Fréttablaðið - 15.04.2010, Blaðsíða 39
FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2010
Oakland.
Sófalína. Slitsterkt áklæði. 70% bómull, 30% pólýester. Hægt
að taka áklæði af og láta þurrhreinsa. Svampur m/trefjafyllingu
í sessum. Mælum með Guardian hreinsiefnum.
L. D. Verð
3ja sæta. 213 cm. 92 cm. 119.900,-
2ja sæta. 157 cm. 92 cm. 109.900,-
Hægindastóll 100 cm. 92 cm. 89.900,-
Skemill 82x57x42 cm. 34.500,-
Umbria.
Sófalína. Svart semianilin leður. Svampur í sessum m/trefja-
fyllingu. Mælum með Guardian hreinsiefnum. Dökkbrúnir
viðarfætur.
L. D. Verð
2½ sæta m/legubekk. 285 cm. 101 cm. 379.900,-
Legubekkur m/2½ sæti. 285 cm. 101 cm. 379.900,-
3ja sæta 239 cm. 101 cm. 199.900,-
2½ sæta. 212 cm. 101 cm. 179.900,-
Malibu.
Sófalína. Slitsterkt mikrofiber áklæði, Svampur m/trefjafyllingu
í sessum. Sófann er einnig hægt að fá með leðri. Mælum með
Guardian hreinsiefnum. Dökkbrúnir viðarfætur.
L. D. Verð
2½ sæta m/legubekk. 289 cm. 90 cm. 259.900,-
Legubekkur m/2½ sæti. 289 cm. 90 cm. 259.900,-
3ja sæta. 224 cm. 90 cm. 199.900,-
2½ sæta. 189 cm. 90 cm. 149.900,-
Hægindastóll. 100 cm. 90 cm. 109.900,-
Skemill. 62x62x40 cm. 39.900,-
Alabama.
Sófalína. Slitsterkt 100% pólýester áklæði. Svampur m/trefjafyll-
ingu. Mælum með Guardian hreinsiefnum. Dökkbrúnir viðarfætur.
L. D. Verð
3ja sæta. 240 cm. 98 cm. 199.900,-
2½ sæta. 216 cm. 98 cm. 149.900,-
Hægindastóll. 154 cm. 98 cm. 109.900,-
Skemill m/geymsluhólfi. 94x75x47 cm. 54.900,-
Richard Hutten er einn best þekkti og
óvenjulegasti hönnuður Hollands. Hann
útskrifaðist frá hönnunarháskólanum í
Eindhoven árið 1991 og varð fljótlega við-
urkenndur á alþjóðlegum vettvangi.
Hann stofnaði eigið hönnunarfyrirtæki
sem hefur tekið að sér hönnun meðal
annars húsgagna, innanhússrýma,
sýninga.
Um þessar mundir stendur yfir
sýning á verkum Huttens í Hönnun-
arsafninu Gent í Belgíu en hér má
sjá nokkur verka hans. Nánar á
design.museum.gent.be. - rve
Sófaúrvalið í ILVA er þannig að
allir ættu að geta fundið eitt-
hvað við sitt hæfi. Tungusófar
eru langvinsælastir.
„Tungusófar njóta sérstakra vin-
sælda í dag og fer mest af þeim
hjá okkur,“ segir Carolyn Linda
Jeans, svæðisstjóri sófa-, borð-
stofu- og svefnherbergisdeild-
ar ILVA. „Þeir fást bæði í taui
og leðri en auk þeirra erum við
með ýmsar gerðir af tveggja og
þriggja sæta sófum ásamt hæg-
indastólum og skemlum,“ bætir
hún við og nefnir nokkrar línur
sem gefa til kynna úrval sem er
hægt að laga að ólíkum þörfum:
„Malibu-sófarnir fást tveggja
og þriggja sæta og bæði með
og án tungu auk þess sem hæg-
indastólar og skemlar fást í stíl.
Þetta er stílhrein leðurlína sem
er mikið tekin. Oakland-línan er
þannig úr garði gerð að hægt er
að taka áklæðið af og setja það í
hreinsun og við Alabamba-línuna
fást skemlar með geymsluplássi
svo dæmi séu nefnd. Þá erum við
með tvær tegundir af einingasóf-
um sem er hægt að raða saman að
vild og búa til horn eða hafa með
tungu allt eftir því sem smekkur
og aðstæður leyfa.“
Carolyn segir vörur ILVA sem
er danskt fyrirtæki, hafa yfir sér
skandínavískan blæ sem höfðar
vel til Íslendinga. Verslunin opn-
aði í þeim örlagamánuði október
2008 en engu að síður hefur henni,
að sögn Carolyn, verið afar vel
tekið. „Við leggjum ríka áherslu á
persónulega þjónustu og hjálpum
fólki að finna réttar lausnir. Eins
erum við með sérstakan ráðgjafa
sem fer heim með fólki sem þess
óskar og hjálpar því að innrétta
eftir þörfum. Að auki leggjum við
okkur fram við að veita viðhalds-
ráð sniðin að hverri vöru.“
Carolyn segir það oft stóra
ákvörðun að festa kaup á sófa enda
er oft og tíðum um að ræða tals-
verða fjárfestingu og áberandi
húsgagn í mikilli notkun. „Fólk
gerir bæði kröfu um gæði og fal-
lega hönnun auk þess sem þægind-
in skipta miklu enda oft um griða-
stað fjölskyldunnar að ræða.“ - ve
Gæði, hönnun og griða-
staður fjölskyldunnar
Caroline segir starfsfólk ILVU leggja ríka áherslu á persónulega þjónustu sem skiptir ekki síst máli þegar um jafn mikilvæga
fjárfestingu og sófakaup er að ræða.
Hér má sjá nokkur verka Huttens yfir árin
en á sýningunni er sýnt brot af því sem
hann hefur afrekað á átján ára ferli sem
hönnuður.
Richard Hutten í átján ár