Fréttablaðið - 12.08.2010, Blaðsíða 21
FIMMTUDAGUR 12. ágúst 2010 21
Sumir undrast, hvers vegna fiskur er ekki ódýrari úti
í búð en raun ber vitni. Menn
hugsa þá sem svo, að það kosti
grásleppukarlana varla mikið að
sækja sjóinn til dæmis frá Ægi-
síðunni í Reykjavík og koma afl-
anum í land. Hvers vegna fæst
soðningin ekki við kostnaðar-
verði? Það stafar af því, að rétt
fiskverð ræðst af framboði og
eftirspurn. Fiskimennirnir geta
fengið heimsmarkaðsverð fyrir
aflann. Þeir væru að fleygja
peningum, ef þeir seldu fiskinn
á kostnaðarverði, langt undir
heimsmarkaðsverði. Fiskur er
munaðarvara úti í heimi. Fisk-
verð er því hátt og á trúlega eftir
að hækka enn frekar, eftir því
sem fiskstofnar og fiskafli halda
áfram að rýrna sumpart vegna
ofveiði.
Mishátt bensínverð
Sama máli gegnir um bens-
ín og bensínverð. Norðmönnum
dettur ekki í hug að selja bensín
heima fyrir á niðursettu verði.
Mörg önnur olíuframleiðslulönd
freistast samt til að selja olíu og
bensín heima fyrir á kostnaðar-
verði, langt undir heimsmarkaðs-
verði. Lengst gengur ríkisstjórn
Venesúelu undir herforingja-
stjórn Hugos Chavez forseta.
Þar kostar bensínlítrinn röskan
túkall – tvær og fjörutíu – við
dæluna. Vatn kostar meira. Bens-
ínsalan á gjafverði í Venesúelu er
glapræði, þar eð hægt væri að fá
heimsmarkaðsverð fyrir bensín-
ið og nota mismuninn til að bæta
lífskjör almennings. Líbía og
Sádi-Arabía eru litlu skárri. Þar
kostar bensínlítrinn 17 krónur
og 19 krónur, brot af heimsmark-
aðsverði. Tölurnar eru frá 2008.
Afleiðingin er of mikil bensín-
notkun, of stórir bílar, of mikil
umferð, óhreint andrúmsloft.
Mismunun
Bensínverð undir heimsmarkaðs-
verði jafngildir niðurgreiðslu á
bensíni. Niðurgreiðslan mismun-
ar fólki með því að binda hjálp-
ina við bensínotkun frekar en að
leyfa fólkinu að ráða því sjálft,
hvað það gerir við peningana.
Niðurgreiðsla bensíns skilar fólki
minni lífskjarabótum en jafngild-
ur styrkur í beinhörðum pening-
um myndi gera. Hægt væri að
reiða fram sömu hjálp með því
að leggja gjald á bensín til að
hækka bensínverð heima fyrir
upp í heimsmarkaðsverð og nota
tekjurnar af gjaldinu til að lækka
virðisaukaskatt og vöruverð á
móti. Væri það gert, myndu fæst-
ir nota allan muninn til að kaupa
sér dýrara bensín, heldur myndi
fólk þá heldur draga úr akstri,
nota strætisvagna, ganga, búa
nær vinnustöðum sínum og nota
afganginn til að kaupa sér ýmis-
legt annað.
Væri niðurgreiðslan reidd
fram með því að nota tekjurn-
ar af bensíngjaldi til að efla
heilbrigðisþjónustu og skóla-
hald, væri niðurgreiðslu bensíns
umbreytt í framlög til heilbrigð-
is- og menntamála. Hvort tveggja
er þarft og æskilegt, enda hefur
almannavaldið brýnu hlutverki
að gegna í heilbrigðis- og mennta-
málum. Niðurgreiðsla bensíns
er aftur á móti óþörf og óæski-
leg, þar eð hún stuðlar að dreifðri
byggð, kraðaki og mengun.
Á réttri leið
Nokkur olíulönd hafa látið sér
segjast og hækkað olíuverð með
gjaldheimtu til hagsbóta fyrir
almenning. Til þess þurfti kjark. Í
Nígeríu var lengi vel ekki við það
komandi að hækka bensínverð, eða
réttar sagt draga úr niðurgreiðslu
bensíns. Yfirvöld óttuðust, að
almenningur myndi mikla fyrir
sér hækkun bensínverðs án þess
að reikna með lífskjarabótinni,
sem skynsamleg notkun bensín-
gjaldsins gæti leitt af sér. Yfir-
völdin tóku sér tak. Verð á bensín-
lítra í Nígeríu hefur fjórfaldazt frá
1998 eins og í Indónesíu og er nú
hærra en í Bandaríkjunum, en það
er þó þriðjungi lægra en í Gönu í
næsta nágrenni. Umferðin í Accra,
höfuðborg Gönu, hefur alltaf verið
léttari en í Lagos í Nígeríu, þar
sem mikill fjöldi fólks þurfti að
eyða tveim til þrem klukkustund-
um á dag á lúshægri leið sinni til
og frá vinnu eftir „hraðbrautum“
með fjórar eða fimm akreinar til
hvorrar áttar. Bílarnir siluðust
áfram á gamla bensínverðinu. Nú
er umferðin greiðari. Það er fram-
för.
