Fréttablaðið - 25.02.2010, Síða 28

Fréttablaðið - 25.02.2010, Síða 28
 25. FEBRÚAR 2010 FIMMTUDAGUR4 ● borðbúnaður og skreytingar „Mjög margir foreldrar senda börn- in sín á námskeið til mín og biðja mig vinsamlegast um að „laga“ þau,“ segir Chris Stein, sem ferð- ast þessa dagana um Bandaríkin og heldur námskeið fyrir börn á aldrinum átta til fjórtán ára. Þetta kemur fram á fréttavef dagblaðs- ins Frederick News Post. Fyrri hluti námskeiðsins snýst um að læra almenna kurteisi á borð við hvenær er tilhlýðilegt að tala og hvenær að þegja og hlusta, réttu aðferðina við að taka í hönd- ina á öðrum og þar fram eftir göt- unum. Síðari hlutinn er hins vegar eingöngu tileinkaður borðsiðum. „Við förum í gegnum allt,“ segir Stein, „hvorum megin við diskinn á að raða hnífapörunum, hvernig á að rétta öðrum matinn, hvernig á að halda á hnífapörum og mismuninn á Bandaríkjunum og Evrópu þegar kemur að borðsiðum. Ég reyni að kenna börnunum þessar reglur sem lífsnauðsynlegt er að kunna, ekkert snobb,“ bætir hún við. - kg Ef leggja á skemmtilega á borð gæti borðbúnaður eftir hollenska hönnuðinn Maarten Baptist komið til greina. Með hönnun sinni segist Maarten Baptist vilja fá fólk til að horfa á hlutina í kringum sig með öðrum augum. Jafnvel að það upplifi sömu undrun og það gerði sem lítið barn þegar það sá eitthvað nýtt. Meðal vara eftir Maarten er að finna matarstellið Nova en við gerð þess var nánast ekkert hvikað frá upprunalegum skissum hönnuðar- ins sem hann rissaði upp með blýanti. Brúnir eru því ekki endi- lega sléttar og formið á bollum og skálum ekki réttilega kúpt. Með þessu vildi Maarten hverfa frá þeirri stöðnun í fjöldaframleiddum mat- arstellum, að þau virðast öll steypt í sama form. Hnífapör sem hann kallar Open air hafa fengið mikla athygli en þau þykja geta farið vel með hvaða diskum sem er vegna einfaldleika síns. Síðast en ekki síst myndu glös á þrífæti sem hann kallar Lou- ise setja skemmti- legan svip á matar- boðið. Fyrir þá sem vilja skoða nánar hönnun Mart- een Baptist geta farið inn á síðuna www.join.nl. - rat Skemmtilegt og skrítið Hnífapörin kallast Open Air og þykja stílhrein og smekkleg við hvaða tækifæri. Gestirnir rækju sjálfsagt upp stór augu þegar fordrykkurinn yrði borinn fram. Brúnir og kantar eru ekki slétt á matarstellinu Nova en þar voru upprunalegar skissur látnar halda sér út framleiðsluferlið. MYND/ANETTE BORN Með hönnun sinni vonast Maarten Baptist til að fólk horfi á hlutina í kringum sig með öðrum augum. MYND/ALAIN BAARS Bandarísk börn læra borðsiði ● FURÐULEGAR FÍGÚR- UR Hnífapör hafa verið mörgum hönnuðum viðfangsefni. Flest eru þau hefðbundin og fáguð en sumir hönnuðir fara alveg í hina áttina og búa til glaðleg og jafn- vel fyndin hnífapör. Dæmi um slíkt eru þessar bráðsniðugu skeiðar og gafflar frá fyrirtækinu HeadChef. Hnífapörin eru með grænan silíkonkropp sem hægt er að móta á ýmsan máta. ● FLUGVÉLAGAFFALL OG FLEIRA Borðbúnaður þarf ekki endilega að vera venjulegur og smekklegur, heldur er margt vitlausara en að bregða á leik endrum og eins og fjárfesta í skemmtileg- um, litskrúðugum og jafnvel tvíræðum hnífapörum og öðrum borðbún- aði. Þessar myndir ættu að gefa einhverjar hugmyndir um slíkt. ● TAKK FYRIR MATINN Margir útlendingar furða sig á því að Íslendingar segi takk fyrir matinn að borðhaldi loknu enda þekkist þessi siður ekki víða. Í ís- lenskum „kurteisisbókum“ frá því um miðja síðustu öld hnýta höfundar einmitt oft í þennan sið og segja það kotungshátt að þakka fyrir matinn. Slíkt þekkist ekki í New York og öðrum stærri stöðum og sé ekki heimsborgaralegt. Siðurinn að þakka fyrir matinn er að minnsta kosti frá 16. öld og þótt Bandaríkjamönnum og fleirum þyki siðurinn skrítinn þekkist slíkt líka til að mynda í Danmörku og talið er að uppátækið hafi borist þaðan. „Mjög margir foreldrar senda börnin sín á námskeið til mín og biðja mig vinsamleg- ast um að „laga“ þau,“ segir Chris Stein námskeiðshaldari. NORDICPHOTOS/GETTY Auglýsingasími Allt sem þú þarft…

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.