Fréttablaðið - 14.05.2010, Qupperneq 2
2 14. maí 2010 FÖSTUDAGUR
Maðurinn sem lést þegar
svifvængur hrapaði með
hann í hlíðum Ingólfsfjalls á
mánudag hét Grzegorz Czes-
law Rynkowski. Hann var
fæddur í Póllandi árið 1976
og var því 34 ára gamall.
Hann var búsettur á höfuð-
borgarsvæðinu og lætur eftir
sig sambýliskonu.
Lést í hlíðum
Ingólfsfjalls
BRETLAND, AP Líklegt þykir að
harður leiðtogaslagur sé fram
undan í Verkamannaflokkn-
um í Bretlandi, eftir að Gordon
Brown sagði af sér formennsku.
David Miliband, fyrrverandi
utanríkisráðherra, hefur til-
kynnt um framboð sitt. Yngri
bróðir hans, Ed Miliband, er nú
talinn líklegur til að bjóða sig
fram gegn bróður sínum.
Þá er talið að þingmaðurinn
Ed Balls blandi sér í formanns-
slaginn, og þrýst er á eiginkonu
hans, Yvette Cooper, að gera
slíkt hið sama. - þeb
Verkamannaflokkurinn:
Leiðtogaslagur
fram undan
Fleiri handteknir
Tveir menn til viðbótar hafa verið
handteknir í New York grunaðir um
aðild að sprengjutilræði á Times-
torginu. Mennirnir voru handteknir í
kjölfar húsleita í grennd við Boston.
Bandaríski ríkisborgarinn Faisal
Shazhad, sem fæddur er í Pakistan, er
þegar í haldi, grunaður um aðild að
málinu.
BANDARÍKIN
EFNAHAGSMÁL Um tuttugu starfs-
menn Kaupþings, bæði núver-
andi og fyrrverandi, hafa nú rétt-
arstöðu grunaðra. Ólafur Þór
Hauksson, sérstakur saksóknari,
vill ekki tjá sig um rannsóknina
að öðru leyti en því að yfirheyrsl-
ur stæðu yfir og myndu gera á
meðan sakborningar sætu í gæslu-
varðhaldi.
Sigurður Einarsson, fyrrum
stjórnarformaður Kaupþings sem
nú er eftirlýstur af Interpol, er
ekki á leið til landsins, að sögn
lögmanns hans, Gests Jónsson-
ar. „Hann er reiðubúinn að koma
heim ef hann fær vilyrði fyrir
því að hann geti snúið aftur af
skýrslugjöf lokinni. Þetta er það
sem hann hefur tilkynnt lögregl-
unni, en ég veit ekkert meira um
það,“ segir Gestur.
Gestur segir Sigurð ætíð hafa
verið tilbúinn til að gefa skýrslu
með þessum formerkjum. Þá sé
hann einnig reiðubúinn til að taka
á móti mönnum í Englandi, sé þess
óskað.
Hann vildi lítið tjá sig um þá
staðreynd að Sigurður væri eftir-
lýstur af Interpol.
Í næsta mánuði kemur teymi
sérfræðinga frá norsku lögregl-
unni, Ökokrim, til aðstoðar emb-
ættis sérstaks saksóknara. Þá
verður starfsmönnum fjölgað við
embættið á næstunni, væntanlega
nokkrum tugum. Ólafur Þór segir
að hjá embættinu séu yfir 40 opin
mál þannig að af nógu sé að taka.
Hann vill ekkert um það segja
hvort fleiri handtökur séu fyrir-
hugaðar. Þá vill hann ekki segja
til hvaða ráða verður gripið varð-
andi Sigurð.
„Við gefum ekkert upp um
til hvaða þvingunarúrræða við
munum grípa til í framtíðinni;
hvort sem það er leit, handtaka eða
eitthvað annað.“ Þar vísar Ólafur
ekki beint í mál Sigurðar, heldur í
starfsemina almennt.
