Fréttablaðið - 26.05.2010, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 26. maí 2010 15
Jón Gnarr hefur á ferli sínum sem leikari og skemmtikraft-
ur skapað margar eftirminnileg-
ar persónur sem einkennast af
hallæristöktum og aulafyndni.
Hver man ekki sprenghlægi-
legan aulaháttinn þegar hann
sem yfirmaður bensínstöðvar í
framhaldsþáttum á Stöð tvö tók
„starfsmann á plani“ til bæna?
Nú hefur Jón hins vegar
boðið sig fram til borgarstjórn-
ar. Í fyrstu héldu menn að það
væri ein aulafyndnin í viðbót.
Með þessu framboði væri hann
um stund að breyta borgarpóli-
tíkinni í uppistand til þess að
gleðja þá mörgu Reykvíkinga
sem eru illa komnir og hnípn-
ir eftir hrunið. En Jón Gnarr
hefur tekið af allan vafa: Þetta
uppistand er í alvöru. Hann
hefur skipt um svið. Arkað inn
á svið stjórnmálanna. Samt virð-
ist hann hafa lítið fram að færa
umfram það að skemmta sér og
sínum með gamalkunnum tökt-
um á kostnað annarra framboða
og núverandi borgarfulltrúa;
þeir séu svo leiðinlegir en hann
sjálfur svo skemmtilegur.
Þessi sérkennilega sjálfum-
gleði virðist falla vel í kram-
ið. Ekki er annað að sjá en Jón
Gnarr og félagar séu í þann
mund að svífa inn í borgarstjórn
á vængjum vinsælda hans sem
skemmtikrafts. Framboðið er
eins og vel heppnað show. Það
er mikið klappað fyrir því. Líkt
og við þráum það eitt að niður-
lægingu okkar eftir hrunið
verði umbreytt í eitt allsherjar
grín og við losum okkur við þá
sem nú sitja í borgarstjórn af
því þeir séu svo „leiðinlegir“ en
kjósum Jón Gnarr og kó í stað-
inn af því hann sé svo „skemmti-
legur“. Ekki er annað að heyra á
honum sjálfum en að sami mæli-
kvarði eigi að gilda um frammi-
stöðu skemmtikrafta og stjórn-
málamanna: Stjórnmál eiga að
vera skemmtileg (eins og ég)
segir hann. Stundum má heyra
á útlendingum og Íslending-
um sem snúa heim frá fátæk-
um þjóðum að það sé engin
kreppa á Íslandi. Þeir horfa á
það sem snýr út; velmegunarleg
húsin, alla bílana. Gera sér ekki
grein fyrir að þetta er tálsýn úr
steypu og blikki, skynja ekki að
á bak við það sem út snýr er fólk
sem starir andvaka út í myrkrið,
veltir fyrir sér hverri krónu og
nær ekki endum saman: Fjöru-
tíu prósent þjóðarinnar sam-
kvæmt könnun en áreiðanlega
fleiri. Þetta fólk þjáist. Það er
reitt. Ráðalaust og hjálparvana.
Velviljað fólk sem enn á vel til
hnífs og skeiðar er einnig reitt
og ráðalaust. Við vorum öll svik-
in. Særð. Rænd. Afbrotamenn
náðu undir sig bankakerfinu,
fjármálafyrirtækjum, stórfyrir-
tækjum. Þeir sugu úr þeim blóð
og merg sjálfum sér til handa.
Og þeir nutu til þess fulltingis
valdamikilla stjórnmálamanna
sem hafa óstjórnað landinu í
mörg ár. Engin þjóð í Evrópu
hefur verið jafn illa leikin á fjár-
málasviðinu á jafn skömmum
tíma. Við hrærumst í loftþungu
rými örvæntingar og andlegrar
kreppu og þráum breytingar til
góðs.
Innan skamms verða kosning-
ar í Reykjavík. Gætum að okkur.
Komum böndum á örvænting-
una. Hemjum reiðina. Teljum
upp að tíu. Gefum dómgreind-
inni pláss. Við eigum nóg af
henni. Hleypum henni að.
Spyrjum spurninga, til að
mynda þessara: Er líklegt að
næfurþunnar og klisjukennd-
ar yfirlýsingar þessa framboðs
Jóns Gnarr, með einstaka aula-
brandara-uppbrotum, feli í sér
raunverulega von um breyting-
ar til góðs? Ennfremur: Er trú-
legt að Jón Gnarr, sem er sér-
fræðingur í gríni, sé svo mikill
sérfræðingur í borgarmál-
um að óhætt sé að skófla stór-
um hluta borgarfulltrúa burt í
einni svipan svo hann og hans
menn komist að? Hafa núverandi
borgarfulltrúar brugðist svona
herfilega? Var hrunið og afleið-
ingar þess þeim að kenna?
