Fréttablaðið - 25.02.2010, Síða 18
18 25. febrúar 2010 FIMMTUDAGUR
UMRÆÐAN
Guðmundur Andri
Thorsson skrifar um
bæjarmál á Álftanesi
Ýmsir velta fyrir sér um þessar mundir hvernig
standi á því að svo illa er
komið fyrir sveitarfélag-
inu Álftanesi. Sjálfur ber
ég ekki skynbragð á fjármál og
get ekkert um þau sagt, en óneit-
anlega hvarflar að manni að lítill
rekstrargrundvöllur kunni að vera
fyrir því að svefnbær með engri
atvinnustarfsemi myndi sjálfstætt
sveitarfélag, frekar en til dæmis
Árbærinn eða Grafarvogur. Skuld-
bindingar vegna yfirstandandi
og komandi framkvæmda hafa
líka augljóslega ekki tekið mið af
þessari einföldu staðreynd: föstum
tekjum sveitarfélagsins.
Og almennt talað: Þó að í mis-
miklum mæli sé enn sem komið er,
súpum við öll seyðið af því að land-
inu hefur áratugum saman verið
stýrt af lögfræðingum sem virð-
ast hafa impróvíserað lög og regl-
ur, siði og viðskiptahætti frá degi
til dags, með þeim afleiðingum að
íslenskt samfélag er nú gjörvallt
einn útúrsnúinn vafningur.
Sagan af rennibrautinni
Mér verður stundum hugsað til
rennibrautarinnar. Við búum fjöl-
skyldan við hafið á norðanverðu
nesinu, smáspöl frá aðalbyggðinni
og höfum stundum þurft, íbúarnir
í götunum hérna, að ræskja okkur
svolítið til að ná eyrum bæjaryfir-
valda, sem voru meira með hugann
við byggð sem var ekki til – hinn
nýja miðbæ: „uppbygginguna“.
Ekki var nú kröfugerðin mikil:
börnin hérna vildu örlítið betri
Róló; gobbuhesta sem
virkuðu, skárri sand-
kassa og umfram allt
almennilega rennibraut,
enda naumast til sá Róló
með sjálfsvirðingu sem
ekki er með rennibraut.
Að öðru leyti var þetta
stór og fínn Róló: með
smá brekku þar sem var
gaman að renna sér á
sleðum á veturna og gras-
flöt þar sem hægt var að fara í alls
konar sjálfsprottna leiki: Brennó,
Kýló, meira að segja gekk amer-
ískt Rúbbí-æði eitt sumarið. Það
vantaði bara almennilega renni-
braut. Krakkarnir söfnuðu und-
irskriftum og fóru á fund bæjar-
stjórans, sem tók við erindinu án
þess að koma til hugar að bregð-
ast við því. Svo kom annar bæjar-
stjóri sem líka var yfir það hafinn
að hlusta á krakka suða um renni-
braut – en þriðji bæjarstjórinn
ákvað að bregðast við óskunum. Á
eigin forsendum: Sett var pínulít-
il rennibraut úr plasti – og eigin-
lega verri en engin – en Rólóinn að
öðru leyti skipulagður upp á nýtt
af stórhug sem enginn hafði beðið
um: grasflötin litla þar sem allir
krakkar höfðu leikið sér saman
óháð aldri og kyni var malbikuð og
þar sett upp himinhá karfa sem ég
veit ekki til að nokkru sinni hafi
verið notuð enda miðuð við tveggja
metra slöttólfa; skorið var neðan
af sleðabrekkunum góðu og sett í
staðinn listrænt grjót, sem kannski
er flottur landslagsarkítektúr en
þar mun aldrei neinn renna sér
framan. Rólóinn er tómur, dautt
svæði, en sjálfsagt voða fínn. Með
pínkulítilli plastrennibraut.
Gott á ykkur!
Rennibraut, einmitt. Var ekki ein-
hver að biðja um rennibraut? Jú,
eitthvað rámaði menn í það, og
ákváðu að sýna nú engan smá-
sálarskap heldur reisa vegleg-
ustu rennibraut landsins við sund-
laugina. Hún er afskaplega gul og
maður er þrjú ár á leiðinni upp í
hana. Hún er orðin helsta kenni-
leiti þessa samfélags sem áður
var þekkt fyrir lágreista og snotra
byggð og fagra náttúru.
Og nú búum við öll í gulri renni-
braut, svo vísað sé óbeint í gamla
Bítlalagið. Svona fer þegar ekki
er hlustað á fólkið; þarfir fólks-
ins eru nefnilega ósköp temmileg-
ar. Því fólk er yfirleitt heldur gott
– meira að segja fólk sem gerir
skyssur. Jónas Kristjánsson – ein-
hver umsvifamesti lastari þjóðar-
innar sem sumir líta til í því skyni
að fá af því fregnir hvað þeim eigi
að finnast – fer á bloggi sínu þann
21.02. hinum verstu orðum um
Álftnesinga og vill augljóslega
kveða snarlega niður lofsverða
viðleitni íbúa hér til að bera hönd
fyrir höfuð sér með stofnun hags-
munasamtaka; Jónas telur yfir-
vofandi hörmungar rétt mátuleg-
ar á pakkið. Vantar bara að hann
skrifi: „helvítin ykkar“. Hann
horfir fullur fyrirlitningar af sínu
sómakæra Seltjarnarnesi og átel-
ur íbúa Álftaness harðlega fyrir að
sjá nú fram á stórauknar álögur,
minni þjónustu og verðhrun eigna.
