Fréttablaðið - 19.06.2010, Síða 60

Fréttablaðið - 19.06.2010, Síða 60
6 matur SVÍNASTEIK Steikið kjötið í ofnskúffu við hægan hita þar til kjötmælir segir 70. Takið hana þá úr ofn- inum um stund. PURAN 1 egg 4 msk. Dijonsinnep 2 msk. brauðrasp 1 msk. sykur Þeytið eggið og sinnepið saman og berið á kjötið. Strá- ið brauðraspi og sykri yfir. Setjið kjötið í 200° heitan ofn í 30 mínútur uns það er orðið fallega brúnt og hart að utan. Berið ferskt salat og bakað- ar kartöflur fram með. Einnig ofnbakað grænmeti þar sem blandað er til dæmis saman hvítkáli, blómkáli, gulrótum, sætri kartöflu og rófum. SNITSEL Í SPARI FÖTUNUM Skerið ferskt svínakjöt í bita og stráið salti og pipar yfir. ORLY-DEIG 250 g hveiti 1 egg 1 dl volgt vatn ½ dl matarolía 1 tsk. sykur 1 tsk. salt 2 dl Sprite 2 eggjahvítur Hrærið saman hveiti, eggi, vatni, matarolíu, sykri og salti. Bætið Sprite út í og hrærið varlega, látið deigið standa í að minnsta kosti klukkustund. Stífþeytið þá eggjahvíturnar og bætið varlega saman við. Dýfið síðan bitunum í deigið og djúpsteikið þá í olíu. Með snitselinu eru borin fram hrísgrjón og súrsæt sósa. NÁTTÚRULEGT FYRIR LIÐINA NUTRILENK NÝTT NÁTTÚRLEGT BYGGINGAREFNI FYRIR BRJÓSKVEFINN Með hækkandi sól og komandi sumri er upplagt að stunda meiri hreyfingu. Mörg okkar þjást af einhverskonar liðverkjum sem vilja oft draga úr okkur getuna til að geta hreyft okkur sem skildi. Nutrilenk er náttúrulegt byggingarefni fyrir brjóskvefinn og er mjög góður valkostur fyrir þá sem þjást af minnkuðu liðbrjóski. Nutrilenk hefur hjálpað þúsundum Íslendinga að endurheimta betri liðheilsu í gegnum árin. NutriLenk er fáanlegt í flestum apótekum, heilsubúðum, Fræinu Fjarðarkaupum, stærri Hagkaupsverslunum, Þín verslun Seljabraut og Vöruvali Vestmanneyjum Láttu ekki liðverki aftra þér frá hreyfingu Unaðslegur ilmur berst að vitum þegar stigið er inn fyrir þröskuldinn hjá Guðnýju Tómas- dóttur og manni hennar, Jóni Þorkeli Jóhannssyni, á Ormsstöð- um í Grímsnesi. Börnin þeirra fjögur, á aldrinum þriggja til tíu ára, eru úti á palli í hellidembu og finnst það mikið sport. Guðný er með steik í ofninum, enda á hún von á hópi gamalla skóla- systkina í mat. Hún ætlar að bjóða upp á snitsel og sykursaltað svínakjöt sem minnir á sænska jólaskinku og hún hefur eldað við vægan hita. Ormsstaðir standa á bökkum Hvít- ár. Þar hafa Tómas Brandsson og kona hans, Karen Jónsdóttir, stundað svína- búskap frá 1980 og upp úr aldamótum komu Guðný og Jón inn í reksturinn. Guðný og foreldrar hennar eru skrif- uð fyrir búinu og voru með fyrstu svínabændum á landinu til að selja beint frá býli á Netinu, í október 2008. Vikulega hendast þau til Reykjavíkur til að afgreiða og afhenda pantanir við Breiðholtskirkju. Sjá www.ormsstadir. is. - gun Guðný er að undirbúa veislumáltíð fyrir skólasystkini úr Hlíðaskólanum sem hún hefur ekki séð í tuttugu ár. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SYKURSÖLTUÐ SVÍNASTEIK OG SNITSEL Beint frá býli KRYDD Á LAMBIÐ Flestar krydd- jurtir eiga vel við lambakjöt samkvæmt heimasíðunni www.lambakjot.is. Mis- jafnt er eftir heimshlutum og réttum hvaða kryddjurtir eru notaðar hverju sinni. Sumar kryddjurtir passa best í karabíska rétti, aðrar í indverska karrí- rétti og enn aðrar á norður-evrópska villikryddaða lambasteik. Meðal krydda á lambið geta verið chili, kanell, kúmen og sesamfræ. FRÆÐST UM LANDBÚNAÐ Almenningi gefst tækifæri til að skoða bóndabæi og kynna sér þau störf sem þar eru unnin. Þar er einnig hægt að kaupa vörur frá bæjunum. Á heima- síðunni bondi.is er hægt að finna þá bæi sem hægt er að heimsækja. GRÆNMETI Í ÁSKRIFT Hægt er að panta líf- rænar afurðir beint frá framleiðendum á heima- síðu Græna hlekkjarins www.graenihlekkurinn.is. Hægt er að panta vörurnar vikulega eða sjaldn- ar en pöntunartímabilið er frá þriðjudegi til hádegis á mánudag í næstu viku og pantan- irnar eru afgreiddar á miðvikudegi og fimmtu- degi þar á eftir. ÍSLENSKT TE á bænum Vallanesi á Fljóts- dalshéraði er meðal annars ræktað banka- bygg. Vinsælt er að nota bankabyggið í kjötsúpur en einnig er hægt að búa til úr því byggte. 1 dl bankabygg, 1 msk. sítr- ónubörkur, 1 kanelstöng. Aðferð: Þetta er soðið saman í 1 l af vatni í minnst 15 mínútur. AFMÆLISJÓGÚRT Því var fagnað á dögun- um að hin lífræna, íslenska jógúrt Biobú hefur verið sjö ár á markaði. Í upphafi var um að ræða þrjár bragðtegundir af jógúrtinni, hreina, jarðarberja og með múslíi. Í dag eru tegundirnar fleiri. Samkvæmt upplýs- ingum frá Biobú er Biobú eina lífræna mjólkurbúið á Íslandi. Þrír mjólkurframleiðendur leggja inn mjólk hjá Biobú en nóg framboð er af lífrænni mjólk um þessar mundir. MARKAÐSSTEMNING Bænda- markaðir eru að verða algengir á Íslandi yfir sum- artímann. Þar er oft hægt að nálgast vörur beint frá framleiðendum. Um auðugan garð getur verið að gresja meðal annars er oft hægt að finna heimatilbúnar neysluvörur eða handverk á þess- um mörkuðum. margt smátt Svínasteik Á SÆNSKA VÍSU Þeir sem sjá kassa borna milli bíla við Breiðholtskirkju gætu haldið að þar færi eitthvað ann- að fram en að heiðarlegir svínabændur úr Grímsnesinu væru að koma kjöti til kaupenda. A
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.