Fréttablaðið

Ulloq
  • Qaammatit siuliiMay 2010Qaammatip tullia
    MoTuWeThFrSaSu
    262728293012
    3456789
    10111213141516
    17181920212223
    24252627282930
    31123456
Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttablaðið - 08.05.2010, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 08.05.2010, Qupperneq 20
20 8. maí 2010 LAUGARDAGUR Það er gott að hlæja. Maðurinn er eina dýrateg-undin á jörðinni sem hefur húmor. Simpansar hafa reyndar vott af húmor en hann er á frekar lágu plani; svokallaður kúk og piss-húmor. Dýrin eru einfaldlega ekki nógu gáfuð til að hafa húmor. Þau hafa ekki tímaskyn og geta ekki hugsað abstrakt. Íslenska orðið yfir húmor er enda „kímnigáfa“. Karlar og konur hlæja misjafnlega mikið og af misjöfnum hlutum. Það er einstaklingsbundið en líka kynbundið. Erlendar rannsóknir sýna að karl- menn virðast hafa mest gaman af klámbröndurum. Konur aftur á móti hafa meira gaman af orðaleikja- gríni eða svokölluðum „Clever-humor“. Það gefur vísbendingar um að konur séu klárari en karlar. Karlar og konur eru ólík á margan hátt, ekki bara líkamlegan. Bæði kynin hafa sína kosti og sína galla. Allir karlmenn eru eins og Homer Simpson og allar konur eru eins og Marge. Það er bara þannig. Allir vita að öllum konum finnst gaman að taka til. Við þurfum konur í það mikla tiltektarstarf sem bíður okkar í borginni. Samfélag okkar er í molum eftir mörg ár af frekju og yfirgangi. Viðskiptabólan blés upp af frekju, sprakk og skildi eftir sig sviðna jörð og slettur útum allt. Það er ekki gott. Stjórnmál eru eins og keppni í frekju þar sem hinn frekasti vinnur með því að vaða yfir alla aðra með yfirgangi og þreytandi blaðri. Konur hafa verið í minnihluta á báðum þessum sviðum. En nú þörfnumst við þeirra, ekki bara í tiltektina heldur líka í uppbygginguna. Við hvetjum konur til að vera með í Besta flokknum. Öllum konum finnst gaman að punta sig og gera fínt í kringum sig. Nú er tækifærið! Karlmenn kunna ekki að punta. En þeir eru góðir í að bera og stilla upp ef einhver kona leiðbeinir þeim. Besti flokkurinn vill sjá frekju víkja fyrir húmor og gjafmildi. Endurfæðing íslensks samfélags verð- ur engin án kvenna. Við viljum reka þessa borg eins og gott hjónaband þar sem bæði hjónin eru glöð. Því kynnum við nú nýjan og kynbættan framboðs- lista. Við fjölgum konum á listanum. Margar konur vilja vera í Besta flokknum en ekki á listanum og hlakka til að vinna fyrir Besta flokkinn. Konur eru skemmtilegar, detta skemmtilegir hlutir í hug og gera skemmtilegt. Þær eru góðar í að hafa áhyggj- ur og gera lista yfir hluti sem þarf að gera. Þær klæða sig líka yfirleitt á fjölbreyttari og skemmti- legri hátt en karlar. Við viljum sýna í verki virðingu okkar fyrir íslenskum konum. Konur eru helmingur landsmanna og það er okkar trú að hér væri mikið betra að vera ef konur stjórnuðu meiru og hefðu fengið meira kredit fyrir það sem gott hefur verið gert hér á þessu landi. Þar hefur frekjan oftar en ekki tekið völdin og heiðrað sjálfa sig á kostnað hins auðmjúka. Á Arnarhóli stendur styttan af Ingólfi Arnarsyni, til heiðurs því fólki sem fyrst nam hér land. Það voru bæði menn og konur. Ef engar konur hefðu verið með í för værum við einfaldlega ekki til. Það er því krafa Besta flokksins að hrinda í fram- kvæmd þeim hugmyndum sem hafa verið uppi, en ekki náð fram, að við hlið styttunnar af Ingólfi Arn- arsyni rísi önnur og jafnstór stytta af Hallveigu Fróðadóttur, eiginkonu hans. Um helgina heldur Samfylkingarfólk um allt land upp á tíu ára afmæli flokks- ins. Efnt verður til tiltektardags á vegum allra framboða flokksins til sveitarstjórna þar sem áhersla verður lögð á að fegra og bæta umhverfið. Þannig er með táknrænum hætti haldið upp á afmælið og einnig minnt á að þörf er siðbótar og endurskoð- unar á pólitísku umhverfi og forsendum stjórnmála baráttu á Íslandi. Stofnfundur Samfylkingarinnar var hald- inn í byrjun maí árið 2000. Með