Fréttablaðið - 12.08.2010, Qupperneq 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI12. ágúst 2010 — 187. tölublað — 10. árgangur
FIMMTUDAGUR
skoðun 20
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
TÍSKUHÖNNUÐURINN MARC JACOBS mun
líklega hanna tískulínu fyrir konur sem nota stærðina 14
og þar yfir. Hann yrði þá fyrsti hátískuhönnuðurinn sem þorir að taka þetta mikilvæga skref.
Verðhrun í stórum stöfum Í minni stöfum minnst 60% afslátturVERÐ-
HRUN
60–80% AFSLÁTTURAF ÖLLUM VÖRUM OG SKÓM
Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi is
ÚTSALAwww.gabor.is
Sérverslun með
„Ég er í Cheap Monday-buxum og
köflóttri, gulri og svartri skyrtu yfir Bítlabol,“ segir menntaskóla-neminn Þorgerður Edda Eiríks-dóttir sem segist halda talsvert mikið upp á Bítlana. „Ég get alveg
sagt að þetta séu svolítil uppá-haldsföt. Mér finnst þessi skyrta
líka þægileg og bolurinn flottur.“En hvernig myndirðu lýsa stíln-um þínum? „Hann er afslappað-ur, svolítið „vintage“ og rokkaðurnúna upp á síðkastið “g ð
Ég á tímabil þar sem ég er bara
í blómapeysum og núna er smá
rokktímabil.“ Þorgerður segist fylgjast mikið með tísku. „Já, mér finnst mjög
gaman að fylgjast með og ég skoða blöð og tískusíður,“ upplýsir Þor-gerður sem segir talsverðan tíma fara í áhugamálið. Hún segir áhug-ann þó hafa aukist eftir að hún
byrjaði í framhaldsskóla en húgengur í M
mættu þær oftast í einhverjum joggingbuxum og hettupeysu.“Þorgerður fór í enskuskóla til
Englands í tvær vikur í sumar.
Hvernig finnst þér munurinn á
tískunni í Englandi og hér heima? „Það er ekki alveg sama tískan.
Þeim fannst fötin sem við göngum í mjög skrýtin,“ segir Þorgerðurog útskýrir það á
Bretarnir í skólabúningi
Þorgerður Edda Eiríksdóttir segist ganga í gegnum mismunandi tískutímabil og er ekki föst í einum stíl.
Henni finnst stelpurnar í Menntaskólanum í Reykjavík vel til hafðar og finnst því gaman að vera fín þar.
Þorgerður Edda Eiríksdóttir er í Bítlabol undir köflóttu skyrtunni en hún segist halda mikið upp á hljómsveitina. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Fartölvur
veðrið í dag
VIÐSKIPTI Þrjátíu og fjögurra ára
verslunarsögu tískuverslunarinn-
ar Sautján við Laugaveg lýkur í
árslok. „Við stefnum á að skipta
um húsnæði um áramótin,“ segir
Svava Johansen, eigandi NTC
sem rekur búðina.
Höfuðstöðvar NTC hafa verið á
Laugavegi 91 síðan árið 1991 en
það hús mun standa autt frá og
með áramótum. Svava er búin að
taka gamla Skífuhúsnæðið við
Laugaveg 26 á leigu en ætlar ekki
að opna Sautján þar.
Verslunin Eva flyst á Laugaveg
26 fyrir jólin en þar á einnig að
opna nýja skó búð, Eva Skór.
Sautján verður áfram starf-
rækt í Kringlunni og Smáralind-
inni. - áp/sjá síðu 50
Svava í flutningum:
Sautján kveður
miðbæinn
Sigur í Pétursborg
Flensborgarkórinn
vann fyrstu verðlaun í
alþjóðlegri kórakeppni.
tímamót 26
Ofsóttur á Myspace
Tónlistarmaðurinn Hjörtur
Geirsson hefur lent í ýmsum
hremmingum á Myspace.
fólk 50
Sauma og skapa
Tvær framtakssamar Skaga-
stúlkur opnuðu í sumar
hönnunar verslunina
Origami á Akranesi
allt 4
Opið til 21
SÓL OG HITI A-LANDS Í dag verð-
ur fremur hæg suðvestlæg átt og
rigning á vesturhelmingi landsins
en yfirleitt hægari og bjart A-til. Hiti
10-20 stig, hlýjast A-lands.
VEÐUR 4
15
14
15
19
16
HEILSA Sóttvarnaráð lagði inn
beiðni til heilbrigðisráðuneytis-
ins um niðurgreiðslu á smokkum
árið 2004. Beiðnin hefur legið á
borði ráðherra í sex ár án þess að
ákvörðun hafi verið tekin. Smokk-
ar eru í hæsta skattþrepi, með
25,5 prósenta virðisaukaskatti.