Gæsluvarðhald yfir Magnúsi
Guðmundssyni rennur út í dag.
Ólafur segir óljóst hvort sótt verð-
ur um framlengingu þess. „Það
liggur ekki fyrir enn þá. Það er
enn verið að vinna í yfirheyrsl-
um og við munum taka afstöðu til
þess þegar það er kominn botn í
það mál.“ kolbeinn@frettabladid.is
Um 20 starfsmenn
Kaupþings grunaðir
Sigurður Einarsson neitar að koma til landsins nema tryggt verði að hann fái að
snúa aftur út. Um tuttugu starfsmenn Kaupþings eru með stöðu grunaðra. Ekki
ákveðið hvort farið verður fram á framlengingu gæsluvarðhalds í dag.
Sigurður Einarsson vildi lítið tjá sig þegar blaðamaður náði tali af honum í
gærkvöldi.
SE: Halló.
BLM: Já, er það Sigurður?
SE: Hver er þetta?
BLM: Kolbeinn heiti ég, blaðamaður á Fréttablaðinu.
SE: Já, blessaður. Heyrðu, ég hef bara ekkert við þig að segja í bili.
BLM: Er það ekki?
SE: Þú verður bara að prófa aftur á morgun.
BLM: Má ég ekki spyrja hvort þú sért á leiðinni heim?
SE: Ókei, blessaður. Bæ bæ.
Ókei, blessaður
Á GÓÐRI STUNDU Ólafur Ragnar Grímsson forseti veitti Kaupþingi útflutningsverð-
laun árið 2005. Hreiðar Már Sigurðsson og Sigurður Einarsson veittu verðlaununum
viðtöku. Hreiðar situr nú í gæsluvarðhaldi og Sigurður er eftirlýstur af Interpol.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
. Ó
L.
Haukur, hafið þið nokkuð séð
það svartara?
„Ekki síðan í október 2008.“
Haukur Snorrason var meðal þrjátíu skot-
veiðimanna sem skutu 700 svartfugla í
nágrenni Látrabjargs á dögunum.
DÓMSMÁL Frumvarp er væntanlegt í haust um sam-
svarandi reglur og í evrópsku handtökutilskipuninni.
Ísland getur ekki orðið aðili að henni, þar sem það
er utan Evrópusambandsins. Hins
vegar hafa Ísland og Noregur gert
samning við sambandið um einfald-
ari framsalsmál.
Alþingi samþykkti í mars 2007
að heimila ríkisstjórn að semja við
sambandið um tilskipunina. Björn
Bjarnason gegndi þá stöðu dóms-
málaráðherra. Aðspurður hvers
vegna ekki hefði enn verið samið
um málið segir hann það vera að
snúa málum á haus. „Dómsmála-
ráðuneytið hafði lokið vinnu sinni.
Formsatriði eftir hjá utanríkisráðu-
neytinu. Spurðu diplómatana um
hvað þeir gerðu.“
Bryndís Helgadóttir, settur
skrifstofustjóri dómsmálaráðu-
neytisins, segir hins vegar að
vinna hafi staðið yfir í dómsmálaráðuneytinu frá sam-
þykkt Alþingis. Hún segir málið flókið og hafi ekki
tekið óeðlilega langan tíma. Norðmenn hafi ekki held-
ur lokið vinnu sinni varðandi inn-
leiðinguna.
Hún segir aðalatriðið vera
einfaldara og styttra ferli. Þá
felist í tilskipuninni að löndin
framselji eigin ríkisborgara.
Alþingi hafi gert athugasemdir
við það á sínum tíma. Um ára-
mótin tók gildi nýr framsals-
samningur milli Norðurland-
anna. - kóp
Unnið hefur verið að evrópsku handtökutilskipuninni síðan árið 2007:
Handtökutilskipun í haust
VANDI VIÐ FRAMSAL Vandkvæði gætu
verið á framsali Sigurðar Einarssonar
þar sem samningur hefur ekki verið
gerður á grundvelli evrópsku hand-
tökutilskipunarinnar.