Spyrjum spurninga, til dæmis
þessara: Er líklegt að meðfram-
bjóðendur Jóns Gnarr valdi þeim
erfiðu og flóknu úrlausnarefnum
sem borgarstjórn þarf að kljást
við? Hafa þeir þá reynslu, þekk-
ingu og yfirsýn sem til þarf?
Skoðum þá. Hvern og einn. Er
ekki einhver vinsældaveiðalykt
af sumum þeirra? Búa þeir ekki
yfir einhverri ófullnægðri og
óhollri þrá til skyndiáhrifa? Eða
vilja þeir bara fá að vera með í
showinu?
Spyrjum spurninga, til að
mynda þessarar: Veldur Jón
Gnarr sjálfur verkefnum
borgarstjórnar? Felur fram-
boð og stjórnmálabarátta hans
kannski í sér það lýðskrum sem
okkur ber sem ábyrgum kjós-
endum að sjá við?
Skoðum hann. Vel og vandlega.
Stöndum fast í fæturna. Höfum
jarðsamband. Með óhvikulu
raunsæi. Skoðum hann. Án ósk-
hyggju. Gætum þess að láta ekki
vinsældir hans sem skemmti-
krafts villa okkur sýn.
Virkjum dómgreindina.Við
eigum nóg af henni. Notum
hana.
Spyrjum spurninga. En gefum
Jóni Gnarr það sem Jón Gnarr á.
Hann er góður á sínu sviði: sem
skemmtikraftur hallæristakta
og aulafyndni. En viljum við fá
hann í borgarstjórn? Viljum við
fá hann sem borgarstjóra?
Aulabrandaraleg stjórnmálabarátta
Borgarstjórnarkosningar
Birgir Sigurðsson
rithöfundur
Er líklegt að meðframbjóðendur Jóns
Gnarr valdi þeim erfiðu og flóknu úr-
lausnarefnum sem borgarstjórn þarf
að kljást við? Hafa þeir þá reynslu,
þekkingu og yfirsýn sem til þarf?
100.000.000
+420.000.000
ÞÚ TALDIR RÉTT:
520 MILLJÓNIR
Fyrsti vinningur stefnir
í 100 milljónir og Ofurpotturinn
stefnir í 420 milljónir.
Ekki gleyma að vera með,
fáðu þér miða fyrir klukkan
fjögur í dag á næsta sölustað
eða á lotto.is
ALLTAF Á MIÐVIKUDÖGUM!
MIÐINN GILDIR 26. MAÍ 2010
A. 12 14 17 21 41 48
B. 05 16 23 36 37 38
C. 07 09 13 22 34 38
D. 03 06 19 24 25 31
E. 11 19 21 25 38 42
F. 01 25 35 36 39 46
G. 18 19 20 23 28 46
H. 22 27 29 39 40 42Fí
t
o
n
/
S
Í
A
AT
HU
GI
Ð
AÐ
S
ÖL
U
LÝ
KU
R
NÚ
K
L.
16
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
Allt sem þú þarft…
Opinn
fundur í
Iðnó
Vi
ns
tri
hr
ey
fin
gi
n
- g
ræ
nt
fr
am
bo
ð
vil
l b
ei
ta
sé
r f
yr
ir
ró
ttæ
ku
m
þ
jó
ðf
él
ag
su
m
bó
tu
m
a
lm
en
ni
ng
i t
il
ha
gs
bó
ta
, h
ef
ja
v
er
nd
n
át
tú
ru
o
g
um
hv
er
fis
ti
l v
eg
s á
Ís
la
nd
i o
g
treysta byggð um allt land. Hreyfingin er samstarfsvettvangur og baráttutæki þeirra, sem vilja útrým
a kynjam
isrétti og tryggja jafnrétti, kvenfrelsi og aukinn jöfnuð í sam
félaginu. Vinstrihreyfingin - græ
nt fram
boð ... // sjá m
eira á w
w
w
.vg.is/stefna/
Verið öll
velkomin!
Vinstri græn í Reykjavík boða til opins borgara-
fundar í Iðnó fimmtudaginn 27. maí kl. 20
í tilefni borgarstjórnarkosninga.
Ræðumenn verða
Steingrímur J. Sigfússon og Sóley Tómasdóttir