut-
verki og hefur kallað þá „innblást-
ur sinn“. Harvey Keitel var fyrst-
ur til að hljóta slíka nafnbót, lék í
fyrstu kvikmyndum leikstjórans,
meðal annars Mean Streets, Alice
Doesn‘t Live Here Anymore og
síðar meir The Last Temptation.
Robert De Niro tók síðan við
keflinu; samstarf þeirra tveggja
er með því besta sem hefur átt sér
stað á hvíta tjaldinu. Akademían
bandaríska hafði það hins vegar
fyrir sið að sniðganga meistara-
verk Scorsese og sennilega hafa
mestu svik í sögu Óskarsins átt sér
stað hinn 25. mars árið 1991 þegar
Dansar við Úlfa eftir Kevin Cost-
ner var valinn fram yfir Good-
fellas. Síðasta mynd De Niro og
Scorsese var Casino en það yrðu
einhver stærstu tíðindi kvik-
myndasögunnar ef þessar tvær
goðsagnir tækju þá ákvörðun að
endurnýja samstarfið.
En það voru ekkert síður óvænt
tíðindi þegar Scorsese fékk Leon-
ardo DiCaprio til að leika aðal-
hlutverkið í Gangs of New York.
DiCaprio var þá óskabarn amer-
ísku þjóðarinnar eftir að hafa
leikið Jack Dawson í Titanic og
malaði gull í miðasölu með mis-
jöfnum myndum. DiCaprio sýndi
hins vegar og sannaði að hann er
meira en bara sykursætur strák-
ur og leikarinn er aldrei betri en
þegar Scorsese situr í leikstjóra-
stólnum. freyrgigja@frettabladid.is
Scorsese situr á toppnum
SCORSESE OG ÓSKARINN
1977 Taxi Driver: Tapaði fyrir Rocky
1981 Raging Bull: Tapaði fyrir Ordinary
People
1991: Goodfellas: Tapaði fyrir Dances
with Wolves
2003: Gangs of New York: Tapaði fyrir
Chicago
2005: Aviator: Tapaði fyrir Million
Dollar Baby
2007: Departed: Vann loks Óskarinn
LEIKSTJÓRINN OG EIN SKÁLDAGYÐJAN Scorsese hefur haft það fyrir sið að notast við
sama leikarann í aðalhlutverki í kvikmyndum sínum. Harvey Keitel var fyrstur, svo
kom Robert De Niro en samstarf hans og leikstjórans er með því besta sem hefur átt
sér stað á hvíta tjaldinu. Leonardo DiCaprio er síðan nýjasti „lærlingur“ leikstjórans
og er aldrei betri en þegar Scorsese situr í leikstjórastólnum.
Mikil uppsveifla er um þessar
mundir í íslensku tæknivæddu
poppi, sem helst fær athygli á
útvarpsstöðvunum FM957 og
Flash. Í kvöld verða haldnir tón-
leikar á Apótekinu, þar sem nokkr-
ir þessara poppara sýna listir
sínar.
Aðaltónlistarmaður kvöldsins
er Júlí Heiðar, en hann hefur að
undanförnu verið að skjótast upp
á stjörnuhimin íslenskra unglinga.
Júlí sver sig í ætt við fyrirbæri
eins og Silvíu Nótt og Gillzenegg-
er og ekki er alveg á hreinu hvort
hann er algjörlega einlægur í yfir-
gengilegum töffaraskap sínum og
karlrembu.
Júlí hefur að minnsta kosti vakið
athygli. Á aðeins þremur mánuðum
hefur hann náð að spila á þremur
framhaldsskólaböllum, fengið nær
40 þúsund spilanir á lög eins og
„Nýja hún“ og „Blautt dansgólf“ á
Youtube, komið fram á fjölmörgum
skemmtistöðum, verið hent út af
Nasa fyrir ósiðsamlega hegðun
á sviði auk þess sem það eru til
fimmtán aðdáendasíður og grúppur
um hann á samskiptavefnum Face-
book. Júlí ætlar að frumflytja um
það bil hálftíma af nýjum lögum.
Auk Júlí koma fram rapparinn
Gummzter og Kristmundur Axel,
sem gert hefur garðinn frægan í
undirheimum rappsins. Sérstak-
ur heiðursgestur á tónleikunum er
sjálfur Haffi Haff.
Tvennir tónleikar eru í boði. Þeir
fyrri eru fyrir 13-16 ára unglinga
og eru frá kl. 18 til 20.30. Seinni
tónleikarnir eru fyrir 16 ára og
eldri og standa yfir frá kl. 21 til
miðnættis. Forsala miða fer fram í
Outfitters Nation í Kringlunni.
- drg
Júlí bleytir dansgólf
JÚLÍ HEIÐAR MEÐ VINKONUM SÍNUM
Frumflytur hálftíma af nýjum lögum.
Leikarinn Jake Gyllenhaal slasaðist oft
og mörgum sinnum við tökur á hasar-
myndinni Prince Of Persia: The Sands
Of Time. Hann lét það ekki á sig fá því
hann var staðráðinn í því að framkvæma
sjálfur áhættuatriðin sín. „Ég tognaði
í öxlunum og í bakinu og rústaði á
mér ökklann nokkrum sinnum en
það var ekkert alvarlegt,“ sagði
hinn 29 ára Gyllenhaal. „Í einu
atriði kýldi ég fyrir mistök einn
náunga í andlitið. Ég reyndi það sem eftir var
atriðisins að reyna að kýla hann ekki aftur.“
Ekki kemur fram hvort þar hafi verið um
Gísla Örn Garðarsson að ræða en hann fer
með hlutverk í myndinni, sem verður
frumsýnd í sumar.
JAKE GYLLENHAAL Gyllenhall lék sjálfur
í áhættuatriðunum í hasarmyndinni
Prince Of Persia.
Slasaðist í Prince Of Persia