Fréttablaðið - 26.05.2010, Blaðsíða 42
26 26. maí 2010 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
16 DAGAR Í HM
KR-völlur, áhorf.: 2.363.
KR Keflavík
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 13–8 (4–2)
Varin skot Lars 1 – Ómar 2, Árni 1
Horn 3–9
Aukaspyrnur fengnar 16–14
Rangstöður 6–3
KEFLAVÍK 4–4–2
Ómar Jóhannsson 6
(53., Árni Freyr Ásg. 6)
Guðjón Á. Antoníuss. 6
Haraldur Freyr Guð. 7
Bjarni Hólm Aðalst. 6
Alan Sutej 5
Magnús Þ. Matthías. 4
(71., Brynjar Guðm. -)
Jóhann Birnir Guðm. 5
Hólmar Örn Rúnarss. 5
Magnús Sverrir Þorst. 4
Hörður Sveinsson 4
Guðmundur Steinars. 4
*Maður leiksins
KR 4–4–2
Lars Moldsked 6
Skúli Jón Friðgeirss. 7
Mark Rutgers 6
Baldur Sigurðsson 5
Guðm. Reynir Gunn. 5
Gunnar Örn Jónsson 5
(58., Jordao Diogo 6)
*Bjarni Guðjónsson 7
Viktor Bjarki Arnars. 5
(35., Eggert Rafn 5)
Óskar Örn Hauksson 6
Björgólfur Takefusa 6
Kjartan Henry Finnb. 4
(80.,, Guðjón Baldv. -)
0-0
Valgeir Valgeirsson (7)
Selfossvöllur, áhorf.: 1020
Selfoss Stjarnan
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 14–14 (9–8)
Varin skot Jóhann 6 – Bjarni 5, Magnús 1
Horn 4–4
Aukaspyrnur fengnar 10–18
Rangstöður 0–5
STJARNAN 4–3–3
Bjarni Þórður Halld. 6
Baldvin Sturluson 6
Tryggvi Bjarnason 6
*Daníel Laxdal 7
Jóhann Laxdal 6
Dennis Danry 5
Atli Jóhannsson 6
Þorvaldur Árnason 6
Steinþór Freyr Þorst. 7
Halldór Orri Björnss. 6
Marel Baldvinsson 5
(70., Magnús Karl Pét. 5)
*Maður leiksins
SELFOSS 4–4–2
Jóhann Ólafur Sig. 7
Sigurður Eyberg Guð. 6
Stefán Ragnar Guðl. 7
Agnar Bragi Mag. 6
Andri Freyr Björnss. 7
(74., Ingþór Jóhann -)
Guðm. Þórarinsson 5
Jón Guðbrandsson 5
Ingólfur Þórarinsson 4
(61., Einar Ottó Ant. 5)
Jón Daði Böðvarsson 7
Arilíus Marteinsson 5
Sævar Þór Gíslason 6
1-0 Jón Guðbrandsson (21.)
1-1 Steinþór Freyr Þorsteinsson (45.)
1-2 Þorvaldur Árnason (58.)
2-2 Guðmundur Þórarinsson, víti (70.)
Rautt: Bjarni Þórður Halldórsson,
Stjörnunni á 69. mínútu.
2-2
Erlendur Eiríksson (5)
Grindavíkurv., áhorf.: 680
Grindavík Valur
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 9–11 (5–4)
Varin skot Rúnar Dór 4 – Kjartan 3
Horn 5–7
Aukaspyrnur fengnar 17–16
Rangstöður 1–1
VALUR 4–5–1
Kjartan Sturluson 5
Stefán Eggertsson 6
Reynir Leósson 5
(46., Sigurbjörn Hreið. 6)
Atli Sveinn Þórarinss. 5
Greg Ross 5
Martin Pedersen 5
Baldur Aðalsteinsson 6
(75., Matthías Guðm. -)
Jón Vilhelm Ákason 6
(82., Ian Jeffs -)
Rúnar Már Sigurjóns. 5
Arnar Sveinn Geirss. 6
*Danni König 7
*Maður leiksins
GRINDAV. 4–3–3
Rúnar Dór Daníelss. 5
Loic Mbang Ondo 4
(82., Ray Anthony -)
Auðun Helgason 4
Marko Valdimar Stef. 4
Jósef Kr. Jósefsson 5
(41., Alexander Mag. 6)
Orri Freyr Hjaltalín 4
Jóhann Helgason 4
Matthías Örn Friðriks. 5
Scott Ramsay 6
Grétar Ólafur Hjartar. 5
(75., Óli Baldur Bjarn. -)
Gilles Mbang Ondo 6
0-1 Danni Casero König (57.)
