Fréttablaðið - 08.05.2010, Side 110
70 8. maí 2010 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
34 DAGAR Í HM
Elísabet Gunnarsdóttir hefur náð frábærum árangri með Kristian-
stad í fyrstu umferðum sænsku úrvalsdeildarinnar í vor, þvert á
allar spár spekinga fyrir mótið. Liðið vann til að mynda glæsi-
legan 3-1 sigur á stórliði Umeå í síðustu umferð þar sem Erla
Steina Arnardóttir þurfti að standa í markinu vegna meiðsla
aðalmarkvarðar liðsins.
Liðið er nú í þriðja sæti deildarinnar með tíu stig og er
þremur stigum á eftir toppliði Malmö sem Þóra Helga-
dóttir og Dóra Stefánsdóttir leika með. Þessi tvö lið
mætast einmitt á morgun.
„Það er frábær stemning í liðinu og árangurinn hefur
ekki við að koma okkur á óvart, ólíkt öllum öðrum. Við
höfum verið að tala um þetta síðan í haust og það er
frábært að sjá markmiðin sín ganga eftir,“ sagði Elísabet við
Fréttablaðið.
Hún segir að það sé þó lítið búið af tímabilinu og að
mikið þurfi að hafa fyrir því að halda liðinu í toppbarátt-
unni. „Við þurfum að vera á tánum og halda fullri einbeitingu.
Við erum lítið lið með fámennan leikmannahóp.“
Kristianstad missti átta leikmenn frá síðasta tímabili og hefur
Elísabet þurft að fylla upp í átján manna leikmannahóp með
mjög ungum leikmönnum. „Þetta eru ungar stelpur sem þurfa
að sinna sínum skóla og eiga því erfitt með að koma með í
útileikina. Við vorum því með aðeins tvo varamenn í leik
gegn Tyresö á útivelli og það var ótrúlegt að við komumst
í gegnum þann leik,“ sagði Elísabet en þeim leik lauk með
markalausu jafntefli.
Mikið aðhald hefur verið á fjármálum félagsins og því
hefur gengið illa að bæta fyrir leikmannaskortinn. En
Erla Steina þarf þó ekki að standa í markinu á morgun
þar sem Kristianstad fékk í gær undanþágu frá sænska
knattspyrnusambandinu til að semja við ítalska landsliðs-
markvörðinn Önnu Mariu Picarelli. „Það er gríðarlegur léttir að
fá hana – ekki síst fyrir Erlu Steinu,“ sagði Elísabet í léttum dúr.
ELÍSABET GUNNARSDÓTTIR: ÍTALSKI LANDSLIÐSMARKVÖRÐURINN LEYSIR MARKVARÐAVANDRÆÐI KRISTIANSTAD
Árangurinn kemur öllum nema okkur á óvart
HANDBOLTI Gunnar Steinn Jónsson
og félagar hans í Drott mæta í dag
Sävehof í hreinum úrslitaleik um
sænska meistaratitilinn í hand-
bolta karla. Árangur Drott hefur
komið mörgum á óvart en lykil-
maður í liðinu er leikstjórnandinn
Gunnar Steinn Jónsson sem er á
sínu fyrsta tímabili með liðinu.
„Þetta hefur verið mikið ævin-
týri. Það bjóst enginn við þessu
af okkur og nú erum við komnir
í úrslitaleikinn. Það er von á 14
þúsund áhorfendum í Malmö og er
þetta langstærsti leikurinn sem ég
hef tekið þátt í á ferlinum,“ sagði
Gunnar Steinn við Fréttablaðið.
„Mín frammistaða í vetur hefur
verið framar mínum björtustu
vonum. Ég ætlaði fyrst að gefa
mér ár til að aðlagast en svo hefur
þetta gengið mjög vel. Ég hef líka
bætt mig heilmikið sem leikmaður
á þessu eina ári.“
Gunnar Steinn segir að þjálfari
Drott, Ulf Sivertsson, eigi stóran
hlut í því. „Hann er ótrúlega fær.
Hann þjálfaði Kolding í Danmörku
í sex ár áður en hann kom hing-
að og kvaddi liðið með meistara-
titli í fyrra. Ég hef fengið stórt
hlutverk hjá honum og spilað nán-
ast alla leiki í stöðu leikstjórnanda
frá upphafi til enda.“
Leikurinn verður í beinni
útsendingu á SVT1 sem má nálgast
hér á landi. Útsending hefst klukk-
an 14.00. Sérfræðingur stöðvarinn-
ar, Magnus Grahn, segir Gunnar
Stein vera sterkasta hlekk Drott,
ásamt þjálfaranum. „Hann er
alhliða leikmaður og getur unnið
leiki fyrir sitt lið,“ sagði hann í
úttekt sinni á liði Drott.
