Fréttablaðið - 08.05.2010, Síða 61
einkasöfnum, skrifa drög að handriti sýningar, sem
tekur á byggingarsögu hússins, verslunarsögu staðarins,
framlagi til ljósmyndasögu og sögu veðurathugana,
ásamt því að greina frá náttúruminjunum.
Fjöldi starfa: 2
LISTASAFN ÍSLANDS
MR52 Uppskrift og frágangur eldri viðtala við
listamenn
Safnað hefur verið munnlegum heimildum um listaverk
í eigu Listasafns Íslands með því að taka viðtöl við
höfunda verkanna. Verkefnið felst í að skrifa upp
þessi viðtöl og skrá þau í gagnagrunn. Stuðst er við
leiðbeiningar frá Miðstöð munnlegrar sögu.
Fjöldi starfa: 1
MR53 Öflun heimilda um listaverk í eigu
safnsins
Verkefnið felst í að afla munnlegra heimilda um verk
í eigu safnsins með viðtölum við höfunda verkanna,
uppskrift viðtala og skráningu í gagnagrunn auk
heimildaöflunar um viðkomandi verk í skriflegum
heimildum.
Fjöldi starfa: 1
MR54 Ljósmyndun og skráning á listaverkum
Undanfarið hefur safninu borist töluvert af gjöfum.
Verkefnið felst í því að ljósmynda, flokka og skrá þessar
gjafir.
Fjöldi starfa: 1
MR55 Flokkun og skráning heimilda
Samkvæmt lögum ber Listasafni Íslands að afla heimilda
um íslenska myndlist. Undanfarið hafa safninu borist
gjafir sem innihalda umtalsvert magn heimilda sem þarf
að flokka og skrá.
Fjöldi starfa: 1
MR56 Afla og skrá upplýsingar um sýningar
íslenskra listamanna
Meðal verkefna er að afla heimilda um sýningar
íslenskra listamanna, skrá þær og gera aðgengilegar
m.a. á vefsíðunni UMM.is.
Fjöldi starfa: 1
MR57 Sýningargerð – sýningaruppbygging
Unnið hefur verið að leit og skráningu í gagnagrunn.
Verkefnið fælist í að vinna úr þessum upplýsingum í
samvinnu við sýningarstjóra safnsins.
Fjöldi starfa 1
MR58 Sérstakt rannsóknarverkefni hjá
Listasafni Íslands
Verkefnið er í tengslum við sýningu sem fjallar
um miðilinn teikningu sem fyrirhuguð er á næsta
ári. Verkefnið snýr að rannókn til undirbúnings
sýningarinnar.
Fjöldi starfa: 1
MR59 Hönnunarvinnsla fyrir vefsýningar
Verkefnið felst í könnun á möguleikum í miðlun
myndlistar á netinu og hönnunarvinnu þar að lútandi,
einkum með vefsýningar Listasafns Íslands í huga.
Fjöldi starfa: 1
MR60 Textavinnsla fyrir vefsýningar
Væntanlegar sýningar Listasafns Íslands á vefnum
krefjast sérhæfðrar textagerðar fyrir upplýsingaefnis.
Textagerðarfólk þarf nauðsynlega fyrir fyrstu
vefsýningarnar.
Fjöldi starfa: 1
MR61 Úrvinnsla og gerð fræðsluefnis
Verkefnið felst í því að vinna úr fyrirliggjandi
upplýsingum í samstarfi við starfsmenn safnsins og
gera þær aðgengilegar á skapandi hátt fyrir prentun og
miðlun á vef.
Fjöldi starfa: 1
MR62 Flokkun og skráning heimilda
Undanfarin ár hefur orðið til vísir að heimildasafni um
miðlun og þróun fræðslustarfs á söfnum. Þetta safn þarf
að flokka og skrá.
Fjöldi starfa: 1
MR63 Skapandi starf með börnum
Börn á leik- og grunnskólaaldri eru virkir notendur
safnsins og hefur safnið lagt sig fram um að veita þeim
sem besta þjónustu. Verkefnið felst í hönnun á leiðsögn
og skapandi starfi í tengslum við heimsóknirnar sem
munu verða hluti dagskrárinnar.
Fjöldi starfa: 1
MR64 Vefsíðugerð
Endurnýjun og uppfærsla heimasíðu
Búa þarf heimasíðu safnsins nýtt útlit og skipulag.
Fyrirhugað er að auka til muna aðgengi að rannsóknum
og upplýsingum um þau verk sem safnið varðveitir.
