Fréttablaðið - 25.02.2010, Side 54
38 25. febrúar 2010 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
MORGUNMATURINN
LÁRÉTT
2. útdeildu, 6. tímabil, 8. fljótfærni,
9. meðal, 11. í röð, 12. vansæmd, 14.
iðja, 16. mun, 17. beiskur, 18. siða,
20. þurrka út, 21. óheilindi.
LÓÐRÉTT
1. elds, 3. óður, 4. vörurými, 5. suss,
7. heimilistæki, 10. flíkur, 13. raus, 15.
skjótur, 16. kóf, 19. bor.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gæfu, 6. ár, 8. ras, 9. lyf,
11. rs, 12. skömm, 14. starf, 16. ku,
17. súr, 18. aga, 20. má, 21. fals.
LÓÐRÉTT: 1. báls, 3. ær, 4. farmrúm,
5. uss, 7. ryksuga, 10. föt, 13. mas, 15.
frár, 16. kaf, 19. al.
„Þetta er ekki mitt stærsta áhyggjuefni um
þessar mundir,“ segir Hermann Hreiðars-
son, landsliðsfyrirliði og leikmaður Ports-
mouth í ensku úrvalsdeildinni. Hann var
gripinn af lögreglunni í Bournemouth fyrir
of hraðan akstur á A35 Puddletown-afleggj-
aranum í Dorset. Leyfilegur hámarks-
hraði þar er 70 mílur, eða 112 kílómetrar
á klukkustund, en samkvæmt mælingum
lögreglunnar reyndist Hermann vera á 175
kílómetra hraða.
Málið var tekið fyrir í héraðsdómi
Bournemouth á þriðjudaginn en Hermann
var ekki viðstaddur. Hins vegar mætti lög-
fræðingur hans á svæðið og lýsti skjólstæð-
ing sinn saklausan. Málið verður tekið fyrir
2. júlí.
Hermann var tekinn 3. október, sama
dag og Portmouth lagði Úlfana í erfiðum
útileik. Þetta var fyrsti sigur liðsins á
keppnistímabilinu og Hermann viður-
kennir að hafa gleymt sér aðeins í sigur-
vímunni. „Þetta er ekkert stórmál,“ segir
Hermann en komist héraðsdómur að þeirri
niðurstöðu að hraðaksturinn hafi átt sér
stað gæti Hermann misst ökuskír-
teinið í fjórar vikur og fengið sex
punkta.
Hermann hefur átt við erfið
meiðsl að stríða á yfirstandandi
leiktíð en fjárhagslegt ástand
félagsins hefur heldur ekki verið
upp á marga fiska. Yfirvofandi
gjaldþrot hefur hangið eins
og draugur yfir liðinu en mál
þess ættu að skýrast í þessari
viku. Líklegt er að níu stig verði
dæmd af liðinu sem þýðir vænt-
anlega að fall úr úrvalsdeildinni
er nánast óumflýjanlegt. „Við
verðum bara að taka alla leiki
sem eftir eru,“ segir Hermann.
- fgg
Hemmi Hreiðars gripinn á 175 km hraða
HERMANN Er kallaður Herm-
inator af bresku pressunni og
steig aðeins of fast á bensín-
gjöfina eftir sigurleik. Löggan
mældi hann á 175 km hraða.
„Þetta er rosalega spennandi.
Þeir vilja koma í leikhúsið og
upplifa þetta Skoppu og Skrítlu-
líf,“ segir leikkonan Hrefna
Hallgrímsdóttir.
Þrír framleiðendur sjónvarps-
efnis eru á leiðinni hingað frá Los
Angeles um helgina til að kynna
sér betur vinkonurnar Skoppu og
Skrítlu á nýrri leiksýningu þeirra í
Borgarleikhúsinu. Þetta eru Steve
Lyons og Íslendingurinn Freyr
Thormodsson, sem hafa starfað
saman að framleiðslu sjónvarps-
efnis í borg englanna, og John F.