Það hvarflar ekki að honum að
þeim byrðum eigi að dreifa. Hann
er eins og auðugur danskur pen-
sjónisti í Gladsaxe að fussa yfir
Íslendingum.
Farvegur sjálfshaturs
Svipuðum viðhorfum hefur maður
fengið að finna fyrir furðu víða í
þjóðlífinu og þau eru eiginlega
verst af öllu: þessi skortur á sam-
kennd, þessi andúð, þessi ófrjóa
reiði – þessi Þórðargleði. Hér á
nesinu búa ekki verðbréfagosar,
aflandseyjaprinsar, skortstöðu-
hákar eða vafningafurstar, hér-
býr ósköp venjulegt fólk úr flest-
um lögum þjóðfélagsins, upp til
hópa duglegt og sómakært fólk,
sem ekkert hefur séð af þessum
ævintýralegu upphæðum sem því
er tjáð að það skuldi, og botnar
enda ekkert í því hvernig þær gátu
vaxið svona og margfaldast: þetta
er okkar Icesave. Fólk sem verð-
ur fyrir fjárhagslegum skakkaföll-
um af völdum aðila sem það hefur
skrifað upp á fyrir af misráðnu
trausti þarf ekki fyrst og fremst
á því að halda að heyra hvað það
sé miklir vitleysingar – að minnsta
kosti ekki átján sinnum í röð. Það
þarf stuðning og skýrar áætlanir.
Svo illa er komið fyrir þjóð-
inni að sumu fólki virðist fróun í
því að sjá sveitarfélag sem er enn
verr statt en þjóðfélagið almennt,
og finnur jafnvel einhvers konar
sjálfshatri farveg í því að veitast
að íbúum Álftaness fyrir að hafa
kosið til trúnaðarstarfa fólk sem
þeir héldu að myndi varðveita sér-
stöðu samfélagsins og náttúrufar
en tók upp á því að reisa sér og
öðrum rennibraut um öxl.
En við búum öll í gulri renni-
braut. Vandamálin hér á nesinu
bíða handan við næsta leiti hjá
öðrum sveitarfélögum: allt þjóð-
félagið var keyrt áfram á óraun-
hæfum lánum og lánavæntingum,
pappírsauði, óskipulagi, glundroða
– klikkun. Þegar við getum loks-
ins slitið okkur frá Icesave-málinu
þurfum við að horfast – öll – í augu
við að skuldir íslensks samfélags
eru yfirþyrmandi. Efnahagskerfið
hér reyndist í grundvallaratriðum
reist á röngum forsendum. Það er
okkar vandi. Okkar allra.
Nema náttúrlega Jónasar Krist-
jáns sonar.
Tekjugrundvöllurinn brostinn
Smeykur er ég um að tómt mál
sé að tala um að Álftanes eigi sér
raunhæfa framtíð sem sjálfstætt
sveitarfélag, eins og komið er
málum. Það er samfélaginu lífs-
nauðsyn að tengjast stærri einingu
og þar horfum við mörg til Reykja-
víkur, enda hefur Garðabær enga
burði – og hvað þá löngun til – að
taka yfir rekstur samfélagsins hér.
Ríkisstjórnin hefur tekið þann pól
í hæðina að „leita allra leiða til að
aðlaga rekstur sveitarfélagsins að
þeim tekjugrundvelli sem er til
staðar“, eins og ráðherrann Kristj-
án Möller orðaði það í umræðum
sem Magnús Orri Schram stóð
fyrir á alþingi um vanda sveit-
arfélagsins: þetta er vissulega
loðmullulegt orðalag, en þó hátíð
hjá hinu sem kom í framhaldinu og
minnir á að stjórnmálamenn geta
verið óskiljanlegri en Foucault:
„Það getur ekki verið öðruvísi en
að hægt sé að ætlast til þess að
aðrir greiði fyrir þá þjónustu …“
Hafi ráðherrann ætlað að segja
– sem ég óttast – að ekki sé hægt
að ætlast til þess að samfélagið í
heild sinni hlaupi undir bagga með
Álftnesingum til að halda eðlilegu
þjónustustigi í skólamálum og
öðru æskulýðs- og velferðarstarfi
og að sveitarfélagið eigi bara að
fá að verða „annars flokks“ eins
og Magnús Orri varaði við – þá er
stefna Samfylkingarinnar í vel-
ferðarmálum önnur en mig minnti
og nær amerískri repúblikanasið-
fræði Jónasar Kristjánssonar. En
því fyrr sem ráðamenn átta sig á
því að „tekjugrundvöllurinn“ er
hreinlega ekki „til staðar“ í svo
skuldsettu sveitarfélagi einu og
óstuddu – því betra.
Höfundur er rithöfundur
og íbúi á Álftanesi.
Við búum öll í gulri rennibraut
GUÐMUNDUR
ANDRI THORSSON
F A G H Ó P U R Í F R A M L E I Ð S L U
K V I K M Y N D A - O G S J Ó N V A R P S E F N I S
Í dag kl 12 opnar í
Listasafni Íslands sýning á
því kvikmynda- og sjónvarpsefni
sem framleitt hefur verið á
Íslandi á síðustu þremur árum.
Á sýningunni má sjá brot úr um
150 kvikmyndaverkum;
kvikmyndum, heimildamyndum,
stuttmyndum og sjónvarpsþáttum.
Sýningin stendur aðeins þessa einu helgi og aðgangur er ókeypis.
ÍSLENSK
KVIKMYNDA
VERK
2007-2009
Listasafn Íslands 18.-21. febrúar 2010