1-1 Gilles Mbang Ondo (69.)
1-2 Jón Vilhelm Ákason (71.)
1-2
Gunnar Jarl Jónsson (6)
Mario Zagallo varð fyrsti maðurinn til þess að vinna
heimsmeistaratitilinn bæði sem leikmaður og þjálfari.
Hann lék með heimsmeistaraliðum Brasilíu 1958 og
1962 og þjálfaði liðið sem vann HM 1970. Franz Beck-
enbauer jafnaði þetta afrek 1990 og gerði
aðeins betur því hann var fyrirliði Vestur-
Þýska liðsins sem varð heimsmeistari 1974.
Diego Maradona (þjálfari Argentínu)
og Dunga (þjálfari Brasilíu) geta báðir
bæst í hópinn á HM í Suður-Afríku.
Keflavík 4 3 1 0 4-1 10
Fram 4 2 2 0 8-4 8
Fylkir 4 2 1 1 9-6 7
Breiðablik 4 2 1 1 6-3 7
Selfoss 4 2 1 1 8-6 7
ÍBV 4 2 1 1 7-5 7
Stjarnan 4 1 2 1 9-7 5
Valur 4 1 2 1 5-6 5
FH 4 1 1 2 5-7 4
KR 4 0 3 1 5-6 3
Haukar 4 0 1 3 2-9 1
Grindavík 4 0 0 4 1-9 0
MARKAHÆSTIR
Ívar Björnsson, Fram 3
Halldór Orri Björnsson, Stjörnunni 3
Kristinn Steindórsson, Breiðablik 3
NÆSTU LEIKIR
ÍBV-Breiðablik Sun 30. maí 16.00
Keflavík-Selfoss Sun 30. maí 19.15
Stjarnan-Haukar Mán 31. maí 19.15
FH - Grindavík Mán 31. maí 19.15
Valur-Fylkir Mán 31. maí 20.00
Pepsi-deild karla: Staðan
Selfoss og Stjarnan gerðu 2-2 jafntefli í dramatískum leik á Selfossi í
gær. Stjörnumenn virtust hafa komið sér í þægilega stöðu þegar þeir
komust í 2-1 forystu snemma í síðari hálfleik og fengu þó nokkur
tækifæri til að bæta við.
En þegar um 20 mínútur voru til leiksloka slapp Sævar Þór
Gíslason einn inn fyrir vörn Stjörnunnar og féll í teignum eftir
viðskipti sín við Bjarna Þórð Halldórsson markvörð Stjörnunnar.
Erlendur Eiríksson dómari dæmdi víti og gaf Bjarna rautt, þrátt
fyrir kröftug mótmæli markvarðarins. „Þetta var snerting,
það var ekki spurning um það,“ sagði Sævar Þór eftir
leikinn. Hann virtist þó hafa verið rangstæður en um
það þorði Sævar ekki að dæma. „Ég sá aldrei boltann
koma og tók bara hlaupið. Aðrir verða að dæma um
það.“ Selfyssingar byrjuðu ágætlega og komust yfir
með glæsilegu marki Jóns Guðbrandssonar. Eftir
það sóttu Stjörnumenn í sig veðrið og uppskáru
jöfnunarmark á lokamínútu fyrri hálfleiksins.
Steinþór Freyr Þorsteinsson var þar að verki. Stjarnan herti tök sín á
leiknum í síðari hálfleik og komst yfir þegar Þorvaldur Árnason nýtti
sér eina af fjölmörgum sendingum gestanna inn í teig Selfyssinga.