honum tókst að sameina íslenska jafnaðarmenn í eina hreyfingu eftir áratuga sundrung. Markmið flokksins var að fá umboð kjós- enda til að taka forystu í landstjórninni, með velferð, jöfnuð og réttlæti að leiðar- ljósi. Enda þótt andstæðingar hafi spáð illa fyrir Samfylkingunni og talið víst að þar myndi verða stöðug óeining milli ólíkra afla sem að henni stóðu hefur reyndin orðið önnur. Flokkurinn varð fljótt samstilltur og innan hans hefur skapast góð umræðu- hefð þar sem mál eru leidd til niðurstöðu á farsælan hátt. Í þeim anda hefur verið skipuð umbóta- nefnd sem á að stýra lærdómsferli flokks- ins vegna eigin starfshátta og verka á liðnum árum þegar viðskiptablokkir tóku völdin í þjóðfélaginu og sprengdu efnahags- kerfið án þess að stjórnmálaflokkar fengju rönd við reist. Samkrull stjórnmála- og við- skiptaafla hefur reynst skaðlegt og slíkt þarf að fyrirbyggja. Og mín skoðun er sú að stjórnmálaflokkur eins og Samfylking- in verði á hverjum tíma að hafa innri styrk til þess að halda klassískum gildum jafn- aðarstefnunnar hátt á loft enda þótt aðrir hugmyndastraumar og tískubólur sæki á úr ýmsum áttum frá hagsmunasamtökum og kenningasmiðum. Markmiðin náðust Þegar litið er yfir 10 ára sögu Samfylk- ingarinnar verður ekki annað sagt en að hún hafi náð verulegum áhrifum. Í fernum þingkosningum hefur fylgi flokksins verið frá 27 prósentum upp í 31 prósent og þing- menn frá 17 til 20 eins og þeir eru nú. Hið sama má segja um ítök í sveitarstjórnum og í kosningunum á þessu vori býður Sam- fylkingin fram í eigin nafni á fleiri stöðum en nokkru sinni fyrr. Og nú er flokkurinn í meirihlutasamstarfi á Alþingi við Vinstri hreyfinguna grænt framboð. Það verður því ekki annað sagt en að aldamótadraumurinn frá stofndögum flokksins um samstarf jafn- aðar- og félagshyggjufólks hafi ræst, þótt sá veruleiki sem við er að glíma sé annar en við mátti búast þegar allt virtist leika í lyndi á sviði efnahagsmála. Vissulega hefði verið ánægjulegt ef hægt hefði verið að halda upp á tíu ára afmæli Samfylkingarinnar við betri efnahagslegar ástæður en nú er raunin. Okkar tími rann upp þegar áratuga óstjórn og sóun Fram- sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks undir gunnfána frjálshyggjunnar leið undir lok á Íslandi með skelfilegum afleiðingum fyrir efnahag þjóðarinnar og lífskjör almenn- ings. Það kom í hlut okkar jafnaðarmanna að stjórna því verki að endurreisa og endurhæfa íslenskt atvinnu- og efnahagslíf. Undan því hlutverki verður ekki vikist. Betra samfélag Í áraunum undanfarinna vikna og mánaða hefur Samfylkingin sýnt að hún hefur burði og þroska til að takast á við þetta krefjandi verkefni. Samstaða hefur einkennt verk- lag og vinnubrögð okkar í ríkisstjórn og sveitar félögum allt frá hruni, og sá árang- ur sem náðst hefur á liðnum mánuðum er langt umfram það sem búist var við. Í stað sam félagslegrar upplausnar og efnahags- öngþveitis eftir hið fordæmalausa hrun bankakerfis og gjaldmiðils sem yfir okkur gekk, blasir nú við að öllum frekari áföllum vegna hrunsins hefur verið afstýrt, innvið- ir efnahagskerfisins hafa verið byggðir upp á ný og þegar líða tekur á árið verður hag- vöxtur vonandi farin að glæðast á Íslandi á ný. Allt hefur þetta gerst á undraskömm- um tíma, svo skömmum að erlendir sam- starfsaðilar okkar tala um þrekvirki í því sambandi. En verkefnið er rétt að hefjast. Á rústum frjálshyggjutilraunarinnar er uppbygging nýs og betra samfélags hafin á Íslandi, nor- ræns velferðarsamfélags þar sem velferð fjölskyldunnar, ekki síst barna, aldraðra og þeirra sem eiga undir högg að sækja, er sett í öndvegi. Gildi jöfnuðar, réttlætis og sam- hjálpar verði í öndvegi hvar sem Samfylk- ingin heldur um stjórnartauma, hvort sem er í ríkisstjórn eða sveitarstjórnum og sú uppstokkun sem nú stendur yfir í stjórnkerf- inu, atvinnulífinu og samfélagsgerðinni allri mun þannig skila okkur betra samfélagi. Veruleiki daglegs lífs Framboð til