Fréttablaðið - 08.05.2010, Blaðsíða 63
MR177 Ritlist
Verkefnið felst í að safna saman á eina stóra bók
framúrskarandi smásögum frá sem flestum löndum
heimsins.
Fjöldi starfa: 1
MR178 Upplifun Íslendinga af
efnahagskreppunni
Verkefnið felst í því að taka viðtöl við fólk, skrá þau og
afrita.
Fjöldi starfa: 4
MR179 Undirbúningsvinna við vefrit
Hugvísindasviðs
Verkefnið felist í því að afla efnis frá föstum kennurum
sviðsins, stundakennurum og framhaldsnemum og vinna
það til birtingar á vef.
Fjöldi starfa: 1
HÁSKÓLI ÍSLANDS
ÍÞRÓTTA-, TÓMSTUNDA- OG
ÞROSKAÞJÁLFASVIÐ
MR180 Fullvinna og klára vef fyrir
Rannsóknarstofu í Íþrótta- og heilsufræðum
Tengja vef RIH við rannsóknarverkefni starfsmanna,
meistara- og doktorsnema og annara á MVS.
Leggja drög að áætlun vegna kynningar starfsemi
og rannsóknarverkefna RIH fyrir samstarfsaðilum,
fagfélögum, stjórnvöldum og fleiri aðilum.
Fjöldi starfa: 1
MR181 Setja upp vef fyrir rannsóknarverkefni
Setja upp vef, fullvinna efni og texta sem á að fara á vef
og fleira sem tengist uppsetningu heimasíðu.
Fjöldi starfa: 1
MR182 Yfirlit yfir rannsóknar- og
þróunaverkefni á sviði tómstunda- og
æskulýðsmála
Undirbúa og framkvæma forrannsókn á tómstunda- og
æskulýðsstarfi, þar sem þátttaka og viðhorf barna og
unglinga í tómstundastarfi verði könnuð.
Fjöldi starfa: 1
HÁSKÓLI ÍSLANDS
LYFJAFRÆÐIDEILD
MR183 ÁTAK Í SÖFNUN, SKRÁNINGU OG
ÚRHLUTUN SJÁVARHRYGGLEYSINGJA
Áhersla verður lögð á rannsóknir á sjávarhryggleys-
ingjum sem hafa mjúkt yfirborð því þeir eru líklegri til
þess að stunda efnahernað og framleiða þar af leiðandi
áhugaverð efnasambönd. Skrá þarf hvert sýni fyrir sig
m.t.t. söfnunarstaðs, útlits og magns.
Fjöldi starfa: 1
HÁSKÓLI ÍSLANDS
MATVÆLA- OG
NÆRINGARFRÆÐIDEILD
MR184 Fræðsluefni um næringu og íþróttir
Markmið verkefnisins er að gefa út fræðsluefni sem
íþróttafélög geta nýtt sér í sínu starfi til þess að hvetja
iðkendur til hollara fæðuvals.
Fjöldi starfa: 1
MR185 Aukin næringarmeðferð sjúkra á
Íslandi
Söfnun upplýsinga og samantekt varðandi nám og
undirbúning fyrir kennslu sem hefst haustið 2011.
Fjöldi starfa: 1
HÁSKÓLI ÍSLANDS
MENNTAVÍSINDASVIÐ
MR186 Rannsóknarstofa um þróun skólastarfs
Verkefnið felst í skráningu á rannsóknargögnum og
þá fyrst og fremst á viðtölum en einnig aðstoð við
uppbyggingu gagnagrunns.
Fjöldi starfa: 1
MR187 Aðstoð við vef Menntavísindasviðs.
Aðstoð við vefstjóra og söfnun efnis o.fl.
Fjöldi starfa: 1
MR188 Aðstoð við samantekt og söfnun efnis
um kennaramenntun á Norðurlöndum
Fjöldi starfa: 1
MR189 Aðstoð við gagnasöfnun vegna
endurskoðunar á kennaranámi
Verkefnið felst m.a. í viðtölum um námið og úrvinnslu á
fyrirliggjandi gögnum.