Þónokkur lið hafa sýnt Gunnari
Steini áhuga en sjálfur vill hann
vera áfram í Svíþjóð. „Það hefur
komið slatti af fyrirspurnum, til
að mynda frá Danmörku og Þýska-
landi. En ég vildi ekki stökkva á
hvað sem er. Hér er allt til alls,
góð aðstaða og frábær þjálfari. Ég
gerði nýlega tveggja ára samning
og á ekki von á öðru en að vera hér
í allavega eitt ár til viðbótar.“ - esá
Úrslitaleikurinn um sænska meistaratitilinn fer fram á morgun:
Minn langstærsti leikur til þessa
GUNNAR STEINN JÓNSSON Hefur slegið í
gegn með Drott. MYND/ÚR EINKASAFNI
HANDBOLTI Það má búast við rosa-
legri stemningu í íþróttahúsinu að
Ásvöllum klukkan 14.00 í dag er
Haukar og Valur mætast í oddaleik
liðanna í úrslitum N1-deildar karla.
Það er allt undir í dag því liðið sem
vinnur verður Íslandsmeistari.
Fréttablaðið fékk Gunnar Magn-
ússon, þjálfara HK og aðstoðar-
landsliðsþjálfara, til þess að spá í
spilin fyrir leik kvöldsins.
„Ég sagði fyrir þessa rimmu að
Valur myndi vinna 3-2 og ég stend
við þá spá,“ sagði Gunnar ákveð-
inn en hann sagði leiki liðanna
hafa spilast nokkurn veginn eins
og hann gerði ráð fyrir.
„Ástæðan fyrir því að Valur
vinnur er sú að liðið hefur meiri
breidd og Haukaliðið veikist mikið
ef það þarf að skipta mönnum af
velli. Ungu strákarnir hjá Haukum
eru efnilegir en ekki eins sterkir
og varamenn Vals. Valsmönnum
tekst betur að rúlla sínu liði og mér
finnst vera farið að draga aðeins af
Haukunum.“
Úrslitarimman er spiluð afar
þétt og Gunnar segir Valsmenn
græða á því. „Það sást augljóslega
að þegar Haukar voru að hvíla sína
bestu menn í síðasta leik voru Vals-
menn mikið betri. Haukarnir verða
eitthvað að hvíla sína bestu menn
og þá verða hinir að stíga upp
núna,“ sagði Gunnar og bætir við
að það hjálpi Haukum ekki mikið
að vera án Gunnars Bergs Viktors-
sonar sem hefur verið máttarstólpi
í varnarleik liðsins.
„Það munar mjög mikið um
Gunnar Berg. Það skarð verður
erfitt að fylla. Nú reynir á hinn
unga Heimi Óla Heimisson. Stóra
tækifærið hans er í þessum leik. Ég
geri ráð fyrir að Aron muni spila
meiri 5/1 vörn í þessum leik en oft
áður þar sem það vantar Gunnar
Berg,“ sagði Gunnar.
Þessi lið eru búin að mætast
margoft áður í vetur og því ætti
ekkert í leik þeirra að koma and-
stæðingnum á óvart. Gunnar segir
að það reyni því mikið á kænsku
þjálfaranna í dag.
„Þarna mætast tveir frábærir
þjálfarar sem eru með sína taktík
upp á tíu. Í dag mun þetta snúast
um hvor þjálfarinn nær að stilla
spennustigið betur hjá sínu liði.
Þetta mun snúast mikið um hugar-
far og spennustig. Ef spennustig
Valsmanna verður rétt þá vinna
þeir enda með meiri breidd og svo
eru Haukarnir lemstraðir og án
Gunnars Bergs,“ sagði Gunnar sem
býst þó við spennandi leik.
„Það kæmi mér ekkert á óvart
ef þessi leikur yrði framlengdur
eða jafnvel tvíframlengdur. Mín
tilfinning er sú að Valur vinni þó
nauman sigur.“ henry@frettabladid.is
Valur vinnur á breiddinni
Gunnar Magnússon, þjálfari HK, spáir því að Valur verði Íslandsmeistari í dag
en Valur sækir Hauka heim að Ásvöllum. Leikurinn er hreinn úrslitaleikur um
titilinn. Þjálfarar liðanna í N1-deildinni eru ekki á einu máli um hvernig fer.