Verkefnið verður unnið í nánu samstarfi við starfsmenn
safnsins.
Fjöldi starfa:1
MR65 Varðveisla stafrænna mynda
Á bókasafni Listasafns Íslands er varðveitt mikið af efni
á stafrænu formi, aðallega myndir af verkum í eigu
Listasafns Íslands, en einnig t.d. myndir frá sýningum.
Nauðsynlegt er að færa þetta efni af geisladiskum yfir á
varanlegra geymsluform.
Fjöldi starfa: 1
MR66 Pökkun, skoðun og skráning þrívíðra
verka
Sérhæft verkefni sem vinnst samfara endurskipulagningu
í fjargeymslu safnsins.
Fjöldi starfa: 1-2
MR67 Vinna við undirbúning nýrrar vefsíðu
fyrir Listasafn Íslands
Á dagskrá kynningardeildar Listasafns Íslands er gerð
nýrrar vefsíðu fyrir safnið. Undirbúningsvinnan felur m.a.
í sér að skoða vefsíður erlendra listasafna, skrá helstu
þætti þeirra og flokka.
Fjöldi starfa: 1
MR68 Vinna við flokkun skjala
Aðstoð við vinnu á skjalasafni Listasafns Íslands.
Flokkun á skjalasöfnum fyrrverandi starfsmanna og
frágangur til varanlegrar varðveislu. Samstarf við
skjalastjóra safnsins.
Fjöldi starfa: 1
KVIKMYNDAMIÐSTÖÐ
ÍSLANDS
MR69 Almennt: Rafræn skráning íslenskra
kvikmynda
Myndefni og allar upplýsingar um innihald og helstu
aðstandendur hverrar myndar verður skráð rafrænt og
aðgengi almennings og fagaðila að menningararfinum
þar með tryggt á netinu, bæði á íslensku og ensku.
Fjöldi starfa: 1
MR70 Efnisöflun, greining og skráning
Leitast verður við að skrá þannig að leit verði auðveld.
Ítarefni verður einnig safnað saman og sett fram á
aðgengilegan hátt eftir því sem við á, s.s. kynningarefni,
handrit, stiklur (e.trailer), kennsluefni.
Fjöldi starfa: 2
MR71 Skráning rita og útgefins efnis um
íslenskar kvikmyndir
Til stendur að safna efninu til rafrænnar skráningar
og skönnunar og gera það þar með aðgengilegt fyrir
áhugafólk, en þó ekki síst fræðimenn, blaðamenn og
annað fagfólk.
Fjöldi starfa: 1
MR72 Gagnaöflun og skráning á
tónlistarmyndböndum og leiknum
auglýsingum í gagnagrunn
Fjöldi starfa: 1
ÞJÓÐSKJALASAFNI ÍSLANDS
MR73 Röðun skjalasafna í hillur
Þjóðskjalasafn er að taka í notkun 6.000 hillumetra af
hillum. Raða þarf um 70.000 skjalaöskjum af brettum
í hillur.
Fjöldi starfa: 3 sumarstarfsmenn
MR74 Skráning bókasafns
Handbókakostur safnsins er óskráður og hefur það
verk mátt mæta afgangi við forgangsröðun verkefna
stofnunarinnar.
Fjöldi starfa: 1 sumarstarfsmaður
MR75 Skráning einkaskjalasafna og opinberra
safna
Fjöldi lítilla einkaskjalasafna sem borist hafa safninu
síðasta áratug liggja óskráð og óaðgengileg. Sama er að
segja um ýmis söfn opinberra aðila frá fyrri árum.
Fjöldi starfa: 4-6 sumarstarfsmenn
MR76 Þrif á lóð og lagfæringar
Almenn þrif á lóð og plani. Sópa, hreinsa illgresi, mála
stæði, hreinsa veggjakrot. Ofl.
Fjöldi starfa: 1 sumarstarfsmaður
MR77 Innsláttur á upplýsingum úr
sóknarmanntölum
Skilgreining starfs: Sagnfræðingur/ nemi í sagnfræði
með þekkingu í skjalalestri. Verkefnið tengist
manntalsgrunni Þjóðskjalasafnins og felst í að vinna upp
upplýsingar úr sóknarmanntölum sem því tengjast
Fjöldi starfa: 4-6 sumarstarfsmenn
MR78 Efnistaka dómabóka
Skilgreining starfs: Sagnfræðingur/ nemi í sagnfræði
með þekkingu í skjalalestri. Á síðustu tveimur árum
hefur verið þróaður gagnagrunnur yfir dómabækur
sýslumanna, sem gerbreytir notkunarmöguleikum
þessara heimilda. Nú þegar hefur verið unnið við 4
skýslur, en fleiri bíða skráningar.