Fjöldi starfa: 1
MR190 Þýðingar á námsefni og námsefnisgerð
fyrir hugbúnaðinn GeoGebra
Verkefnið felist í að vinna í teymi, með tveimur öðrum
nemendum og verkefnisstjóra, að slíkum þýðingum og
námsefnisgerð.
Fjöldi starfa: 2
HÁSKÓLI ÍSLANDS
RANNSÓKNASTOFA Í LYFJA-
OG EFNAFRÆÐI
MR191 Verkefnið felst í aðstoð við úrhlutun á
þrávirkum lífrænum efnum úr hvalspiki
Verkefnið felst í aðstoð við úrhlutun á þrávirkum
lífrænum efnum úr hvalspiki og aðstoð við
efnagreiningar og úrvinnslu gagna. Nokkur
efnafræðikunnátta er nauðsynleg.
Fjöldi starfa: 1
HÁSKÓLI ÍSLANDS
RANNSÓKNASTOFNUN
Í BARNA- OG
FJÖLSKYLDUVERND
MR192 Fjölgun barnaverndartilkynninga
Þáttur háskólanema í þessu verkefni er þrískiptur:
Fyrsti hlutinn snýst um að afla gagna og sjá til þess að
gagnasöfnun gangi eftir. Annar þátturinn er að skrá
niður tölulegar upplýsingar úr gögnunum í excel eða
álíka tölvuforrit til tölfræðilegrar vinnslu (SPSS). Þriðji og
síðasti þátturinn væri að vinna úr gögnunum og útbúa
skýrslu/lokahandrit til birtingar með helstu niðurstöðum
rannsóknarinnar.
Fjöldi starfa: 1
MR193 Erlendar konur á efri árum á Íslandi:
Staða þeirra og væntingar
Helsta markmið rannsóknarinnar er að fá fram stöðu
erlendra kvenna á efri árum á Íslandi. Þá er ætlunin
að fá fram mynd af því hvernig þær standa í íslensku
samfélagi og hvort það sé eitthvað sem hindrar þær í
samfélagsþátttöku.
Fjöldi starfa: 1
MR194 Eldri borgarar, fátækt og einangrun
Helsta markmið verkefnisins er að rannsaka og
kortleggja aðstæður og líf fólks, 67 ára og eldra, sem
fær lægstu bætur Tryggingastofnunar.
Fjöldi starfa: 1
HÁSKÓLI ÍSLANDS
STARFSMANNASVIÐ
MR195 Vinna að þýðingum á vef
starfsmannasviðs úr íslensku á ensku
Það á við innri vef sviðsins og fjölda verklagsreglna sem
brýn þörf er á að þýða á ensku.
Fjöldi starfa: 1
HÁSKÓLI ÍSLANDS
STOFNUN
STJÓRNSÝSLUFRÆÐA
MR196 Stofnun stjórnsýslufræða
Verkefnið felst í að afla og greina gögn um íslensku
stjórnmálaflokkana.
Fjöldi starfa: 1
HÁSKÓLI ÍSLANDS
VERKFRÆÐI- OG
NÁTTÚRUVÍSINDASVIÐ
MR197 Þýðing á vef sviðsins á ensku
Fjöldi starfa: 2
HÁSKÓLI ÍSLANDS
VIÐSKIPTADEILD
MR198 Verkefni við að þýða heimasíður
Viðskiptafræðideildar (Hagfræðideildar) á
ensku. Fjöldi starfa: 1
MR199 Vinna við að aðstoða kennara
Viðskiptafræðideildar við að koma
heimasíðum þeirra í gott horf.
Fjöldi starfa: 1
MR200 Vinna við að aðstoða aðjúnkt í
markaðsfræði í Viðskiptafræðideild í
rannsókn
Vinna við að aðstoða aðjúnkt í markaðsfræði í
Viðskiptafræðideild í rannsókn sem lýtur að því að
hvað markaðsstjórar, sem útskrifast hafa frá HÍ, telja
að hafi helst vantað í nám þeirra í markaðsfræði (sk.
gapsgreining). Vinna fyrir meistaranema.
Fjöldi starfa: 1
MR201 Vinna við að gera úttekt í
samvinnu við aðjúnkt í markaðsfræði í
Viðskiptafræðideild
Vinna við að gera úttekt í samvinnu við aðjúnkt í
markaðsfræði í Viðskiptafræðideild á samkeppnishæfni
ferðaþjónustunnar sem klasa, í samanburði við klasa
þeirra þjóða sem Ísland á í mestri samkeppni við. Vinna
við gagnaöflun. Vinna fyrir meistaranema.
