Fréttablaðið - 04.03.2010, Side 34
4. MARS 2010 FIMMTUDAGUR4 ● vetrarsport
Skautahöllin í Reykjavík er eitt
mest sótta mannvirkið í Laug-
ardalnum um þessar mundir
og þar leika sér ungir sem
aldnir frá morgni til kvölds.
Skautahöllin í Reykjavík hefur
verið vel sótt að undanförnu og er
eitt mest sótta mannvirkið í Laug-
ardalnum. Hilmar Björnsson segir
skýringuna helst að finna í því að
um er að ræða ódýra skemmtun
fyrir alla fjölskylduna. „Það er
ekki svo ýkja mikið hreyfingar-
framboð fyrir alla fjölskylduna
á höfuðborgarsvæðinu og þetta
kann fólk að meta. Við erum með
hóp- og fjölskyldutilboð og hér
er hægt að koma inn af götunni
og leigja allt sem til þarf en við
erum með skauta á háa sem lága
og ókeypis hjálma á alla.“
Hilmar segir verðið ekk-
ert hafa hækkað undanfarin ár.
„Þegar höllin var opnuð fyrir
rúmum áratug kostaði jafnmik-
ið fyrir börn að fara á skauta og
í bíó. Aðgangseyririnn hjá okkur
er enn þá fimm hundruð krónur
en bíómiðinn er að skríða í þúsund
krónur.“ Hilmar segir veðrið hafa
áhrif á aðsóknina. Hún byrjaði að
aukast til muna strax eftir jól sem
var örlítið fyrr en í fyrra en þessi
árstími er jafnan sá annasamasti.
„Þegar búið er að vera kalt og fólk
kemst jafnvel á skauta úti í nátt-
úrunni kemst það upp á lagið og
heldur áfram hjá okkur.“
Skautahöllin er þétt setin. „Á
morgnana koma skólahópar með
kennurum og síðan erum við með
dagsopnun fyrir almenning frá
tólf til þrjú. Eftir þrjú er Skauta-
félag Reykjavíkur með listskauta-
og hokkíæfingar en á fimmtudög-
um og um helgar er meira opið
fyrir almenning. Á kvöldin hafa
hinir ýmsu hópar svo tekið svell-
ið á leigu.“ Hilmar segir síðan al-
gengt að starfsmannafélög og
aðrir hópar taki sig saman og
skipuleggi fjölskyldudag og að þá
sé ýmist hægt að koma á almenn-
ingstíma eða taka svellið á leigu.
Hann segir aðsóknina að flestu
leyti svipaða eða jafnvel meiri
en undanfarin ár ef frá eru tald-
ir skólahóparnir. „Það er helst að
aðsókn þeirra hafi minnkað en ég
held að það sé vegna tilmæla frá
skólayfirvöldum um að kennarar
og foreldrafélög skipuleggi ekki
afþreyingu sem kostar.“
Skautasvellið í Egilshöll er
líka vel nýtt og er aðsóknin alltaf
að aukast að sögn rekstrarstjór-
ans Egils Gómes. „Aðsóknin datt
svolítið niður á tímabili í kring-
um hrunið en hefur aukist mikið
aftur. Við erum með tilboð og fjöl-
skyldupakka og hingað koma fjöl-
skyldur í stórum stíl.“ - ve
Vel sótt skemmtun
Algengt er að hinir ýmsu hópar taki
svellið í Skautahöllinni í Reykjavík á
leigu á kvöldin.
Skautahöllin í Reykjavík er þétt setin að sögn Hilmars. „Á morgnana koma skólahópar með kennurum og síðan erum við með
dagsopnun fyrir almenning frá tólf til þrjú,“ tekur hann sem dæmi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Helgina tólfta til fjórtánda mars fer fram í Hlíða-
fjalli á Akureyri svokallað Telemark festival. Þetta
er í tíunda sinn sem það er haldið.
Telemark festival er ekki alvarlegt keppnis-
mót í skíðaíþróttum þá á dagskránni sé svigkeppni.
Keppendur mæta í búningum og eru verðlaun veitt
fyrir besta búninginn. „Keppnin hefur þróast út í
meira glens og grín síðustu ár til dæmis er búninga-
keppni, bæði liða- og einstaklingskeppni, verðlaun
eru veitt fyrir frumlegasta búninginn og fyrir besta
fallið eða besta nýliðann. Stundum eru líka sér-
stök verðlaun fyrir stysta tíma í braut ef menn detta
snemma,“ útskýrir Jón Marínó Sævarsson en hann
er einn af forsvarsmönnum Telemarkfestival.
Hann segir dagskrána ekki í föstum skorðum og
hlutirnir látnir ráðast af sjóalögum og veðri. Leik-
arnir hafa þó aldrei fallið niður heldur hefur snjór-
inn verið eltur uppi. Telamark festival hefur til
dæmis farið fram á Dalvík, Siglufirði, Sauðárkróki
og Kaldbak. Nú er hins vegar nægur snjór í Hlíða-
fjalli og á Jón von á fjölda þáttakenda.
„Þarna safnast saman Telemarkarar af landinu
og brettafólk. Við setjum lit á fjallið. Það er helst að
keppnirnar verði endasleppar í svona miklum snjó
því fólk getur ekki beðið eftir því að röðin komi að
því í brautinni en þetta verður bara látið ráðast og
gleðin frekar látin ráða.“
Hópurinn safnast saman á laugardagskvöldinu á
veitingastað þar sem verðlaunaafhending fer fram.
Staðsetnig verður auglýst á vefsíðunni www.isalp.is.
og þar er hægt að skrá þátttöku. Ekkert þátttökugjald
verður í fjallið en rukkað hóflega fyrir matinn. -rat
Gleðileikar í Hlíðafjalli
Búningar setja jafnan svip á svigkeppnina og hér má sjá jóla-
svein á ferð. MYND/SVEINBORG HLÍF GUNNARSDÓTTIR
TIL
BO
Ð!
VETRARDEKK
ÓD
ÝR
T
fólksbíll kr 5.490,- jepplingur kr 6.490,-
Tilboð á umfelgun
Verðtilboð fyrir eldri borgara
Fólksbíll kr 4.990,-
Jepplingur kr 5.990,-
Gerið verðsamanburð
Sama verð fyrir ál- og stálfelgur
Borgartúni 36, (bakvið Cabin hótel) • Sími 588 9747 • www.vdo.is
Opið mán.–fös. 8–18. Lau. 10–14.