Fréttablaðið - 17.07.2010, Page 16

Fréttablaðið - 17.07.2010, Page 16
16 17. júlí 2010 LAUGARDAGUR Í haustvindinum/ blakta drif-hvít sængurver/ grannkonu minnar/ rétt eins og óskrif-uð blöð/ sem biðja mig um ný ljóð.“ Svo hljóðar ljóðið Síðdegi í september úr nýrri ljóðabók Vig- dísar Dagbjartsdóttur ljóðskálds, sem kemur út á morgun á áttatíu ára afmæli Vilborgar. Bókin er helguð minningu Þorgeirs Þor- geirsonar, eiginmanns Vilborgar, sem lést fyrir sjö árum. „Þetta eru alls konar ljóð, sem ég hef skrif- að á þeim tíma síðan hann kvaddi. Ég yrki ekki skipulega, heldur sem ljóðin þegar þau koma til mín. Síð- degi í september er til dæmis skrifað um snúrurnar hérna á móti,“ segir hún og bendir yfir í næsta hús við Bókhlöðustíginn. Vill þýða fyrir yngstu börnin Vilborg segist vera með hálfgerða áráttu gagnvart textaskrifum, hún þurfi að vera sískrifandi og lesandi. „Ég var starfandi kenn- ari í 46 ár, barnakennari í Reykja- vík, þannig að ég var alltaf í mik- illi vinnu. Svo fékkst ég bæði við að skrifa og sjá um barnasíðu í Þjóðviljanum í meira en áratug. Ég þýddi líka ákaflega mikið. Ég hef gaman af því, sérstaklega fyrir yngstu börnin; ég hef áhuga á barnamáli. Stundum þegar ég fer til tann- læknis eru þar bækur fyrir yngstu börnin, svona bendibækur. Ég fletti þeim og furða mig oft á hvað það er lítið vandað til þeirra, tungumálsins. Það skiptir svo miklu máli. Þannig að hjá tann- lækninum dunda ég mér við að finna betri orð í bækurnar. Þetta er hálfgerð árátta. En mig langar mikið til að þýða meira af bókum fyrir yngstu börnin, það biður mig bara enginn um það.“ Menningarumfjöllun í svelti Vilborg les líka mikið og hefur nægan tíma til þess. „Það er ekk- ert að mér fyrir utan að ég er dálít- ið fótafúin. Ég á mikið af bókum og þarf sjaldan að fara á bóka- safn. Ég hef gaman af því að rifja upp kynnin við bækur sem ég las fyrir löngu. Svo er ég líka farin að leita meira í fornsögurnar. Ég reyni að fylgjast með yngri höf- undum, sérstaklega ljóðabókum. Ég sakna hins vegar þeirra tíma þegar tímaritaútgáfan stóð í blóma og það komu út mörg rit um bækur og menningu. Ég er lítið fyrir netið og kýs frekar bækur og blöð.“ Menningarumfjöllun er hins vegar ábótavant að hennar mati. „Hún er eiginlega bara í svelti, sérstaklega gagnrýnin. Áður var góð og umfangsmikil bókmennta- gagnrýni í dagblöðunum og tíma- ritunum. En komi einhver gagn- rýni nú til dags hverfur hún innan um auglýsingar. Það er ofboðslegt flæði af yfirborðslegum hlutum, bæði í bókmenntum og sjónvarpi. Auðvitað hefur Sjónvarpið ekki mikla peninga, en þessar lélegu glæpamyndir kosta varla minna en menningarlegri myndir. Ég er svo fyrir löngu hætt að líta í áttina að þessum glæpasög- um. Ég fór í Háskólabíó og horfði á Karlar sem hata konur og ég las bókina. Ég gerði þetta af skyldu- rækni, til að setja mig inn í þetta. Og þvílíkt rusl! Þeir sem horfa mest á sjónvarp eru börn og gam- almenni en sjónvarpsefni gengur í sífellt vaxandi mæli út á að meiða og misþyrma fólki. Eins og maður hafi gaman af því. Og þetta verð- ur alltaf ofboðslegra. Ég skil þetta ekki.“ Fráleitt að kæra nímenningana Vilborg er pólitískt þenkjandi og hefur verið frá því að hún var unglingur á Norðfirði þegar sósí- alistar komust til valda. Pólitíkin hefur ekki koðnað með árunum. Þrátt fyrir gigt lét hún sig hafa það í búsáhaldabyltingunni að arka á Austurvöll og láta í sér heyra. „Ég fór gjarnan klukkan tvö og var til klukkan fimm. Ég var svo slæm í fætinum að ég þurfti að styðja mig við hækju en notaði hana til að slá í staur og vera með læti. Ég gerði nú ekki annað af mér. En mér fannst nauðsynlegt að gera hávaða til að þingmenn vissu af fólkinu úti.