Fjöldi starfa: 1
RANNÍS -
RANNSÓKNARMIÐSTÖÐ
ÍSLANDS
MR202 Skráning og framsetning upplýsingar
Skráning og framsetning upplýsinga í tengslum við
verkefni um áhrifamat og nýsköpun í opinberum rekstri.
Fjöldi starfa: 1
MR203 Gagnavinnsla sjóðakerfis
Safna saman og uppfæra eldri gögn sjóða Rannís ásamt
innslætti á miklu safni upplýsinga í nýjan gagnagrunn,
samræma og afstemma.
Fjöldi starfa: 2
FÉLAGS- OG
TRYGGINGA-
MÁLARÁÐUNEYTIÐ
FÉLAGS- OG
TRYGGINGAGINGA-
MÁLARÁÐUNEYTIÐ
FTR01 Undirbúningur að fullgildingu
endurskoðaðs félagsmálasáttmála Evrópu
Vinnan felst meðal annars í því að taka saman
niðurstöður sérfræðinganefndar sem starfar á grundvelli
félagsmálasáttmála Evrópu að því er varðar einstök
ákvæði sáttmálans og að fara yfir þau lög, reglugerðir
og eftir atvikum kjarasamninga á þeim sviðum er
ákvæði sáttmálans taka til.
Fjöldi starfa: 1
FTR02 Yfirferð yfir allar reglugerðir og reglur
á sviði vinnuverndar
Yfirferðin skal miða að því að kanna hvort ástæða er til
að endurskoða reglugerðir og reglur á sviði vinnuverndar
með tilliti til gildandi laga og gerða Evrópusambandsins
á sviði vinnuverndar.
Fjöldi starfa: 2
FTR03 Greining á úrskurðum
úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og
vinnumarkaðsaðgerða
Vinnan felst í greiningu á úrskurðum úrskurðarnefndar
atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða og
mat á því hvort þörf er á endurskoðun laga nr. 54/2006,
um atvinnuleysistryggingar, og laga nr. 55/2006, um
vinnumarkaðsaðgerðir.
Fjöldi starfa: 2.
FTR04 Greining á úrskurðum úrskurðarnefndar
fæðingar- og foreldraorlofsmála
Vinnan felst í greiningu á úrskurðum úrskurðarnefndar
fæðingar- og foreldraorlof og mat á því hvort þörf
er á endurskoðun laga nr. 95/2000, um fæðingar- og
foreldraorlof.
Fjöldi starfa: 1
FTR05 Greining á úrskurðum kærunefndar
jafnréttismála
Vinnan felst í greiningu á úrskurðum kærunefndar
jafnréttismála sem og dómum sem kveðnir hafa verið
upp í tengslum við lög nr. 10/2008, um jafna stöðu og
jafnan rétt kvenna og karla, og lögum nr. 96/2000.
Fjöldi starfa: 1
FTR06 Greining á framkvæmd laga um
greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega
fatlaðra barna
Vinnan felst í að greina ákvarðanir Tryggingastofnunar
ríkisins í tengslum við umsóknir um greiðslur á
grundvelli laga nr. 22/2006, um greiðslur til foreldra
langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, og mat á því
hvort þörf er á endurskoðun laganna, þar á meðal að
kanna hugsanlega raunaðstæður foreldra langveikra
eða alvarlega fatlaðra barna, sbr. eldri könnun.
Fjöldi starfa: 2
FTR07 Gagnasöfnun og úrvinnsla vegna
vinnu við gerð félagsvísa - Verkefni á vegum
velferðarvaktarinnar
Vinnan felst í að greina og þróa félagsvísa, meðal
annars að afla gagna frá ríkisstofnunum, sveitarfélögum
og félagasamtökum, skrá gögnin og vinna úr þeim.
