Fréttablaðið - 01.05.2010, Side 46

Fréttablaðið - 01.05.2010, Side 46
HOLLUSTA „Sannleikurinn er oft lyginni lík- astur, en staðreyndin er sú að Aada-engiferdrykkurinn stapp- ar nærri kraftaverkum því hann er allra meina bót eins og hundr- uð einstaklinga hafa sannreynt á sjálfum sér,“ segir Ólafur Sóli- mann matreiðslumeistari og frum- kvöðull um leyndarmálið My Secret. „Ég lærði matreiðslu á Lækjar- brekku og var eftir útskrift 1994 staðráðinn í að mennta mig enn frekar og kynnast matarmenningu sem flestra heimshorna. Þannig lærði ég grunn að taílenskri matar- gerð í Taílandi fyrir áratug, en þar kynntist ég engiferrótinni sem þar- lendis er álitin kraftaverkajurt og notuð jafnt í matargerð sem heilsu- meðal. Upp frá því fór ég að prófa mig áfram og útbjó drykk sem ég fann fljótt að vann á kvillum sem hrjáðu mig og smátt og smátt var ég farinn að blanda engiferdrykk- inn fyrir stóran hóp fólks sem allt sem eitt fann bót meina sinna,“ segir Ólafur sem fékk hvatningu úr óvæntri átt þegar hann starfaði sem einkakokkur leikarahjónanna Demi Moore og Ashton Kutcher. „Einn daginn var Demi undir miklu álagi og lagðist veik í rúmið, en spurði hvort ég gæti útbúið eitt- hvað heilsubætandi úr eldhúsinu. Ég færði henni þá engiferdrykk- inn sem hreinsaði skjótt burt alla vanlíðan, fyllti hana þrótti og eftir það var hún óþreytandi að hvetja mig til að setja drykkinn á mark- að, sem varð til þess að ég fór að þróa vöruna úr því að laga tíu lítra heima yfir í 1000 lítra pott þar sem útkoman þurfti að vera nákvæm- lega eins,“ segir Ólafur sem einn- ig gerði sínar eigin prófanir á fimmta tug manna til að fá staðfest hvort hann gæti raunverulega selt drykkinn út af virkni hans. „Allir sem einn fundu breytingu til batnaðar á fjölbreyttum vanda- málum og ljóst að drykk- urinn gerði gæfumun- inn hvað bætta heilsu og líðan varðaði,“ segir Ólafur og tekur fram að Aada sé 100 prósent náttúru- leg vara, laus við aukaefni og íslensk fram- leiðsla frá grunni. „Í drykkn- u m e r engifer- rót, fersk myntulauf, límóna og hrásykur. Umbúðir eru íslensk- ar og drykkurinn framleiddur í stórum gufupottum sem hitaðir eru með jarðgufum í Hveragerði. Þá stend ég að tilraunaræktun á íslensku engiferi í samvinnu við garðyrkjubónda, en fullur þroski næst á hálfu ári. Þangað til notum við aðeins sérvalið engifer í drykk- inn,“ segir Ólafur, sem er með neyt- endur frá sextán ára upp í nírætt. „Ég fæ mikil viðbrögð frá neyt- endum og margir koma með tár á hvarmi til að lýsa því hvern- ig drykkurinn hefur breytt lífi þeirra til batnaðar. Þá eru lækn- ar farnir að hafa samband eftir að sjá hvað drykkurinn gerir fyrir sjúklinga þeirra, en þar á meðal eru lausnir á gigt, vöðva- bólgu, ristilvanda- málum og mígreni sem hreinlega hverfur. Það er vísinda- lega sann- að að engi- fer hefur sótthreins- andi áhrif, kemur jafnvægi á melting- arveg og vinnur vel á sýking- um í maga- og þarma- flóru. Þá má ekki gleyma þeim sem eru í líkamlegu toppformi en nota drykkinn til betra úthalds og andlegrar vellíðunar, auk þess sem hann er einkar vatnslosandi, grennandi og lostavekjandi.