Fjöldi starfa: 4 sumarstarfsmenn
MR79 Jarðavefur Þjóðskjalasafns
Skilgreining starfs: Íslenskufræðingur/sagnfræðingur
með tölvuþekkingu og skjalalestur. Vinna við að
undirbúa gögn um jarðir landsins frá elstu tímum til
samtímans, vinna við landamerkjabréf og fleira.
Fjöldi starfa: 1 sumarstarfsmaður
MR80 Þýðing á handbók um skjalasöfn og
skjalavörslu
Grunnþýðing á enskri handbók um almenna
skjalavörslu, Preserving Archives. Skilgreining
starfs: Nemar í þýðingarfræðum með þekkingu á
viðfangsefninu eða sambærilegu sviði.
Fjöldi starfa: 2 sumarstarfsmenn
LANDBÚNAÐARHÁSKÓLI
ÍSLANDS
MR81 Aðstoðarmaður við rannsóknir
Vöktun flúors og áburðarefna (Ca, Mg, K, P, S) í ösku,
jarðvegi, plöntum og drykkjarvatni búpenings á
öskufallssvæðinu undir Eyjafjöllum sumarið 2010.
Fjöldi starfa: 1
MR82 Skráning minja í Landbúnaðarsafni Íslands
Landbúnaðarháskóli Íslands rekur í samstarfi við
Þjóðminjasafn, Bændasamtök Íslands og fleiri aðila
Landbúnaðarsafn Íslands. Verið er að búa safninu nýja
aðstöðu og gera átak í skráningu varðveislumuna og
minja. Fjöldi starfa: 1
MR83 Skráning vísindagreina í gagnagrunn
Landbúnaðarháskólinn annast rekstur gagnagrunns á
vefnum fyrir fræðigreinar á sviði landbúnaðarvísinda.
Gera þarf átak í skráningu nýrra greina inn í grunninn.
Fjöldi starfa: 1
MR84 Átak í umhverfismálum
Landbúnaðarháskóli Íslands hefur sett sér markmið
um átak í umhverfismálum á starfsstöðvum skólans,
t.d. á Hvanneyri og á Reykjum. Það felur m.a. í sér
endurskipulag lóða og umhverfis, plöntun trjáa, hleðslur,
stígagerð o.fl.
Fjöldi starfa: 3
MR85 Flokkun, skráning og lyklunarvinna
Nemendur í bókasafns- og upplýsingafræði gætu annast
flokkunar-,skráningar- og lyklunarvinnu á efni (bæði
útgefnu efni og skjalaefni) sem ekki hefur þegar fengið
slíka meðhöndlun.
Fjöldi starfa: 1
HÁSKÓLINN Á HÓLUM
MR86 Flokkun skráning og innsláttur gagna
um sögu skólans
Starfsmennirnir munu starfa við að flokka gögnin
handvirkt, forgangsraða þeim í samstarfi við starfsmenn
skólans, skanna þau og skrá inn í gagnagrunna.
Fjöldi starfa: 2
MR87 Skipulag Hólaskógar og vinnsla
fræðsluefnis
Nauðsynlegt er að vinna að samræmingu á því starfi
auk þess að þörf er á að gera ástandsmat á skóginum,
meta hvar eigi að grisja, hvar skuli skipuleggja
stíga í gegnum skóginn. Einnig er mikilvægt að
vinna að fræðsluefni í tengslum við fræðslustíga og
ferðaþjónustu. Starfið felur í sér verkstjórn og vinna með
sjálfboðaliðum.
Fjöldi starfa: 1
MR88 Lifandi menningararfur
Óskað er eftir nema sem ynni að þróun dagskrána
og fræðsluefnis því tengdu og nema sem sæi um
markaðssetningu, skipulag og stjórnun viðburða ásamt
því að leggja spurningalista fyrir gesti.
Fjöldi starfa: 2
MR89 Ástand hrossa í hestaferðum
Þörf er á nemendum til að gera einfalda úttekt
á hestakosti í hestaferðum með spurningum til
hestamanna um þjálfun og undirbúning, notkun í
ferðinni s.s. lengd dagleiða, ferðahraða, aðbúnaði hesta
á áfangastað, ásamt einfaldri úttekt á ástandi hestanna
á áfangastað s.s. járningum, fótum, holdafari og atferli.