Fjöldi starfa: 1
FTR08 Samræða við börn um kreppuna
-Verkefni á vegum velferðarvaktarinnar
Starfið felst í að ræða við börn um kreppuna og fá fram
sjónarmið þeirra um hana. Fjöldi starfa: 2
FTR09 Könnun á þjónustu sveitarfélaganna við
börn og barnafjölskyldur
Verkefni á vegum velferðarvaktarinnar. Vinnan felst öflun
og úrvinnslu upplýsinga frá öllum sveitarfélögunum um
þá þjónustu sem þau veita börnum og barnafjölskyldum.
Fjöldi starfa: 1
FTR10 Þróun fjárhagsaðstoðar á
Norðurlöndunum
Verkefni á vegum velferðarsviðs. Vinnan felst í því að
taka saman yfirlit yfir þróun aðstoðarinnar yfir tiltekið
tímabil hjá hverju og einu Norðurlandanna og setja
upplýsingarnar fram á samræmdan hátt.
Fjöldi starfa: 1
FTR11 Evrópuár gegn fátækt
Vinnan felst í almennri skipulagningu og eftirfylgni
með verkefnum í tengslum við Evrópuár gegn fátækt
sem og vinnsla efnis sem tengist verkefninu og birt er á
heimasíðu verkefnisins.
Fjöldi starfa: 1
FTR12 Framkvæmdaáætlun í málefnum
innflytjenda
Vinnan felst í greiningu og framkvæmd þeirra verkefna
sem framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda
kveður á um og mat á því hvort þörf er á breyttu
formi framkvæmdaáætlunarinnar í því skyni að ná
markmiðum hennar. Fjöldi starfa: 1
FTR13 Styrkir úr sjóðum Evrópusambandsins
Vinnan felst í gerð leiðarvísis fyrir þá sem vilja
sækja um styrki til tiltekinna verkefna úr sjóðum
Evrópusambandsins.
Fjöldi starfa: 1
FTR14 Rannsókn á aðstæðum einstaklinga
sem veitt hefur verið dvalarleyfi af
mannúðarástæðum
Vinnan felst í heildstæðri úttekt á aðstæðum
einstaklinga sem veitt hefur verið dvalarleyfi hér á landi
af mannúðarástæðum.
Fjöldi starfa: 1
FTR15 Verkefni í tengslum við skjalavörslu
ráðuneytisins
Vinnan felst í skipulagningu í skjalageymslum og
bókasafni ráðuneytisins.
Fjöldi starfa: 1
FTR16 Verkefni í tengslum við umsókn Íslands
um aðild að ESB
Vinnan felst einkum í yfirferð yfir fjölþjóða- og tvíhliða
samninga, bæði samninga sem Ísland er aðili að og
samninga sem ESB er aðili að en ekki Ísland. Í starfinu
felst m.a. að gera stuttar lýsingar á efni samninganna,
framkvæma könnun á því hvort samningarnir hafi verið
fullgiltir, hvort gerðir hafi verið fyrirvarar eða yfirlýsingar
við þá, o.fl.
Fjöldi starfa: 2
FTR17 Greining á úrskurðum úrskurðarnefndar
almannatrygginga og álita umboðsmanns
Alþingis
Vinnan felst í greiningu á úrskurðum úrskurðarnefndar
almannatrygginga og álitum umboðsmanns Alþingis.
Vinnan er nauðsynlegur þáttur í endurskoðun laga nr.
100/2007, um almannatryggingar, og laga nr. 99/2007,
um félagslega aðstoð. Fjöldi starfa: 2
FTR18 Flutningur á málefnum aldraðra og
lífeyristrygginga milli ráðuneyta
Hinn 1. janúar 2008 fluttust málefni aldraðra og
lífeyristryggingar frá heilbrigðisráðuneyti til félags- og
tryggingamálaráðuneytis. Ýmis gögn og upplýsingar sem
tengjast þessum málaflokkum eru vistaðar í málaskrá
og í skjalavörslu heilbrigðisráðuneytisins. Vinnan felst
í því að flokka gögnin og flytja þau yfir til félags- og
tryggingamálaráðuneytisins og í málaskrá þess.
Fjöldi starfa: 1
FTR19 Verkefni í tengslum við bætta
öldrunarþjónustu
Vinnan fellst í gerð viðmiðana um þörf aldraðra
fyrir dagvistun, undirbúningi notkunar sérstakra
gæðaviðmiða í öldrunarþjónustu og í að vinna að
drögum að þjónustusamningum við öldrunarstofnanir.
