Fréttablaðið - 17.07.2010, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 17.07.2010, Blaðsíða 44
24 17. júlí 2010 LAUGARDAGUR ➜ ALGENG DÆMI LAG ALGENGUR MISSKILNINGUR: RÉTT TEXTABROT: Purple Haze með Jimmy Hendrix. „Excuse me while I kiss this guy.“ „Excuse me while I Kiss the sky.“ Beast of Burden, Rolling Stones. „I’ll never leave your pizza burning.” „I’ll Never Be Your Beast of Burden.“ Killing me Softly, Lauryn Hill. „Strummin’ my brain with his fingers.“ „Strummin’ my pain with his fingers.“ Smoke on the Water, Deep Purple. „Slow talking Walter, the fire-engine guy“ „Smoke on the Water, Fire in the Sky.“ I´m a Believer, Monkees „When I needed sunshine on my brain.“ „When I needed sunshine I got rain.“ Summer of 69, Bryan Adams. „I got my first real sex dream.“ „I got my first real six string:“ (Sungið um gítar) Óborganlegur skilmisingur Að syngja með þekktum dægurlögum er eitthvað sem flestir hafa stundað. En stundum svíkur eyrað heilann og textinn hljómar ekki alveg eins og textahöfundurinn hafði hugsað hann. Júlía Margrét Alexandersdóttir fékk nokkra Íslendinga til að rifja upp hvaða dægurlagatexta þeir hefðu misskilið. HALTU ÞIG FJARRI! Ég hélt að „Stairway to heaven“ væri sungið „Stay away from heaven“ og söng það alltaf þannig – hástöfum. Andrés Jónsson almannateng- ill. ÞREYTULEGAR GRÆNMETISÆTUR Ég hélt alltaf að Paul og félagar í Wings væru að syngja „I´m looking tired“ og fannst það fullkom- lega eðlilegt. Þetta var einhvern veginn þannig lag og Paul og Linda náttúrlega bæði grænmetisætur, sem mér finnst einmitt oft líta frekar þreytulega út. Síðar komst ég að því að þau sungu víst Mull of Kintyre. Nanna Rögnvaldardóttir matgæðingur. NAUTUM FYRIRGEFIÐ Lengi vel fór ég þannig með Faðir vorið að í stað þess að ég lofaði að fyrirgefa vorum skuldunautum, sagði ég „svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldugu nautum.“ Jóna Ingibjörg kyn- og hjúkrun- arfræðingur. MINNTI Á BRENNIVÍN Ég söng með laginu Vertu ekki að plata mig: „Ég sá hana í horninu á Mánabar, hún minnti mig á brennivín.“ Réttur er text- inn auðvitað: „hún minnti mig á Brendu Lee.“ Regína Ósk söngkona. DJÖFULL Á HIMNUM Þegar ég var krakki heyrði ég oft lagið „Devil in Disguise“ með Elvis Presley í útvarpinu. Mér heyrð- ist hann vera að synga “You´re the Devil in the Sky, Oh yes you are“ í viðlaginu. Af einhverjum ástæð- um leiðréttist þessi misskilningur ekki fyrr en ég var að nálgast þrítugt. Ágúst Borgþór Sverrisson rithöfundur. KOMDU KALL Ég man ekki eftir neinum dægurlagatext- um sem ég misskildi en hins vegar einn sem tengist sálmi. Gömul kona sagði eitt sinn við mig: „Þegar ég dey, þá vil ég láta syngja yfir mér: Kallinn er kominn.“ Hún átti auðvitað við útfararsálminn fallega, Kallið er komið. Þetta var samt ekki út í hött hjá þeirri gömlu því líklega var hún að hugsa um manninn með ljáinn! Eðvarð Ingólfsson sóknarprestur. ÞVÆLDIST HÉR INN Ég man ekki sjálf eftir að hafa misskilið texta en góður vinur minn var trúbador um tíma og tók gjarnan lagið Blindsker. „Ég sest niður með kaffið, set Bowie á fóninn. Þitt uppáhaldslag var „Wild is the Wind“ varð í hans meðförum: „Þitt uppáhaldslag var „Þvældist hér inn.“ Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sjónvarpskona. GEKK UM LÓUGIL Ég hef misskilið alveg haug af textum í gegnum tíðina. Ég hélt alltaf að „Ó, María, mig langar heim“ væri í raun og veru kvenmannsnafnið „Ómaría“ alveg eins og Ómar. Í laginu „Ég er á leiðinni“ er til dæmis sungið: „Mér gengur nógu illa að skilja sjálfan mig.“ Ég söng alltaf: „Ég geng um Lóugil til að skilja sjálfan mig!“ Hvar ætli þetta Lóugil sé á landinu? Freyr Eyjólfsson útvarps- maður. LEIKUR Í HANGANDI RÓSUM Í laginu Vor í Vaglaskógi er þessi hending: „Leikur í ljósum lokkum og angandi rósum.“ Ég skipti laginu þannig að ég söng „Leikur í ljósum, lokkum og hangandi rósum“ og hélt að þetta væri einhvers konar dans innan- dyra í ljósum og gat þess vegna ekki skilið hvað þetta með lokkum og hangandi rósum þýddi. Jú, svo sem með hangandi rósir, en lokka einhvern til sín eða? Örn Árnason leikari. Rockwood Premier 2317G 12 fet. Rockwood 191XR OFF ROAD 10 fet. Verð: 2.998.000kr Verð: 2.798.000krVerð: 2.698.000kr Rockwood Premier 1904 10 fet. Ríkulegur staðalbúnaður í Rockwood fellihýsum Opnunartími: Mán - Föst. kl: 10-18 Laug - Sun. kl: 12-16 • Galvaníseruð grind • Evrópskar þrýstibremsur • Upphitaðar 12 cm springdýnur • Tjakkar með sandskeifum á öllum hornum • Góð fjöðrun, fjaðrir sem henta vel á íslenskum vegum • Útdraganleg trappa við inngang • Breitt nefhjól (uppblásið gúmmídekk) • Handbremsa og varadekk m/hlíf • 50 mm kúlutengi • 220v tengill (blár skv. reglugerð) • Útvarp með geislaspilara, hátalarar inni og úti • Radial dekk / 13” álfelgur • Vatnsh. öndunardúkur í svefnrými • Dometic kæliskápur XL 2,5 cubic • SMEV ryðfrí gaseldavél m/rafstarti • 2 gaskútar • Gasviðvörunarkerfi • Öflug Truma combi 4 miðstöð m/heitu vatni • Stór loftlúga m/þriggja hraða viftu • Skyggni (markísa) • Skyggðir gluggar • Flugnanet f. gluggum og hurð • Gardínur f. gluggum og svefnrými • 2ja feta geymsluhólf • Stórt farangurshólf • Voldugir öryggisarmar fyrir þak og tjald • 3 x 12 volta loftljós og 1 x útiljós • 1 x færanlegt lesljós með viftu • 110 amp rafgeymir • Heitt og kalt vatn, tengt • Rafmagnsvatnsdæla • 86 lítra vatnstankur • Klósett með hengi Fossháls 5-7 • 110 Reykjavík • Sími 551 5600 • utilegumadurinn.is Rockwood fellihýsi fyrir Íslenskar aðstæður Torfæru útgáfan frá Rockwood fyrir þá sem vilja komast lengra. m/ útdraganlegri hlið. • upphækkað á 15” dekkjum • sér styrkt grind og sterkari hjólabúnaður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.