“ Hún hefur líka verið virk á öðrum vettvangi. Á dögunum hélt hún til dæmis erindi á styrktar- samkomu fyrir nímenningana sem ákærðir eru fyrir árás á Alþingi. Henni er mikið niðri fyrir þegar það ber á góma. „Mér finnst óskap- lega rangt að ákæra nímenning- ana. Hámark væri að segja að þeir hefðu brotið gegn valdstjórninni, sem er þó líka tæpt. En að ætla sér að ákæra þetta unga fólk fyrir árás á Alþingi, nánast fyrir land- ráð, er yfirgengilegt. Ég sé ekki að dómarinn geti annað en vísað mál- inu frá og mér finnst að saksókn- ari hefði átt að draga ákæruna til baka. Það er mjög sorglegt hvern- ig þetta mál hefur þróast. Ég hélt ræðu niðri á Austurvelli og lagði mikla vinnu í að kynna mér alla málavexti. Mín skoðun er sú að saksóknari hefði átt að draga ákæruna til baka, þetta hafi ekki verið nógu grundað. Myndefni af staðnum styður það.“ Happ að hér varð vinstri stjórn Hún telur eigi að síður það hafa verið happ að hér komst á vinstri stjórn. „Ekki hefði ég viljað að hægri mennirnir hefðu komist í þá aðstöðu að hjálpa sínu liði að kom- ast undan. Þótt maður eigi ekki að ætla öðrum svo ljótt er ég hrædd um að það hefði orðið raunin. Það er grundvallaratriði að hér komst á vinstri stjórn. Hins vegar eru aðstæður svo yfirþyrmandi erfið- ar að engin stjórnvöld geta hjálpað okkur út úr þessu, við verðum að gera það sjálf. Hver og einn verð- ur að hjálpa þessari stjórn með því að axla þær byrðar sem hann getur. Við verðum öll að leggjast á eitt til að komast upp úr þessu. Þetta eru óheyrilegir hlutir sem hafa gerst.“ Hún var full efasemda þegar gengi Besta flokksins fór á flug. „Það vantaði vissulega húmor í kosningabaráttuna en ég verð að viðurkenna að mér leist ekki á blikuna þegar ég sá fylgið vaxa; hugsaði bara með mér út í hvað við værum að fara. En mér finnst þau hafa vaxið jafnt og þétt. Þetta er gott fólk og vel menntað sem við eigum að skipa okkur í fylkingu með og hjálpa. Ég vorkenni þeim að þurfa að taka á sig þá vinnu sem þau þurfa að gera, hún er bæði erfið og ekki jafn skemmti- leg og sú vinna sem þau hafa verið í. Þetta er strit og ég var mjög ánægð þegar Dagur Eggertsson gekk í að aðstoða þau – við eigum öll að gera það.“ Lífið er gott Vilborg er mikið afmælisbarn og hlakkar til morgundagsins, þar sem efnt verður bæði til afmælis- veislu og útgáfuhófs. „Mér finnst alltaf gaman að eiga afmæli og það ætlar margt gott fólk að fagna þessum áfanga með mér. Það er gaman að verða gamall. Ég man enn þá og get lesið og hlustað, ég er ekki á lyfjum, ekkert að mér nema gigt – en að öðru leyti er ég stálslegin. Lífið er gott.“ Það er gaman að verða gamall Þegar sængurver grannakonu Vilborgar Dagbjartsdóttur skálds kölluðu á ljóð, svaraði hún við kallinu. Á morgun heldur hún upp á áttræðisafmæli sitt sem og útgáfu nýrrar ljóðabókar, Síðdegis. Bergsteinn Sigurðsson ræddi við Vilborgu. VILBORG DAGBJARTSDÓTTIR „Það er gaman að verða gamall. Ég man enn þá og get lesið og hlustað, ég er ekki á lyfjum, ekkert að mér nema gigt – en að öðru leyti er ég stálslegin.“ FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Þú segir: Á hverjum degi styttist tíminn sem við eigum eftir skref fyrir skref færumst við nær dauðanum - en ég þræði dagana eins og skínandi perlur upp á óslitinn silfurþráðinn Á hverju kvöldi hvísla ég glöð út í myrkrið: Enn hefur líf mitt lengst um heilan dag Úr Síðdegi. ➜ VIÐHORF Ég fór í Háskólabíó og horfði á Karlar sem hata konur og ég las bókina. Ég gerði þetta af skyldurækni, til að setja mig inn í þetta. Og þvílíkt rusl!

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.