Fréttablaðið - 19.06.2010, Síða 51
LAUGARDAGUR 19. júní 2010 9
öflugir liðsmenn óskast
Mjöll-Frigg hf. er íslenskt framleiðslufyrirtæki sem
hefur þróað og framleitt hreinlætisvörur fyrir
Íslendinga í áratugi. Við bjóðum upp á fjölbreytt
og skemmtilegt starfsumhverfi hjá vaxandi fyrirtæki.
sölumaður á stórnotendamarkaði
Hæfniskröfur:
• Þekking á sviði eða innsýn í matvælaframleiðslu
• Góð tölvukunnátta
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
• Hæfni í mannlegum samskiptum
lagerumsjón
Starfið felst aðallega í:
• Ábyrgð lagers ásamt því að taka á móti
og afgreiða pantanir
• Samskiptum við viðskiptavini
• Símsvörun
Hæfniskröfur:
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
• Hæfni í mannlegum samskiptum
Áhugasamir sendi inn atvinnuumsókn ásamt
ferilskrá á siggi@mjollfrigg.is eða í pósti merkt
umsókn á skrifstofu okkar. Umsóknarfrestur er
til og með 28. júní nk.MÖRK
HJÚKRUNARHEIMILI
Læknir óskast til starfa
Í byrjun ágúst verður nýtt 110 rýma hjúkrunar-
heimili opnað að Suðurlandsbraut 66,
Mörk-hjúkrunarheimili.
Óskað er eftir lækni að heimilinu sem verður rekið
með Eden hugmyndafræðina að leiðarljósi. Hún
miðar að því að heimilismaður haldi sjálfstæði sínu
og taki daglegar ákvarðanir sem varða daglegt líf
hans en búi jafnframt við það öryggi sem fylgir því
að vera á hjúkrunarheimili. Frjálslegt og heimilis-
legt andrúmsloft verður í fyrirrúmi.
Upplýsingar um starfi ð veitir Helga Hansdóttir
öldrunarlæknir í síma 824 5510 eða með
tölvupósti á helgah@landspitali.is
Starf bæjarstjóra
Grundarfjarðarbær auglýsir starf bæjarstjóra laust til umsóknar.
Bæjarstjóri er framkvæmdastjóri sveitarfélagsins og yfi rmaður
starfsmanna þess. Bæjarstjóri annast daglegan rekstur og sér
um framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar. Bæjarstjóri gætir
hagsmuna bæjarins út á við og annast samskipti við stofnanir,
fyrirtæki og samtök. Bæjarstjóri starfar samkvæmt ákvæðum
Sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 og annarra laga sem varða
starfsemi sveitarfélaga.
• Bæjarstjórinn er í miklu daglegu sambandi við íbúa
sveitarfélagsins, starfsmenn og aðra samstarfsaðila og
þarf að búa yfi r leiðtogahæfi leikum og hæfni til mannlegra
samskipta.
• Bæjarstjórinn þarf að búa yfi r góðri almennri reynslu og
þekkingu á rekstri.
• Þekking og reynsla af sveitarstjórnarmálum er æskileg.
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi er æskileg en önnur
menntun og reynsla er einnig metin.
Grundarfjörður er kraftmikið og framsækið samfélag með 910
íbúa. Á staðnum eru, leik-, grunn-, tónlistar- og fjölbrautaskóli
og góð grunnþjónusta. Grundarfjörður býr að sterkum sjávar-
útvegi og vaxandi ferðaþjónustu og Grundarfjörður og Snæfell-
snesið allt skartar einstakri náttúru og fjölmörgum sóknarfærum.
Nánari upplýsingar um starfi ð veitir Sigurborg Kr. Hannesdóttir,
forseti bæjarstjórnar í síma 438-1700. Umsóknir óskast sendar
til skrifstofu Grundarfjarðarbæjar, Grundargötu 30, 350
Grundarfi rði, merktar „Bæjarstjóri“. Umsóknarfrestur er til og
með 29. júní 2010.
Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar
Síðumúli 23 | 108 Reykjavík | 580 7000 | securitas.is
Vilt þú vinna fjölbreytt og skemmtilegt starf í
snyrtilegu umhverfi? Erum að leita að
starfsmanni til að starfa á lager Securitas.
Umsækjendur þurfa að vera heiðarlegir, ábyrgir
og með hreint sakavottorð. Lágmarksaldur 20 ár.
Starfið hentar jafnt körlum sem konum.
Hæfniskröfur
Við leitum að einstaklingi sem er
heiðarlegur og með ríka þjónustulund
Viðkomandi þarf að hafa almenna
tölvukunnáttu og vera skipulagður
Hreint sakavottorð og
flekklaus ferill eru skilyrði
LAGERSTARFSMAÐUR
Nánari upplýsingar veitir Hlynur Loki Laufeyjarson
í síma 580 7000. Umsækjendur fylli út umsókn á
heimasíðu fyrirtækisins, www.securitas.is.
Umsóknarfrestur er til 2. júlí 2010.
Í boði eru samkeppnishæf laun og krefjandi starf
hjá traustu og framsæknu fyrirtæki með
samhentan hóp starfsmanna. Lögð er áhersla á
góð starfsskilyrði og möguleika starfsmanna til að
vaxa og dafna með fyrirtækinu.
SECURITAS
ÓSKAR EFTIR
LAGERSTARFSMANNI
Auglýsingasími
Allt sem þú þarft…
Flugfjarskipti ehf hafa ákveðið að fjölga í hópi flug-
fjarskiptamanna og bjóða upp á nám í flugfjarskipt-
um. Námið hefst þann 1. september n.k. og áætluð
námslok eru í mars 2011. Þeim umsækjendum sem
standast próf og aðrar tilskyldar hæfniskröfur verður
að námi loknu boðið starf flugfjarskiptamanns hjá
Flugfjarskiptum.
Námið er tvíþætt. Fyrri hlutinn fer fram í ATS skóla
Isavia ohf, en seinni hlutinn er starfsþjálfun hjá Flug-
fjarskiptum. Nemendur eru á launum á náms tímanum.
Hæfniskröfur:
• Umsækjendur skulu hafa lokið stúdentsprófi eða
sambærilegri menntun, hafa góða ensku- og vél-
ritunarkunnáttu, tala skýrt mál auk þess að full-
nægja tilskyldum heilbrigðiskröfum.
• Við leitum að starfsmönnum með góða samskipta-
hæfileika og lipra og þægilega framkomu.
Viðkomandi þarf að sýna frumkvæði í starfi og geta
unnið undir álagi.
Í boði er spennandi starf í öruggu og góðu starfsum-
hverfi.
Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Flugfjar-
skipta: www.gannet.is. Einnig svarar Erla S. Jensdóttir,
rekstrar- og mannauðsstjóri, fyrirspurnum í síma
563 6554 eða á erla@gannet.is .
Skriflegar umsóknir með ítarlegum upplýsingum um
fyrri störf og reynslu, ásamt mynd sendist Flugfjar-
skiptum ehf, Sóleyjarima 6, 112 Reykjavík eða með
tölvupósti á gannet@gannet.is.
Umsóknarfrestur er til 5. júlí næstkomandi.
Sakarvottorð fylgi umsókn.
Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð á heimasíðu
Flugfjarskipta: www.gannet.is.
Öllum umsóknum verður svarað.
Flugfjarskipti ehf er að fullu í eigu Isavia ohf. Fyrirtækið
sinnir tal- og gagnaviðskiptum við alþjóðaflug í íslenska
flugstjórnarsvæðinu. Starfsmenn fyrirtækisins eru um 50
og starfssemin er á Íslandi, í Færeyjum og á Grænlandi.
Flugfjarskipti ehf leggja áherslu á jafnan rétt karla og
kvenna til starfa.
Spennandi
starf í góðu
starfsumhverfi