Fjöldi starfa: 3
FTR20 Rýmingaráætlanir fyrir sambýli
Verkefnið felst í að vinna að áætlunum um rýmingu
sambýla í hættuástandi, svo sem í náttúruhamförum.
Starfstími: 3 mánuðir.
Fjöldi starfa: 1
FTR21 Yfirlit yfir úthlutanir úr Framkvæmda-
sjóði aldraðra
Framkvæmdasjóður aldraðra starfar á grundvelli
laga um málefni aldraðra nr. 125/1999. Sjóðurinn er
fjármagnaður með sérstöku gjaldi sem skattstjórar
leggja á þá sem skattskyldir eru á aldrinum 16-70 ára,
samkvæmt lögum um tekjuskatt. Verkefnið felur í sér að
taka saman yfirlit um allar úthlutanir frá því að fyrst var
úthlutað úr sjóðnum fyrir 30 árum síðan.
Fjöldi starfa: 1
FTR22 Upplýsingasöfnun og upplýsingamiðlun
um þjónustu við fatlaða
Vinnan felst í gerð upplýsingaefnis um öll þjónustu- og
stuðningsúrræði er varða fötluð börn og fjölskyldur
þeirra. Einnig er um að ræða gerð kynningar- og
fræðsluefnis um málefni fatlaðra barna og fullorðinna
sem snýr meðal annars að einstökum fötlunum og
afleiðingum þeirra, réttindum og jafnréttiskröfum,
búsetukostum og atvinnuþátttöku. Gert er ráð fyrir
því að efnið verði aðgengilegt á vefsvæði félags-
og tryggingamálaráðuneytisins eða á vefsvæðum
undirstofnana.
Fjöldi starfa: 2
FTR23 Uppsetning á auðlesnu efni á vef félags-
og tryggingamálaráðuneytisins.
Vinnan felst í að koma upplýsingum á vef ráðuneytisins
á þann hátt að þær verði auðlesnar. Starfið myndi
henta nemendum á háskólastigi á sviðum sem tengjast
verkefninu. Fjöldi starfa: 1
FTR24 Mótun hugmynda um hvernig nota
megi upplýsingatæknina til að auka aðgengi
fatlaðra að upplýsingasamfélaginu
Vinnan felst í því að greina til hvaða aðgerða sé hægt
að grípa til að auka möguleika fatlaðs fólks til aukinnar
virkni og þátttöku í samfélaginu með því að nýta þau
tækifæri sem upplýsingasamfélagið hefur upp á að
bjóða. Fjöldi starfa: 1
FTR25 Aðstoð við gerð lagafrumvarpa
á velferðarsviði félags- og
tryggingamálaráðuneytisins
Undirbúningsvinna vegna væntanlegrar laga- og
reglugerðarvinnu. Fjöldi starfa: 2
FTR26 Vitundarefling í fjölmiðlum
Vinna með fjömiðlum í því að uppræta viðhorf
meðal almennings sem mótast af vorkunnsemi
eða meðaumkun ellegar litið sé á fatlað fólk sem
„minna mega sín“. Vinnan felst einnig í því að vinna
með fjölmiðlum þannig að þeir taki samfélagslega
ábyrgð með því að fjalla um málefni fatlaðra barna
og fullorðinna með fullri virðingu og forðist einhliða
umfjöllun og fordóma.
Fjöldi starfa: 1
FTR27 Samstarf við aðila vinnumarkaðarins
Vinnan felst í því að undirbúa samstarf við aðila
vinnumarkaðarins um hvernig hægt sé að auka
samfélagslega ábyrgð með sérstakri áherslu á fatlað fólk
á vinnumarkaði.
Fjöldi starfa: 1
FTR28 Gerð fræðsluefnis fyrir almenning,
sveitarstjórnarmenn og starfsfólk
félagsþjónustu vegna yfirfærslu málefna
fatlaðra til sveitarfélaga
Vinnan felst í því að búa til fræðsluefni þar sem helstu
áherslum og verklagi vegna yfirfærslu málefna fatlaðra
er lýst.
Fjöldi starfa: 2