Fjöldi nemenda: 3
MR90 Fjölbreytileiki hornsíla í Mývatni
Rannsakað verður með tilraunum hvernig hornsíli í
Mývatni hafa aðlagast að búsvæðum sem einkennast af
ólíkum hita.
Fjöldi starfa: 1
MR91 Þróun og prófun á aðferðafræði við PIT-
merkingar á laxfiskum
Verkefnið felst í því að setja saman og stilla PIT-tækin,
smíða loftnet, gera stutta úttekt á birtum greinum á
þessu sviði og gera tvær litlar tilraunir er lúta að því
að þróa bestu aðferðir við að merkja fiska og kanna
skilvirkni þessara tækja við íslenskar aðstæður.
Fjöldi starfa: 1
MR92 Mengunarþol þorska
Háskólinn á Hólum hefur verið að vinna að tilraunum
á þoli þorsks á lífrænni mengun og súrnun umhverfis
þeirra. Skólinn óskar eftir að ráða starfsmann til að
halda þessum tilraunum áfram. Starfsmaðurinn mun
aðstoða við framgang tilraunanna og efnarannsóknir.
Fjöldi starfa: 1
MR93 Rannsóknargagnagrunnur um jarðir í
Skagafirði frá landnámi til 19. Aldar
Verkefnið felist í uppsetningu og hönnun á
rannsóknargagnagrunni í landsupplýsingarkerfinu
Intrasis.
Fjöldi starfa: 1
MR94 Jarðfundnir munir frá Hólum í Hjaltadal
Verkefnið felist í að búa til skrá á tölvutæku formi um
gler og járngripi (ca. fjöldi gripa úr gleri og járni er 7000)
sem hafa fundist við uppgröftinn á Hólum í Hjaltadal.
Fjöldi starfa: 2
MR95 Fornleifauppgröftur og úrvinnsla við
Kolkuós í Skagafirði
Verkefnið felist í taka þátt í uppgreftrinum og vinna úr
gögnum eftir uppgröftinn. Fjöldi starfa: 4
HÁSKÓLINN Í REYKJAVÍK
MR96 Samsetning íslenskra stjórna
Markmið verkefnisins er að varpa ljósi á hvort brotalamir
hafi verið á samsetningu íslenskra stjórna og ef svo
var, koma fram með leiðbeinandi tilmæli um hvernig
stjórnarskipan geti verið betur háttað í framtíðinni.
Fjöldi starfa:1
MR97 Orkusetur – Laboratory Assistant
The applicant would help develop eduational and
research equipment in the thermal/fluids area, including
but not limited to wind tunnels, steam and diesel
engines, electric vehicles, flow benches and others.
Fjöldi starfa: 1
MR98 Greining á steyptum veggjum undir
jarðskjálftaálagi
Verkefnið felist í því að halda áfram með útreikninga
sem þegar eru komnir. Setja þarf upp reikninmódel inn í
ANSYS smástykkjaforiti og greina þau.
Fjöldi starfa: 1
MR99 Sjálfbært háskólastarf
Starfið felst í að halda utan um og hrinda af stað
framfylgd umhverfisstarfs Háskólans í Reykjavík. Setja
þarf upp umgjörð um kynningu umhverfisstefnu skólans,
skipuleggja framkvæmd hennar og útfæra aðgerðir.
Fjöldi starfa: 1.
MR100 Miðlun niðurstaðna íslenskra
byggingarrannsókna
Starfið felst í að taka saman heimildir um íslenskar
rannsóknir á byggingaraðferðum og byggingarefnum
fyrir HR og Vistbyggðarráð og miðla þeim á vefsíðu
Vistbyggðarráðs. Skrásetja þarf heimildirnar í
gagnabanka með tilliti til þess hvernig niðurstöðurnar
gætu nýst við að þróa vistvænni byggingarhætti
hérlendis.
Fjöldi starfa: 1.
MR101 Skipulagsákvarðanir og byggingarleyfi
til húsbygginga á jaðarsvæðum
höfuðborgarsvæðisins 2000-2009
Starfið felst í gagnaöflun fyrir rannsóknir innan HR í
skipulagsmálum, nánar tiltekið á þróun skipulagsmála á
jaðarsvæðum höfuðborgarsvæðisins á þenslutímanum á
fyrsta áratug þessarar aldar.
Fjöldi starfa: 1.
