Fréttablaðið - 12.08.2010, Blaðsíða 32
12. ÁGÚST 2010 FIMMTUDAGUR
HP fartölvur taka á sig æ
ferskara útlit. Nýjasta línan
er með hamraðri áferð og
til í nokkrum litum. Ólafur
Tryggvason, vörustjóri neyt-
endalausna hjá Opnum
kerfum, er vel meðvitaður um
þarfir markaðarins.
„Fartölvur eru almennt orðnar
mjög öflugar en nú er að hefjast
skemmtileg þróun í útliti þeirra.
Fólki finnst það líka orðið skipta
miklu máli hvernig fartölvu það
er með, hvað varðar útlit, stærð
og þyngd,“ segir Ólafur. Hann
getur þess að svipuð þróun sé að
eiga sér stað á fartölvumarkaðin-
um og varð í farsímageiranum.
„Maður ólst upp með kassalaga
farsímum sem voru lítið fyrir
augað en síðar fóru símarnir út
í að verða hönnunarvara,“ segir
hann. „Fólk skiptir kannski ekki
um fartölvu jafn oft og farsíma en
það verður samt að „fíla lúkkið“,“
bætir hann við.
Ólafur segir talsverðan mun á
útliti og búnaði fartölva sem not-
aðar séu í fyrirtækjum og hinum
sem einstaklingar velja. Svo lýsir
hann helstu nýjungum á þessu
sviði. „HP kom í haust með nýja
línu af fartölvum sem kallast G-
línan. Þær eru í 15,6“ stærð og
verða til í þrenns konar tækni-
legum og útlitslegum útfærsl-
um. Þær eru með hamraðri áferð
og til í þremur litum, svörtum,
silfurlitum og svokölluðum bis-
cotti-lit – ljósgullinbrúnum.“
Hann nefnir líka öflugri útgáfu
af HP sem kallast Pavillion. „Það
eru 15,6“ tölvur en eru meðal ann-
ars með sjálfstæðu skjákorti og
henta því vel til grafíkvinnu og
fyrir tölvuleiki,“ lýsir hann.
Fartölvur í dag eru í stærðum
frá 10“ upp í 17“ að sögn Ólafs. Sú
síðastnefnda þótti góð í borðtölv-
um fyrir fáum misserum. Ef horft
er til skólafólksins segir hann 13-
15 tommu tölvur þykja meðfæri-
legastar. „Maður sér að fólk sem
er orðið vant því að nota tölvur
við skólavinnu fer frekar í minni
tölvurnar,“ segir hann. „Ein af
nýjungunum er 13“ vél sem hent-
ar þeim sem eru í mikilli glósu-
vinnu. Hún er lítil og nett en þó
með alveg 100% fullri stærð lykla-
borðs og stendur stærri vélunum
ekkert að baki í innihaldslýsingu.
Er samt sem áður léttari, yfirleitt
undir tveimur kílóum og með frá-
bærri rafhlöðuendingu.“ Hann
getur í lokin um 10 tommu fartölv-
ur, sem hann segir vera hálfgerð-
ar „kaffihúsavélar“. Skyldi fólk
ekki þurfa að hafa netta putta til
að pikka á þær? „Nei, þeir hjá HP
hafa verið ansi lunknir að koma
fyrir lyklaborðum í góðri stærð,“
fullyrðir Ólafur. „Þeir sem sækja
í þær vélar eru helst þeir sem eru
mikið á ferðalögum og vilja geta
verið með vél sem þeir taka upp
hér og þar og allsstaðar.“
Útlit tölvunnar skiptir máli
Ólafur Tryggvason vörustjóri innan um nýjustu tölvurnar sem eru í svokallaðri G-línu
og eru til í þremur litum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Opin kerfi, dreifingar- og þjónustuaðili HP á Íslandi, tryggja landsmönnum aðgengi að HP tölvubúnaði og
þjónustu með nánu samstarfi við söluaðila um allt land.
HP TÖLVUBÚNAÐUR OG ÞJÓNUSTA UM ALLT LAND
HP dv6-2110
WH551EA
15.6” HD LED Brightview (1366x768)
AMD Turion II Dual Core M520
4 GB
640 GB 5400 rpm
1GB skjákort, ATI Radeon™ HD 4650
Sjónvarpskort og fjarstýring
2ja ára HP ábyrgð, 1 ár á rafhlöðu.
169.900
HP G62-a14
XC737EA
15.6” HD LED Brightview (1366x768)
AMD Athlon II P320
4 GB
500GB 7200 rpm
ATI Mobility Radeon™ HD 4250 skjástýring
2ja ára HP ábyrgð, 1 ár á rafhlöðu.
139.900
HP G62-a16
XA819EA
15.6” HD LED Brightview (1366x768)
Intel® Pentium® P6000 processor
4GB
320GB 7200 rpm
Intel® HD-grafik
2ja ára HP ábyrgð, 1 ár á rafhlöðu.
119.900
Tegund
Vörunúmer
Skjár
Örgjörvi
Vinnsluminni
Harður diskur
Skjákort/stýring
Ábyrgð
Tegund
Vörunúmer
Skjár
Örgjörvi
Vinnsluminni
Harður diskur
Ábyrgð
Tegund
Vörunúmer
Skjár
Örgjörvi
Vinnsluminni
Harður diskur
Ábyrgð