Hardman. Eins og Fréttablaðið
hefur áður greint frá er hann list-
rænn stjórnandi yfir útrás Skoppu
og Skrítlu til Bandaríkjanna. Hann
er fyrrverandi forstjóri Kids´WB!
sem er barnaefnisarmur Warn-
er Brothers-samsteypunnar. Kalli
kanína, Batman og Scooby-Doo eru
á meðal þeirra teiknimyndarisa
sem stöðin hefur á sínum snærum.
Þreifingar hafa verið í gangi
um að taka upp sjónvarpsþætti
um Skoppu og Skrítlu sem sýna á
víðs vegar um heiminn með hjálp
Bandaríkjamannanna. Vilja þeir
athuga hvort mögulegt sé að fram-
leiða þættina hér á landi. „Þeir ætla
að koma og sjá aðstöðuna sem við
höfum upp á að bjóða hérna heima
og hvort hún sé fullnægjandi,“
segir Hrefna. „Við viljum skapa
atvinnu hér fyrir okkar fólk. Við
eigum orðið svo mikinn hafsjó af
reyndu og duglegu fólki, þannig að
þetta væri æðislegt.“ - fb
Framleiðendur fljúga til Íslands
SKOPPA OG SKRÍTLA Hrefna Hallgríms-
dóttir og Linda Ásgeirsdóttir í hlutverk-
um Skoppu og Skrítlu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Ég borða Cheerios og gróft
Cornflakes sem ég blanda
saman með mjólk og hálfum
banana. Um helgar fæ ég
mér kaffi og ristað brauð með
góðum osti.“
Magnús Jónsson, gönguhrólfur og
sögumaður.
Forsvarsmenn
Eddunnar, verðlauna-
hátíðar kvikmynda-
og sjónvarpsaka-
demíunnar, bíða
nú staðfestingar
á því hvort
Katrín
Jakobsdóttir
menntamála-
ráðherra kom-
ist á hátíðina
en það er ekki
víst vegna anna ráðherrans. Þótt
allt krepputal eigi að vera víðs fjarri
á Eddunni er því nú hvíslað meðal
kvikmyndagerðarmanna að Katrín
treysti sér ekki til að horfa framan
í kvikmyndagerðarmenn sem eiga
erfiða tíma fram undan í ljósi fyrir-
hugaðs niðurskurðar.
Eins og greint hefur
verið frá verður
Eddan sýnd í
beinni útsend-
ingu á Stöð 2.
Gestir í stóra
sal Háskólabíós
þurfa ekki að
kvíða því að
þeim leiðist
á meðan
auglýs-
ingahlé
verða gerð því Högni Egilsson og
Sigríður Thorlacius úr Hjaltalín
skemmta fólki með lagasmíðum
sínum í þeim pásum. Þá mun
tvíeykið einnig afhenda verðlaun á
hátíðinni.
Tískuverslunin Nostalgía hefur
verið lokuð undanfarna daga vegna
breytinga. Verslunin verður þó
opnuð aftur í dag og í kvöld verður
haldið teiti í húsnæði verslunarinnar
til að halda upp á nýtt útlit hennar.
Fyrirsætan Elín Jakobsdóttir hefur
tekið við sem verslunarstjóri Nostal-
gíu og stílistinn Hrafnhildur Hólm-
geirsdóttir sér um að handvelja
hverja einustu flík sem seld verður í
búðinni. Partíið heldur svo
áfram á skemmtistaðn-
um Boston og mun
útvarpskonan og
plötusnúðurinn
Andrea Jóns-
dóttir sjá um að
leika skemmti-
lega tónlist
fyrir skvísur
bæjarins.