MR102 Ráðstöfun landbúnaðarlands til
annarra nota en matvælaframleiðslu
Starfið felst í gagnaöflun fyrir rannsóknir innan
HR í skipulagsmálum, nánar tiltekið á rýrnun
landbúnaðarlands til matvælaframleiðslu vegna ýmissar
mannvirkjagerðar og framkvæmda á jaðarsvæðum
höfuðborgarsvæðisins á þenslutímanum á fyrsta áratug
þessarar aldar.
Fjöldi starfa: 1.
MR103 Tilraunastofa í iðustreymi
Verkefnið snýst um útfærslu sjálfvirks vélbúnaðar fyrir
tilraunir sem hafa það markmið að auka skilning okkar á
áhrifum bjögunar og varmaburðar á hreyfingar örsmárra
agna í iðustreymi. Um er ræða þróun, vélhönnun og
smíði ásamt gerð stýringa og reglun vélbúnaðarins.
Fjöldi starfa: 2
MR104 Umsjón með þjálfun ólympíufara í
stærðfræði og gerð kennsluefnis
Nemandi mun sinna yfirferð á lausnum verkefna
nemenda sem koma til með að taka þátt í
ólympíukeppni í stærðfræði í Astana í Kasakstan í sumar.
Í framhaldi af þjálfun verður búin til handbók fyrir
stærðfræðinemendur á framhaldsskólastigi til að kynna
fyrir þeim Ólympíudæmi í stærðfræði.
Fjöldi starfa: 1
MR105 Smíði og prófun sérhæfðra tækja
til verklegrar kennslu í læknisfræðilegri
eðlisfræði
Skilgreining á því hvaða æfingar verða kenndar og drög
að hönnun tækjabúnaðar liggur fyrir. Verkefnið felst
í að ljúka hönnun og smíða þann búnað sem þarf að
sérsmíða fyrir þessar verklegu æfingar.
Fjöldi starfa: 2
MR106 Development of vibration device
for treating bone loss in spinal cord injured
patients
The project idea is to measure quantitatively the
influence of vibration stimulus on bone density and
assess a novel experimental therapeutical tool for
restoring bone loos in spinal cord injured patients.
Fjöldi starfa: 1
MR107 Hönnun og smíði á stereotax fyrir
sebrafiska
Stereotax er tæki sem er notað til þess koma rafskautum
og píplum fyrir í taugavef við rafleðlisfræðilegar
mælingar. Slík tæki eru framleidd fyrir menn sem og
tilraunadýr af ýmsum toga.
Fjöldi starfa: 2
MR108 Starfsmannavefir í MySchool
Verkefnið felist í því að a) greina þarfir skólans fyrir
starfsmannavefi, með samtölum við kennara sem nota
kerfið, b) hanna uppsetningu í MySchool og utan, c)
útfæra og prófa nauðsynlega virkni, og d) innleiða nýja
kerfið í Háskólanum í Reykjavík.
Fjöldi starfa: 2
MR109 Uppsetning á rannsóknarbúnaði
Verkefnið felist í því að a) meta kosti og galla tveggja
mismunandi umsjónarkerfa, b) setja upp annað kerfið
á einum tölvuklasa deildarinnar, c) prófa kerfið með
ýmsum álagsprófunum, og d) gera leiðbeiningar um
uppsetningu og notkun kerfisins.
Fjöldi starfa: 2
MR110 Innflutningur vefja í Eplicu
Verkefnið felist í því að a) greina ytri vefi og skilgreina
þarfir fyrir yfirfærslu þeirra, b) hanna og útfæra sjálfvirkt
ferli fyrir yfirfærsluna, og c) prófa ferlið með yfirfærslu á
ytri vefjum tölvunarfræðideildar.
Fjöldi starfa: 2
MR111 Leitarviðmót í gagnasöfnum
Verkefnið tengist bókasafni HR og felst í að smíða
leitarviðmót þar sem leitað er í öllum gagnasöfnum sem
BUHR (Bókasafn og upplýsingaþjónusta HR) er með í
áskrift.
Fjöldi starfa: 1-2
MR112 Ritstjórnarskýrslur vefsvæða í Eplica
Verkefnið felist í því að a) greina þarfir ritstjóra fyrir
upplýsingar um það vefefni sem þeim tengist, með
samtölum við notendur sem nota kerfið, b) hanna
viðmót fyrir slíka upplýsingagjöf, c) útfæra og prófa
nauðsynlega virkni, og d) innleiða þessa viðbót í vefkerfi
í Háskólans í Reykjavík.
Fjöldi starfa: 2
MR113 Alumni – félag fyrrverandi nemenda HR
Verkefnið felur í sér að koma saman ráðgefandi
Alumniráði í öllum deildum skólans og útbúa