Fréttablaðið - 25.02.2010, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 25.02.2010, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2010 www.IKEA.is FÄRGRIK diskur 395,- Ø27cm. Hvítt FÄRGRIK hliðardiskur 295,- Ø21cm. Hvítt FÄRGRIK skál 295,- Ø16cm. Hvítt Fæst einnig í grænu, bláu og svörtu FÄRGRIK kanna 95,- 25cl. Hvítt REKO glös 250,-/6 í pk. 17cl. Gler VARSAM bakki 195,- B35×L47cm. Hvítt SNÄRTIG gerviblóm 195,-/stk. L33cm. Ýmsir litir FLYN LILL löber/ flekagardína 395,-/stk. B60×L300cm. Ýmsir litir LUGN skál 95,- Ø14cm. Drapplitað MOTTO djúpur diskur 95,- Ø19cm. Drawpplitað LUGN diskur 95,- Ø23cm. Drapplitað Standi magninnkaup á borð- búnaði og skrauti fyrir dyrum er IKEA með allt sem til þarf. Þegar stórveislur eins og ferming- ar og útskriftir eru á næsta leiti getur verið ráð að líta við í IKEA en þar er hægt að gera hagstæð kaup á borðbúnaði og skrauti. „Við erum með skálar og diska frá 95 krónum og getur í mörgum tilfellum verið ódýrara að kaupa borðbúnað hjá okkur en að leigja. Hann má síðan nýta aftur innan fjölskyldunnar, á milli vina eða til einkanota og ætti peningunum því að vera vel varið,“ segir Birna Magnea Bogadóttir, aðstoðarsölu- stjóri smávörudeildar IKEA. Hún segir hægt að fá allt sem þarf í veisluna í IKEA. „Við erum með mikið úrval af framreiðslubökk- um og skálum ásamt hnífapör- um, teskeiðum, desert-göfflum og ýmsu tilheyrandi. Þá er ýmist hægt að velja um munstruð og ein- lit stell auk þess sem þau fást með ýmsu lagi.“ Þegar talið berst að skraut- inu segir Birna Magnea marga skreyta pakka- og veisluborð með löberum. Hún segir enga ákveðna liti ráða ríkjum í ár og að þeir séu jafnt munstraðir sem einlit- ir. „Síðan erum við með mikið af gerviblómum sem margir klippa niður og dreifa yfir borð- in ásamt vösum af ýmsum stærð- um og gerðum. Kerti gegna líka stóru hlutverki og er hægt að kaupa alls kyns stjaka og bakka undir þau,“ segir Birna Magnea og tekur dæmi um fjóra stjaka í pakka sem fást á innan við tvö hundruð krónur en margir dreifa þeim um veislusalinn. „Þá erum við með litaðan sand sem er vin- sælt að setja í bæði vasa og stjaka með kertum eða blómum.“ Birna Magnea segir mikla áherslu lagða á það í IKEA að stilla upp hugmyndum að lausnum og uppröðun hluta. „Þótt skraut- ið sé mest í gjafavörunni þá dreif- um við því um búðina og í útstill- ingarnar til að sýna hvernig það kemur út. Ég hvet því alla til að líta inn og skoða og erum við þegar farin að setja upp hugmyndir fyrir stórveislurnar fram undan.“ Ódýrara að kaupa en leigja Í IKEA má gera góð kaup á öllu sem viðkemur veislum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN „Það er eins gott og að sigla að koma hingað inn,“ er haft eftir ónafngreindum gesti er var meðal þeirra fyrstu sem steig inn í veit- ingasali Hótel Borgar þegar þeir voru opnaðir 18. janúar 1930. Það kemur fram í Morgunblaðinu dag- inn eftir. Þá mun meðal annars hafa blasað við gestum ekta hótelsilfur, merkt hótelinu. Á borðbúnaðinum stendur Gowe Silber sem bend- ir til þýsks uppruna. Þessir hlutir bera vönduðum smekk hóteleigend- anna, Jóhanns Jósefssonar og frú Karolínu, konu hans, gott vitni og féllu vel inn í salarkynnin. Nú skipa þessi hlutir heiðurssess í sérstökum glerskáp inn af and- dyri hótelsins sem eins og að fram- an má greina fagnar áttatíu ára af- mæli á þessu ári. Í Morgunblaðinu frá 19. janúar 1930 kemur fram að það hafi kostað eina milljón „með öllu og öllu“. - gun Alveg eins og að sigla Glösin minna á drykkjarílát fornmanna sem teyguðu mjöð. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Föt og töng fyrir smurða brauðið. Eflaust hefur þurft að fægja silfrið oft á Hótel Borg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.