“ Ólafur segir margsannað að engifer geymi yfir 100 þekkt efnasambönd sem geri líkaman- um gott. „My secret, eða leyndarmálið mitt, er aðferðin við að ná fram virku efnunum yfir í vökva. Ekki dugar að sjóða engiferrót í bitum og sigta frá, því sýru, sætu og kryddjurtir þarf til að áhrifin verði jafn víðtæk og raun ber vitni,“ segir Ólafur sem í maí hefur sölu á Aada í handhægum 300 ml umbúðum í verslunum. „Jú, vissulega var frábært að vinna fyrir Demi og Ashton, sem eru eins og dagur og nótt. Hún er mjög þroskuð á meðan hann er grallaraspói, en bæði mjög venju- leg á heimili. Ég vann hjá þeim sex daga vikunnar frá morgni til kvölds, en átti frí á sunnu- dögum og fór þá oft út að borða með þeim. Demi var fyrirfram sögð erfið og frek í umgengni en annað kom á daginn. Hennar einu kröfur voru að allur matur væri ferskur, óunninn og aukaefnalaus, en svo var auðvitað dásamlegt að sjá hvernig hún var alveg eins og við hin að fá sér gos og Snickers á kvöldin.“ Sjá nánar á www.mysecret.is thordis@frettabladid.is Demi Moore gaf tóninn Heimskokkurinn Ólafur Sólimann hefur staðið marga vaktina í eldhúsi fræga og ríka fólksins en komst óvænt á snoðir um kraftaverkadrykk þegar hann kynnti sér engiferrótina betur eftir námsár í Taílandi. Ólafur Sólimann er matreiðslumeistari og frumkvöðull hjá My Secret, sem nú nýtur vaxandi vinsælda sem heilsulausn úr náttúrunnar brunni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Appelsínur eru ávöxtur sítrustrésins Citrus sinensis. Þær eru C-vítamínauðugar og þrátt fyrir sætleikann eru að meðaltali aðeins um fimmtíu hitaeiningar í hundrað grömmum. Tómatar eru C- og E-vítam- ínauðugir og er mest af vítamín- inu í vökvanum sem umlykur fræin. Karótíninnihaldið er töluvert hátt. Þeir eru hitaein- ingasnauðir og í 100 g eru aðeins 15 til 25 hitaeiningar. Þótt tómatar séu ber, litið til grasafræðinnar, og þar af leiðandi undirflokkur ávaxta, eru þeir einnig flokkaðir sem grænmeti samkvæmt næringarfræðinni. Paprika er ákaflega rík af C- vítamíni, auk þess sem hún inniheldur ýmis steinefni. Karótíninnihald hennar er einnig mjög hátt. Paprika er til í ýmsum litum en algengastar eru gular, rauðar og appelsínugular. Í rauninni er paprika ávöxtur en hún er þó yfirleitt notuð eins og grænmeti og flestir líta á hana sem græn- meti en ekki ávöxt. Kíví er auðugt af C-vít- amíni og eru aðeins 53 hitaeining- ar í 100 grömm- um. Kíví er loðber sem er upprunnið í suðurhluta Kína þótt margir tengi ávöxtinn við Nýja-Sjáland. Ástæð- an er sú að kívíið var flutt þangað í byrjun tuttugustu aldar og barst þaðan til Vesturlanda. Hollt hráefni ÚRVALIÐ AF HOLLU OG GÓÐU HRÁEFNI ER ENDALAUST. HÉR ERU NOKKUR GÖMUL OG GÓÐ SEM STANDA ÁVALLT FYRIR SÍNU. HEILSUVIKA verður í Mosfellsbæ í næstu viku. Dagskráin verður fjölbreytt með fellaþrennu, brennókeppni og skemmti- dagskrá. www.mos.is Ólafur starfaði um tíma sem einkakokkur Demi Morre og Ashton Kutcher. Við eldum fyrir þig Grænmetisréttir, f isk-og kjúklingaréttir, súpur, fjölbreytt salöt og annað góðgæti. VEITINGASTAÐUR - VERSLUN - TAKEAWAY Suðurlandsbraut 12 - Sími 557 5880 - www.kruska.is Opið alla virka daga frá 11:00 til 20:00 Opið frá 11-20 Gildir út maí. FimmtudagaJóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is - sími 512 5473 Henný Árnadóttir henny@365.is - sími 512 5427 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is - sími 512 5447
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.