Fréttablaðið - 12.08.2010, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 12.08.2010, Blaðsíða 40
 12. ÁGÚST 2010 FIMMTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● tölvur golla í skólann! Þú færð golla töskurnar um allt land! Það borgar sig að fara sér hægt þegar kaupa á tölvu því margt þarf að hafa í huga svo kaupin verði farsæl. „Áður en tölvukaup fara fram þarf notandinn fyrst og fremst að gera sér grein fyrir í hvað hann ætlar að nota tölvuna. Flestir nota tölv- ur sínar samhliða til heimabrúks, náms og vinnu og því mikilvægt að vinnsluminnið sé gott. Ef setja á inn ljósmyndir og vídeó, ásamt því að horfa á kvikmyndir, er lág- mark að tölvan búi yfir 4 gíga- bæta vinnsluminni. Á tilboð- um má oft sjá tölvur með eins til tveggja gígabæta minni, en slíkt dugar aðeins ef menn ætla sér að vera bara í ritvinnslu,“ segir Sig- urður Haraldsson, kerfisstjóri hjá Fjármálaeftirlitinu og tölvukenn- ari hjá Tölvuskólanum iSoft. „Skjáupplausn þarf einnig að vera góð. Ef hún er lítil getur verið mjög pirrandi að skoða ljós- myndir og horfa á kvikmyndir, og leiðigjarnt að þurfa að skrolla langt niður til að lesa fréttasíð- urnar. Í dag gegna tölvur einn- ig félagslegu hlutverki og mikil- vægt að kynna sér líka vel upp- lausn vefmyndavéla og hljóðnema áður en kaupin fara fram,“ segir Sigurður og bætir við að gott sé að athuga hvort skjákort tölvunn- ar sé með sér vinnsluminni svo það eyði ekki vinnsluminni tölv- unnar. „Diskapláss skiptir einnig máli og gott að hafa sæmilega stóran harðan disk, en á honum geymir maður öll gögn tölvunnar. Í dag eru þó flakkarar orðnir tiltölulega ódýrir og auðvelt að flytja gögn á milli. Þá er stærð örgjafa líka mikilvæg og alltaf betra þegar örgjafi er með tveimur kjörnum (Dual Core), en langflestar tölvur eru búnar slíkum búnaði í dag.“ Sigurður segir að með kaupum á viðurkenndum merkjum tryggi kaupandinn sér endingarbetri vöru og betri þjónustu. „Að síðustu skal nefna endingu batterís sem skiptir miklu ef fólk ætlar sér að vera með tölvuna á ferð og flugi. Tíminn líður hratt í tölvunni og lágmark að batterí þoli minnst fjóra til fimm tíma í vinnslu. Þá fylgir flestum tölv- um Windows 7 Home-stýrikerf- ið, en sumir skólar gera kröfu um Windows 7 Professional og þurfa nemendur að gera sér grein fyrir því áður en þeir festa kaup á nýrri tölvu.“ - þlg Farsælast að vanda valið Sigurður Haraldsson er kerfisstjóri hjá FME og tölvukennari hjá Tölvuskólanum iSoft. Hann hefur víðtæka þekkingu og reynslu af tölvum og tölvunotkun nemenda sem og fyrirtækja og starfaði árum saman sem kerfisstjóri Menntaskólans við Hamrahlíð. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Samkomulag um að afstýra banni á Blackberry-símanum í Sádi-Ar- abíu er í augsýn. Breska ríkisút- varpið hefur þetta eftir þarlendum embættismönnum. Sádi-Arabía ætlaði að banna símann síðasta föstudag vegna þess að hann sendir dulkóðuð skilaboð sem ekki er hægt að fylgj- ast með. Embættismenn sögðu að samkomulagið fælist í því að land- ið hefði aðgang að kerfi sem réði dulmálið. Líklegt er að sérstakur netþjónn verði settur upp í landinu sem hluti af samkomulaginu. Þarlend- ur embættismaður sagði að verið væri að kanna hvernig þess hátt- ar netþjónn myndi virka. Tilkynnt var um að þjónustu- starfsemi við Blackberry hefði legið niðri í nokkrar klukkustundir á föstudag en um 700 þúsund not- endur Blackberry eru í Sádi-Arab- íu. - mmf Samkomulag í augsýn Um 700 þúsund notendur Blackberry eru í Sádi-Arabíu. Venjulegt fólk getur verið betra í sumum tímafrekum verkefnum sem nauðsynlegt er að rannsaka heldur en ofurtölvur samkvæmt nýrri rannsókn. Í rannsókninni, sem birt var í blaðinu Nature, var venjulegt fólk betra en tölvuforrit gert af vís- indamönnum í að finna út lögun flókinna próteina. Í mörgum fræði- greinum eru vísindamenn farnir að láta venjulegt fólk með nægan tíma vinna erfiðisvinnu þeirra með góðum árangri. Í grein Nature lék fólk leikinn Foldit sem gengur út á að byggja upp flókin prótein í þrí- vídd en þurfa ekki að þekkja nokk- uð til raungreina. Leikmenn höfðu betur en tölvan í fimm af tíu skipt- um en tölvan sigraði tvisvar sinn- um. David Baker, sem hannaði leikinn, þótti mikið til leikmann- anna koma. - mmf Venjulegt fólk sigrar tölvuna Þrátt fyrir að tölvur hafi sigrað manns- hugann í skák er ekki þar með sagt að svo sé á öllum sviðum. NORDICPHOTOS/GETTY ● ÞRÁÐLAUSAR TÖLVUR Í FRAMTÍÐINNI Í lok júlí samþykktu Samtök um þráðlaust rafmagn staðal sem kallast Qi fyrir þráðlausa rafmagnshleðslu tækja sem nota upp undir fimm vött af orku. Staðallinn er upphafið að þróun sem gæti leitt til þráðlausrar hleðslu rafmagns fyrir fartölvur með tímanum. Í ágúst fengu samtökin svo vottun fyrir þjónustu um þráðlausa hleðslu sem þýðir að nú geta fyrirtæki hafið þróun og sölu vara með Qi merki á. Samtök- in taka þó fram að staðall er ekki nóg til að gera viðskiptavini ánægða. Á komandi dögum munu samtökin hefja prófanir á þjónustunni sem þýðir að fyrstu vörur sem styðja staðalinn munu koma á markað í haust. - mmf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.