Fréttablaðið - 19.06.2010, Page 17

Fréttablaðið - 19.06.2010, Page 17
Uppgötvaðu leyndardóma Íslands! Nauðsynlegt uppflettirit fyrir alla áhugamenn um íslenska náttúru og ferðalög Heitar laugar á Íslandi Í bókinni er fjallað um hið sérstæða fyrirbæri í náttúru Íslands, heitar laugar. Hér greinir bæði frá ósnortnum náttúrulaugum og manngerðum laugum sem skemmtilegt er að skoða og njóta. Þær eru á misfjölförnum slóðum, bæði í byggð og í óbyggðum. Bókin vísar á annað hundrað lauga viðsvegar um landið og er skemmtileg viðbót við ferðalagið. Oft getur reynst erfitt að finna einstakar laugar, sérstaklega á hálendinu og því fylgja GPS-punktar laugunum sem fjallað er um. Ljósmyndir eru af þeim öllum og fjörlegar leiðar- og náttúrulýsingar gera bókina að ómissandi förunaut á ferðalögum. Loks eru vönduð kort í bókinni til að auðvelda notkun hennar. Fjallaskálar á Íslandi Í þessari bók er í máli og myndum lýst hartnær 400 skálum, gömlum og nýjum, sem reistir hafa verið víðs vegar á Íslandi. Bókin hefur að geyma ómældan fróðleik um skálana, sögu þeirra og búnað, auk þess sem getið er eigenda og umsjónarmanna. Ljósmynd er af öllum skálunum og staðsetning þeirra mörkuð með GPS-punkti og á landakorti. Greinargóðar leiðarlýsingar eru að skálunum og víða er sagt frá náttúruperlum í nágrenni þeirra. Í sér kafla aftast í bókinni er fjallað um ýmsa gamla og sögulega fjallaskála sem sumir hverjir þjóna enn ferðamönnum í óbyggðunum. Hér er á ferðinni einkar gagnleg handbók fyrir alla þá sem ferðast um fjöll og firnindi, göngugarpa, hestamenn og ökuþóra. 4.290 kr. 4.990 kr. 3.990 kr. 4.480 kr. Ti lb oð g ild a til o g m eð 3 0 .0 6 .1 0

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.