sveitarstjórnarkosninga eru Samfylkingunni sérstaklega mikilvæg. Flokkurinn hefur sótt verulegan hluta af sinni breiðu og öflugu forystusveit á vett- vang sveitarstjórnarstarfs. Tíu ára saga Samfylkingarinnar sem flokks hefur borið órækt vitni um það að flokkurinn hefur á að skipa fjölda traustra og hæfileikaríkra ein- staklinga sem er í góðu jarðsambandi við fólkið í landinu. Forystusveit sem vinnur saman að heildarhagsmunum þjóðarinnar en skarar ekki eld að eigin köku. Það sem máli skiptir er veruleiki venju- legs fólks. Verkefnið er að sjá og heyra hver vandamál hins daglega lífs eru í raun, taka á dagskrá og gera almenna velsæld að dag- legu viðfangsefni stjórnmálanna. Vinna og velferð eru kjörorð vorsins. Við höfum með starfi Samfylkingarinn- ar sl. tíu ár sannað að flokkurinn átti erindi í íslenskum stjórnmálum. Við getum með sama hætti horft bjartsýn til framtíðarinn- ar, fullviss um að gildi jafnaðarmennskunn- ar um frelsi, jafnrétti og bræðralag eiga erindi við Íslendinga sem aldrei fyrr. Nú er það í okkar höndum að sýna og sanna að þau séu annað og meira en orðin tóm – þau séu grunnur að betra samfélagi fyrir Ísland og Íslendinga. Tökum til á tíu ára afmælinu Reykjavíkurborg á að vera í fararbroddi í umhverfismál- um. Ekki er nóg að stíga græn skref, þótt þau séu góð. Við þurfum græna byltingu. Fjölmargt má gera betur. Það þarf að auka flokkun á sorpi, meðhöndla úrganginn betur og nýta í verðmætasköpun. Við þurfum að þétta byggðina án þess að ganga á græn svæði. Við viljum gefa áhugahópum kost á því að taka svæði í borgarland- inu í fóstur, s.s. róluvelli, torg og græn svæði. Við þurfum að fegra hverfi borgarinnar. Það þarf að auka þjónustu við þá sem ferðast á umhverfisvænan hátt og auka framboð umhverfisvænna orku- gjafa. Það ætti að skylda borgar- stofnanir til þess að kaupa ein- ungis umhverfisvæna bíla sem lið í umhverfisvænni innkaupa- stefnu. Margar útivistarperlur er að finnan innan borgarmarkanna. Ég vil nefna sérstaklega vatna- svið Elliðaár og vatnasvið Úlf- arsár. Það þarf að vinna heild- arskipulag fyrir bæði þessi svæði með sérstakri áherslu á aðstöðu til útivistar og fræðslu um náttúru og umhverfi. Markmið umhverfisvernd- ar þjóna þeim tilgangi að gera borgina fallegri og betri til að búa í. Leiðum til að njóta borg- arinnar og þess sem hún hefur upp á að bjóða fjölgar í kjölfarið. Um leið og við leggjum áherslu á umhverfismál, styðjum við á sama tíma við holla hreyfingu og útivist. Við bætum aðstöðuna til hjólreiða, sjósunds og hesta- mennsku svo fátt eitt sé nefnt. Í nafni umhverfisverndar og betra mannlífs getum við fjölg- að gönguleiðum um náttúru borg- arlandsins, um Heiðmörk, Öskju- hlíð og hlíðar Esjunnar. Lykilatriðið er þetta: Græn borg er skemmtileg borg. Í þeim anda á að byggja upp borgina. Græn borg er skemmtileg borg Konur Stjórnmál Jóhanna Sigurðardóttir formaður Samfylkingarinnnar Borgarmál Einar Skúlason oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík. Borgarmál Jón Gnarr oddviti Besta flokksins. Tölvubúnaður ThinkPad fartö lvur · IdeaPad f artölvur · Lenovo borðtö lvur · Lenovo sk jáir BETRI TÖLVUR Nýherji hf. Borgartún 37 Sími 569 7700 | Kaupangur v/Mýrarveg Akureyri Sími 569 7620 | www.netverslun.is ThinkPad T410 Fyrir kröfuharða notendur Core i5 520M örgjörvi 4GB minni 320GB diskur 14,1” LED skjár ThinkPad Edge Ný kynslóð ThinkPad fartölva AMD L625 örgjörvi 4GB minni 320GB diskur 13,3” LED skjár ThinkPad X100e Nett vél fyrir fólk á ferðinni AMD MV40 örgjörvi 2GB minni 250GB diskur 11,6” LED skjár ThinkPad fartölvur frá Lenovo búa yfir fullkomnustu tækni sem völ er á enda hafa þær unnið til fjölda verðlauna. Þeir sem vilja ná árangri velja hágæða umhverfisvottaðar fartölvur frá Lenovo.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar: 107. tölublað (08.05.2010)
https://timarit.is/issue/323652

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.

107. tölublað (08.05.2010)

Iliuutsit: