Fréttablaðið - 04.03.2010, Qupperneq 2
2 4. mars 2010 FIMMTUDAGUR
VIÐSKIPTI Fjármálaeftirlitið (FME)
hefur tekið yfir rekstur VBS fjár-
festingarbanka og skipað bankan-
um nýja stjórn til bráðabirgða að
ósk stjórnar bankans.
„Fjárhagsleg staða bankans er
þröng, og hefur verið lengi,“ segir
Jón Þórisson, forstjóri VBS. Upp-
gjöri síðasta árs er ekki lokið,
en Jón segir að eiginfjárhlutfall
bankans sé yfir lögbundnu átta
prósenta lágmarki.
Unnið hefur verið að endur-
skipulagningu bankans í nokk-
urn tíma. Jón segir að litið sé á
yfirtöku FME sem áfanga í endur-
skipulagningunni, enda muni það
auka trúverðugleika ferlisins.
Fyrir tæplega einu ári fékk VBS
26 milljarða króna lán hjá Seðla-
banka Íslands til sjö ára. Með því
láni endurfjármagnaði bankinn
skuld sína vegna endurhverfra
viðskipta við Seðlabankann. Þá
tók VBS lán hjá Seðlabankanum
og lánaði áfram til viðskiptabank-
anna, eftir að lokað hafði verið
fyrir lán til bankanna.
Jón segir yfirtöku FME ekki
hafa áhrif á það lán, öðruvísi en
að hún tryggi frekar endurgreiðsl-
ur á láninu. Veð fyrir láninu séu í
lánasafni VBS, reiðufé og fleiru.
„Bankinn var kominn í fjár-
hags- og rekstrarvanda,“ segir
Gunnar Andersen, forstjóri
FME. Hann segir bókfært eigið
fé jákvætt, en greiðslustaðan sé
erfið.
Heildarskuldir VBS eru í dag
um 39 milljarðar króna, segir
Gunnar. Tveir þriðju hlutar skuld-
arinnar eru 26 milljarða króna lán
Seðlabankans og tekjur bankans
ekki nægar til að standa undir
skuldinni við Seðlabankann.
Bráðabirgðastjórnin fer með
völd stjórnar og hluthafafundar,
og getur því skipt um stjórnend-
ur telji hún þörf á því. Stjórnin
starfar í þrjá mánuði í mesta lagi,
og ákveður hvort bankinn starfi
áfram eftir endurskipulagningu,
eða leiti nauðarsamninga. - bj
Jón Hnefill Aðalsteinsson,
prófessor í þjóðfræði, lést
á heimili sínu í Reykjavík á
þriðjudag,
82 ára að
aldri.
Að loknu
stúdents-
prófi frá MA
1948 nam
Jón Hnefill
trúarbragða-
sögu, trúar-
lífssálfræði,
heimspeki, guðfræði og þjóð-
fræði við Stokkhólmsháskóla,
Háskóla Íslands og Uppsala-
háskóla.
Hann var um skeið prest-
ur á Eskifirði en sneri sér
fljótlega að kennslu og fræði-
störfum. Hann varð dósent í
þjóðfræði við HÍ 1988 og próf-
essor 1992.
Jón Hnefill var kvæntur
Svövu Jakobsdóttur rithöf-
undi en hún lést 2004. Þau
áttu saman einn son en Jón
átti tvo syni af fyrra hjóna-
bandi.
Jón Hnefill
Aðalsteinsson
fallinn frá
Þráinn, er samband ykkar
farið að þrána?
„Þráinn hefur þránað ef Þráin skyldi
kalla.“
Þráinn Steinsson, tæknimaður á Bylgj-
unni, og Þráinn Bertelsson alþingismaður
lentu í orðasennu í útvarpsþættinum
Ísland í bítið.
FANGELSISMÁL Heilbrigðiseftirlit
Reykjavíkur hefur samþykkt að
framlengja undanþágu til þess að
hægt sé að nota Hegningarhúsið á
Skólavörðustíg áfram til næstu ára-
móta.
„Fram kom að ekki hefur verið
farið að skilyrðum hvað varðar fjölda
fanga og að mikið álag hafi verið á
húsnæðinu,“ segir í bréfi umhverf-
is- og samgöngusviðs Reykjavíkur-
borgar til Guðmundar Gíslasonar,
forstöðumanns Hegningarhússins,
eftir skoðun á húsnæðinu og samtöl
við Pál Winkel fangelsismálastjóra
og Guðmund sjálfan.