„Við fengum algjört dauðafæri í stöðunni 2-1 og við hefðum átt að
klára leikinn á meðan við höfðum þessa yfirburði,“ sagði Bjarni
Jóhannsson, þjálfari Stjörnunnar. „Við vorum ekki sáttir við hvernig
við spiluðum í fyrri hálfleik og mér fannst við koma mun betur
stemmdir til leiks í þeim síðari. Við reyndum að láta boltann ganga
betur og sköpuðum okkur góð augnablik í leiknum. Það var því
sorglegt að hafa ekki náð að bæta þriðja markinu við.“
Guðmundur Benediktsson, þjálfari Selfoss var sáttur við
stigið miðað við allt. „Ég verð að fagna þessu stigi því við
vorum alls ekki að spila vel, sérstaklega í seinni hálfleik.
Menn voru að reyna en mér fannst vanta kraft og þor
í mína menn, líka eftir að Bjarni fór út af með rauða
spjaldið. Því náðum við aldrei því sem við ætluðum
okkur úr leiknum,“ sagði Guðmundur.
PEPSI-DEILD KARLA: DRAMATÍSKUM LEIK SELFOSS OG STJÖRNUNNAR LAUK MEÐ 2-2 JAFNTEFLI
Áttum að ganga frá þeim þegar við fengum tækifærið
FÓTBOLTI „Það er eins og guð sé á
móti okkur,“ sagði Luka Kostic,
þjálfari Grindavíkur, eftir 1-2 tap
Grindvíkinga gegn Valsmönnum
á Grindavíkurvelli í gærkvöldi.
Leikurinn var langt frá því að
vera áferðarfallegur og liðunum
gekk illa að koma boltanum í spil.
Fyrri hálfleikur var tíðindalítill
en Valsmenn voru þó líklegri til að
skora. Þeir fengu mörg tækifæri
en gekk illa að hitta á rammann.
Besta færið fékk Rúnar Már Sig-
urjónsson á 36. mínútu þegar hann
prjónaði sig í gegnum vörn Grind-
víkinga en átti slakt skot framhjá
úr frábæru færi. Staðan var því
markalaus er Gunnar Jarl Jóns-
son, dómari, flautaði til hálfleiks.
Síðari hálfleikur var meiri
skemmtun en sá fyrri og kom-
ust Valsmenn yfir eftir einbeit-
ingarleysi í vörn Grindvíkinga á
58. mínútu. Baldur Aðalsteinsson
fékk boltann á vinstri kantinum
og sendi boltann fyrir þar sem
Danni König var einn á auðum sjó
og skoraði auðveldlega.
Grindvíkingar hresstust við
markið og náðu að jafna á 69.
mínútu þegar Gilles Mbang Ondo
skoraði eftir að hafa sloppið í
gegnum vörn Valsmanna. Grind-
víkingar kórónuðu hins vegar sla-
kann varnarleik þegar Jón Vil-
helm Ákason kom Valmönnum
aftur yfir í næstu sókn með fínum
skalla. Grindvíkingar reyndu hvað
þeir gátu til að jafna en Valsmenn
tryggðu sér öll þrjú stigin og eru
nú komnir með fimm stig. Grind-
víkingar eru hins vegar stigalaus-
ir á botninum.
„Það er frábært ná þremur stig-
um á þessum erfiða útivelli. Með
sigri hífum við okkur upp töfluna
og við það eykst sjálfstraustið í
liðinu. Þessi leikur var gríðarlega
mikilvægur fyrir okkur og ég er
í skýjunum með að ná fyrsta sigr-
inum,“ sagði Gunnlaugur Jónsson,
þjálfari Vals. - jjk
Valsmenn unnu sinn fyrsta sigur undir stjórn Gunnlaugs Jónssonar þegar þeir sóttu þrjú stig til Grindavíkur:
Fyrsta mark Grindavíkur dugði ekki til
FYRSTI SIGURINN Í HÚS Valsmenn tóku öll þrjú stigin með sér heim frá Grindavík í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Markaleysið á KR-vellin-
um í gær var ekki skemmtilegt á
að horfa. Keflvíkingar komu var-
kárir inn í leikinn og héldu stiginu
sem þeir komu til að sækja. Þeir
halda því toppsætinu í deildinni á
meðan KR er enn án sigurs.