KÖNNUN Sjö af hverjum tíu borg-
arbúum telja að Hanna Birna
Kristjánsdóttir hafi staðið sig
vel í starfi borgarstjóra, sam-
kvæmt könn-
un sem MMR
gerði fyrir
borgarstjórn-
arflokk Sjálf-
stæðisflokks-
ins.
Alls sögðu
26,4 prósent að
Hanna Birna
hafi staðið sig
mjög vel, og
44,1 prósent að
hún hafi stað-
ið sig vel. Um
17,7 prósent telja Hönnu Birnu
hafa staðið sig frekar illa, og
11,8 prósent segja hana hafa
staðið sig mjög illa.
Könnunin var gerð 4. til 10.
maí síðastliðinn. Úrtak MMR
voru 816 borgarbúar á aldrinum
18 til 67 ára, valdir af handahófi
úr hópi álitsgjafa MMR. Svar-
hlutfall var 80,4 prósent. - bj
Ánægja með borgarstjórann:
Um 70 prósent
segjast ánægð
HANNA BIRNA
KRISTJÁNSDÓTTIR
NEYTENDAMÁL Umhverfisvottaðar
hreinlætisvörur eru ekki dýrari
í innkaupum en aðrar hreinlæt-
isvörur. Þetta er niðurstaða úr
verðkönnun sem Neytendasam-
tökin gerðu á
hreinlætisvör-
um merktum
umhverfisvott-
un Svansins í
lok apríl.
„Við könnun-
ina voru verð
allra tegunda í
þeim vöruflokk-
um þar sem
Svansmerkt
vara fannst, skráð. Stundum voru
þær dýrar en líka ódýrar, allt eftir
vöruflokkum,“ segir Brynhildur
Pétursdóttir, hjá Neytendasam-
tökunum en könnunin náði til átta
vöruflokka í sjö verslunum.
- rat/ sjá Svaninn í miðju blaðsins
Verð á hreinlætisvörum:
Umhverfisvott-
að ekki dýrara
BRYNHILDUR
PÉTURSDÓTTIR
BRETLAND, AP David Cameron, nýr
forsætisráðherra Bretlands, til-
kynnti í gær að laun ráðherra í rík-
isstjórn hans yrðu lækkuð um fimm
prósent. Þá verða launin fryst í
fimm ár. Lækkunin var meðal kosn-
ingaloforða Camerons. Ríkisstjórn-
in hafði lofað því að ráðast strax í
mikinn niðurskurð hjá hinu opin-
bera.
Nýja ríkisstjórnin hélt sinn fyrsta
fund í Downingstræti 10 í gærdag.
Fundurinn var að hluta til opinn
fjölmiðlum. Íhaldsflokkurinn fær
átján ráðherra í hinni nýju stjórn og
Frjálslyndir demókratar fá fimm.
Ráðuneytin sem Frjálslyndir demó-
kratar fengu eru viðskiptaráðuneyt-
ið, fjármálaráðuneytið, ráðuneyti
um orku og loftslagsbreytingar og
ráðuneyti Skotlands.
Aðeins fjórar konur eru í ríkis-
stjórninni. Theresa May er innan-
ríkisráðherra, Caroline Spelman
umhverfisráðherra, Cheryl Gill-
an er ráðherra Wales, og Sayeeda
Warsi er skuggaráðherra.
Gordon Brown, fyrrverandi for-
sætisráðherra, tilkynnti í gær að
hann muni halda áfram sem þing-
maður fyrir Verkamannaflokkinn.
- þeb
Nýja ríkisstjórnin í Bretlandi hélt sinn fyrsta opinbera fund í gær undir stjórn Davids Cameron:
Fjórar konur fá sæti í nýrri ríkisstjórn
FYRSTI FUNDUR RÍKISSTJÓRNARINNAR David Cameron stýrði sínum fyrsta ríkis-
stjórnarfundi í Downingstræti 10 í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SPURNING DAGSINS