„Við höfum kallað eftir upp-
lýsingum frá fjármálaráðuneyt-
inu og landlækni varðandi þetta
mál,“ segir Álfheiður Ingadóttir
heilbrigðisráðherra. Fjármála-
ráðuneytið tjáði Fréttablaðinu
að tekjur ríkisins af sköttum á
smokkasölu fyrir árið 2009 hafi
verið um 25,6 milljónir.
Haraldur Briem sóttvarnalækn-
ir segir að afar mikilvægt sé að
koma í veg fyrir frekari útbreiðslu
kynsjúkdóma og leiðirnar til þess
séu þrjár: Fækka rekkjunaut-
um, leita læknis um leið og ein-
hver einkenni koma fram og nota
smokkinn. „Það myndi draga
gríðarlega úr tíðni ýmissa kyn-
sjúkdóma ef Íslendingar væru
duglegri að nota smokkinn,“ segir
Haraldur. „Það er verið að skoða
þessi mál í fullri alvöru.“
Á síðasta ári greindust 13
manns með HIV-smit á Íslandi, en
fleiri hafa ekki greinst síðan árið
1985, er þeir voru 16. Varaformað-
ur HIV Ísland sagði í samtali við
Fréttablaðið að hann teldi verð og
aðgengi að smokkum koma í veg
fyrir notkun þeirra hjá ungu fólki.
- sv / sjá síðu 16
Smokkar enn á borði
ráðherra eftir sex ár
Sex ár eru síðan sóttvarnaráð bað heilbrigðisráðuneytið um niðurgreiðslu á
smokkum til ungmenna. Ráðherra kallar nú eftir upplýsingum um málið.
DÓMSMÁL „Nýjar upplýsingar hafa komið fram í
rannsókninni á Kaupþingi. Það gerist þegar mál
ganga lengra og fleira kemur í ljós. Það er nú orðið
stærra og flóknara,“ segir Ólafur Þór Hauksson,
sérstakur saksóknari um rannsóknina á meintum
brotum stjórnenda Kaupþings í aðdraganda banka-
hrunsins.
Ólafur vill að öðru leyti ekki tjá sig um gögnin en
bætir við að eðlilegt sé að ný gögn berist í málum á
borð við Kaupþingsrannsóknina. „Þegar rifið er ofan
af einhverju kemur alltaf eitthvað í ljós. Málin hafa
tilhneigingu til að vinda upp á sig,“ segir hann.
Þrír af æðstu stjórnendum Kaupþings voru í byrj-
un maí handteknir, úrskurðaðir í gæsluvarðhald, og
síðar í farbann ásamt fjórða manni, í tengslum við
rannsókn á meintum brotum þeirra. Sigurður Einars-
son, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, sinnti
ekki kvaðningu sérstaks saksóknara að koma í yfir-
heyrslur vegna málsins. Handtökuskipun var gefin út
á hendur honum í kjölfarið. Sigurður hefur enn ekki
sinnt kvaðningunni, segir sérstakur saksóknari.
„Þetta er ekki óþekkt í rannsókn á sakamálum,“
segir Ólafur, en bætir við að embættið hafi ákveðnar
leiðir til að ná í menn. - jab
Sérstakur saksóknari segir ný gögn komin fram í rannsókninni á Kaupþingi:
Málið orðið flóknara en áður
VIÐSKIPTI Bandaríski lyfjarisinn
Pfizer stefndi Actavis í Dela-
ware-ríki í Bandaríkjunum í
gær og krefst þess að fyrirtækið
hætti við að setja samheitalyf,
sem lækkar kólesteról og dregur
úr hættu á hjartasjúkdómum, á
markað.
Lyf Actavis heitir Atorvas-
tatin og kom á markað hér fyrir
fjórum árum. Lyf Pfizer er eitt af
mest seldu lyfjum heims og hefur
fyrirtækið haft einkaleyfi á því
síðastliðin ellefu ár. Það rennur
út árið 2017. - jab
Lyfjarisinn Pfizer gegn Actavis:
Vill hindra sölu
á samheitalyfi
SVAVA JOHANSEN Flutningar standa fyrir
dyrum hjá Svövu Johansen, eiganda
Sautján. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Misjöfn frammistaða
Íslenska ungmennalandsliðið
var frábært en A-landsliðið
olli miklum vonbrigðum.
sport 42 & 44
BARIST GEGN STRAUMNUM Vatnavextir í Markarfljóti og aska úr Eyjafjallajökli, sem safnast
hefur í farveg árinnar, urðu til þess varnargarðar brustu og áin flæddi yfir veginn inn í Þórsmörk. Stórvirkar vinnu-
vélar voru í gær notaðar til að gera lagfæringar á veginum og koma böndum á ána. FR´ÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Sérblað • Fimmtudaginn 12. Ágúst 2010
Fartölvur