Rússar hafa þrefaldað bensín-
verð við dæluna frá 1998. Bens-
ínlítrinn þar austur frá kostar nú
helmingi meira en í Bandaríkj-
unum, en helmingi minna en hér
heima. Lítrinn kostar nú (2008)
tæpar 70 krónur í Bandaríkjun-
um á móti röskum 200 krónum
hér (2010). Í Mexíkó hefur bensín-
verðið tvöfaldazt frá 1998. Í Alsír
og við Persaflóa hefur bensín-
verðið staðið í stað langt undir
réttu verði. Íranar hafa sexfald-
að bensínverðið hjá sér frá 2006.
Engin vettlingatök þar.
Hvað kostar bensínið?
Þorvaldur Gylfason
Prófessor
Í DAG
Niðurgreiðsla bensíns er aftur á móti
óþörf og óæskileg, þar eð hún stuðlar
að dreifðri byggð, kraðaki og mengun.
Mjólkurmálið kallar á endurskoðun
búvörulaga
Þung rök hníga að því að það muni ekki duga til að
breyta því frumvarpi sem nú liggur fyrir, eða fella það
– einokun á mjólkurmarkaði mun ekki hverfa við það.
Mér virðist því óhjákvæmilegt að nú verði farið í allsherj-
ar endurskoðun á búvörulögunum að undangenginni
nýrri stefnumótun þar sem hagsmunir neytenda verða
metnir til jafns við aðra hagsmuni (að almannahagsmun-
ir verði ekki túlkaðir sem hagsmunir bænda eingöngu),
og að virtu atvinnufrelsi og jafnræðissjónarmiðum.
Heildarendurskoðun getur tekið sinn tíma, og hún kallar
að sjálfsögðu á víðtækt samráð. Í millitíðinni þarf að
finna pólitíska lausn gagnvart því frumvarpi sem nú
liggur fyrir og ná tímabundinni sátt í málinu.
blog.eyjan.is/olinath
Ólína Þorvarðardóttir
Hvað hefði einkarekið fyrirtæki gert?
Ætla má, vegna vinsælda Spaugstofunnar, að auglýs-
ingatekjur sem af miklu áhorfi leiða, séu umtalsverðar.
Það hljómar því ekki sem viðskiptaleg ákvörðun að slá
Spaugstofuna af.
Það er umhugsunarefni hvort einkarekin sjónvarps-
stöð hefði hætt að sýna vinsælasta sjónvarpsþáttinn sinn
vegna fyrirmæla um hagræðingu í rekstri. Ákvörðunin
sýnist dæmigerð ákvörðun opinbers fyrirtækis sem slær
af það sem vitað er að verður óvinsælast og veldur mestri
óánægju og bera fyrir sig hagræðingarkröfu.
Nema að sjónvarpsstjórinn sé gegnum tíðina búinn að fá
slíkar kvartanir frá valdhöfum hvers tíma vegna þáttarins að
honum þyki kjörið tækifærið að hætta við þáttinn, losna
þar með við kvartanirnar og jafnvel þóknast valdhöfunum.
doggpals.blog.is
Dögg Pálsdóttir
AF NETINU
DUNLOP
Fóðruð og heilsteypt með grófum sóla.
Létt og hlý. Þola -20°C.
thermal lined stígvél
Verð: 6.800 kr.
(Stærð: 19-28)
Verð: 7.800 kr.
(Stærð: 29-37)
MÍMIR
pollagalli - sett
MÍMIR
pollagalli - sett
Flísfóðraður & vatnsheldur.
Léttur og lipur.
Flísfóðraður & vatnsheldur.
Léttur og lipur.
Verð: 11.500 kr.
(Stærð: 86-116)
Verð: 11.500 kr.
(Stærð: 86-116)
PU efni PU e
fni
PU efni
NÝ SALATLÍNA FRÁ
SÓMA SEM BYGGÐ ER
Á LANGRI REYNSLU
AF SAMLOKUGERÐ
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
Allt sem þú þarft…