- fgg, sm
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Þetta er umfangsmesta frum-
sýning íslenskrar kvikmyndar í
Bandaríkjunum og þótt víðar væri
leitað,“ segir Friðrik Þór Friðriks-
son, leikstjóri Sólskinsdrengsins,
en þessi íslenska heimildarmynd
um einhverfa strákinn Kela verð-
ur sýnd í sjötíu borgum Banda-
ríkjanna. Fátítt er að kvikmyndir
sem eru utan hins enskumælandi
heims séu sýndar í svona mikilli
dreifingu. Nærvera Óskarsverð-
launaleikkonunnar Kate Winslet
hefur þó eflaust sitt að segja en
myndin verið gefið enska heitið A
Mother’s Courage. Sjónvarpskonan
Rosie O‘Donnell hefur einnig unnið
ötullega að því að kynna myndina í
Ameríku en ráðgert er að hún taki
þátt í Óskarsverðlaunakapphlaup-
inu fyrir næsta ár. Að sögn Frið-
riks verður sérstök viðhafnarsýn-
ing í höfuðstöðvum sjónvarpsrisans
HBO í New York 22. mars en þang-
að mæta þau Winslet, O’Donnell og
Friðrik Þór. Myndin verður síðan
frumsýnd á HBO 2. apríl en áskrif-
endur sjónvarpsstöðvarinnar eru í
kringum 38 milljónir.
Þessi velgengni Sólskinsdrengs-
ins hefur smitað út frá sér því
önnur mynd Friðriks, Mamma
Gógó, hlaut mjög góðar viðtökur
á kvikmyndahátíðinni í Berlín
og bandarískir dreifingaraðilar
sýndu henni sérstaka athygli.
Guðrún Edda Þórhannesdótt-
ir, framleiðandi myndarinn-
ar, segir umtalið í kring-
um Sólskinsdrenginn
hafa hjálpað til. „En
þeir voru líka mjög
hrifnir af myndinni,
fannst hún tala til
sín og þessi viðbrögð
dreifingaraðila sýndu
að vörumerkið „Friðrik
Þór“ lifir enn góðu lífi,“
segir Guðrún og upplýsir
að Mamma Gógó verði frum-
sýnd í Noregi um mitt þetta
ár og síðar meir í Þýskalandi.
„Staðan er eiginleg þannig að
eftir Berlínarhátíðina getum
við hálfpartinn valið
úr tilboðum,“ útskýr-
ir Guðrún sem gerir
sér jafnframt vonir
um að myndin verði
sýnd á Cannes-
hátíðinni.
Bæði Sólskins-
drengurinn og
Mamma Gógó
segja með ólíkum
hætti frá fólki sem
glímir við erfiða
sjúkdóma. Keli
er einhverfur en
Mamma Gógó
greinist með
Alzheimer-sjúk-
dóminn. Friðrik segist hafa fengið
mikil viðbrögð við báðum þessum
myndum. „Þetta eru myndir með
tilgang, aðstandendur fólks með
Alzheimer-sjúkdómsins hafa hringt
í mig og þakkað mér fyrir mynd-
ina og svo er gaman að segja frá
því að Keli er að blómstra í Austin,“
segir Friðrik en fjölskylda Kela er
búsett þar um þessar mundir þar
sem Keli stundar nú nám hjá Somu
Mukhopadhyay, sérfræðingi í með-
höndlun einhverfu. „Auðvitað er
gaman að gera svona myndir sem
öðlast einhvern veginn sjálfstætt
líf utan hvíta tjaldsins og hreyfa
við fólki,“ bætir Friðrik við.
freyrgigja@frettabladid.is
FRIÐRIK ÞÓR: VERÐUR VIÐSTADDUR VIÐHAFNARSÝNINGU Í NEW YORK
Sólskinsdrengur í sjötíu
borgum í Bandaríkjunum
MÖGNUÐ VELGENGNI Friðrik Þór verður viðstaddur viðhafnarsýningu
Sólskinsdrengsins í New York ásamt Kate Winslet. Velgengni Sólskins-
drengsins hefur haft áhrif á áhuga bandarískra dreifingaraðila á Mömmu
Gógó. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SPURNING DAGSINS
Svör við spurningum á síðu 8
1 Lars Lökke Rasmussen.
2 Tyrklandi.
3 Baltasar Kormákur.
TILBOÐ Í VEITINGASAL
Súpa fi skur og kaffi 1290
HUMARSÚPA • LÚÐUFLÖK • RAUÐMAGI,
ÞORSKHNAKKAR • LAXAFLÖK