Fréttablaðið - 25.02.2010, Blaðsíða 30
25. FEBRÚAR 2010 FIMMTUDAGUR6 ● borðbúnaður og skreytingar
Sesselja Reynisdóttir Barðdal,
yfirþjónn á veitingastaðnum
Strikinu á Akureyri, gefur leið-
beiningar um hvernig eigi að
leggja á borð.
Öll höfum við lagt á borð. Þrátt
fyrir það eigum við enn mörg
í vandræðum með að gera það
rétt. Blaðamaður hitti fyrir Sess-
elju Reynisdóttur Barðdal, yfir-
þjón á veitingastaðnum Strikinu á
Akureyri, sem er með reglurnar
á hreinu.
„Það er í raun engin algild regla
um það hvernig eigi að leggja á
borð,“ segir Sesselja. „Það að setja
hnífinn hægra megin við disk-
inn og gaffalinn vinstra megin
er kannski grunnurinn. Samt er
um að gera að leika sér með rest-
ina, annars væru öll borð eins og
það er ekkert gaman að því,“ segir
hún.
Ef lagt er á borð fyrir góða
veislu þar sem forréttur, súpa,
aðalréttur og eftirréttur eru á
boðstólum getum við gefið okkur
að við séum með fjögur glös með
hverjum og einum rétti. Auðvitað
þarf ekki að leggja allt á borð fyrir
matinn, þar sem borðpláss er oft
á tíðum takmarkað, sérstaklega
þegar margir eru í mat,“ útskýr-
ir hún og kveður uppbygginguna
vera þessa:
• Aðalréttahnífurinn og -gaff-
allinn eru sett næst disknum og
endarnir látnir liggja nánast við
borðbrúnina.
• Súpuskeiðin kemur hægra
megin við hlið hnífsins.
• Forréttaáhöldin yst, eða á eftir
skeiðinni og aðalréttagafflinum.
• Eftirréttaáhöld eru lögð fyrir
ofan diskinn.
• Rauðvínsglasið er staðsett
beint fyrir ofan aðalréttahnífinn
og er glösum raðað eftir fjölda upp
og til vinstri.
• Vatnsglasið á að vera hægra
megin við aðalréttahnífinn.
• Brauðdiskur og lítill hnífur
eru lagðir vinstra megin, við hlið
forréttagaffalsins.
Sesselja segir marga líka í vafa
um hvernig þeir eigi að athafna
sig með öll þessi hnífapör. „Regl-
an er einföld. Byrjið úti á enda og
vinnið ykkur inn að disknum. Með
þetta á hreinu ættu allir að vera
húsum hæfir og vel það.“ - sv
Er góða veislu gjöra skal
Aðalréttahnífapörin eru næst disknum.Sumir eru ekki með á hreinu hvernig leggja eigi á borð svo útkoman verði sem best.
Til að borðið líti sem best út er ágætt að fara eftir nokkrum handhægum reglum að
sögn Sesselju Reynisdóttur Barðdal. Hún segir þó ekkert algilt í þessum efnum.
Varðandi hnífapör, þá er reglan sú að
byrja yst og vinna sig inn að disknum.
Stundum er óþarfi að leggja allt á borð.
Glösum er raðað til vinstri.
● BARNVÆNT BORÐSKRAUT Matarboð geta reynst yngstu
kynslóðinni erfið, þar sem ætlast er að til að börnin sitji góð og prúð
á meðan fullorðna fólkið er lengi að borða ásamt og talar oft um
óspennandi hluti. Sé barn með í för þegar boðið er í matarboð er vert
að hugleiða hvort ekki megi byggja
borðhaldið þannig upp að
barnið geti dundað sér í smá-
tíma með fullorðna fólkinu.
Þannig mætti gera borð-
skrautið út á barnið og
leggja til að mynda fal-
lega litla hluti á borð-
ið sem grípa auga
þess og allra helst
eitthvað sem það má leika
sér með. Til þess eru litrík-
ir tréhlutir upplagðir, gömul
leikföng, babúskur, trédýr og
annað slíkt. Bæði getur
þetta gert borðið
enn fallegra um leið
og foreldrarnir verða
gestgjafa afar þakklátir.
Kemur út laugardaginn 27. febrúar 2010
Menning
Auglýsendur vinsamlegast hafið samband:
Bjarni Þór • bjarnithor@365.is • Sími 512 5471
Stundum er gott að fylgja grunnreglunum við að leggja á borð en leika sér með
restina. NORDICPHOTOS/GETTY