„Loftræsting er léleg í klefum og
verður varla úr því bætt svo viðun-
andi sé en þær úrbætur sem gerð-
ar voru með því að bora göt neðst
á hurðir geta ekki talist fullnægj-
andi,“ er dæmi um lýsingu umhverf-
issviðsins á stöðu mála.
Í bréfi til umhverfisráðuneytis-
ins vísar forstöðumaðurinn til þess
að ekki hafi orðið úr byggingu nýs
fangelsis í Reykjavík eins og til
hafi staðið. „Hins vegar er ljóst að
það myndi valda verulegri rösk-
un á starfsemi refsivörslukerfisins
ef Hegningarhússins nyti ekki við
fyrir móttöku og skammtímavistun
fanga,“ segir forstöðumaðurinn og
bendir síðan á að til standi að opna
bráðabirgðafangelsi í Bitru sem
töluvert muni létta álagið - gar
Hegningarhúsið á Skólavörðustíg opið áfram þótt það standist ekki kröfur:
Undanþága þótt reglur séu brotnar
HEGNINGARHÚSIÐ Hér mega vera tólf
fangar auk tveggja gæsluvarðhaldsfanga
en nokkuð oft mun farið yfir þau mörk.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SKÓLAMÁL „Ég á mjög bágt með að
sætta mig við að skólastjórinn geti
tekið sér þetta vald og farið svona
með framtíð þessara ungmenna,“
segir Ingibjörg Ýr Pálmadóttir,
móðir pilts sem vikið var úr Verzl-
unarskóla Íslands.
Alls fimm nemendur voru rekn-
ir úr Verzlunarskólanum fyrir
tveimur vikum. Ástæðan var léleg
mæting sem ekki var bætt þrátt
fyrir ítrekuð tilmæli, bæði munn-
leg og skrifleg, að sögn Inga Ólafs-
sonar skólastjóra. „Við teygjum
okkur að því er sumir segja allt of
langt. Þetta gerum við helst aldrei
en það kemur að því að það verð-
ur að segja hingað og ekki lengra,“
segir Ingi.
Af áðurnefndum fimm nemend-
um fengu tveir að snúa aftur eftir
að í ljós kom að þeir glíma við
langvinna sjúkdóma sem skóla-
yfirvöld vissu ekki um, að sögn
skólastjórans.
Ingibjörg kveðst hafa kært
brottvikninguna til mennta-
málaráðuneytisins í gær eftir að
skólanefndin hafnaði því að taka
afstöðu í málinu. Hún telur lög
hafa verið brotin á nemendun-
um auk þess sem reglur skólans
heimili ekki brottrekstur. Móðir
tveggja annarra nemenda í skólan-
um hyggst sömuleiðis kæra brott-
vikningarnar jafnvel þótt hennar
börn hafi ekki átt í hlut.
„Í reglunum segir að víkja
megi nemendum úr skóla í lengri
eða skemmri tíma. Í mínum huga
þýðir skemmri tími einn dagur og
lengri tími vika,“ segir Ingibjörg,
sem er aðstoðarskólastjóri í Ísaks-
skóla.
„Ég er ekki að segja að það hafi
ekkert gengið á
áður því þannig
var það. En allir
þessir krakkar
eru virkir í
félagslífinu
og eru skólan-
um til sóma.
Skólastjórinn
hefði vel getað
náð sínu fram
með brottvikn-
ingu í eina viku. Það er afar mikil
ábyrgð sem hvílir á honum því
þetta er ákveðin stimplun á krakk-
ana og niðurbrot fyrir þau,“ segir
Ingibjörg.
Nemendurnir þrír áttu allir að
útskrifast í vor og geta enn náð
því. Skólastjórinn segist hafa
orðið við óskum þeirra um að fá að
mæta í lokaprófin enda sé fram-
tíð þeirra – menntunarlega séð
– í húfi. Hann hafnar því að hafa
brotið lög.
