Fréttablaðið - 04.03.2010, Blaðsíða 12
12 4. mars 2010 FIMMTUDAGUR
RÍKISFJÁRMÁL Tekjur ríkisins af
sköttum og tryggingagjaldi námu
360 milljörðum króna á síðasta ári.
Er það lækkun um 30 milljarða frá
2008 þegar tekjurnar námu 391
milljarði. Lækkunin nemur 7,8 pró-
sentum að nafnvirði en 20 prósent-
um að raunvirði.
Tekjuskattur einstaklinga nam
82 milljörðum og lækkaði um 6
prósent milli ára. Tekjuskattur lög-
aðila nam hins vegar sautján millj-
örðum og lækkaði um 40 prósent
frá árinu 2008 þegar hann nam
tæpum 30 milljörðum króna.
Skattar á fjármagnstekjur jukust
um tíu prósent en á síðasta ári var
greiddur skattur af fjármagnstekj-
um ársins 2008. Virðisaukaskattur
nam 112 milljörðum og lækkaði um
tólf prósent. Að raunvirði nemur
lækkunin 24 prósentum.
Í yfirliti fjármálaráðuneytisins
yfir greiðsluafkomu ríkissjóðs á
síðasta ári sést samdráttur í flest-
um liðum. Mestur er hann hlutfalls-
lega í vörugjöldum á ökutækjum, 77
prósent. Er þessu öfugt farið þegar
litið er til vörugjalda af bensíni (26
prósenta hækkun) og áfengis- og
tóbaksgjalda (16 prósenta hækk-
un). bjorn@frettabladid.is
Skatttekjurnar lækk-
uðu um 30 milljarða
Tekjur ríkissjóðs drógust saman um átta prósent milli áranna 2008 og 2009.
Tekjuskattur einstaklinga lækkaði um sex prósent og lögaðila um 40 prósent.
2007 2008 2009 2007 2008 2009
Skatttekjur og tryggingagjöld 395.384 391.027 360.673 11,6 -1,1 -7,8
Skattar á tekjur og hagnað 143.937 152.935 138.837 14,1 6,3 -9,2
Tekjuskattur einstaklinga 83.933 88.040 82.560 7,3 4,9 -6,2
Tekjuskattur lögaðila 34.790 29.539 17.483 10,9 -15,1 -40,8
Skattur á fjármagnstekjur 25.214 35.355 38.794 51,9 40,2 9,7
Eignarskattar 11.834 7.936 5.145 29,0 -32,9 -35,2
Skattar á vöru og þjónustu 192.086 179.444 161.720 9,3 -6,6 -9,9
Virðisaukaskattur 135.388 127.387 111.937 10,6 -5,9 -12,1
Vörugjöld af ökutækjum 11.005 7.345 1.693 7,6 -33,3 -76,9
Vörugjöld af bensíni 9.168 8.738 10.990 1,9 -4,7 25,8
Skattar á olíu 7.292 7.280 7.178 11,3 -0,2 -1,4
Áfengisgjald og tóbaksgjald 11.949 11.958 13.849 5,1 0,1 15,8
Aðrir skattar á vöru og þjónustu 17.284 16.737 1 6.072 7,1 -3,2 -4,0
Tollar og aðflutningsgjöld 5.297 5.693 5.048 27,0 7,5 -11,3
Tekjur ríkissjóðs janúar-desember 2007-2009
Milljónir króna Breyting frá fyrra ári, %
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ Tekjur ríkisins af sköttum og tryggingagjaldi námu 360
milljörðum króna á síðasta ári.
Tilboð í mars á xerox
FjölnotapapPír
Eitt búnt (500 blöð) - Verð áður kr. 796
Verð nú kr. 696,-
Einn kassi (2500 blöð) - Verð áður kr. 3980
Verð nú kr. 2995,-
104 Reykjavík
Sjáðu
verðin
Spara
sparaKr. 599 búntið í kassanum.
Ryksugur
- fyrsta flokks. Stór orð sem reynslan réttlætir.
Hátúni 6a . 105 Reykjavík
Sími 552 4420 . www.fonix.is
sex saman í p
akka
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
M
S
A
4
58
61
0
4/
09
KÍNA, AP Um sex milljónir manna
vantar vatn í verstu þurrkum
í sextíu ár í héraðinu Yunnan í
suðurhluta Kína. Tugir björgun-
arsveita voru sendar til svæð-
anna sem verst urðu úti og
dæla grunnvatni á yfirborðið. Á
sumum svæðum má finna grunn-
vatn á 50 metra dýpi, á öðrum
þarf að bora eftir því niður á allt
að 200 metra dýpi. Lítil úrkoma
hefur verið í fjallahéraðinu Yunn-
an frá því seint á síðastliðnu ári,
sem veldur uppskerubresti og
búfénaður drepst.
