Fréttablaðið - 26.05.2010, Síða 18
26. maí 2010 2
ÚTIVIST stendur fyrir eins dags
göngu til Englands, bæjar í Lundar-
reykjadal á sunnudag en lagt er
af stað frá Botni í Botnsdal.
„Það er allt að gerast í fellihýsun-
um hjá okkur og til dæmis mynd-
aðist örtröð hjá okkur síðasta laug-
ardag. Það hefur samt verið mikið
að gera allan síðasta mánuð,“ segir
Ásbjörn Ásbjörnsson, sölumaður
hjá Ellingsen. Ef marka má mik-
inn áhuga á fellihýsum er líklegt
að margir kjósi að ferðast innan-
lands í sumar.
Ásbjörn segir snemmsumars-söl-
una á fellihýsum í ár vera svipaða
og á síðasta ári, sem þá hafi komið
starfsmönnum fyrirtækisins mikið
á óvart. „Ein af helstu breytingun-
um er sú að notuðu vagnarnir selj-
ast mun betur en við bjuggumst við.
Þá eru þau helst að seljast á frjáls-
um markaði, þannig að fólk selur
vagnana sína „úti á götu“ eins og
sagt er og kemur svo til okkar til að
uppfæra og kaupa sér nýja vagna.
Hér áður fyrr komu viðskiptavin-
ir mikið til okkar og settu gömlu
vagnana upp í nýja en við finnum
fyrir því að slíkt er á undanhaldi,“
segir Ásbjörn.
Hann segir þó söluna enn ekki
nálgast það sem tíðkaðist fyrir
hrun. Sérstaklega hafi sala á hjól-
hýsum staðið í stað. Stærsta breyt-
ingin sé sú að lítið eða ekkert sé
nú um það að viðskiptavinir greiði
fyrir fellihýsin með bankalánum.
„Það er okkar tilfinning að fólk
sé þegar með upphæðina tilbúna
þegar það kemur til okkar og borg-
ar út í hönd. Enda er það eðlilegt
sé mið tekið af ástandinu,“ segir
Ásbjörn.
Jóhannes Þórarinsson, innkaupa-
stjóri Víkurverka sem bjóða meðal
annars felli- og hjólhýsi til sölu,
tekur í sama streng og segir afar
lítið um að fólk kaupi slíka vagna
á lánum. „Það hefur verið urrandi
gott að gera hjá okkur að undan-
förnu, góð sala og sérstaklega mikil
hreyfing í notuðu vögnunum. Ég
myndi segja að salan sé að færast
nær eðlilegu ástandi eftir hrunið,
en við búumst ekki við að hún verði
eins og rétt fyrir hrun aftur. Salan
fylgir að minnsta kosti okkar áætl-
unum, hvort sem við höfum verið
bjartsýnir eða ekki,“ segir Jóhann-
es. kjartan@frettabladid.is
Fellihýsin greidd út í hönd
Snemmsumars-sala fellihýsa virðist vera svipuð og í fyrra, en þá var hún með besta móti miðað við
ástandið í þjóðfélaginu. Meira er um að notuð fellihýsi séu seld og keypt á frjálsum markaði.
Sala á fellihýsum fer vel af stað þótt enn nálgist hún ekki það sem tíðkaðist fyrir
hrun.
Melódíur minninganna er tónlistarsafn Jóns Kr.
Ólafssonar á heimili hans í Bíldudal. Þar
kennir margra grasa og Jón er einn-
ig afbragðsfróður og skemmtilegur
heim að sækja.
www.vestfirdir.is
Strandgötu 43 | Hafnarfirði
fridaskart.is
S K A R T G R I P A H Ö N N U Ð U R
& G U L L S M I Ð U R
„Fjölin
hennar
ömmu“
Stokkhólmur er sérstaklega skemmtileg borg á sumrin. Miðhluti borgar-
innar er óvenjulegur, á fjórtán eyjum, og náttúran spennandi – skógi vaxn-
ar hæðir, eyjar, klettar og vatnasvæði. Arkitektúr borgarinnar þykir með betri
blöndu af gömlu og nýju á Norðurlöndunum og um leið finna ferðalangar
smjörþefinn af konungdæmi landsins þar sem í einu elsta hverfi borgarinn-
ar, Gamla Stan, má finna konungshöllina.
Borgin sjálf er barnvæn, með mikið af dýragörðum, skemmtigörðum svo
sem Junibacken sem helgaður er Astrid Lindgren og endalausum blóma-
görðum. Þeir sem eru einir á ferð ættu hins vegar að skella sér í alvöru tyrk-
neskt bað – Sturebadet – þar sem engu hefur verið breytt síðustu 120 árin.
Athugið þó að vissara er að bóka tíma áður þar sem baðið er vinsælt. - jma
Konunglegi Stokkhólmur í sumar
AUÐVELT ER AÐ FLJÚGA TIL STOKKHÓLMS OG KANNSKI EKKI ÚR VEGI AÐ FARA Í
STYTTRI FERÐALÖG MEÐ STÓRAR OG BARNMARGAR FJÖLSKYLDUR YFIR SUMAR-
TÍMANN ÞEGAR UNGVIÐIÐ ÞOLIR ILLA LANGAR VEGALENGDIR.
Stokkhólmur þykir ein fallegasta borg norðursins – ekki síst yfir sumartímann.