Fréttablaðið - 19.06.2010, Page 68

Fréttablaðið - 19.06.2010, Page 68
40 19. júní 2010 LAUGARDAGUR Þrautþjálfaðir fim MYNDBROT ÚR DEGI |Fimmtudaginn 17. júní Myndir teknar á Sony Fimleikatrúðarnir Fröken Áhald og Fröken Prufa, sem stundum ganga undir nöfn- unum Sóley Anna Benónýs- dóttir og Telma Jóhannes- dóttir, hafa leikið listir sínar saman opinberlega í nokkur ár, þótt þær séu ekki eldri en þrettán og tólf ára. Þær létu sig ekki vanta á á sautj- ánda júní skemmtunina í miðbæ Reykjavíkur og sýndu akróbatlistir sínar við mikinn fögnuð áhorfenda, sem tóku andköf þegar Fröken Áhald þeytti Fröken Prufu um loftin blá. 4 Fimleikatrúðarnir koma með enn eitt snildar-atriðið, áhorfendum til mikillar gleði! 5 Fimleikatrúðurinn Fröken Áhald fær sér kvöldmat með föður sínum og maturinn renn-ur ljúflega niður eftir eril dagsins. ■ Á uppleið Hjólreiðar „Það er ekkert fallegra en kona á hjóli,“ sagði maðurinn, og það er margt til í því. Karlar eru líka sætir á hjólum, og börn að sjálfsögðu. Rigning Hún hefur aldrei verið eins góð og núna þegar maður finnur hvernig hún hreinsar öskumengað loftið. Gamla höfnin Það iðar allt af lífi á gamla hafnarsvæðinu, uppbyggingin í gömlu verbúðunum að fara á fullt og innan skamms verður þetta með skemmtilegri svæðum borgarinnar. ■ Á niðurleið Lánastofnanir Það er ekki bjart fram undan hjá lána- stofnunum, sem héldu krísu- fundi á meðan lántakendur fögnuðu dómi Hæstaréttar um ólögmæti gjaldeyrislána í vikunni. Mávarnir á Tjörninni Einhvers staðar verða vondir að vera. En er ekki fulllangt gengið að hrekja end- urnar í burtu og borða allt brauðið sjálfir? Mismunun Alþingi fékk plús í kladdann þegar það gerði loksins hjónabönd samkyn- hneigðra jafnhá hjóna- böndum karla og kvenna. MÆLISTIKAN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.