Þurrkar sverfa að Kínverjum:
Sex milljónir
vantar vatn
STJÓRNSÝSLA Ekki var hægt að
bregðast við athugasemd Ríkis-
endurskoðunar frá haustinu 2006
og fjölga starfsmönnum efnahags-
brotadeildar Ríkislögreglustjóra
(RLS) vegna niðurskurðar í kjölfar
hrunsins haustið 2008.
Þetta kemur fram í athugasemd
sem Haraldur Johannessen ríkis-
lögreglustjóri sendi Fréttablaðinu
vegna fréttar um eftirfylgni Ríkis-
endurskoðunar, sem birtist í Frétta-
blaðinu í gær. Starfsmenn deildar-
innar verða fimmtán til sextán í ár,
en voru sextán árið 2006.
Ríkisendurskoðun benti á það í
kjölfar úttektar
í október 2006
að fjölga þyrfti
starfsmönnum
efnahagsbrota-
deildar, og auka
þar vægi sér-
fræðinga á sviði
atvinnurekstrar,
viðskipta og
fjármála.
Starfsmönn-
um deildarinnar var ekki fjölgað
í kjölfarið, hvorki fyrir né eftir
efnahagshrunið haustið 2008,
tæpum tveimur árum eftir úttekt
Ríkisendurskoðunar. Í athugasemd
RLS kemur fram að í kjölfar efna-
hagshrunsins haustið 2008 hafi
ríkisstjórnin krafist niðurskurð-
ar í rekstri embættisins. Samtals
þurfi að skera niður um 17 pró-
sent, 200 milljónir, á árunum 2009
og 2010.
Ríkisstjórnin hafi lagt línur um
að ráða ekki í stöður sem losna
og fjölga ekki starfsmönnum svo
unnt verði að ná fram niðurskurð-
arkröfum. Í athugasemdinni segir
einnig að þrátt fyrir það verði
efnahagsbrotadeildin ekki undir
niðurskurðarhnífnum. - bj
RLS segir starfsmönnum efnahagsbrotadeildar ekki fjölgað vegna niðurskurðar:
Sami fjöldi starfsmanna og 2006
HARALDUR
JOHANNESSEN
SKIPULAGSMÁL Sveitarstjórn Mýr-
dalshrepps hefur breytt aðal-
skipulagi þannig að nýr sjóvarn-
argarður við Vík verður talsvert
utar en Siglingastofnun leggur
til. Varnargarðurinn verður á eða
við núverandi rofbakka, að því er
fram kom á fundi sveitarstjórn-
arinnar. Kostnaðarauki við þetta,
miðað við tillögu Siglingastofnun-
ar, er sagður vera um 12 prósent.
Staðsetningin komi til móts við
sjónarmið Landgræðslu ríkis-
ins varðandi varnir við sandfok.
„Með auknu athafnasvæði ofan
garðsins og á milli vegar og garðs
er hægt að tryggja almenningi og
ferðamönnum aðgengi að strand-
lengjunni,“ segir sveitarstjórnin.
- gar
Aðalskipulagsbreyting í Vík:
Sjóvörn utar en
Siglingastofnun
hafði lagt til
ÍRAK, AP Að minnsta kosti þrjátíu fórust og 48 særð-
ust í nokkrum sjálfsmorðssprengjuárásum í borginni
Baquoba í Írak í gær. Einn vígamannanna var farþegi
í sjúkrabíl sem var að flytja særða á sjúkrahús þegar
hann sprengdi sig í loft upp.
Þetta eru mannskæðustu sprengjuárásir í Írak í
margar vikur og koma í aðdraganda þingkosninganna
þar í landi 7. mars. Þar ákveða Írakar hver heldur um
stjórnartaumana í landinu þegar hernámslið Banda-
ríkjamanna heldur heim á leið. Bandarísk og írösk
yfirvöld hafa ítrekað varað við að uppreisnarmenn
myndu líklega reyna að setja strik í reikninginn fyrir
kosningar.
Árásirnar gætu veikt framboð núverandi forsætis-
ráðherra, Nouri al-Maliki. Hann komst til valda árið
2006 og tókst viðhalda tiltölulegum stöðugleika í land-
inu 2008 og 2009.
Í fyrstu árásinni sprakk bílasprengja fyrir utan
opinbera byggingu í grennd við bækistöðvar íraska
hersins. Önnur bílasprengja sprakk stuttu síðar í tvö
hundruð metra fjarlægð. Þriðja sprengjan sprakk
þegar sjálfsmorðsprengjuárásarmaður sprengdi sig
í loft upp í sjúkrabíl fyrir utan spítala. Flestir féllu í
þeirri sprengingu.
Mannskæðasta sprengjuárásin í Írak í margar vikur stuttu fyrir kosningar:
Kosið í skugga hryðjuverka
UTANKJÖRFUNDARATVKÆÐI Íraskur hermaður leitar í tösku
ríkisstarfsmanns sem greiddi utankjörfundaratkvæði í þing-
kosningunum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÍKKISTA BWORIN Menn í Úganda
bera líkkistu á hamfarasvæðunum þar
sem aurskriður urðu tugum manns að
bana nú í byrjun vikunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP