Fréttablaðið - 19.06.2010, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 19. júní 2010 31
ótrúlega róttæk niðurrifsáætlun og
við erum algjörlega á öðrum kúrsi
en allar okkar nágrannaþjóðir,“
segir Snorri.
Oft er rætt um að það sé aftur-
haldssemi að verja „gamla hjalla“
sem séu að hruni komnir, en í
bók Snorra er bent á að til dæmis
Grjótaþorpið hafi verið í verra
ásigkomulagi en mörg tómu húsin
í miðbænum eru núna.
„En Grjótaþorpið var friðað
1980 og þannig skapaðist traust
meðal borgarbúa. Þeir sáu að það
var vit í því að kaupa sér hús þar
til að gera upp. Í sorgarsögunni af
Skuggahverfinu var slíkt traust
svikið síðar, þegar borgin ákvað
að byggja þar stúdentagarða. Þar
var viðreisnin hafin þegar borgin
byrjaði að rífa niður. Fjárfesting
íbúanna beið hnekki og væntingar
þeirra urðu undir einhverri verk-
takaþjónkun.“
Nýr meirihluti
Það má alltaf bæta við byggingar-
magni ef menn eru nógu fylgnir
sér, stóð í einni fasteigna-auglýs-
ingunni í góðærinu. Snorri segir
að niðurrifið hafi farið af stað sem
aldrei fyrr eftir ákvörðun R-list-
ans um að leyfa sameiningu lóða til
að laða að fjárfesta. Því sé spenn-
andi að sjá hvað verði úr samstarfi
gamla R-listaflokksins Samfylk-
ingar og Besta flokksins. Úr þeim
síðarnefnda kemur nýr formaður
skipulagsráðs, Páll Hjaltason. Páll
teiknaði nýbyggingu Listaháskól-
ans við Laugaveg, sem Torfusam-
tökin börðust mikið á móti.
Snorri segir að það verði for-
vitnilegt að sjá hverra hagsmuna
Páll ætli að gæta, sem formaður
ráðsins. Hann óski honum alls hins
besta. Saga húsverndar sé öðrum
þræði saga fólks sem hafi séð að
sér og skipt um skoðun.
Fræðsla og áreiðanlegar upplýsingar eru öllu öðru mikilvægari til að þú getir tekið réttar og upplýstar ákvarðanir varðandi fjármál þín. Í verðbréfa- og lífeyrisþjónustu Arion banka starfar öflugur og reynslumikill hópur sérfræðinga sem veitir viðskiptavinum faglega þjónustu varðandi sparnað í sjóðum, lífeyrissparnað og verðbréfaviðskipti.
Við ætlum að gera betur
M
YN
D
IR
N
A
R
ER
U
Ú
R
B
Ó
K
IN
N
I 101 TÆ
K
IFÆ
R
I