BLÓÐUG BARÁTTA Það verður ekkert gefið eftir í dag og menn munu berjast til
síðasta blóðdropa. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HANDBOLTI Fréttablaðið leitaði til
þjálfara liðanna sex í N1 deild
karla sem ekki komust í úrslita-
einvígið um Íslandsmeistaratitil-
inn og fékk þá til að spá fyrir um
hvernig oddaleikur Hauka og
Vals fer á morgun og hvaða leik-
maður verður maður leiksins.
Það stefnir greinilega í mjög
jafnan leik því þrír þjálfarar spá
Haukum sigri og þrír þjálfarar
spá Val sigri.
Valsmaðurinn Fannar Þór Frið-
geirsson og Haukamarkvörður-
inn Birkir Ívar Guðmundsson
fengu flest atkvæði þegar kom að
því að spá fyrir um það hver yrði
maður leiksins. - óój, esá
Þessir spá Haukum sigri:
Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Akureyrar:
Maður leiksins: Birkir Ívar Guðmundsson
Einar Andri Einarsson, þjálfari FH:
Maður leiksins: Björgvin Hólmgeirsson
Einar Jónsson, þjálfari Fram:
Maður leiksins: Birkir Ívar Guðmundsson
Þessir spá Val sigri:
Geir Sveinsson, þjálfari Gróttu:
Maður leiksins: Fannar Þór Friðgeirsson
Gunnar Magnússon, þjálfari HK:
Maður leiksins: Hlynur Morthens
Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörn-
unnar:
Maður leiksins: Fannar Þór Friðgeirsson
Oddaleikur um titilinn í dag:
Hvað segja
þjálfararnir?
FANNAR ÞÓR FRIÐGEIRSSON Var frábær
í síðasta leik og skiptir miklu máli fyrir
Valsmenn í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
HANDBOLTI Haukar eiga bæði
markahæsta mann úrslitaeinvíg-
isins sem og þá sem hafa gefið
flestar stoðsendingar og fiskað
flest víti. Hér fyrir neðan má sjá
lista yfir þá menn sem hafa verið
atkvæðamestir í tölfræðinni í
fyrstu fjórum leikjunum. - óój
Topplistar tölfræðinnar
Flest mörk
Sigurbergur Sveinsson, Haukum 37/12 (54%)
Arnór Þór Gunnarsson, Val 28/14 (58%)
Fannar Þór Friðgeirsson, Val 27/4 (49%)
Sigurður Eggertsson, Val 18 (44%)
Björgvin Þór Hólmgeirss., Haukum 17 (40%)
Pétur Pálsson, Haukum 16 (94%)
Flest varin skot
Hlynur Morthens, Val 67/0 (43%)
Birkir Ívar Guðmundss., Haukum 60/2 (41%)
Flestar stoðsendingar
Elías Már Halldórsson, Haukum 14
Sigurbergur Sveinsson, Haukum 13
Sigfús Páll Sigfússon, Val 13
Fannar Þór Friðgeirsson, Val 11
Sigurður Eggertsson, Val 11
Flest fiskuð víti
Pétur Pálsson, Haukum 9
Fannar Þór Friðgeirsson, Val 4
Ingvar Árnason, Val 4
Flest hraðaupphlaupsmörk
Freyr Brynjarsson, Haukum 5
Fannar Þór Friðgeirsson, Val 5
Pétur Pálsson, Haukum 4
Tölfræðin úr úrslitaeinvíginu:
Pétur með 94
prósenta nýtingu
PÉTUR PÁLSSON Hefur nýtt 16 af 17
skotum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Peter Shilton og Fabien Barthez eiga metið saman yfir
þá markmenn sem hafa oftast haldið
hreinu í leik í úrslitakeppni HM. Shilton
hélt 10 sinnum hreinu í 17 leikjum
með Englandi á HM 1982, 1986 og
1990. Barthez hélt einnig 10 sinnum
hreinu í 17 leikjum með Frakklandi
á HM 1998, 2002 og 2006.
N1 Deildin
KARLAR
Laugardagur
Ásvellir Haukar - Valur 14:00
2009 - 2010
LEIKUR 5
ÚRSLITIN RÁÐAST Í DAG