„Það hefur verið farið eins
mildilega að þessu og frekast er
unnt. Ef það endar með því að ein-
hver er rekinn úr skóla þá er það
sársaukafullt fyrir alla. Þetta er
ekki aðeins sársaukafullt fyrir
þessa nemendur heldur var þetta
einstaklega sársaukafullt fyrir
mig líka því mér er hlýtt til þess-
ara nemenda,“ segir Ingi Ólafsson.
gar@frettabladid.is
Kærir skólastjóra VÍ
fyrir að reka soninn
Móðir pilts sem rekinn var úr Verzlunarskóla Íslands hefur kært skólastjórann.
Hingað og ekki lengra, svarar skólastjórinn, þótt þetta sé sársaukafullt gilda
hér reglur. Fimm nemendur voru reknir í einu en tveir fengu að snúa aftur.
INGIBJÖRG ÝR JÓHANNSDÓTTIR Sættir sig ekki við að skólastjóri Verzlunarskólans
geti rekið nemendur sem mæta illa í skólann. Ingibjörg er aðstoðarskólastjóri í Ísaks-
skóla. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
INGI ÓLAFSSON
BRETLAND, AP Fyrrverandi njósn-
ari bresku leyniþjónustunnar MI6
er sakaður um að hafa reynt að
selja ríkisleyndarmál til annarra
landa fyrir tvær milljónir breskra
punda.
Njósnarinn, Daniel Houghton
25 ára, var handtekinn á mánudag
þegar hann reyndi að selja upplýs-
ingar til kaupanda sem í raun var
breska leyniþjónustan.
Saksóknari segir að Houghton
hafi fjölfaldað skjöl frá MI5 þegar
hann vann erlendis fyrir hönd MI6
á árunum 2007 til 2009. - ná
Bretar handtaka njósnara:
Talinn hafa selt
ríkisleyndarmál
Enn óvíst með Ásbjörn
Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra
hefur ekki haft tíma til að leggjast yfir
mál Ásbjarnar Óttarssonar alþingis-
manns, sem hefur viðurkennt misferli
í rekstri fyrirtækis síns. Því hefur
ekki verið ákveðið hvort hann verði
ákærður eða ekki. Það verður gert á
næstunni, segir Helgi Magnús Gunn-
arsson saksóknari.
LÖGREGLUMÁL
Fjármálaeftirlitið tekur yfir stjórn VBS fjárfestingarbanka og skipar nýja stjórn:
Skuldar ríkinu 26 milljarða
GUNNAR
ANDERSEN
JÓN
ÞÓRISSON
ÚR SÍÐUSTU UMFERÐ Með sigri í
skákinni hefði Ilya Nyzhnyk orðið yngsti
stórmeistari í heimi, en hann beið lægri
hlut fyrir Jaan Ehlvest. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SKÁK Fjórir urðu efstir á MP
Reykjavíkurskákmótinu sem
lauk í Ráðhúsinu í gær. Ívan Sok-
olov frá Bosníu, Júrí Kuzubov frá
Úkraínu, Abhijeet Gupta frá Ind-
landi og Hannes Hlífar Stefáns-
son urðu efstir og hlutu 7 vinn-
inga úr níu skákum. Ívan Sokolov
var úrskurðaður sigurvegari á
stigum en efstu menn deila sigur-
laununum á milli sín.
Keppendur voru 104 talsins,
þar á meðal 22 stórmeistarar auk
margra ungra og efnilegra skák-
manna.
Skákveislan heldur áfram því
seinni hluti Íslandsmóts skákfé-
laga fer fram um helgina í Rima-
skóla og hefst í kvöld. Búast má
við fjölmörgum erlendum kepp-
endum á mótinu. - pal
Reykjavíkurskákmótið:
Hannes meðal
sigurvegara
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu leitaði enn Guð-
bjarna Traustasonar, fanga á
Litla-Hrauni, í gærkvöld þegar
Fréttablaðið fór í prentun. Fjöl-
margar ábendingar höfðu borist
en þær höfðu ekki leitt til hand-
töku.
Guðbjarni, sem er 27 ára og iðu-
lega kallaður Baddi, er 185 senti-
metrar á hæð og um 90 kíló. - jss
Eftirlýsing lögreglu:
Strokufanginn
ekki fundinn
Rifbraut mann með spörkum
Maður um tvítugt hefur verið ákærður
fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra
fyrir að ráðast á mann og sparka
ítrekað í hann liggjandi. Maðurinn
rifbrotnaði og hlaut tvö sár á höfði.
DÓMSTÓLAR
SPURNING DAGSINS