Keflvíkingar reyndu að byggja
leik sinn upp á skyndisóknum en
þær virkuðu engan veginn. KR
sótti meira en skapaði lítið sem
ekkert.
Fyrri hálfleikur var leiðinlegur
á að horfa lengst af. Sóknarleik-
ur liðanna var hugmyndasnauður
og óspennandi. Heimamenn ógn-
uðu meira en sköpuðu ekkert. Tvö
ágæt skot utan teigs sem Ómar
varði þægilega var allt og sumt.
Jóhann Birnir átti skot utan
teigs sem fór í slá KR-marksins og
yfir eftir vel útfærða hornspyrnu
Keflvíkinga. Það var mesta hætt-
an við mark Lars Ivars. Annars
voru varnir beggja liða þéttar og
hið leiðigjarna miðjuhnoð einkenn-
andi.
Viktor Bjarki þurfti að fara
meiddur af velli eftir harkalega
tæklingu Bjarna Hólm sem fór
með báða fætur í tæklinguna.
Bjarni fór í boltann en í Viktor
líka. Ekkert var dæmt en KR-ingar
voru æfir og vildu fá rautt spjald á
Bjarna. Sitt sýndist hverjum.
Fyrri hálfleikur byrjaði af krafti
og Óskar Örn skaut í slá eftir
góðan sprett. Það gaf þó engin sér-
stök fyrirheit þar sem hálfleikur-
inn var keimlíkur þeim fyrri.
Keflvíkingar reyndu að finna
glufur á þéttri KR vörninni og
djúpir Keflvíkingar vörðust vel.
Það gerðist nákvæmlega ekkert
annað í seinni hálfleik og leik-
urinn sár vonbrigði. Áhorfendur
bjuggust við meira.
„Þetta eru tvö jöfn lið og leikur-
inn einkenndist af baráttu,” sagði
Skúli Jón Friðgeirsson sem átti
flottan leik fyrir KR. Hann byrj-
aði í hægri bakverðinum en færð-
ist svo í miðvörðinn. „Það var eins
og hvorugt liðið þyrði að taka af
skarið og leggja allt í þetta. Leik-
urinn var því ekki í skemmtilegri
kantinum. Við erum drullusvekkt-
ir, þetta var ekki það sem við lögð-
um upp með. Við höfum verið að fá
mörg mörk á okkur og við lögðum
upp með að halda markinu hreinu,”
sagði Skúli.
„Það hefur verið mikil sveifla í
okkar spilamennsku og við verð-
um að ná fram stöðugleika í þetta.
Mér fannst okkur ekki takast það
nægilega vel í dag.”
Guðjón Árni Antoníusson segir
Keflvíkinga sátta við eitt stig á
KR-velli. „Við vildum sækja þrjú
stig en við erum sáttir við eitt. Mér
fannst við gefa meira í það í lokin
að reyna að ná sigri en það vant-
aði aðeins upp á þetta. Við þurftum
að setja ungan og óreyndan strák
í markið en hann stóð sig frábær-
lega,” sagði Guðjón.
„Meðan við söfnum stigum og
höldum hreinu þá er þetta gott.
KR-ingar voru mættir til að selja
sig dýrt og þetta var baráttuleik-
ur.” – hþh, egm
Tilþrifalítið og hugmyndasnautt
Leikur KR og Keflavíkur voru sár vonbrigði. Leikmenn liðanna voru varkárir og gerðu sig sjaldan líklega til
afreka. KR er enn án sigurs en Keflvíkingar halda toppsætinu í deildinni.
LÍTIÐ UM FÆRI KR-ingurinn Björgólfur Takefusa er hér kominn inn í teig en Haraldur
Guðmundsson og Ómar Jóhannsson vinna vel saman í að stoppa markakóng síðasta
sumars. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN