Fréttablaðið - 10.06.2010, Síða 34
10. JÚNÍ 2010 FIMMTUDAGUR2 ● lífrænn lífsstíll
Garðyrkjubændur í Laugarási,
Háskólafélag Suðurlands,
Hótel Geysir og fleiri aðilar
gangast fyrir námskeiðs- og
samveruhelgi að Hótel Geysi
18.-20. júní næstkomandi. Við
tókum tvo helstu forsprakka
viðburðarins tali, þá Ingólf
Guðnason, garðyrkjubónda á
Engi, og Þórð G. Halldórsson
á Akri.
„Við hugsum okkur þetta sem
samveru og fræðslu um lífrænan
lífsstíl,“ segja þeir félagar. „Við
höfum skynjað að fólk er meira
og meira að endurskoða sína lífs-
hætti, vill heilbrigðari lífsstíl og
meiri meðvitund um umhverfið í
kringum sig og hvernig við förum
með það. Um þessa helgi, 18.-20.
júní, verður í boði á Hótel Geysi
alveg einstök upplifun og fróðleik-
ur um heilsu, hollust og umhverfi
að ógleymdum frábærum mat úr
lífrænu hráefni.
Á dagskránni eru erindi um líf-
rænan lífsstíl og lífræna heimil-
isgarðrækt sem Gunnþór K. Guð-
finnson og Jón Guðmundsson garð-
yrkjufræðingar sjá um. Dominique
P. Jónsson frá Slow Food-samtökun-
um kynnir þá einstöku hugmynda-
fræði, Solla í Gló, áður Grænum
kosti, talar um hráfæði og Krist-
björg E. Kristmundsdóttir fjallar
um grasnytjar fyrir líkama og sál.
„Umhverfið á Hótel Geysi er ein-
staklega kraftmikið og hentar þeim
vel sem vilja hlaða batteríin og for-
vitnast um hollustu og heilbrigði,“
segja þeir Ingólfur og Þórður.
Garðyrkjustöðvarnar Akur og
Engi bjóða enn fremur gesti vel-
komna til sín á lífrænan sveita-
markað í Laugarási í Biskups-
tungum með opnun 20. júní
næstkomandi. Þar verða til sölu
vottaðar lífrænar garðyrkjuafurð-
ir frá þeim og fleiri framleiðend-
um. Markaðurinn verður opinn frá
fimmtudegi til mánudags í viku
hverri frá klukkan 13 til 18.
Lífrænn lífsstíll í sókn
Hollusta og matur úr lífrænu hráefni verður til umfjöllunar á Hótel Geysi 18.-20. júní.
Þau stuðla öll að heilbrigðum lífsstíl. Frá vinstri: Sigrún Reynisdóttir og Ingólfur Guðnason á Engi, því næst Bjarki Hilmarsson,
matreiðslumeistari á Hótel Geysi, og Þórður Halldórsson á Akri. Aftan við þá standa Karólína Gunnarsdóttir á Akri og Ásborg
Arnþórsdóttir ferðamálafulltrúi í uppsveitum Árnessýslu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Er hægt að vera áskrifandi að
grænmeti? Greinilega, því Þórð-
ur og Karólína, garðyrkjubændur
á Akri í Biskupstungum, hafa boðið
upp á þessa þjónustu um nokkurt
skeið.
„Lífrænt á Netinu er valkost-
ur fyrir neytendur sem vilja fá
lífrænar afurðir beint frá fram-
leiðendum. Fólki gefst kostur á að
panta vikulega, eða sjaldnar eftir
eigin óskum, samkvæmt vöru-
lista hverju sinni,“ segir Þórður
sem rekur dreifingarfyrirtækið
Græna hlekkinn, graenihlekkur-
inn.is, ásamt Köllu.
Græni hlekkurinn og Olís eru í
samstarfi um afhendingu pantana.
Um er að ræða Uppgripsverslanir á
Selfossi og á höfuðborgarsvæðinu.
„Pöntunartímabil er frá þriðjudegi
til hádegis á mánudag og pantan-
ir afgreiddar á miðvikudögum og
fimmtudögum þar á eftir.“
Skyldi þetta vera vinsælt? „Klár-
lega, eftirspurnin eykst stöðugt.
Neytandinn kann að meta að fá
úrval lífrænna afurða, ekki bara
það sem Akur framleiðir, heldur
líka lífræna ávexti, mjólkurvörur,
kornvörur og fleira. Landsbyggð-
in fær vörurnar sendar með vöru-
flutningabíl. Við erum greinilega
að uppfylla þörf á markaði,“ segir
Þórður.
Ferskt grænmeti í áskrift
● EIGIÐ PESTÓ Ef þú átt lífrænar
basilplöntur frá Engi þá getur þú búið
til þitt eigið græna pestó. Munurinn á
því og verksmiðjuframleiddu pestói er
gríðarlegur. Til eru margar uppskriftir að
pestói en uppistaðan er basilplantan.
Innihaldið er yfirleitt það sama, lúka eða
tvær af basilblöðum, 100-150 g af furu-
hnetum, nokkrir hvítlauksgeirar, 50-100
g af rifnum parmesanosti, 1-3 dl extra
virgin ólívuolía af hæsta gæðaflokki, salt
og pipar að smekk. Þurrefni og græn-
meti er maukað í matvinnsluvél og olíu
bætt við á hægum hraða. Sumir skipta hluta af basili út á móti steinselju
sem Engi framleiðir einnig.
● VILTU RÆKTA LÍF-
RÆNT? Í garðyrkjuversl-
unum má víða fá lífrænan
áburð til að setja í matjurta-
garðinn. Best er að huga að
áburði frá upphafi, til dæmis
að tæta hrossaskít eða annan
búfjáráburð saman við mold-
ina áður en plantað er út.
Hrossaskítur vill þó bera með
sér illgresisfræ ef hann hefur
staðið úti lengi. Síðan má
nota sveppamold og kjúkl-
ingaskít (gerilsneyddan) til
að uppfylla viðbótaráburðar-
þörf plantnanna yfir sumarið.
Starfsmenn garðyrkjuversl-
ana geta veitt frekari svör.
Áhugasömum er einnig bent
á að margir bjóða upp á
námskeið í matjurtaræktun,
þar á meðal lífræna ræktun.
● VESTFIRSKUR SMYRSLAKRAFTUR Smyrslin frá Villimey
eru gerð úr völdum villtum jurtum sem vaxa í næringarríkum jarðvegi,
fá hreint loft og tært vatn, þannig að bestu eiginleikar og einstök virkni
jurtanna nýtist til fullnustu. Uppskriftirnar eru þróaðar af Aðalbjörgu Þor-
steinsdóttur. Smyrslin eru 100 prósent náttúruleg, unnin úr íslenskum
jurtum sem eru handtíndar á Vestfjörðum þegar
virkni þeirra er hvað mest. Smyrslin eru án rot-
varna-, ilm- og litarefna og lífrænt vottuð frá
Vottunarstofunni Túni. Smyrslin eru seld í mörg-
um apótekum, heilsubúðum t.d. hjá Græna
hlekknum að Nethyl 2c og á Net-
inu. Sjá nánar sölustaði og upp-
lýsingar á vefnum villimey.is.
● LÍFRÆN LÉTTVÍN Lífrænum valkostum í léttvínum
fjölgar. Þau eru framleidd úr lífrænum þrúgum þar sem að-
eins eru notaðar náttúrulegar varnir og áburður eins og í ann-
arri lífrænni ræktun. ÁTVR býður upp á 34 tegundir af lífrænum
léttvínum frá tæplega 1.600 krónum upp í rúmlega 10.000 krónur.
Vínin eru gerð úr ýmsum þrúgum. Chardonnay er algengt í hvít-
víni og Cabernet Sauvignon í rauðvíni. Fleiri gerðir eru í boði.
Sjá vinbudin.is.
Sífellt fleiri panta sér lífrænar afurðir á
Netinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Útgefandi: Háskólafélag Suðurlands ehf. l Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sveinn Aðalsteinsson l Heimilisfang: Tryggvagötu 36,
800 Selfossl Vefsíða: www.www.hfsu.is.is l Sími: 525 5461, 698 9644 l Tölvupóstfang: hfsu@hfsu.is, sveinn@primordia.is
Lífrænn barnamatur
sem kitlar bragðlaukana
Engin erfðabreytt innihaldsefni
Ræktað án notkunar meindýraeiturs