Fréttablaðið - 19.06.2010, Síða 72

Fréttablaðið - 19.06.2010, Síða 72
44 19. júní 2010 LAUGARDAGUR BAKÞANKAR Atla Fannars Bjarkasonar ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Pondus Eftir Frode Overli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott George Costanza, litli sköllótti sérvitr-ingurinn í Seinfeld-þáttunum, fór eftir reglunum vegna þess að hann vildi ekki vera áberandi. Hann sagði einu sinni að hann myndi ganga í flaueli frá toppi til táar, ef samfélagið samþykkti það. Síðasti Sein- feld-þátturinn fór í loftið fyrir tólf árum og mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá. Þeir sem þora eru tískulöggur nútímans og flauelsblæti George Costanza yrði tæpast það félagslega sjálfsmorð sem það var vafa- laust í New York á tíunda áratugnum. ANNAÐ dæmi um skemmdirnar sem dropinn hefur unnið á steininum er að KFC í Bandaríkjunum hóf nýlega að bjóða upp á svolítið sérstaka samloku. Í staðinn fyrir brauð eru tvær djúp- steiktar sneiðar af kjúklingi og á milli er ostur, majónes og tvær sneiðar af beik- oni. Þessi sérkennilega loka bragðast örugglega ógeðslega vel þrátt fyrir að vera viðurstyggilegasta árás á bandarísku þjóðina síðan 11. sept- ember. En það er ástæða fyrir því að þessi samloka varð til árið 2010 en ekki 1910. Fyrir hundrað árum var samfé- lagið ekki búið að tileinka sér don’t give a fuck-við- horfið sem verður full- komnara með hverjum deginum sem líður. Það er ástæðan fyrir því að þessi ógeðslega kjúkl- ingaloka varð til í dag en ekki þá. Ég meina, einhvers konar álegg hefur verið sett milli einhvers konar brauðsneiða frá örófi alda. Hillel frá Babýlon var til að mynda mikill samlokuunnandi og hann fæddist á undan Jesú. FLEIRI dæmi: Einu sinni þótti skammar- legt að sitja nakinn fyrir á myndum. Í dag verða nöfn íbúa Hollywood verðmætari ef þeir senda frá sér kynlífsmyndbönd. Nær- tækara dæmi: Einu sinni var ströng regla á mínu heimili að gosdrykkir voru aðeins keyptir á föstudögum. Í dag bý ég einn og á kók í ísskápnum sem var keypt í miðri viku. Þröskuldurinn færist innar á hverjum degi og ég velti fyrir mér hvenær samfé- lags- og lagaleg höft sem ríkja í dag verða aðhlátursefni barna okkar eða barnabarna. Hvar stoppar þröskuldurinn? Ef hann stoppar á annað borð; munu afkomendur okkar borða fólk? ÉG þekki ekki neinn sem hefur borðað mannakjöt. Ég hef ekki heldur kynnt mér mannát að neinu ráði og ekki lesið neitt um reynslu annarra af því að borða fólk. Án þess að ég viti nokkuð um það, held ég að mannakjöt sé svolítið eins og svínakjöt; bleikt, salt og gott á grillið. Þessar vanga- veltur eru samt ótímabærar þar sem það er bannað að borða mannakjöt. Enn þá. Mannakjöt á grillið Hvað meinarðu? Þú ert ekki með neinn hitapoka! Stundum fer það sem ég segi inn um annað eyrað á þér og út um hitt. Ég sver það! Hmm! Garnagaul í Camaro! Alveg rétt! Mhmm! Kaffi? Já takk! En ekki of sterkt! ...Með lítlli mjólk... ...Og bara hálfri skeið af sykri. Velkominn í nýjasta þáttinn af „Allt er gott í hófi!“ Ég er stjórnandi þáttarins, Hemmi Gunn! SLURP PABBI! Þú þarft alltaf að færa þröskuldinn aðeins innar, Solla! Hvað gerði ég? www.frettabladid.is | 512 5000 *Kjarnadreifingarsvæði Fréttablaðsins er höfuðborgarsvæðið, Akureyri, Stokkseyri, Eyrarbakki, Hveragerði, Selfoss, Borgarnes, Akranes, Reykjanesbær, Þorlákshöfn, Keilir, Garður, Sandgerði, Grindavík og Vogar. GÓÐAR FRÉTTIR FYRIR ALLA Enn betra aðgengi að Fréttablaðinu Breytingar voru gerðar á frídreifingu og lausasölu Fréttablaðsins 1. júní. Blaðinu er áfram dreift ókeypis í lúgur og Fréttablaðskassa kjarnadreifingarsvæði* okkar. Nýbreytnin felst í að frídreifingu í verslunum og á bensínstöðvum á kjarnadreifingarsvæði verður hætt, en blaðið í staðinn selt í lausasölu um land allt samhliða fyrrgreindri frídreifingu heim eða í hverfi. Lausasölustöðum verður fjölgað til muna auk þess sem fjöldi Fréttablaðskassa í íbúðahverfum verður nærri þrefaldaður, úr 60 í um 170. Nánari upplýsingar um dreifingu Fréttablaðsins má nálgast á visir.is/dreifing. Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á visir.is eða fengið sendan daglegan tölvupóst með blaði dagsins. Nánari upplýsingar á: visir.is/dreifing FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU N1, Hvolsvelli Söluskálinn Björk, Hvolsvelli Olís, Hellu Söluskálinn Landvegamótum, Hellu Árborg, Árnesi Bjarnabúð, Reykholti, Bláskógabyggð Ferðaþjónustan Úthlíð Glóðarsel, Laugarvatni Þrastalundur, Grímsnesi Bónus, Hveragerði N1, Hveragerði Bónus, Selfossi Minni Borg, Selfossi N1 Fossnesti, Selfossi N1 verslun, Selfossi Olís, Selfossi Ferðaþjónustan Úthlíð, Selfossi N1, Vestmannaeyjum Olís, Vestmannaeyjum Skýlið, Vestmannaeyjum Vöruval, Vestmannaeyjum Suðurland Fjöldi lausasölustaða á Suðurlandi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.